Morgunblaðið - 04.03.2016, Síða 34

Morgunblaðið - 04.03.2016, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016 Hilmar Sigvaldason, „vitavörður“ á Akranesi, hefur komið vit-unum á Akranesi á kortið sem áhugaverðum viðkomustað oger óþreytandi í að auglýsa þá. Hann var valinn Skagamaður ársins 2012 og fékk viðurkenningu frá Markaðsstofu Vesturlands árið 2015. „Ég vakti árið 2011 athygli á slæmu ástandi gamla vitans, en hann var byggður 1918. Hann var endurgerður í kjölfarið og var valinn þriðji fallegasti viti í heimi á einni erlendri síðu. Ég kom því einnig til leiðar að stærri vitinn væri opinn almenningi. Opinber tími er 1. júní til 31. agúst en aðsóknin er orðin svo mikil að það er orðið meira og minna opið allt árið.“ Tónleikar hafa verið haldnir í vitanum og m.a.s. upptökur á geisla- diski. Fjölmargar myndlistarsýningar hafa einnig verið haldnar og síðasta sunnudag var messað í vitanum. „Það er í fyrsta sinn held ég örugglega sem messa hefur verið haldin í vita. Í sumar verður svo keramiklistasýning. Um 30.000 manns hafa komið í vitann frá því hann var opnaður í mars 2012.“ Hilmar starfar að íþróttamannvirkjum hjá Akranesbæ, hann hefur áhuga á ljósmyndun og er einn af stofnendum Vitans – félags áhuga- ljósmyndara á Akranesi. Hann ætlar að taka það rólega í dag á afmælisdaginn en heldur veislu á morgun í Vinaminni, safnaðarheimili Skagamanna. Vitavörðurinn Hilmar með eldri vitann í baksýn. Stendur vaktina í Akranesvita Hilmar Sigvaldason er fimmtugur í dag B orghildur fæddist á Ísa- firði 4.3. 1931: „Þar var gott að slíta barns- skónum. Maður var alltaf úti að leika sér, hafði nóg að gera og bærinn allur var okkar leiksvæði.“ Borghildur útskrifaðist úr lands- prófsdeild Gagnfræðaskóla Ísafjarð- ar 1947: „Mér er minnisstætt þegar tvær bekkjarsystur mínar sögðu mér að þær ætluðu í Kennaraskól- ann nk. vetur. Ég varð steinhissa því kennsla var það síðasta sem ég hefði viljað leggja fyrir mig. Svo þróuðust hlutirnir þannig, án þess að þar lægi einhver staðföst ákvörðun að baki, að ég kenndi í rúm 40 ár og náði aldrei að fá leiða á því.“ Borghildur stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík 1949-50, við Haand- arbejdets Fremmes Skole í Kaup- mannahöfn 1950-52 og útskrifaðist sem handavinnukennari 1952. Hún stundaði síðan nám við Kensington School of Language í London sum- arið 1956, við Husflidshøjskole í Danmörku sumarið 1959, við Los Angeles Trade Technical College í Kaliforníu í fatahönnun, 1965-68, stundaði nám við KHÍ vorið 1974 og lauk prófum í uppeldis- og kennslu- fræði við KHÍ 1980-82. Auk þess hef- ur hún sótt fjölda sumarnámskeiða. Borghildur kenndi við Náms- Borghildur G. Jónsdóttir, fyrrv. kennari – 85 ára Eðvarð 90 ára Borghildur og Eðvarð með börnum, tengda- og barnabörnum og Sonju, bróðurdóttur Eðvars. Frumkvöðull handíða- brauta framhaldsskóla Leikfélagar Það fer vel á með þeim Mána Elvari og sæljóninu á Tenerife. Reykjavík Katla Björg Atladóttir fæddist 19. desember 2015. Hún vó 2.110 g og var 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Atli Björgvin Oddsson og Kristín Anna Tryggvadóttir. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSmiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.