Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 50

Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 50
50 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 Jóhannes Tryggvason, oft-ast kallaður Dengsi, ersjötugur í dag. Hann hef- ur rekið skiltagerðina Dengsa ehf. í 30 ár, en hann er m.a. með öll veltiskiltin. Dengsi er einnig þekktur fyrir starf sitt með knattspyrnufélaginu Víkingi. „Ég spilaði upp alla flokka bæði í handbolta og fótbolta með Víkingi og hjálpaði til við að byggja skíðaskálann og fleira. Þannig eyddi ég ung- dómnum mínum frá því ég flutti í Smáíbúðahverfið árið 1952, en ég er einn af frumbyggjunum í hverfinu. Ég bý núna í Aðal- landi en það kom aldrei til greina að flytja úr póstnúm- erinu 108. Í Aðallandinu hef ég verið mjög aktífur að hengja upp jólaskreytingar gegnum tíðina. Hef reyndar aðeins dreg- ið í land, en fyrir hrun var eng- inn maður með mönnum nema vera með jólaseríur frá mér.“ Dengsi missti annan handlegginn við öxl 11 ára gamall þegar hann lenti í færibandi, en náði samt að leika í meistaraflokki bæði í handbolta og fótbolta „Ég mátti ekkert vera að því að taka eftir þessari fötlun og núna spila ég golf og fer í sund hvern einasta morgun.“ Fræg saga er af því þegar það var dæmd hendi á Dengsa og þrátt fyr- ir mikil mótmæli varð dómaranum ekki þokað sem sagði að það hefði orðið hendi ef hún hefði verið þarna. „Þessi dómur kostaði okkur Reykjavíkurmótið en dómarinn ákvað að hætta að dæma eftir þetta.“ Dengsi fylgist vel með boltanum og hittir aðra Víkinga í Víkings- heimilinu einu sinni til tvisvar í viku. Þar er tippað en Dengsi er mikill Liverpool-maður. „Það er gaman að fylgjast með liðinu núna, við erum með langskemmtilegasta þjálfarann og sama hvernig leikirnir enda þá er alltaf gaman að hlusta á hann. Ég fer með syni mínum og sonarsyni á Anfield í janúar að sjá Liverpool keppa við Manchester United. Við vinnum þann leik, það er öruggt.“ Eiginkona Dengsa er Margrét Kristinsdóttir, fyrrverandi kennari í Fossvogsskóla. Börn þeirra eru Sveinbjörn, f. 1967, Ína Rós, f. 1972, Karólína, f. 1980 og Kristín Dagmar, f. 1981, og barnabörnin eru orðin átta. Opið hús verður í Aðallandinu hjá þeim Dengsa og Margréti í dag frá klukkan 2 til 5. Hjónin Magga og Dengsi á Kanaríeyjum síðastliðið haust. Vill hvergi annars staðar búa en í 108 Jóhannes Tryggvason er 70 ára í dag K atrín Kristín fæddist á Reyðarfirði 5.12. 1945 og ólst þar upp: „For- eldrar mínir voru mjög ólík. Pabbi var með atvinnureskstur alla tíð, fyrst átti hann jarðýtur, rak svo útgerð og fiskfinnslu, líka eftir að hann varð sjúklingur um fertugt. Mamma átti ekki heima „bak við eldavélina“, hún var draumóramanneskja, mikið náttúrubarn og naut þess að vera með okkur uppi í fjalli eða annars staðar úti í náttúrunni. Hún orti líka töluvert. Það var gaman á Reyðarfirði á þessum árum. Við krakkarnir í plássinu byrjuðum ung að vinna við að þurrka fisk og svo kom blessuð síldin. Þá var uppi fótur og fit, allir fengu vinnu frá 10 ára aldri og unnið var dag og nótt.“ Katrín var í Barnaskólanum á Reyðarfirði, fór í Eiðaskóla, lauk þar gagnfræðaprófi og ætlaði að verða hjúkrunarkona. Hún var innrituð í Hjúkrunarkvennaskólann, fór til Danmerkur þá um sumarið til að undirbúa námið og læra dönskuna en kennslubækurnar voru flestar danskar. Þegar hún kom heim veikt- ist faðir hennar og Katrín varð að sinna rekstri söltunarstöðvar sem hann átti og komst ekki í skólann. Katrín vann á sjúkrahúsi í Dan- mörku í tæpt ár, vann við Landspít- alann í nokkra mánuði, á skrifstofu, við verslunarstörf og síðan við mötu- neyti Olíuverslunar Íslands í Katrín Kristín Briem Gísladóttir nuddfræðingur – 70 ára Á Hallormsstaðahálsi Katrín Kristín með Auðbergi, eiginmanni sínum, og elsta barnabarninu sem ber nafn afa síns. Gengur á hæstu tinda Fjallageitur Katrín Kristín og Auðbergur með fallegan skriðjökul í baksýn. Gefin voru saman 7. nóvember sl. í Dómkirkjunni í Reykjavík af sr. Hjálmari Jónssyni þau Ásdís Erla Erlingsdóttir og Sævar Vídalín Kristjánsson. Árnað heilla Brúðkaup Reykjavík Brynjar Vídalín Sævarsson fæddist 11. nóvember 2014 kl. 10.49. Hann vó 4.790 g og var 55 cm langur. Foreldrar hans eru Ásdís Erla Erlings- dóttir og Sævar Vídalín Kristjánsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.