Morgunblaðið - 30.03.2016, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016
Sonur minn áttifimm ára af-mæli 23. mars
og við ætlum að halda
sameiginlega upp á
það,“ segir Auður
Jónsdóttir sem býr í
Berlín ásamt eigin-
manni sínum, Þórarni
Böðvari Leifssyni, rit-
höfundi og teiknara,
og syni þeirra, Leifi
Ottó.
Þegar blaðamaður
ræddi við Auði í gær
var hún á leið út á
flugvöll að taka á
móti systur sinni,
Göggu Jónsdóttur
kvikmyndagerðar-
konu, og eiginmanni
hennar, Þorsteini
Bachmann leikara og
tveimur dætrum
þeirra.
„Við mæðginin ger-
um þetta stundum að halda sameiginlega upp á daginn og það var
hentugt að halda upp á daginn núna þótt afmælið verði meira fyrir
strákinn því flugmiðarnir eru ódýrir rétt eftir páskana. Við ætlum
að hafa Star Wars-köku og gera eitthvað fleira skemmtilegt fyrir
krakkana. Svo fáum við okkur pitsu og freyðivín fyrir okkur full-
orðna fólkið þegar líður á afmælið og vinir okkar í Berlín koma í
heimsókn.“
Auður og fjölskylda hafa búið í Berlín í tvö og hálft ár. „Það er
mjög gaman og sérstaklega núna þegar vorið er komið, að hlusta á
fuglasönginn og kirsuberjatrén eru byrjuð að blómstra. Fyndið að
fara út á flugvöll að taka á móti fólki sem lenti í tvísýnu við að kom-
ast á Keflavíkurflugvöll,“ en eins og landsmönnum er kunnugt snjó-
aði á suðvesturhorninu í gær.
„Núna er ég að safna saman hugmyndum fyrir næstu bók, en það
er mikið að gerast í Berlín og mig langar að skrifa um það, t.d. það
sem varðar fólkflutninga. Annars gengur lífið svipað fyrir sig og
það myndi gera á Íslandi. Ég fer með soninn á leikskóla og skrifa
svo allan daginn. Tek að mér verkefni, skrifa pistla og þess háttar.
Við erum með litla íslenska verksmiðju hérna á heimilinu í Berlín og
vinnum með íslenska tungu alla daga. Ég reyni líka að koma mér
inn í þýskuna með því að lesa mikið.“
Rithöfundurinn Auður tekur á móti viðurkenn-
ingu úr Rithöfundasjóði RÚV í byrjun ársins.
Heldur upp á af-
mælið með syninum
Auður Jónsdóttir er 43 ára í dag
Morgunblaðið/Eggert
R
ósa Björk fæddist í
Reykjavík 30.3. 1931 og
ólst þar upp: „Við
bjuggum víða í Reykja-
vík í mínum uppvexti
og fylgdum eiginlega byggingarsögu
bæjarins þegar byggðin var að
teygja sig yfir Skólavörðuholtið, í
Norðurmýrina og upp í Hlíðar.
Fyrstu fimm árin mín vorum við á
Framnesvegi, bjuggum síðan við
Eiríksgötu og fluttum þaðan í
Norðurmýrina þar sem faðir minn
byggði hús á Vífilsgötu 24. Þá féll
hann af vinnupalli, slasaðist og átti í
því í nokkur ár. Það slys setti strik í
reikninginn varðandi búsetu og af-
komu foreldra minna. Við áttum síð-
an heima á tveimur stöðum við Bar-
ónsstíginn, í Eskihlíð og loks byggðu
svo foreldrar mínir í Drápuhlíð og
settust þar að.
En við systurnar vorum líka í sveit
á sumrin. Eldri systir mín fór í Kerl-
ingardal í Mýrdal en við yngri syst-
urnar vorum á barnaheimili í sveit
eins og fjöldi annarra reykvískra
barna á stríðsárunum. Við vorum á
Staðarfelli á Fellsströnd og síðan á
Löngumýri í Skagafirði. Ingibjörg
Jóhannsdóttir frá Löngumýri var
forstöðukona þessara heimila.
Ég fékk nú heimþá og var svolítið
hnuggin fyrstu dagana en þarna átt-
um við góðar stundir og lærðum
handavinnu, garðyrkju og húshjálp.“
Rósa var öll barnaskólaárin í Aust-
urbæjarskólanum: „Þar hafði ég af-
bragðs kennara; Valgerður Guð-
mundsdóttir var minn aðalkennari
og Valgerður Briem var teiknikenn-
ari og mikil listakona, báðar há-
menntaðar og færar í sínu fagi.“
Rósa fór síðan í Ingimarsskóla við
Lindargötu, stundaði nám við MR og
lauk stúdentsprófi þaðan 1950, lauk
síðan kennaranámi á einum vetri og
loks BA-prófum í ensku og dönsku
við HÍ.
Rósa Björk Þorbjarnardóttir, fyrrv. endurm.stj. KHÍ – 85 ára
Kaffipása við kartöfluuppskeru Rósa Björk með Árna Pál í fanginu, Þórólfur, Anna Katrín og Þorbjörn Hlynur.
Samhent og vinsæl hjón
Með barnabörnum Friðrik Björn Árnason, Árni Pálsson, afmælisbarnið og
Kristín Manúelsdóttir á leið til Kaupmannahafnar í fyrra – og hlakka til.
Reykjavík Emma Vikt-
oría Peipina fæddist 15.
mars 2016 kl. 15.04.
Hún vó 4.256 g og var
53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Alise Peip-
ina og Kristaps Peipins.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino