Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 37

Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 Elsku amma mín, kletturinn minn í hafinu. Það er erfitt að koma því í orð hversu þakklát ég er fyrir að hafa átt þig sem ömmu, sam- band okkar var einstakt. Það er skrýtið að geta ekki tekið upp símann og hringt í þig en ég veit að nú líður þér vel. Þú ert komin á fallegan stað og þarft ekki að hafa áhyggjur af neinu, við spjörum okkur. Þú hefur kennt okkur svo margt og býrð í hjarta okkar allra. Við eigum svo margar góðar minningar saman. Sem barn var ég mikið hjá þér bæði í Hraunbæ og uppi á Varmalandi og sem unglingur í Vogatung- unni í Kópavogi. Allt mitt líf hefurðu alltaf verið til staðar fyrir mig og mína. Einhvern veginn alltaf rétt manneskja á réttum tíma á réttum stað. Þú hefur hjálpað mér með allt milli himins og jarðar. Ráðleggingar frá þér voru góðar, þú varst svo yfirveguð, skynsöm og úrræða- góð. Þú varst þolinmóð við börn og ég man eftir því frá því ég var pínulítil að þú gafst okkur börnunum alltaf eitthvert hlut- verk og reyndir að kenna okkur rétt verklag, það var þér mik- ilvægt. Þú kenndir okkur líka að gera hversdagslega hluti skemmtilega með réttu hugar- fari og að það væri í raun lífið, að hafa gaman að hversdags- leikanum. Það þyrfti ekki alltaf að vera að gera eitthvað sér- stakt, það ætti að njóta þess sem við þyrftum að gera alla daga. Ég er rík og þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu, ég er þakklát fyrir allan þann tíma sem þú gafst mér, ég er þakk- lát fyrir allt það sem þú kennd- ir mér og gerðir fyrir mig. Þú munt alltaf búa í hjarta mínu og ég mun reyna eftir bestu getu að miðla því sem þú kenndir mér til minna. Hvíl þú í friði, elsku besta amma mín, og takk fyrir allt. Þín, Þorbjörg Kristjánsdóttir. Olga var áttunda í röðinni af ellefu börnum foreldra okkar, þeirra Margrétar Hjörleifsdótt- ur og Sigurðar Kristjánssonar í Hrísdal. Það gefur auga leið að oft var fjörugt í gamla torfbænum í Hrísdal, þar sem einungis var baðstofa, eldhús, búr og gang- ur. Það var því mikil breyting á öllum heimilisbrag þegar flutt var í nýbyggt íbúðarhús árið 1943. Ég minnist allra bernsku- leikja okkar systranna uppi á Kastalanum ofan við bæinn þar sem við lögðum vegi og margs konar búskapur fór þar fram með leggjum og skeljum, ber- jatínslu uppi í Selgili og alla leið út í Brúarhóla og Sauð- burðsholt. Alls staðar voru ævintýri fyrir æskuna. Jafnvel það að sækja kýrnar niður í Flóa gat orðið ævintýri eins og lífið sjálft. En æskuárin líða og vegir greinast til margra átta, þrátt fyrir það voru ávallt náin tengsl milli okkar systkina. Það var hlutverk Olgu lengst Olga Sigurðardóttir ✝ Olga fæddist 9.ágúst 1932. Hún lést 23. nóv- ember 2015. Útför Olgu fór fram 4. desember 2015. af að vera veitandi og stjórnandi. Það sem einkenndi Olgu alla tíð var já- kvæðni, jafnvægi og traust. Þegar nú líður að leiðarlokum vilj- um við þakka alla hennar vináttu, gestrisni og elsku sem einkenndi alla hennar framgöngu. Við sendum öllum aðstand- endum Olgu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Magdalena, Oddur og fjölskylda. Á lífsins leið kynnumst við oft einstaklingum sem gefa þeim sem þeir velja sér að vin- um umhyggju og er frænka mín dæmi um slíkan einstak- ling. Olga var stór kona, ekki