Morgunblaðið - 28.05.2016, Síða 1
L A U G A R D A G U R 2 8. M A Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 123. tölublað 104. árgangur
VERK SEM
ENDURSPEGLA
LÍFRÍKIÐ
PÓSTKORTIN
FYRSTA LAND-
KYNNINGIN
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 12HAFNARHÚS 46
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Yfirvinnubann og veikindi flugum-
ferðarstjóra hafa haft áhrif á 3.000
ferðir flugvéla á milli Evrópu og Am-
eríku. Samkvæmt útreikningum
Isavia hefur þetta valdið alþjóðlegu
flugfélögunum aukakostnaði vegna
meiri brennslu eldsneytis sem nem-
ur eitthvað á annan milljarð króna.
Kostnaðurinn stafar af því að vél-
arnar þurfa að fara óhagkvæmari
flugleiðir, að sögn Guðna Sigurðs-
sonar, upplýsingafulltrúa Isavia.
Þegar flugumferðarstjóri í flug-
stjórnarmiðstöðinni veikist þarf að
draga úr umferð um íslenska flug-
stjórnarsvæðið. Vélum sem ætla að
fara syðst um svæðið er beint suður
fyrir, inn í það skoska.
Ekki hefur verið metinn kostnað-
ur við veikindi í flugturnunum á
Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkur-
flugvelli, að sögn Guðna. Flugfélögin
sem hingað fljúga verða fyrir ein-
hverjum kostnaði og farþegarnir
verða fyrir óþægindum.
Aðgerðirnar bitna ekki mikið fjár-
hagslega á Isavia. „Isavia verður
fyrir álitshnekki hjá alþjóðlegu flug-
félögunum. Þau fá verri þjónustu,“
segir Guðni. Hann bendir á að ís-
lenska ríkið hafi skuldbundið sig til
að veita örugga, hagkvæma og
óslitna þjónustu. Öryggi sé tryggt en
hagkvæmni minnki.
Áhrif á 3.000 flugferðir
Yfirvinnubann og veikindi flugumferðarstjóra hafa kostað flugfélögin sem fljúga
yfir Atlantshaf eitthvað á annan milljarð króna vegna óhagkvæmari flugleiða
MÓttast að þjónustan »6
Yfirvinnubann
» Ríkissáttasemjari hefur boð-
að til sáttafundar á þriðjudag.
» Yfirvinnubann flugumferð-
arstjóra hefur staðið frá 6. apríl.
» Flugleiðsöguþjónustan skap-
ar 300 störf og 5,6 milljarða
króna í gjaldeyri.
Kristófer Már Maronsson, formaður
Stúdentaráðs, segir að frumvarp Ill-
uga Gunnarssonar menntamálaráð-
herra um heildarendurskoðun laga
um Lánasjóð íslenskra námsmanna
líti við fyrstu sýn út fyrir að bjóða
upp á mun betri kjör en núverandi
kerfi gerir. Frumvarpið var sam-
þykkt á fundum þingflokka ríkis-
stjórnarflokkanna í vikunni og verð-
ur lagt fyrir þingið eftir helgi.
Verði frumvarpið að lögum munu
námsmenn í fullu námi geta fengið
65 þúsund krónur í beinan styrk á
mánuði. Að sögn menntamálaráð-
herra er um að ræða grundvallar-
breytingu á námsaðstoð ríkisins og
er hún að norrænni fyrirmynd.
Einnig er lagt upp með að há-
skólanemendur eigi möguleika á að
lækka endurgreiðsluna um helming
fyrstu fimm árin eftir kaup á sínu
fyrsta íbúðarhúsnæði. „Við fyrstu
sýn lítur út fyrir að það ákvæði hjálpi
fólki að komast í gegnum greiðslu-
mat og þar af leiðandi að borga af
íbúðinni sinni fyrstu fimm árin,
vegna þess að það er ekki að borga
námslánin á meðan. Við fögnum því
að ráðherra setji fram frumvarp þar
sem hugsað er til þess sem gerist eft-
ir nám.“ »2
Styrkur
til náms-
manna
Morgunblaðið/Rósa Braga
Illugi Gunnarsson Nýtt frumvarp
um LÍN er að norrænni fyrirmynd.
