Morgunblaðið - 30.03.2016, Side 12
Lydia Gil Keff,
lektor við
spænskudeild Há-
skólans í Denver í
Bandaríkjunum,
heldur fyrirlestur
á vegum Stofn-
unar Vigdísar
Finnbogadóttur í
erlendum tungu-
málum og Rann-
sóknastofu í minni og bókmenntum
við Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina:
„Active Memory: Memorializing
Disappearance in Argentina through
Literary Testimonies“. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku en í honum
fjallar fræðikonan um birtingar-
myndir minninga í bókmenntatextum
í tengslum við mannshvörf á tímum
herforingastjórnarinnar í Argentínu á
árunum frá 1976 til 1983. Þá hurfu
30.000 manns.
Viðburðurinn fer fram í dag, mið-
vikudag, kl. 16:30-17:30 í stofu 103 í
Lögbergi í Háskóla Íslands.
Allir eru velkomnir.
30.000 manns hurfu á tímum herforingastjórnar í Argentínu
Birtingarmyndir minninga
í tengslum við mannshvörf
AFP
Argentína Nýleg ganga í Buenos Aires þar sem borinn var borði með myndum
af fólki sem hvarf á árunum 1976-1983 á tímum herforingastjórnarinnar.
Lydia Gil Keff
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þetta er algjört met í munst-urreið,“ segir RagnheiðurSamúelsdóttir, reiðkennariog tamningakona, sem
stýrði Töltgrúppunni, sem saman-
stendur af 62 konur á öllum aldri
sem sýndu einstaklega flotta munst-
urreið á dymbilvikusýningu hesta-
mannafélagsins Spretts í síðustu
viku.
Undirritaðri þótti tilkomumikið
að sjá reiðhallargólfið hreinlega fyll-
ast af kraftmiklum flottum konum
sem allar riðu í takt við tónlist á
hægu tölti. Gleðin og fagmennskan
skilaði sér alla leið til áhorfenda og
vakti atriðið slíka hrifningu að sýn-
ingargestir stóðu upp úr sætum sín-
um og klöppuðu þeim lof í lófa en
slíkt er ekki algeng sjón á reiðhall-
arsýningum.
Líklega hafa aldrei fleiri tekið
þátt í einu sýningaratriði þar sem
riðnar eru svokallaðar töltslaufur.
Yfirleitt taka mun færri þátt í álíka
munsturreið og teljast sýningar-
atriði nokkuð stór og vegleg þegar
knapar eru um 20.
Ragnheiður segist hafa áttað
sig á því á æfingum í vetur að hún
hafi verið að gera eitthvað sem aldr-
ei hafði verið gert áður. Sú varð ein-
mitt raunin. „Það hafa margir komið
til mín eftir sýninguna sem sögðust
aldrei hafa séð svona áður. Þetta er
eitthvað alveg nýtt,“ segir hún
ánægð með afraksturinn og bendir á
að atriðið hafi vakið athygli út fyrir
landsteinana. „Ég er ofsalega stolt
„Þetta er algjört
met í munsturreið“
Íslandsmet í munsturreið féll í reiðhöll Spretts á árlegri dymbilvikusýningu í liðinni
viku þegar 62 konur í Töltgrúppunni riðu töltslaufur. Atriðið vakti mikla hrifningu
og sýningargestir stóðu upp í miðri sýningu og klöppuðu þeim lof í lófa. Reiðkenn-
arinn Ragnheiður Samúelsdóttir, sem stýrði konunum, var staðráðin í að láta þetta
verða að veruleika og lét engin áhrif hafa á sig úrtöluraddir sem töldu þetta ógerlegt.
Í Töltgrúppunni eru yfir 80 konur en 62 tóku þátt í þetta skiptið.
Saman Það er kúnst að halda hestinum sínum á sama hraða.
Flottar Hluti af 62 konum sem sýndu færni sína á dymbilvikusýningunni.
Borgarbókasafnið og Kristín R. Vil-
hjálmsdóttir, verkefnastjóri safns-
ins og nemi í hagnýtri menningar-
miðlun, bjóða öllum sem heita
María upp á Maríukex, te og kaffi í
dag, miðvikudag, á Borgarbókasafn-
inu í Tryggvagötu kl. 16.30 til 17.30.
Í tilkynningu segir að hugmyndin
sé að varpa ljósi á þau mörgu andlit
í íslensku samfélagi sem bera þetta
alþjóðlega nafn og leiða þau saman
á léttum nótum. Gjörningurinn
verður notaður í heimildamynd um
konur sem heita María, sem verður
sýnd í Bíó Paradís hinn 14. apríl
næstkomandi og er hluti af verkefni
í meistaranáminu hagnýt menning-
armiðlun og fjölmenningarstarfi
Borgarbókasafnsins. Þátttakendur
verða teknir upp á myndband og
mega búast við að þeim verði lítil-
lega leikstýrt á meðan þeir njóta
samverunnar.
Heimildarmyndin, Andlit Maríu, á
að vekja áhorfendur til umhugsunar
um veröldina sem „leikvöll“ okkar
allra, sama hvaðan við erum, hvar
við búum eða í hvaða átt við viljum
fara. Í henni býr fullt af ólíkum
manneskjum; manneskjum sem
eiga það sameiginlegt – að vera
manneskjur. En hversu margar ætli
eigi það að auki sameiginlegt að
heita María? Hvað þýðir það að
heita María og hvernig er það?
Hvað skiptir máli í lífi Maríu?
Svara við þessu og öðru er leitað
í nokkrum stuttum viðtölum við
konur sem heita María en hafa
fæðst á mismunandi stöðum í
heiminum og eru búsettar á Íslandi.
Eiga þær annað sameiginlegt en að
bera þetta nafn? Mörg andlit Maríu
eru hluti af íslensku landslagi og í
myndinni munu sum þeirra birtast
ásamt skýringu á nafninu.
Heitir þú María?
AFP
María mey Hún er sennilega frægasta María veraldar. Þessi var borin um götur
Ítalíu nú á föstudaginn langa, enda Ítalía kaþólskt land og þar býr jú páfinn.
Allar Maríur eru boðnar í te,
kaffi og Maríukex í dag
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.