Morgunblaðið - 30.03.2016, Page 19

Morgunblaðið - 30.03.2016, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 Páskahret Það fór aldrei svo að ekki snjóaði í Reykjavík um páskana. Snjórinn minnti enn einu sinni á að allra veðra er von í mars og þó birtan aukist með hverjum degi er enn vetur. Styrmir Kári Hart hefur verið sótt að Sigmundi Dav- íð Gunnlaugssyni for- sætisráðherra eftir að eiginkona hans upp- lýsti að hún ætti eign- arhaldsfélagið Wintris Inc. sem er skráð á Bresku Jómfrúr- eyjum. Hann þykir liggja vel við höggi. Pólitískir andstæð- ingar telja að loks hafi skapast færi til að koma höggi – jafnvel rothöggi – á forsætisráðherra. Þeir velta fyrir sér að leggja fram vantrausts- tillögu á ráðherrann og hugleiða hvort ekki sé rétt að stofna enn eina rannsóknarnefndina. Nær daglega eru fluttar fréttir af þess- um vangaveltum, þótt engir form- legir fundir hafi verið haldnir, eng- ar ákvarðanir teknar. Allt bara spjall yfir kaffibolla að því er virð- ist. Helgi Hrafn Gunnarsson, þing- maður Pírata, var fljótur að lýsa því yfir að óhugsandi væri að for- sætisráðherra sæti áfram. Frétta- stofa ríkisins upplýsti landsmenn um að vantrauststillaga hefði „kom- ið til tals innan allra stjórnarandstöðuflokkanna á þingi“. Tekið var fram að flokk- arnir hefðu ekki „rætt saman form- lega um sameiginlega vantrauststil- lögu“. Róbert Marshall, sá hinn sami og varði vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttur falli, vill vantraust á forsætisráðherra. Í viðtali við vef Hringbrautar lýsir Birgitta Jónsdóttir, þingmað- ur Pírata, því yfir að enginn vafi leiki á því að hún „muni beita sér fyrir því að vantrauststillaga verði lögð fram á hendur Sigmundi Dav- íð“. Þetta er ekki í fyrsta og líklega ekki í síðasta skipti sem Birgitta boðar til- lögur af þessu tagi. Ráðist á forseta Alþingis Í janúar 2012 lýsti miðstjórn Ungra jafn- aðarmanna yfir van- trausti á Ástu Ragn- heiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, fyrir að hafa greitt atkvæði gegn frávísun á tillögu um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde. Frávísuninni var ætlað að koma í veg fyrir að tillagan um afturköllun fengi þinglega meðferð. Fréttastofa ríkisins hafði það eftir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að forseti Alþingis yrði að gera það upp við sjálfan sig hvernig brugðist skyldi við yfirlýsingum um van- traust. Mörgum þóttu þetta kaldar kveðjur frá Jóhönnu til Ástu Ragn- heiðar, sem hafði um árabil verið einn nánasti samverka- og stuðn- ingsmaður hennar í stjórnmálum, meðal annars í Þjóðvaka. Birgitta Jónsdóttir, helsti sér- fræðingur landsins í að boða til- lögur um vantraust án þess að leggja þær fram, lýsti því yfir í við- tali við Egil Helgason í Ríkissjón- varpinu að hún stæði fyrir undir- skriftasöfnun meðal þingmanna til að lýsa vantrausti á forseta Alþing- is. Skömm forsetans var að hafa sett tillöguna um afturköllun ákær- unnar á dagskrá þingsins. Birgitta, sem þá var þingmaður Hreyfingarinnar, sagði sér misboð- ið. Hún neitaði hins vegar að upp- lýsa hvaða þingmenn hefðu þegar lagt henni lið: „Ég byrjaði nú bara á þessum undirskriftalista eftir atkvæða- greiðsluna en það eru komnir að- ilar úr þremur flokkum. Ég mun ekki birta nöfnin nema okkur takist að fá 32.“ Listinn var aldrei birtur og ekki kom tillaga frá Birgittu um van- traust á forseta Alþingis. Málfundaæfingar Birgitta Jónsdóttir lítur á van- trauststillögur sem eins konar mál- fundaæfingar – eða kannski tæki- færi til að komast hjá því að ræða efnislega mál sem krefjast annars en innantómra yfirlýsinga. Í mars 2013 var tekin fyrir til- laga um vantraust á ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur. Flutnings- maður var Þór Saari, félagi Birgittu í Borgarahreyfingunni og síðar Hreyfingunni. Vantraustið var fram komið vegna þess að ekki hafði tekist að