Auðveldara verður
að kaupa fyrstu íbúð
Vorið er svo sannarlega komið þegar nýstúd-
entar setja upp hvítu húfurnar. Menntaskólinn í
Reykjavík útskrifaði í gær stúdenta frá skól-
anum í 170. sinn. Athöfnin fór fram í Háskólabíói
og alls voru brautskráðir 206 stúdentar, 92 pilt-
ar og 114 stúlkur. Venju samkvæmt stillti út-
skriftarhópurinn sér upp í tröppum við aðal-
byggingu Háskóla Íslands að athöfn lokinni,
áður en haldið var út í framtíðina.
206 stúdentar horfa björtum augum til framtíðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Það eru engir
staðlar aðrir en
nefið á okkur,“
segir Stefán
Gunnar Thors,
sviðsstjóri um-
hverfis- og skipu-
lagssviðs hjá
VSÓ ráðgjöf.
Hefur verk-
fræðistofunni
verið fengið það
verkefni að skipa starfshóp sem
mun meta árangur lyktarstjórn-
unar í kjölfar stækkunar fiskþurrk-
unar HB Granda á Akranesi sem nú
hefur verið samþykkt í bæjarstjórn.
Efti því sem Morgunblaðið kemst
næst verður þetta í í fyrsta skipti
sem reynt verður að staðla mat á
styrk lyktar. »11
Munu þefa uppi lykt
af fiskþurrkun HB
Stefán Gunnar
Thors
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, telur
að ívilnanir, sem þeir sem bjóði upp
á heimagistingu fái, réttlæti tak-
markanir sem lagðar eru til í frum-
varpi um heimagistingu um 90
daga hámarksfjölda gistinátta og
tekjuhámark vegna heimagist-
ingar. „Við erum að lækka kröfur
um t.d. rekstrar- og heilbrigð-
isleyfi, og það frelsi verður að vera
háð einhverjum takmörkunum til
þess að það komi ekki niður á þeim
sem eru í samkeppninni,“ segir
Ragnheiður Elín. Í umsögn hús-
næðisleigufyrirtækisins Airbnb um
frumvarpið segir að 90 daga árshá-
mark geti leitt til þess að þeir sem
bjóði heimagistingu sjái sér ekki
hag í því að halda framboðinu
áfram. Er lagt til að hámarkið verði
þess í stað 120 dagar. Fyrirtækið
fagnar þó viðurkenningunni sem
felst í fyrirhugaðri löggjöf. »11
Ragnheiður Elín telur að ívilnanir
réttlæti takmarkanir á heimagistingu
Morgunblaðið/Eggert
Gisting Þúsundir gistirýma eru í boði í
heimagistingu, 13% eru með tilskilin leyfi.
„Ég held að maður muni ekki
gera sér grein fyrir því hversu stórt
ævintýri þetta verður, fyrr en á
staðinn verður komið,“ segir Aron
Einar Gunnarsson, fyrirliði ís-
lenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, um lokamót Evrópukeppn-
innar í viðtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins.
„Við höfum tekið þátt í ýmsum
mótum en ég er viss um að þetta
verður ekki í líkingu við neitt sem
við höfum gert áður. Umtalið um
keppnina er mikið og örygg-
isgæslan verður svakaleg, ekki síst
vegna hörmunganna í Frakklandi
fyrir nokkrum mánuðum,“ heldur
fyrirliðinn áfram.
Hann segir Evrópukeppnina
stóran sýningarglugga og aldrei að
vita hvað gerist að henni lokinni.
Hann á tvö ár eftir af samningi við
Cardiff en segist stefna að því að
komast í stærra lið » .
Evrópumótið í Frakklandi verður ekki í
líkingu við neitt sem við höfum gert áður
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leiðtogi Aron Einar Gunnarsson fer fyrir
íslenska landsliðinu á Evrópumótinu.