Morgunblaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég tók mig til fyrir stuttu ogsetti nýjustu verk þeirramanna sem ég nefni í inn- gangi undir smásjána. Atli hefur verið að gera það gott í henni Holly- wood undanfarin ár og starfaði m.a. með hinum iðjusama Hans Zimmer um hríð. Zimmer hefur sætt nokkurri gagnrýni frá fagur- kerum, sagður framleiða tár- stokkna kvikmyndatónlist á færi- bandi sem er reyndar alveg hárrétt. Nafn hans er vöru- merki, Hans Zim- mer er „verk- smiðja“ og hann situr langt í frá einsamall og sveittur yfir tónsetn- ingunni. Tónlist Zimmer við Thin Red Line (1999) er reyndar und- ursamleg en ég hef ekkert sér- staklega lagt mig eftir honum hin síðustu ár. En þetta er útúrdúr! Ég ætlaði að tala aðeins um Atla. Hann hefur verið iðinn við kolann vestra undanfarin ár en gaf sér þó tíma til að semja tónlistina við hina dásam- legu mynd Hrúta sem Grímur Há- konarson leikstýrir. Virkilega vel heppnuð tónskreyting þar sem Atli nýtir sér harmonikku, kirkjuorgel og gömul íslensk dægurlög til að búa til gamaldags, sveitalega og al- íslenska stemningu. Ólafur Arnalds fer víða í list sinni og snertir á klassík, poppi og allra handa tónlist í raun og hefur verið einkar farsæll í sínu fagi. Hann semur m.a. tónlist fyrir sjón- varp og kvikmyndir og á tónlistina við hina vinsælu bresku þáttaröð Broadchurch og hlaut fyrir hana Bafta-verðlaunin bresku fyrir tveimur árum. Heiður mikill, og Ólafur vel að honum kominn. Þætt- Dulmögn í Hollywood Tónskáld Jóhann starfar í draumaverksmiðjunni en á eigin forsendum. ina skreytir hann á hæfandi hátt, þjónar þeim en læðir inn eigin áferð á einkar smekklegan hátt. Á sama hátt hefur Jóhann Jó- hannsson komist í góðar álnir hvað kvikmyndatónlistina áhrærir. Líkt og hjá Ólafi er ferill hans marg- þættur, hann sinnir eigin tilrauna- kenndu sköpun en semur og fyrir leikrit, dansverk og kvikmyndir. Síðustu ár hefur hann unnið að stóreflismyndum og átti hann tón- listina við The Theory of Every- thing og var tilnefndur til Óskars- verðlauna fyrir hana. Þá var hann og tilnefndur fyrir tónlist sína við myndina Sicario sem ég ætla að rýna lítið eitt í. Því að tónlistin við Sicario er nefnilega stórmerkileg. Hún er al- gerlega frábær, skínandi gott dæmi um hvernig hægt er að samtvinna nokkurs konar þjónustuhlutverk (að undirstinga og styðja við mynd- ina með tónlistinni) og eigin, list- ræna sýn. Líkt og þessum stóru hef- ur tekist; John Williams, Ennio Morricone, John Barry o.s.frv. Mað- ur þekkir þeirra stíl, þó að myndina vanti. Og Jóhanni tekst með mikl- um glæsibrag að setja sjálfan sig inn í tónlistina um leið og hún smell- passar við framvindu myndarinnar. Sicario fjallar um eiturlyfjastríð á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, með tilheyrandi hasar og spennu. Taktur myndarinnar er hægur en knýjandi, það er listræn ára yfir og Jóhann einhvern veginn algerlega rétti maðurinn í verkið. Jóhann segir í upplýsandi viðtali við Deadline að leikstjórinn, Denis Villeneuve, hafi beðið um „varfærn- islega stríðstónlist“ og sú þversögn hafi verið honum áskorun. Hann leysir þetta í raun með slagverki sem gárar stöðugt undir, stundum hálfkæft en svo rís það upp og magnar upp stemningu. Jóhann brýtur þetta svo upp með fallegri stefjum, Skúli Sverrisson leggur til bassa á einum stað og Hildur Guðnadóttir á og þátt í tónlistinni. Semsagt, einkar tilkomumikið dæmi og fjandakornið, hann átti að taka Óskarinn! » Því að tónlistin viðSicario er nefnilega stórmerkileg. Hún er al- gerlega frábær, skín- andi gott dæmi um hvernig hægt er að sam- tvinna nokkurs konar þjónustuhlutverk (að undirstinga og styðja við myndina með tón- listinni) og eigin, list- ræna sýn. Tónlist Jóhanns Jóhannssonar fyrir vel kynntar stórmyndir frá draumaverksmiðjunni Hollywood hef- ur vakið verðskuldaða athygli að undanförnu. Önnur tónskáld frá landi elds og ísa hafa þá einnig verið að gera það gott í þeim geiranum, helst þá þeir Atli Örvarsson og Ólafur Arnalds. Rúnar Þórisson og hljómsveit leika á Kex hos- teli annað kvöld kl. 21. Með Rúnari leika Arnar Þór Gísla- son á trommur, Birkir Rafn Gíslason á gítar og Guðni Finns- son á bassa. Rúnar hefur gefið út fjórar sólóplötur og munu lög af þeim hljóma á tónleikunum. Hann hefur síðustu misseri verið iðinn við tónleikahald og þá m.a. á tónlist- arhátíðum. Rúnar og sveit á Kex Rúnar Þórisson Vortónleikar karlakóranna Bartóna og The Harvard Din and Tonics fara fram í Gamla bíói annað kvöld kl. 20. Bartónar ljúka með þessu sjötta starfsári sínu en kórinn söng m.a. sl. vor á tónleikum með Damien Rice og árlegum jólatónleikum með Kvenna- kórnum Kötlu. The Harvard Din and Tonics er bandarískur kór, stofnaður í Massa- chusetts árið 1979. Hann saman- stendur af 12 til 15 karlmönnum og kemur fram án eiginlegs stjórnanda. Kórinn hefur komið fram með lista- mönnum á borð við Ellu Fitzgerald, Bobby McFerrin, Lionel Richie og Herbie Hancock, gefið út 14 hljóm- plötur og sungið þjóðsöng Banda- ríkjanna fyrir íþróttaliðin Boston Celtics, Boston Bruins, Boston Red Sox, New York Yankees, San Franc- isco Giants, Tampa Bay Lightning og í Ryder Cup golfkeppninni. Kór- inn fer í tveggja til þriggja mánaða tónleikaferðalag annað hvert ár og ætlar að þessu sinni að hefja tón- leikaferð sína hér á landi. Bartónar munu m.a. syngja ættjarðarlög og mansöngva Bartóna og The Har- vard Din and Tonics djassstandarda og popplög. Sérstakir gestir á tón- leikunum verða Andrea Gylfadóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur. Frá Bandaríkjunum The Harvard Din and Tonics syngur í Gamla bíói ann- að kvöld og þykir sá karlakór einkar líflegur á sviði og skemmtilegur. Bartónar syngja með Harvard Din and Tonics Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is Eðallax fyrir ljúfar stundir WARCRAFT 2, 5, 8, 10:30(P) X-MEN APOCALYPSE 3D 7, 10 ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 2, 3:50, 5:50 BAD NEIGHBORS 2 5,8,10 RATCHET & CLANK 1:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 22:30 TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.