Morgunblaðið - 05.12.2015, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Smáauglýsingar 569 1100
Antík
Antik húsgögn-silfur, postulín,
kristall, veggljós og ljósakrónur í
úrvali.Skoðið heimasíðuna
Opið frá kl. 10 til 18 virka daga og 12
til 16 laugardag.
Þórunnartúni 6,
sími 553 0755 – antiksalan.is
Hljóðfæri
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Til sölu
Pels til sölu
Ónotaður síður minkapels, stærð
40-42, verðm. 900þkr. Fæst á góðu
verði. Uppl.8602740.
Sumarbústaðalóðir
í Vaðnesi til sölu
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi ca 45 km frá Rvk. Vaxtalaust
lán. Allar nánari upplýsingar gefur
Jón í síma 896-1864.
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Þjónusta
! " #$ %&& ' ''
((()*)
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Bílar
Renault Megane Scenic – 7 sæta
Árgerð 2005, beinskiptur, bensín,
krókur, nýleg dekk, smurbók.
Flottur bíll í góðu standi.
Verð 690.000. TILBOÐ 490.000.
Raðgreiðslur í boði.
Upplýsingar í s: 696-1000.
Hjólbarðar
Ódýru dekkin
185/65x14 kr. 10.990,-
185/65x15 kr. 11.990.-
205/55x16 kr. 13.900,-
215/65X16 kr. 17.900,-
Hágæða sterk dekk. Allar stærðir.
Sendum hvert á land sem er.
Bílastofan, Njarðarbraut 11,
sími 421 1251
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Atvinnublað
alla laugardaga
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN
Á BESTA STAÐ?
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
✝ Guðbjörg Elí-asdóttir fædd-
ist í Drápuhlíð 23,
Reykjavík, 4. októ-
ber 1946. Hún lést
á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands á Selfossi 28.
nóvember 2015.
Foreldrar hennar
voru Ingibjörg
Finnbogadóttir
húsmóðir, f. 14.
júní 1910, d. 12. mars 1982, og
Elías Kr. Kristjánsson bifvéla-
virkjameistari, f. 19. ágúst 1909,
d. 17. janúar 1996 .
Bræður Guðbjargar: 1) Helgi,
f. 23. nóvember 1930, d. 24. júlí
1993, kvæntur Jakobínu Her-
mannsdóttur, f. 28. júní 1934, d.
22. apríl 1986. 2) Björgvin, f. 23.
júlí 1937, kvæntur Ingibjörgu
Aðalsteinsdóttur, f. 20. október
1936. 3) Pétur, f. 2. maí 1941,
kvæntur Guðlaugu Eiríks-
dóttur, f. 23. janúar 1940.
Guðbjörg ólst upp í Drápuhlíð
23, til 6 ára aldurs en þá fluttu
foreldrar hennar í nýbyggt hús
sitt að Hlégerði 35, í Kópavogi.
Skólaganga hennar var í
barnaskóla Kársness og síðan
Digranesskóla. Þá var hún einn
vetur á Húsmæðraskólanum á
Laugum í Reykjadal.
Hún giftist 14. nóvember
1964, Ingjaldi Ásvaldssyni bif-
vélavirkjameistara, f. 27. ágúst
1940. Foreldrar hans voru Sig-
ríður Jónsdóttir, f. 15. apríl
1903, d. 5. apríl 1992, og Ásvald-
ur Þorbergsson, f. 11. október
1898, d. 18. ágúst 1949, bændur
á Ökrum í Reykjadal, S-þing.
Guðbjörg og Ingjaldur hófu
búskap sinn í risinu hjá for-
eldrum hennar í Hlégerði 35,
þar sem Ingjaldur nam bifvéla-
virkjun í bílskúrnum hjá Elíasi
tengdaföður sínum. Lengst af
bjuggu þau þó í Holtsbúð 51, og
Grenilundi 6, Garðabæ. Guð-
björg og Ingjaldur slitu sam-
vistum árið 1991.
Börn Guðbjargar og Ingjalds
eru: a) Ingibjörg
Elsa, f. 9. maí 1966,
stjórnsýslu- og líf-
eindafræðingur,
gift Sigurði Inga Jó-
hannssyni, f. 20.
apríl 1962, landbún-
aðar- og sjáv-
arútvegsráðherra.
Börn Ingibjargar
Elsu með Benedikt
Benediktssyni, f. 25.
nóvember 1965, eru:
Sölvi Már, f. 2. júní 1990, nemi í
Háskólanum í Reykjavík, í sam-
búð með Mörtu Kristjánsdóttur,
nema í Háskóla Íslands, og Hild-
ur Guðbjörg, f. 7. september
1996, nemi í Menntaskólanum á
Laugarvatni. b) Sverrir Már, f.
27. nóvember 1971, bifvélavirki
og starfsmaður Atlanta. Kvænt-
ur Emerly Suson Tubada Ingj-
aldsson, f. 1. febrúar 1975. Börn
þeirra eru Elsa og Ingjaldur,
bæði fædd 4. apríl 2011. Áður
átti Sverrir Már tvær dætur
með Maríu Ragnarsdóttur, f. 24.
mars 1972. Þær eru Laufey
Inga, f. 19. júní 1993, starfs-
maður Kokkanna veisluþjón-
ustu, í sambúð með Kristmundi
Sverri Þorleifssyni, og Þuríður
Dís, f. 18. desember 1995, starfs-
maður í Björnsbakaríi, unnusti
hennar er Smári Sigurðsson.
