Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 51
Laugarnesi, en þegar fjórði sonur-
inn fæddist hætti hún að mestu að
vinna utan heimilis. Seinna lærði
Katrín nudd og hefur sinnt þv í tals-
vert síðan.
Á námsárum eiginmannsins var
Katrín búsett í Reykjavík en eftir
það á Austurlandi, fyrst þrjú ár á
Djúpavogi 1975-78, þá einn vetur á
Höfn í Hornafirði, lengst af á Eski-
firði en þau eru nú búsett á Egils-
stöðum. Þau hjónin eiga jörðina
Fagrahvamm í Berufirði og hafa
undanfarin ár sýslað þar með kindur
og skógrækt.
Katrín segist alla tíð hafa þurft
mikla hreyfingu og sterk útivist-
argen séu í móðurættinni. Hún hef-
ur kennt leikfimi og sundleikfimi í
rúma fjóra áratugi, og er einn af
stofnendum Félags áhugafólks um
íþróttir aldrarða: „Ég hef gengið og
hjólað um landið þvert og endilangt,
bæði í byggð og óbyggðum, hef
gengið á flest hæstu fjöll landsins.
Við hjónin höfum ferðast mikið er-
lendis, og ég hef gengið talsvert þar,
t.d. í Pyrenea-fjöllunum og Himal-
aja-fjöllunum og hjólað um Mosel-
dalinn.
Í ellinni ætla ég að njóta nærveru
fjölskyldunnar, ekki síst barna-
barnanna.“
Fjölskylda
Eiginmaður Katrínar er Auðberg-
ur Jónsson, f. 16.3. 1943, heim-
ilislæknir. Foreldrar hans voru Jón
Kristinn Guðjónsson, f. 5.6. 1906, d.
6.12. 1987, sjómaður á Eskifirði, síð-
ar bóndi á Hólmum í Reyðarfirði, og
Þóra Guðný Snædal, f. 5.10. 1910, d.
12.8. 1994, húsfreyja sem eignaðist
12 börn. Þau bjuggu á Eskifirði
síðustu árin.
Börn Katrínar og Auðbergs eru
Gísli Marinó Auðbergsson, f. 14.10.
1966, hæstaréttarlögmaður á Eski-
firði, en kona hans er Guðný Þórdís
Jónsdóttir og börn þeirra eru Auð-
bergur Daníel Gíslason, f. 1993,
Katrín Kristín Briem Gísladóttir, f.
1994, Guðrún Edda Gísladóttir, f.
2000, og Jón Pétur Briem Gíslason,
f. 2009; Jón Kristinn Auðbergsson, f.
26.9. 1968, bifreiðasmiður á Fljóts-
dalshéraði, en kona hans er Helga
Sturludóttir og eru börnin Dagbjört
Katrín Jónsdóttir, f. 1993, en móðir
hennar er Inga Sigrún Atladóttir,
Auðbergur Jónsson, f. 2000, Siguróli
Jónsson, f. 2003, Þuríður Björk
Jónsdóttir, f. 2013, og Arnar Bjarki
Jónsson, f. 2015; Davíð Örn Auð-
bergsson, f. 29.1. 1973, lögregluvarð-
stjóri á Egilsstöðum, en kona hans
er Nanna Ármannsdóttir og eru
börn þeirra Daníel Ingi Davíðsson, f.
2002, Ármann Davíðsson, f. 2004, og
María Björg Davíðsdóttir, f. 2010;
Haraldur Trausti Auðbergsson, f.
14.8. 1974, húsasmiður á Egils-
stöðum, og Bjarki Örvar Auðbergs-
son, f. 21.12. 1982, bæklunarlæknir í
Halmstad í Svíþjóð, en kona hans er
Sunna María Jónasdóttir.
Systkini Katrínar eru Kristinn
Ólafur Briem, f. 1.6. 1943, fyrrver-
andi skrifstofustjóri, búsettur á
Reyðarfirði; Þórólfur Gíslason, f.
