Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 60
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 339. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Almar fróaði sér í beinni
2. #Nakinníkassa kastaði upp
3. Barst morðhótun vegna Almars
4. Ekki alveg klár í standandi 69
Gjörningaklúbburinn flutti í sumar
verkið Ceremony Harmony á Hamra-
borgarbrúnni í Kópavogi og var það
hluti af listahátíðinni Cycle sem hald-
in var í Gerðarsafni. Í dag munu lista-
konurnar endurskapa verkið í Import
Projects-galleríinu í Berlín og laga
það að þýskum aðstæðum.
Morgunblaðið/Golli
Gjörningaklúbburinn
sýnir í Berlín í dag
Ókeypis rit-
smiðja fyrir börn
allt að 13 ára
gömul verður á
Kjarvalsstöðum í
dag, milli kl. 13 og
16. Þátttakendur
læra að skrifa ör-
sögur og sækja til
þess innblástur í
hrífandi sýningu á skissum og pári
Jóhannesar S. Kjarvals sem nú
stendur yfir í safninu.
Skrifa örsögur inn-
blásin af Kjarval
Frímúrarakórinn og Hallveigarsynir
– kór Oddfellowstúkunnar Hallveigar,
efna í dag klukkan 17 til styrktar-
tónleika í Háteigskirkju fyrir MND-
félagið. Sérstakir gestir verða Sigrún
Hjálmtýsdóttir – Diddú – og Þór
Breiðfjörð og
syngja þau ein-
söng og tvísöng.
Einnig tekur Örn
Árnason leikari
lagið. Stjórn-
endur kóranna
eru Jón Karl
Einarsson og
Jónas Þórir.
Diddú, Þór og Örn á
styrktartónleikum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðanhvassviðri eða -stormur. Talsverð snjókoma fyrir norðan,
en skafrenningur og stöku él syðra. Fer að lægja V-lands í kvöld.
Á sunnudag Norðvestan 8-13 m/s A-til á landinu, annars hægari vindur. Víða léttskýjað
og talsvert frost, en él NA-lands.
Á mánudag Gengur í mjög hvassa austanátt með snjókomu, fyrst S-lands. Dregur úr
frosti. Rigning eða slydda og hlánar sunnantil um kvöldið.
Eftir þrjú töp í röð gerðu FH-ingar sér
lítið fyrir og lögðu ÍBV að velli í Olís-
deild karla í handknattleik í gær-
kvöld, 24:23, í síðasta leik 16. um-
ferðar. FH komst þar með úr fallsæti
upp fyrir ÍR, í 8. sæti, og er tveimur
stigum á eftir Eyjamönnum sem eru í
5. sæti. ÍBV, sem spáð var sigri í
deildinni fyrir mót, á tvo leiki til góða
á flest lið, og FH einn. »2
Sætur sigur FH-inga
sem nálgast ÍBV
FSu varð í gærkvöld annað
liðið til að leggja Keflavík að
velli í Dominos-deild karla í
körfuknattleik, og það á
heimavelli Keflvíkinga.
Þetta var aðeins annar sig-
ur nýliðanna í vetur. Kefla-
vík er enn á toppnum en nú
jöfn KR að stigum, eftir að
KR-ingar lögðu Tindastól að
velli í háspennuleik í Vestur-
bænum, þar sem grípa
þurfti til framlengingar. »2
FSu vann topp-
liðið í Keflavík
„Hætt er við að margir handknatt-
leiksmenn verði ævina á enda að bíta
úr nálinni vegna mikils álags þegar
það er orðið regla fremur en undan-
tekning að leika á milli 80 og 90 leiki
ár hvert, árum saman, jafnvel á ann-
an áratug. Slíkt getur varla gengið
nema eitthvað láti undan,“ skrifar Ív-
ar Benediktsson m.a. í viðhorfsgrein.
»2-3
Ævina á enda að bíta úr
nálinni vegna álags
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Árlega heldur Olís jólaboð, þar sem
fyrrverandi starfsmenn koma saman
til skrafs og að bragða á kræsingum.
Guðrún Gunnarsdóttir kom til að
skemmta fólki á ballinu í ár en áður
hafa t.a.m. Ragnar Bjarnason stór-
söngvari og Þorgeir Ástvaldsson
sungið fyrir gesti og með þeim. Hef-
ur sá háttur verið hafður á að bjóða
öllu fólki sem lýkur starfsævi sinni
hjá Olís í jólaboðið auk þess sem
einu sinni á ári er fólki boðið til há-
degisverðar.
Öll starfsævin hjá fyrirtækinu
Þessi siður hefur mælst vel fyrir
og starfsmenn mæta í boðið ár eftir
ár eftir að þeir hafa látið af störfum.
Eru dæmi um að fólk á tíræðisaldri
sem á tengsl við fyrirtækið komi í
boðið. Í ár sóttu um 80 manns sam-
komuna.
Hilmar Grétar Sverrisson er einn
þeirra sem mætt hafa í boðið und-
anfarin tvö ár en hann er 72 ára.
Hann starfaði alla sína starfsævi hjá
Olís eða í um fimmtíu ár í það heila.
Hann er afar ánægður með fram-
takið og segir að gaman sé að hitta
fyrrverandi samstarfsmenn, þó að
það sé ekki nema einu sinni á ári.
„Þetta er afar huggulegt. Ég keyrði
einn sem er 92 ára heim eftir boðið
og það vantar ekki áhugann hjá fólki
að koma þangað, það er ljóst,“ segir
Hilmar. Þó að starfsævin hafi verið
löng hjá fyrirtækinu starfaði hann
raunar fyrir BP fyrstu starfsárin en
Olís keypti hlut BP árið 1974. „Við
hittumst kannski ekki reglulega en
það er fínt að hafa þetta svona, hitt-
ast einu sinni á ári til að rifja upp
gamlar sögur og gömul kynni. Mór-
allinn var alltaf mjög góður hjá
þessu olíufélagi,“ segir Hilmar.
Hann starfaði lengstum sem bíl-
stjóri hjá fyrirtækinu en sinnti einn-
ig fjórum öðrum störfum hjá því á
starfsævinni. Undir lokin starfaði
hann sem lagerstjóri. „Það gerist
ekki lengur að menn séu svona lengi
í sama starfi en ég var sá sextándi
frá upphafi fyrirtækisins sem náði
50 árum í starfsaldri,“ segir Hilmar.
Ragnheiður Björk Guðmunds-
dóttir, starfsmannastjóri Olís, segir
að um 50 fyrrverandi starfsmenn
hafi komið á jólahlaðborðið nú og 30
makar. „Við byrjuðum á því fyrir 20
árum að gera eitthvað fyrir þennan
hóp. Í fyrstu komu þau á árshátíð og
fleira en þetta fyrirkomulag hefur
mælst miklu betur fyrir,“ segir
Ragnheiður. Hún segir að þeir sem
eiga erfitt með að koma af sjálfs-
dáðum séu sóttir, svo allir sem vilja
geti verið með.
„Mórallinn var alltaf mjög góður“
Olís heldur jólaboð fyrir fyrrverandi starfsmenn Sumir á tíræðisaldri
Ljósmyndir/Garðar Pétursson
Jólaboð Margir hafa komið árum saman í jólaboð fyrrverandi starfsmanna hjá Olís. Meðal gesta er fólk á tíræðisaldri.
Glatt á hjalla Sigurlaug Sigurðardóttir, Hilmar G. Sverrisson, Gunnar
Ásbjörnsson og Sigurbjörn H. Ólafsson í jólaboði fyrrverandi starfsmanna.