Morgunblaðið - 04.03.2016, Side 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARS 2016
Morgunblaðið gefur út þann
10. mars glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12,
mánudaginn
7. mars.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Hátíðin verður haldin víðs
vegar um Reykjavík þar
sem saman koma íslenskir
hönnuðir og sýna fjölbreytt
úrval nýrrar íslenskrar
hönnunar og arkitektúrs af
margvíslegu tagi.
HönnunarMars
DesignMarch
Reykjavík 10.-13.03.2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir náð góðum árangri í starfi á
næstunni. Einbeittu þér að því að rækta þau
sambönd sem skipta þig einhverju máli, það
hjálpar þér að stofna ævilangan vinskap.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er spenna í loftinu varðandi pen-
inga og sameiginlegar eignir. Að vandlega
íhuguðu máli hlýtur þú að finna bestu lausn-
ina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ekki til neins að grafa höf-
uðið í sandinn. Enginn reynir að fegra neitt og
einhver vill fá að vita alla málavöxtu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ferðaáætlanir og áætlanir sem tengj-
ast útgáfumálum og framhaldsmenntun líta
vel út. Gefðu þér tíma til þess og sæktu orku í
umhverfi þitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Áhættusamt verkefni blasir við, en
hversu áhættusamt er undir þér komið. Taktu
það ekki óstinnt upp, þótt svörin láti stund-
um bíða eftir sér. Reyndu samt ekki að
blekkja samstarfsfólk þitt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur lokað á sköpunarhæfileika
þína um tíma svo nú verður ekki lengur við
unað. Ef einhver biður þig um álit veit hann
líklega að hann fær það óþvegið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að fullnægja fróðleiksþörf þinni
á sem fjölbreyttastan máta. Gættu þess að
taka ekki of mörg verkefni að þér í einu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að koma þér upp dag-
bók og skipuleggja tíma þinn betur. Ef þú
leyfir hlutunum að hafa sinn gang munu þeir
skýrast fljótt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að leyfa
barninu í sjálfum sér að blómstra. Leggðu
áherslu á að umgangast aðeins jákvætt fólk.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum skjóta upp kollinum mál,
sem þú heldur að þú hafir afgreitt endanlega
fyrir löngu. Fáðu þér blund, sturtu eða göngu-
túr. Láttu aðra um að leysa sín mál og sinntu
þínum eigin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í dag er gott að ræða við maka og
nána vini um framtíðaráform. Haltu í trygga
vini og geymdu þá í innsta hring, þar sem
þeir eiga heima.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sköpunargáfa þín hreinlega blómstrar
þessa dagana. Leggðu þig fram og sjáðu til
þess að skoðanir þínar séu öllum ljósar.
Reyndu að líta upp úr smáatriðunum og fá yf-
irsýn yfir verkið í heild.
Ég hitti karlinn á Laugaveginumá Austurvelli, – hann hnykkti
höfðinu upp til alþingishússins þeg-
ar hann sá mig og sagði:
Birgitta með bros á vör
en beisk í svörum
- mikil vöntun varð á þingi
á vinnustaðasálfræðingi.
Sigurlín Hermannsdóttir segir að
hætt sé við því í fannferginu sem
verið hefur víða um land að ein-
hverjir hafi lent í vandræðum:
Komin út
kaldan morgun
mikill snjór
mætti sjónum.
Hvít var þúst
þar á plani
þóttist ég
þekkja bíl minn.
Brölti aum
bíla millum.
Skafa beið
í bílsætinu.
Þreif í hurð
hún var frosin
lófum með
mátti skafa.
Undan fönn
frelsa bílinn
glappaskot
glotti við mér;
þennan hér
þekki eigi
minn beið enn
miklu utar.
Sr. Skírnir Garðarsson hefur lesið
búvörusamninginn og sannfærist æ
meir um að auglýsingum eftir ráðs-
konum í sveit muni fjölga verulega:
Bóndinn í Fremstukotum auglýsir.
Ráðskonu mig röska vantar, reginflota,
Range- mun hún minn Rover nota,
við raksturinn á túnum Kota.
Bændurnir á Ystunöf skrifa,
Ódýrar við eiginkonur óðar ráðum,
í vort bú á Ystu- báðum
okkur þetta hugnast snáðum.
Að lokum bóndinn á Tyrðilmýri …
Á landnámsjörð ég lausakonu ljúfa hýri,
hún skal hafa hönd á stýri,
Hi-Lux-ins á Tyrðilmýri.