19.3. 1952, kaupfélagsstjóri á Sauð-
árkróki, og Dagbjört Briem Gísla-
dóttir, f. 13.5. 1957, bóndi á Sléttu í
Reyðarfirði.
Foreldrar Katrínar voru Gísli
Marinó Þórólfsson, f. 4.2. 1917, d.
21.6. 1986, útgerðarmaður í Sjólyst á
Reyðarfirði, og k.h., Þuríður Briem,
f. 28.9. 1919, d. 7.6. 2002, húsfreyja á
Reyðarfirði.
Úr frændgarði Katrínar Kristínar Briem Gísladóttur
Katrín Kristín
Briem Gísladóttir
Þuríður Sigurðardóttir
Efri-Ey
Hannes Hannesson
bóndi Efri-Ey í Meðallandi
Kristín Hannesdóttir
húsfr. í Eyjum
Ólafur Briem
b. í Eyjum í Breiðdal
Þuríður Briem
húsfr. í Sjólyst á
Reyðarfirði
Þrúður Þórarinsdóttir
Búlandsnesi v. Djúpavog
Haraldur Briem
hreppstj. og oddviti í Bú-
landsnesi við Djúpavog
Guðrún Þórólfsdóttir
húsfr. á Eskifirði
Þrúður Briem
kennari í
Kópavogi
Valgerður Briem
húsfr. í Rvík
Sigríður Briem
húsfr. á Hofi í
Hörgárdal
Haraldur Briem
starfsm. hjá Pósti
og síma í Rvík
Þórólfur Þórlindsson
prófessor
Helga Kristín
Einarsdóttir
bókasafnsfr. í
Kópavogi
Oddur Ólafsson
læknir í Rvík
Ragnheiður
Davíðsdóttir húsfr.
á Hálsi í Fnj.dal
dr. Valdimar Briem
fyrrv. sálfræði-
prófessor Lundi
Einar T.
Finnsson
fjallaleiðs.m.
og pólfari
Davíð Oddsson ritstjóri
Morgunblaðsins.
Davíð Stefánsson
skáld
Þórólfur Gíslason
kaupfélagsstj. á
Sauðárkróki
Halldóra Arnfinnsdóttir
húsfr. í Eyjafirði
Jóhannes Þorkelsson
b. og sjóm. í Eyjafirði
Katrín Jóhannesdóttir
húsfr. í Sjólyst
Þórólfur Gíslason
útgerðarm. og sjóm. í Sjólyst
Gísli Marinó Þórólfsson
útgerðarm. í Sjólyst á
Reyðarfirði
María Sigfúsdóttir
húsfr. í Bakkagerði
Gísli Nikulásson
b. í Bakkagerði á Reyðarfirði.
Rannveig Þor-
valdsdóttir st.
við umönnun
í Rvík
Leifur Örn
Svavarsson
fjallaleiðs.m.
og pólfari
Stefán Stefáns-
son fyrrv.
bæjarverkfr. á
Akureyri
Stefán Stefáns-
son alþm. og
hreppstj. í
Fagraskógi
Stefán Hannesson
skólastj. í Vík í Mýrdal
Brandur
Jón
Stefánsson
„Vatna-
Brandur“
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Dr. Anna Sigurðardóttir fædd-ist á Hvítárbakka í Borgar-firði 5.12. 1908. Foreldrar
hennar voru Sigurður Þórólfsson,
skólastjóri Lýðháskólans á Hvít-
árbakka, og Ásdís Þorgrímsdóttir
húsfreyja.
Eiginmaður Önnu var Skúli Þor-
steinsson skólastjóri og síðar nám-
stjóri Austurlands. Þau bjuggu á
Eskifirði í 18 ár frá 1939 þar sem
Skúli var skólastjóri. Börn þeirra
eru Þorsteinn Skúlason lögfræð-
ingur, Ásdís Skúladóttir leikstjóri og
Anna Skúladóttir leikskólastjóri.