Guðbjörg giftist Hallgrími
Gísla Friðfinnssyni, f. 7. nóv-
ember 1943, netagerðarmanni.
Þau slitu samvistum.
Þó segja megi að umsjón
heimilis, húss og barna hafi ver-
ið aðal-starfsvettvangur Guð-
bjargar vann hún ávallt utan
heimilis, lengst af í Skóverslun
Steinars Waage. Hún var mikil
handavinnukona og eftir hana
liggur víða fagurt handbragð.
Um langt skeið tók hún að sér
saumaskap og fatabreytingar,
bæði fyrir verslanir og almenn-
ing.
Að ósk hinnar látnu fór útför-
in fram í kyrrþey. Hún var gerð
frá Selfosskirkju fimmtudaginn
3. desember 2015.
Guðbjörg Elíasdóttir
Holtsbúð 51, og áttum síðan eft-
ir að endurbyggja annað hús og
heimili að Grenilundi 6.
Í öllum þessum flutningum
og uppbyggingu nutu hæfileikar
Guðbjargar sín fullkomlega.
Hún gekk óhrædd til allra verka
hvort sem það var við hreinsun
uppsláttar, málningu, hönnun
innréttinga, gardínusaum eða
yfirleitt alla umgjörð heimilis og
garðs.
Guðbjörg var mjög hæfileika-
rík manneskja. Henni var gef-
inn mikill dugnaður og allt
handverk lék í höndum hennar,
allt frá saumaskap til postulíns-
málunar. Listræna hæfileika
sína nýtti hún líka til ýmissar
hönnunar bæði fata og innrétt-
inga.
Hún bjó mér og börnunum
ávallt mjög fallegt heimili. En
fullkomnunaráráttunni fylgja
gjarnan aukakvillar, og þótt
heimilið væri fagurt á ytra borði
leið Guðbjörgu minni ekki alltaf
vel. Með árunum ágerðist hjá
henni ákveðið ójafnvægi í mann-
legum samskiptum svo vinir
komu og fóru. Þessi veikleiki
varð þessari góðu konu erfiður
fylginautur og mótaði, að
ákveðnu leiti, þröngt samfélag
hennar hin síðari ár.
Að leiðarlokum vil ég þakka
fyrir samfylgdina með Guð-
björgu Elíasdóttur. Þótt við
ættum ekki því láni að fagna að
ganga saman út lífið, og gangan
hafi á stundum verið erfið, eru
góðu minningarnar frá því tíma-
bili langt ofar hinum.
Börnunum okkar Guðbjarg-
ar, Elsu og Sverri, svo og
barnabörnunum vottum við
Þóra samúð með andlát móður
þeirra og ömmu og óskum þeim
velfarnaðar í lífinu.
Ingjaldur Ásvaldsson
Ingjaldur Ásvaldsson
Stríðsárin voru uppgangsár í
atvinnulífi á Íslandi. Elías faðir
Guðbjargar hafði gerst vörubíl-
stjóri að afloknu bifvélavirkj-
anáminu. Hann hafði fjárfest í
Studebaker vörubíl og með
miklum dugnaði höfðu þau Ingi-
björg byggt, ásamt frænda Elí-
asar, glæsilegt hús í Drápuhlíð
23 í Reykjavík. Þar fæddist
Guðbjörg inn í hóp foreldra og
þriggja bræðra. Elías var að
heiman, hafði fengið túr með
vörubílinn norður í land, sá túr
fékkst aldrei greiddur, og á góð-
um stundum yfir glasi lét hann
gjarnan Guðbjörgu mína heyra
að tap hans hefði hafist með til-
komu hennar í heiminn. Hann
bjó þó ávallt við nokkuð góð efni
og athugasemd hans var góðlát-
legt grín. Hún var yngst, eina
stelpan í systkinahópnum og
ekki laust við að foreldrarnir
væru svolítið meðvituð um þá
sérstöðu hennar.
Hún var stór og bráðþroska
unglingur sem gaf henni góða
möguleika til að hliðra aldrinum
aðeins til við okkar fyrstu
kynni. Sú hliðrun hafði þó ekki
meiri fælni í för með sér en svo
að hún var aðeins 16 ára gömul
þegar ég dró trúlofunarhring-
inn á fingur henni. Samleið okk-
ar varði næstu 28 árin.
Við hófum búskap í lítilli en
vinalegri íbúð sem útbúin var í
risinu hjá foreldrum hennar í
Hlégerði 35, Kópavogi. Í stórum
bílskúr við húsið lærði ég bif-
vélavirkjun hjá Elíasi tengda-
föður mínum og Guðbjörg vann
í Ingimarskexi, Efnagerðinni
Val og víðar. Á Hlégerðisárun-
um fæddist Elsa. Síðar keyptum
við íbúð að Álfaskeiði 100, Hafn-
arfirði þar sem Sverrir bættist
við fjölskylduhópinn. Árið 1974
flutti fjölskyldan síðan í Garða-
bæinn þar sem við byggðum