„Svona auglýsa aðeins snillingar,
þ.e. framsóknarmenn,“ eru lokaorð
sr. Skírnis.
Á miðvikudaginn sagði Sigmund-
ur Benediktsson á Leirnum að sólin
hefði komið upp í heiðríkju kl. 9 yfir
Blikdalnum og útlit fyrir góðan dag.
En deginum áður dró konan hann út
og gengu Langasand og þá fæddist
smá vísa:
Minnist græðir ljúft við land,
lágvær glæðist kliður.
Aldan flæðir upp á sand,
aftur læðist niður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Birgittu og fannfergi
Í klípu
HVERNIG HLUTIRNIR ÆTTU AÐ VERA.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„FYRIRGEFÐU. ÉG HÉLT ÞÚ VÆRIR
EIGINMAÐUR MINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að læra á brimbretti
til þess að vera hjá
honum.
GRETTIR, ÞÚ ÁTT MARGT
ÓLÆRT UM ÞAÐ AÐ VERA
GÓÐUR VIÐ FÓLK
ÉG VEIT ÞAÐ ER UPPÁHALDS
AFSÖKUNIN MÍN
ÞAÐ VERÐUR EKKERT EINS Á MEÐAN ÞÚ ERT
AÐ HEIMSÆKJA MÖMMU ÞÍNA, HELGA!
BARA SVO ÞÚ
VERÐIR EKKI
EINMANA…
HEF ÉG BOÐIÐ BRÓÐUR ÓLAFI
AÐ GISTA HJÁ ÞÉR ÞANGAÐ TIL
VIÐ KOMUM TIL BAKA!
MHM..
Ég get gefið
þér andlitstattú
- ef þú blæst
í áfengismæli
fyrir mig.
Sumir segja að ÍNN og Omega séubestu sjónvarpsstöðvar landsins
og Víkverji veltir fyrir sér hvað
stjórnendur þeirra voru að hugsa,
þegar þeir stukku ekki á vagninn með
hinum sjónvarpsstöðvunum og sýndu
beint frá Eddunni síðastliðið sunnu-
dagskvöld.
x x x
Ingvi Hrafn hefur oft hitt naglann áhöfuðið í Hrafnaþingi og Eiríkur
hefur verið með fróðlega þætti á
Omega og því vekur ef til vill enn
meiri furðu að þeir hafi látið gull-
vagninn með fræga og fína fólkinu í
Sjónvarpinu framhjá sér fara.
x x x
En ekki er allt sem sýnist og Vík-verji er ekki jafn sannfærður um
ágæti Eddunnar sem sjónvarpsefnis
eins og stjórnendur þeirra stöðva
sem sýndu beint frá verðlaunaaf-
hendingunni. Víkverji hélt að Eddan
væri fyrir kvikmyndagerðarfólk, leik-
ara og leikstjóra en svo kemur á dag-
inn að hún er einkum fyrir fólk sem
nærist á athygli. Skiljanlegt að Stöð 2
vilji ekki vera með og í skugga ann-
arra.
x x x
Er annars ekki eitthvað að þegarboðið er upp á sömu tveggja tíma
dagskrána á sama tíma á sunnudags-
kvöldi á fjórum af sex opnum sjón-
varpsstöðvum? Víkverji er hvorki
með Stöð 2 né Netflix en svona ein-
hæf dagskrá minnir helst á dag-
skrána eins og má ímynda sér að sé í
Norður-Kóreu. Kæmi samt ekki á
óvart að þar væri hún líflegri og alveg
örugglega hnitmiðaðri enda aðeins
einn í framboði.
x x x
Þegar Víkverji er ekki í vinnunni ásunnudagskvöldum vill hann
helst horfa á góðan krimma í sjón-
varpinu. Sl. sunnudagskvöld stóð val-
ið á milli Eddunnar og vandmála-
viðtals á Omega eða matreiðsluþáttar
á ÍNN. Með fullri virðingu fyrir
Omega og ÍNN höfðaði efni stöðv-
anna ekki til Víkverja þó maturinn
hjá Úlfari Finnbjörnssyni hafi vissu-
lega verið girnilegur. Því var bara eitt
í stöðinni, að slökkva á sjónvarpinu og
snúa sér að öðru. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ef óvin þinn hungrar gefðu honum þá
að eta og þyrsti hann gefðu honum þá
að drekka. Orðskv. 25:21