Anna gekk í Kvennaskólann í
Reykjavík, var „Haustochter“ í
Berlín frá 1929, stundaði tungu-
málanám og drakk í sig menningu
Weimarlýðveldisins. Á Eskifirði
starfaði hún á hreppsskrifstofunni,
kenndi ensku við Unglingaskólann
og stofnaði Kvenréttindafélag Eski-
fjarðar 1950. Árið 1980 kom út bókin
„Konur skrifa til heiðurs Önnu Sig-
urðardóttur“, fyrsta rit samið til
heiðurs konu hér á landi. Þar er rit-
skrá Önnu frá 1943-80, alls 11 síður
með smáu letri, sem varpar ljósi á
yfirgripsmikil og fjölbreytt skrif
hennar. Auk þessa gaf hún út þrjú
ritverk með samheitinu Úr veröld
kvenna: Barnsburð, 1984, Vinna
kvenna á Íslandi í 1100 ár, og Allt
hafði annan róm áður páfadóm,
1988. Hún varð heiðursfélagi Kven-
réttindafélags Íslands 1977, var
sæmd riddarakrossi fálkaorðunnar
1978, kjörin heiðursfélagi Bóka-
varðafélags Íslands 1985, heiðurs-
doktor við heimspekideild HÍ 1986,
heiðruð af Konunglega norska vís-
indafélaginu 1987, heiðursfélagi
Kvenfélagasambands Íslands 1990
og Sagnfræðingafélagsins árið 1991.
Dr. Anna sagðist hafa stofnað
Kvennasögusafn Íslands vegna þess
að „saga karla og kvenna er sam-
slungin eins og uppistaða og ívaf í
vefnaði. En svo hafi tekist til að sag-
an er aðeins gerð úr ívafinu“.
Kvennasögusafn Íslands og Kven-
réttindafélag Íslands halda hátíðar-
fund í Þjóðarbókhlöðunni laugar-
daginn 5.12. kl. 13.00, í tilefni 40 ára
afmælis safnsins, á afmælisdegi
Önnu.
Anna lést 3.1. 1996.
Merkir Íslendingar
Anna Sigurðardóttir
Laugardagur
90 ára
Hulda Guðmundsdóttir
85 ára
Baldur Friðfinnsson
80 ára
Árni Ingólfsson
Ebba Sigurðardóttir
Guðbjörg Jóna
Guðmundsdóttir
75 ára
Grétar H. Hafsteinsson
Guðbrandur Valdimarsson
Jón Ólafur Jónsson
Már Viktor Jónsson
70 ára
Ársæll Guðjónsson
Guðrún Jónsdóttir
Gunnjóna Jónsdóttir
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Jóhannes Tryggvason
Julia Mellave Renegado
María Ingibergsdóttir
Örn Hlöðver Tyrfingsson
60 ára
Anna Jakobína
Hilmarsdóttir
Carlotta Rósa
Guðmundsdóttir
Gerður Helga Jónsdóttir
Guðbjartur Halldórsson
Gunnar Bjarni Þórisson
Hafþór Rúnar Gestsson
Lilja Guðmundsdóttir
Pétur Orri Haraldsson
Sigrún Ásdís Jónsdóttir
Svanfríður Sigurþórsdóttir
50 ára
Albert Jaakkonen Berge
Auðunn Kjartansson
Ásdís Elva Guðmundsdóttir
Björk Bergsdóttir
Edda Guðbjörg Aradóttir
Jóhannes Jóhannesson
Jósep Hjálmar Jósepsson
Ma Victoria Ramas Paraiso
Ólafur Borgþórsson
Sóley Rut Ísleifsdóttir
Svanhvít Rós
Guðsteinsdóttir
Valdimar Grímsson
Þóra Erlingsdóttir
40 ára
Aðalsteinn Þorvaldsson
Ásdís Sverrisdóttir
Daniela Giessler
Elvar Örn Sigurðsson
Friðrik Atlason
Izabela Klecha
Knútur Gunnar H. Knútsson