bara af því að hún var ein af Hrísdalssystrum, heldur var hún stór í þeirri merkingu að hún lét eftir sig spor á lífsins vegi, lét kannski ekki mikið yfir sér en bjó yfir fjársjóðum bæði í ræðu og verki. Við sem þekktum hana vitum að með henni hverfur svo margt sem okkur er kært, inn- sýn í veröld sem var, frásagnir, umhyggja og hlýja. Mínar fyrstu minningar um Olgu móðursystur mína eru úr Hraunbæ, sem lítið stelpuskott valsandi um, oft með Söru frænku minni og jafnöldru. Hraunbær var nefnilega pínu- lítill ævintýraheimur, þar var ýmislegt til sem var framandi og skrýtið. Teljarinn undir sím- anum, til að mæla hvað símtalið kostnaði, ó hvað það var spenn- andi að fikta í honum, nú eða að leika sér uppi á lofti, þar var heimur ævintýranna. Minning- arnar eru margar. Olga var nefnilega alltaf til staðar þegar móðir mín glímdi við veikindi sín. Þá var gott að eiga frænku á næsta leiti, frænku sem var alltaf eins og klettur í öllum þeim erfiðleikum. Fyrstu spor mín á vinnu- markaði voru í Hraunbæ, part úr sumri fór ég og hjálpaði til við að þvo línið úr Veiðihúsinu við Norðurá sem Olga sá um að þvo í mörg ár. Þá var mér kennt með móðurlegri hand- leiðslu hvernig ætti að hengja upp á snúru, brjóta saman og strauja. Þær systur, móðir mín og Olga, nutu þess að búa í ná- grenni við hvor aðra, samband þeirra var náið og aldrei bar skugga þar á. Því var missirinn mikill þegar Olga flutti til Reykjavíkur. En þær héldu góðu sambandi, bæði með heimsóknum og löngum símtöl- um. Minnisstæður er einn fal- legur haustdagur árið 2008. Það var glatt á hjalla þrátt fyr- ir að móðir mín væri orðin veik, það var sláturgerð hjá þeim systrum og ég fékk að vera með. Verk sem þeim féll vel, enda vanar matargerð. Þær rifjuðu upp sögur frá Hrísdal, sem var þeim svo kær, og jú, þær höfðu líka skoðanir á mál- efnum, bæði þjóðfélags- og fjöl- skyldulegum. Þarna sást hversu nánar þær voru, vanar að vinna saman og nutu sam- verunnar. Þær voru nefnilega báðar klettar. Olga tók syst- urmissinn nokkrum mánuðum síðar nærri sér en harm sinn bar hún í hljóði líkt og áður, enda búin að sjá margt og kynnast mörgu á sinni ævi. Sá sem skrifar leikrit lífs vors læt- ur okkur ekki í té fullunnið handrit og það kom að því að þessi sýning yrði styttri en við mörg hugðum, nú var kominn tími á að Olga yrði kölluð til nýrra verka. Það var ekki til- viljun að ég þekkti röddina sem sagði mér að nú væri komið að mér að vera til staðar, vera klettur. Olga sagði við mig örfáum dögum fyrir andlátið: „Það er gott fólkið á Brekku.“ Nú er komið að kveðjustund. Efst í huga er innilegt þakklæti til Olgu fyrir það sem hún gerði fyrir mig sem lítið stelpuskott, fyrir tryggð hennar, vináttu og hjálpsemi ekki bara í minn garð heldur í garð fjölskyld- unnar allrar í gegnum tíðina. Góða fólkið á Brekku þakkar fyrir sig. Blessuð sé minning Olgu Sigurðardóttur. Þórhildur Þorsteinsdóttir. Tungumálið skapar Ísland. Hún var trú sínu, kvenrétt- indabaráttu, að treysta grunn- inn, hlúa að þeim sem minna mega sín og að halda vakandi verkkunnáttu og hagkvæmni. Ég kynntist henni þegar hún kom til starfa á Heilsuleikskól- ann Urðarhól 1998. Olga tók að sér starf matráðs og fljótlega kom í ljós að hún kunni ým- islegt fyrir sér. Hún framreiddi dýrindis máltíð á hverjum degi, bakaði brauð og kenndi okkur