Morgunblaðið - 04.03.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.03.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, veltir nú fyrir sér að bjóða sig fram til embættis for- seta Íslands. Í nýrri skoðanakönnun Stundar- innar, sem framkvæmd var af MMR, mældist Katrín með lang- mestan stuðning en 37,5% svarenda sögðust telja að Katrín kæmi til greina sem næsti forseti Íslands. Katrín kvaðst í samtali við mbl.is í gær nú velta því fyrir sér „í alvöru“ að bjóða sig fram. „Auðvitað er það ekki nema eðli- legt að maður velti þessu fyrir sér þegar margir telja þetta góða hug- mynd,“ segir Katrín í samtali við mbl.is. Gefur sér nokkra daga „Ég hef ekki verið að stefna á þetta embætti en nú ætla ég að gefa mér nokkra daga til þess að velta þessu fyrir mér.“ Aðspurð hvort margir hafi komið að máli við hana vegna kosninganna í vor svarar Katrín því játandi. „Það hefur verið þrýst á mig eins og fleiri. En núna ætla ég að velta þessu fyrir mér af alvöru í nokkra daga.“ Í frétt á heimasíðu Stundarinnar kemur fram að aðrir sem mældust með mikinn stuðning séu Davíð Oddsson, Stefán Jón Hafstein, Sal- vör Nordal, Ólafur Jóhann Ólafsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Andri Snær Magnason. Þau hafi öll verið með 7-8% stuðning þegar spurt var hvaða einn aðila aðspurðir myndu líklegast kjósa sem forseta. Katrín Jakobsdóttir hefur verið alþingismaður Reykjavíkurkjör- dæmis norður síðan 2007. Hún var menntamálaráðherra 2009 og mennta- og menningarmálaráð- herra 2009-2013. audura@mbl.is Katrín íhugar forsetaframboð  „Það hefur verið þrýst á mig“ Morgunblaðið/Ómar Apríl 2013 Katrín Jakobsdóttir ræðir við Ólaf Ragnar Grímsson. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þessi niðurstaða er ekki óvænt, en við höldum ótrauð áfram. Kynning og markaðssetning á nýrri flugleið og áfangastað er langhlaup,“ segir Arn- heiður Jóhannsdóttir, forstöðumaður Markaðsstofu Norðurlands. Tilkynnt var í gær að ekki yrði af því að reglu- legt áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar hæfist í sumar. Stilla þarf krafta og strengi Hjá íslensku ferðaskrifstofunni Trans-Atlantic voru áform um slíkt flug, það er í samstarfi við ríkisflug- félagið í Eistlandi. Ætlunin er þó að flugið á þessari leið hefjist á næsta ári, það er þegar búið er að stilla sam- an krafta og strengi þeirra fjölmörgu sem að svona verkefni koma. Arn- heiður Jóhannsdóttir segir fulltrúa Markaðsstofu Norðurlands og fleiri hafa að undanförnu átt samtöl við stjórnendur ýmissa flugfélaga, inn- lendra sem erlendra, um hugsanlegt millilandaflug til og frá Akureyri. Niðurstaða þar liggi ekki fyrir en málið sé í gerjun. „Við þurfum millilandsflug árið um kring til og frá Akureyri. Með flugi á veturna fengist meiri nýting á fjár- festingum í ferðaþjónustu hér nyðra sem farið hefur verið í á síðustu ár- um,“ segir Arnheiður. Milli Egilsstaða og Lundúna tvisvar í viku Þótt reglulegt áætlunarflug til og frá Akureyri bíði enn um sinn er flug milli Egilsstaða og Lundúna komið á dagskrá. Það er breska ferðaskrif- stofan Discover the World sem sér um flugið, sem ætlað er hefjist í vor og verði tvisvar í viku frá lokum maí fram í endaðan september. Kynning- arfundur vegna þessa var haldinn á Egilsstöðum í vikunni, þar sem farið var heildstætt yfir málin. Bæði Isavia og sveitarfélagið bregðast við með ýmsu móti. Þá á fjöldi fyrirtækja eystra aðild að samtökunum Þjón- ustusamfélagið á Héraði. Á vettvangi þess eru menn nú að þétta raðirnar til að geta nýtt sem best sóknarfærin. Arnheiður Jóhannsdóttir segir að Egilsstaðaflugið gagnist Norðurlandi ekki síður en Austurlandi, enda séu innan við 300 kílómetrar milli Egils- staða og Akureyrar. Meginatriði sé að í flugi séu opnaðar fleiri gáttir inn í landið. Reglulegt millilanda- flug mun frestast enn  Trans-Atlantic leggur áform á ís  Egilsstaðir á áætlun Morgunblaðið/ Skapti Hallgrímsson Akureyrarflugvöllur Fjölfarinn áfangastaður. Heimamenn telja millilandaflug mikilvægt ferðaþjónustu á svæðinu. Laser Blade er enn ein byltingin frá iGuzzini í framleiðslu LED lampa. Með nýrri tækni lýsir Laser Blade upp hlutinn án þess að ljósgjafinn trufli. Laser Blade hefur hlotið margar alþjóðlegar viður-kenningar fyrir hönnun og gæði. Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 9 -18, laugardaga 11-16 – www.rafkaup.is Frumvörp til stjórnarskipunarlaga – frestur til athugasemda Stjórnarskrárnefnd hefur birt drög að þremur nýjum ákvæðum í stjórnarskrá, nánar tiltekið um þjóðareign á náttúruauðlindum, umhverfis- og náttúruvernd og þjóðaratkvæðagreiðslur að kröfu kjósenda. Nánari upplýsingar er að finna á stjornarskra.is. Frestur til athugasemda er til þriðjudagsins 8. mars 2016 – sendist vinsamlegast á netfangið postur@for.is. Áskilinn er réttur til birtingar á athugasemdum. Stjórnarskrárnefnd. Boðað hefur verið til fundar á Hót- el Borg klukkan 14 á sunnudaginn, þar sem Vigfúsi Bjarna Alberts- syni sjúkrahúspresti verður afhent áskorun um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. „Hópur fólks sem hefur verið svo heppið að kynnast Vigfúsi Bjarna Albertssyni og eiginkonu hans Valdísi Ösp Ívarsdóttur hefur sameinast um að skora á Vigfús Bjarna til að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Ákveðið var að leita eftir stuðningi við framboð Vigfúsar úr ólíkum áttum. Það reyndist auðsótt mál enda eru Vigfús og Valdís bæði vel virt og þekkt á meðal samstarfsfélaga, vina og fjölskyldu. Fyrr en varði voru 500 undirskriftir komnar á blað,“ segir í tilkynningu frá fund- arboðendum. Á fundinum flytja Halldóra Geir- harðsdóttir leikkona og Felix Vals- son læknir ávörp. Séra Vigfúsi Bjarna afhent áskorun vegna framboðs Áskorun Hjónin Vigfús Bjarni Al- bertsson og Valdís Ösp Ívarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.