tryggja breytingar á stjórnarskrá. Þór sagði í stuttri greinargerð að „vantrauststillaga sem hér er lögð fram beinist gegn ríkisstjórninni þar sem hún situr í umboði meirihluta þingsins, en þingið getur ekki afgreitt frumvarp til stjórnskipunarlaga byggt á þeim drögum sem samþykkt var að leggja til grundvallar nýrri stjórn- arskrá og samþykkt voru með yf- irgnæfandi meiri hluta í þjóð- aratkvæðagreiðslu 20. október 2012“. Birgitta studdi tillögu Þórs en með furðulegum hætti eins og kom fram þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu: „Ég vona þó að þetta já mitt verði ekki til þess að fella rík- isstjórnina, eins fáránlega og það hljómar, einfaldlega út af því að ég er svo hrædd við þetta ferli.“ Jóhanna Sigurðardóttir og ríkis- stjórn hennar stóðu af sér van- traustið með stuðningi tveggja þingmanna Bjartrar framtíðar – Guðmundar Steingrímssonar og Róberts Marshall. Rannsóknarnefnd „af minna tilefni“ Svandís Svavarsdóttir, þing- flokksformaður Vinstri-grænna, vill að skipuð verði sérstök rann- sóknarnefnd vegna Wintris- málsins. Í viðtali við fréttastofu ríkisins síðastliðinn föstudag benti hún á að samkvæmt nýjum siða- reglum sem Alþingi hefði sam- þykkt væri hægt að setja á stofn siðaráð: „Siðaráð gæti þá farið í saumana á þessu máli. Og svo kæmi auðvit- að til greina að setja á stofn sér- staka rannsóknarnefnd um þetta mál. Við höfum nú gert það af minna tilefni.“ Formaður þingflokks Vinstri- grænna hélt því fram í viðtalinu að forsætisráðherra græfi undan efna- hagslegu fullveldi landsins með eignarhaldi eiginkonunnar á Wintr- is. Kannski er þetta aðeins kald- hæðnislegt grín hjá þingflokks- formanninum sem gekk hart fram í að Icesave-samningar síðustu ríkis- stjórnar næðu fram að ganga. Hersir Sigurgeirsson, dósent í fjármálum við HÍ, hefur komist að þeirri niðurstöðu að eftirstöðvar Svavars-samninganna svokölluðu næmu um 208 milljörðum króna miðað við 100% heimtur úr þrotabúi Landsbankans. Sjö ára skjólinu sem samningarnir áttu að tryggja, og Jóhanna, Steingrímur og Svandís fögnuðu svo ákaft, væri að ljúka í júní næstkomandi. Í tíð ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri-grænna kom engum í hug að mögulegt væri að end- urheimta fé úr þrotabúum bank- anna. Sá sem nú er sakaður um að ógna efnahagslegu fullveldi var harðlega gagnrýndur fyrir slíkan málflutning og talinn sýna ábyrgð- arleysi. Þegar tæp þrjú ár eru liðin af kjörtímabili ríkisstjórnar Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks liggur fyrir að vegna aðgerða stjórnvalda við afnám fjármagns- hafta og uppgjör þrotabúanna munu greiðslur til ríkisins nema nær 500 milljörðum króna. Mun- urinn á aðgerðunum og Svavars- samningunum er um og yfir 700 milljarðar. Vantrauststillaga Orðin sem hafa fallið undanfarna daga eru stór og ekki verður séð hvernig þeir stjórnarandstæðingar, sem lengst hafa gengið, komast hjá því að leggja fram formlega tillögu um vantraust á forsætisráðherra. Sjálfur segist ráðherrann fagna slíkri tillögu. Fjölmiðlar munu örugglega „halda málinu vakandi“ fram að því að tillagan lítur dagsins ljós. Þegar þingmenn hafa rætt van- trauststillöguna og greitt um hana atkvæði hljóta þeir að sækja í hug- myndasmiðju Svandísar Svavars- dóttur. Það er a.m.k. tilefni til að sérstakt siðaráð eða rannsóknar- nefnd fari yfir það og meti hvernig stjórnvöld hafa staðið vörð um efnahagslegt fullveldi þjóðarinnar frá falli bankanna. „Við höfum nú gert það af minna tilefni,“ svo vitn- að sé í orð þingflokksformanns Vinstri-grænna. Eftir Óla Björn Kárason » Það er a.m.k. tilefni til að siðaráð eða rannsóknarnefnd fari yfir og meti hvernig stjórnvöld hafa staðið vörð um efnahagslegt fullveldi þjóðarinnar. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vantraust, málfundaæfingar og ógn við efnahagslegt fullveldi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.