að nýta afganga. Hún var hlý við börnin og vingjarnleg við samstarfsfólkið sitt. Hún var fróð og ótrúlega minnug. Einu sinni fórum við fjórar saman vestur að Holti í Önundarfirði. Alla leiðina sagði hún frá stað- háttum, fólkinu í sveitunum, lífsbaráttunni áður fyrr og allt- af vissi hún hvað var á bak við næsta fjall. Olga var sístarf- andi, las mikið og naut þess að hafa samneyti við fólk. Hún var æðrulaus og réttsýn, hafði sterkar skoðanir en virti líka skoðanir annars fólks. Takk, elsku Olga, fyrir að vera vin- kona mín, takk fyrir öll góðu samtölin okkar og allt sem þú kenndir mér. Hvíl þú í friði. Ásdís Ólafsdóttir. Í dag kveðjum við Olgu okk- ar. Hún var vinkona og sam- starfsfélagi okkar til margra ára. Olga var góður félagi, hreinskilin, úrræðagóð, ósér- hlífin og mikill dugnaðarforkur. Hún var víðlesin og góð í að segja okkur fréttir af því sem var að gerast í samfélaginu og hafði hún sterkar skoðanir á því. Olga hóf störf í Heilsuleik- skólanum Urðarhóli árið 1998. Hún starfaði fyrstu árin í Stubbaseli, þar sem hún eldaði fyrir um 25 manns. Árið 2000 stækkaði skólinn og sáu þær stöllur Olga og Minna um eldamennsku fyrir um 180 munna og munaði þær ekkert um að bæta því við enda sveitakonur báðar og vanar til verka. Olga vann hjá okkur í Urð- arhóli þar til hún var 79 ára, til ársins 2013. Síðustu árin kom hún tvisvar í viku til að kenna nýju fólki til verka og bakaði brauð fyrir börnin. Starfsorka og persónuleiki hennar skilur eftir spor í sögu skólans og munum við leggja okkur fram við að varðveita þau. Stjórn- endur skólans hafa oftar en einu sinni sent forsetabréf og tilnefnt Olgu til hinnar íslensku fálkaorðu því það hefur hún átt svo sannarlega skilið. Olga var nýtin og einstök í að búa til gersemar úr engu. Efst í huga okkar eru kærleiks- hjörtun sem hún bjó til fyrir jólin úr gömlum gardínum, fatnaði og öðru sem féll til og passaði vel. Hvert hjarta hafði sína sögu og mun veita okkur kærleika og ljúfar minningar um einstaka vinkonu. Hvíl í friði, kæra vinkona. Fyrir hönd starfsfólks Heilsuleikskólans Urðarhóls, Sigrún Hulda Jónsdóttir leikskólastjóri. Einstök kona er að kveðja okkur. Samfylgdin er löng og afar farsæl. Við Þórhallur vorum korn- ung þegar við fórum að fara í Hreðavatnsskála með elsta barnið okkar. Þar voru þá hús- ráðendur Olga móðursystir mín og Leópold sem voru oft nefnd á nafn í fréttum þegar allt varð ófært í Norðurárdal og fólk þurfti hjálp. Sannir vinir við veginn. Við unga parið fengum að gista hér og þar í skálanum eða úti í gestaherbergi. Svo voru dagarnir notaðir í ævintýri á sumrin í ferðir og svo berjat- ínslu en að vetri á sleða eða að ferja með Leópold vistir til fólks sem sat fast í sumarhús- um í sveitinni. Í senn mann- bætandi og þroskandi. Eitt sumar fengum við lán- aðar vistarverur í Grafarkoti og áttum þar þetta fína sumarfrí með Valgerði tengdamóður minni. Er komið var í skálann var Olga á fullu við matargerð, baka brauð, vinna úr kjöt- skrokkum og sjá um að allt væri til staðar í eldhúsinu. Allt gekk upp. Í þessu stóra eldhúsi var mjög langt matborð þaðan sem margir eiga minningar. Bílstjórar og gestir sátu við borðið og var þar næstum aldr- ei mannlaust. Endalaus matar- gerð og umsjón með miklum rekstri var eins og einhver leik- ur í höndum Olgu. Hún var óhemju dugleg og