Óla Margrét
Sigvaldadóttir
Ragnheiður Hlíf
Yngvadóttir
Sigurður Arnar Stefnisson
Sigurður Jóhann
Haraldsson
Sonja Stelly Gústafsdóttir
Sæunn Vigdís
Sigvaldadóttir
Unnsteinn Elíasson
30 ára
Anna María Þorleifsdóttir
Arnar Snær Valmundsson
Dagbjört María
Gunnarsdóttir
Egill Geirdal
Fanndís Ýr Brynjarsdóttir
Guðbjörg Lilja Ingólfsdóttir
Ívar Marrow Arnþórsson
Karl Róbert Gunnarsson
Leifur Birkir Logason
Matilde Aleu Galisteo
Monika Dorota Lorenc
Oddný Guðríður
Pálmadóttir
Sigurþór Hjörleifsson
Sigþrúður Jóna
Harðardóttir
Þórhildur Kristín
Bachmann
Sunnudagur
90 ára
Guðlaug Jóhannsdóttir
85 ára
Hulda Jósefsdóttir
Kristín Aðalheiður
Þórðardóttir
80 ára
Guðrún Tryggvadóttir
Halldóra Margrét
Ottósdóttir
Hermína J. Lilliendahl
Ingvi Óskar Bjarnason
Kristín Skaftadóttir
María Ingólfsdóttir
Sigurgeir Kristinsson
75 ára
Elín Hafdís Ingólfsdóttir
Guðrún Björk
Guðmundsdóttir
Guðrún Eiríksdóttir
Guðrún Sigríður Jónsdóttir
María Guðmundsdóttir
Pétur Borgarsson
70 ára
Ágúst Breiðfjörð
Camilla Th. Hallgrímsson
Erna Hannesdóttir
Sigurveig Tryggvadóttir
Þuríður Friðjónsdóttir
Örn Helgi Guðjónsson
60 ára
Alla Kisielewska
Anna Inga Grímsdóttir
Arnþrúður Jónsdóttir
Esther Þorvaldsdóttir
Gyða Jónsdóttir
Hafsteinn Ingi Gunnarsson
Kristján M. Baldursson
Skúli Thorarensen
Yngvi Sigurður
Sigurgeirsson
Þórhildur Heba
Jakobsdóttir
50 ára
Björn Ottó Steffensen
Bryndís Bonifacia Basalan
Eðvald Sveinbjörnsson
Finnur Einarsson
Fjóla Kristjánsdóttir
Friðrik Þór Goethe
Guðbjörg Guðlaugsdóttir
Guðrún Eydís Garðarsdóttir
Hrönn Ásgrímsdóttir
Kolbrún Herbertsdóttir
Þórir Grétar Björnsson
40 ára
Andrzej Mikolaj Piotrowski
Arelíus Sveinn
Arelíusarson
Gréta Jóhannesdóttir
Jón Norðfjörð Kristjánsson
Maris Lencis
Ólafur Guðsteinn
Kristjánsson
Sigurborg Þórsdóttir
Sigurður Jónas
Sigurðarson
Sigurður Örn Arngrímsson
Örn Arnarson
30 ára
Adrian Gradowski
Ásta Hrönn
Guðmannsdóttir
Eyþór Ingi Gunnarsson
Helen Hjartardóttir
Jekaterina Jegorova
Krzysztof Walus
Magnús Jón Magnússon
Óttar Gnýr Rögnvaldsson
Rebekka Rán Egilsdóttir
Sigtryggur Egilsson
Stefán Trausti Vigfússon
Til hamingju með daginn
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna
svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
sunnudaginn 6. desember, kl. 16 og mánudaginn 7. desember, kl. 18
Jólauppboð
í Gallerí Fold
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Forsýning á verkunum alla helgina
laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17,
mánudag kl. 10–17 (þau verk sem boðin eru upp á mánudag)
Louisa
M
atthíasdóttir
Ásgrímur Jónsson
Jóhannes
S.Kjarval
Karólína
Lárusdóttir