verklagin kona. Börnin þeirra ólust upp í þessu sérkennilega umhverfi og lærðu á mannlífið frá annarri hlið en flestir. Þvílíkur skóli. Foreldrar mínir fóru aldrei um sveitina án þess að stoppa hjá Olgu og Leópold. Þar var gott samband milli vina sem leiddi af sér sterka samstöðu á erf- iðum stundum. Þegar árin liðu byggðu þau sér hús hinum megin við veginn, sem heitir Hraunbær. Þar fengum við að gista uppi á kvisti í mörgum okkar ferðum í Borgarfjörðinn. Einu sinni urðum við veður- teppt hjá Olgu en því var nú tekið með miklu æðruleysi af húsmóðurinni. Þetta var um páska og engum datt í hug að vegir yrðu opnaðir fyrr en að hátíðisdögum liðnum. Við átt- um þessar frábæru samveru- stundir árum saman og svo þegar synir okkar eltust fengu þeir að koma til Olgu og Leó- polds og atast með Leópold í einhverjar vikur en síðar var Sveinbjörn einhver sumur hjá Olgu við létta snúninga og síðar sem bensínafgreiðslupiltur við skálann. Þeirra tengsl eru og hafa verið okkur kær og mjög mikilvæg. Þau hafa alla tíð átt sérstaka vináttu sem þau varð- veittu vel. Það að koma við í Hraunbæ varð svo nýr veruleiki. Þar urðu kaflaskil og Olga fór að vinna á Bifröst og að þvo þvotta fyrir veiðihús við Norð- urá. Allt fórst henni þetta vel úr hendi enda sérlega verklagin kona. Amma Margrét bjó með þeim í Hraunbæ um árabil. Það var ævintýri að koma á þessum árum til Olgu því þarna var líf- ið að breytast og verða mun fjölbreyttara fyrir mína elsku- legu frænku. Fleira fólk og börnin að fara út í heim eða í vinnu. Gangur lífsins. Við erum svo þakklát fyrir að kynnast svona góðu fólki eins og fjölskyldunni í Hraunbæ, svo sterk, svo heil, svo traust, svo miklir vinir vina sinna. Hún Olga og hann Leó- pold tóku að sér stórveislur í fjölskyldu okkar, t.d. 60 ára af- mæli móður minnar sem var ævintýri í dalsins faðmi. Elsku frænka og vinur. Takk fyrir allt. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Þórhallur Runólfsson og fjölskyldur. Með kærleik og virðingu Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Hinsti vilji Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu- lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Með kærleik og virðingu Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI GUÐJÓNSSON framreiðslumaður, Grandavegi 47, lést á Landspítalanum 29. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 16. desember klukkan 15. . Gróa R. Bjarnadóttir, Þórhallur Borgþórsson, Guðrún V. Bjarnadóttir, Jón Þ. Bjarnason, Hrafnhildur Kjartansdóttir, Guðjón Bjarnason, afa- og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLFRÍÐUR RÚTSDÓTTIR, Grenihlíð 28, Sauðárkróki, lést mánudaginn 30. nóvember. . Frímann Guðbrandsson, Auður Valdimarsdóttir, Margrét Guðbrandsdóttir, Stefán Gíslason, Guðbrandur Guðbrandsson, barnabörn og barnabarnabörn. Yndislegur eiginmaður minn, ERLINGUR B. THORODDSEN, hótelstjóri á Raufarhöfn, lést á Landspítalanum 3. desember. . Ágústa Valdís Svansdóttir. Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÖRN HELGASON sálfræðingur, Hagamel 41, Reykjavík, lést þann 28. nóvember síðastliðinn. . Stefán Már Arnarson, Svala Arnardóttir, Arthúr Björgvin Bollason, Sigríður A. Arnardóttir, Vilhjálmur Ö. Sigurhjartarson, Helgi Arnarson, Erna Ólafsdóttir og afabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.