Morgunblaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 2
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Nýtt frumvarp Illuga Gunnarssonar
menntamálaráðherra um heildar-
endurskoðun á lögum um Lánasjóð
íslenskra námsmanna gerir ráð fyrir
að námsmenn í fullu námi geti fengið
65 þúsund króna beinan styrk á
mánuði. Einnig gerir frumvarpið ráð
fyrir námsaðstoð í formi lána á hag-
stæðum kjörum. Frumvarpið var
samþykkt á fundum þingflokka
ríkisstjórnarflokkanna í vikunni og
verður lagt fyrir þingið eftir helgi.
Námsstyrkurinn verður 65 þús-
und krónur á mánuði í alls 45 mán-
uði, sem svarar til fimm hefðbund-
inna skólaára. Námsmenn geta valið
um að taka eingöngu styrk eða styrk
og lán eða jafnvel lán að hluta, en
heildarstyrkur námsmanns getur
numið allt að 2.925.000 krónum mið-
að við fulla námsframvindu. Há-
markslán miðast við 15 milljónir á
hvern námsmann. Nær allir nem-
endur falla undir viðmið þar sem
heildaraðstoð getur numið tæpum 18
milljónum króna. Vextir lána verða
fastir verðtryggðir 2,5%, að við-
bættu álagi til að mæta afföllum af
lánum sem er áætlað um 0,5%.
Mætir kröfum stúdenta
„Við erum að taka upp nýtt kerfi
sem tryggir að þeir nemendur sem
ná fullri námsframvindu fá styrk
sem nemur 65 þúsund krónum á
mánuði. Um leið erum við að hækka
lánshlutfallið þannig að lán og styrk-
ur geta náð framfærsluupphæðinni,
en það hefur lengi verið baráttumál
stúdenta að mál-
um verði þannig
háttað að þeir
hafi aðgang að
nægu fjármagni
til að geta ein-
beitt sér að nám-
inu,“ segir Illugi.
Hann segir stúd-
enta hafa kallað
eftir því að
styrkjakerfi að
norrænni fyrirmynd verði tekið upp
hér á landi og telur hann að svo sé
gert með frumvarpinu.
Nemendur munu samkvæmt
frumvarpinu fá fulla framfærslu í
stað 90% framfærslu eins og verið
hefur. Í stað þess að námsmenn þurfi
að nota hluta af sumartekjum sínum
yfir skólaárið geta þeir með nýja
námsstyrkjakerfinu fengið fulla
framfærslu í níu mánuði í stað 90%
eins og nú er. Full framfærsla fyrir
næsta skólaár er áætluð tæpar 188
þúsund krónur á mánuði.
Auðveldar fyrstu íbúðarkaup
„Þar fyrir utan erum við að leggja
upp með að nemendur hafi mögu-
leika á að lækka endurgreiðsluna um
helming fyrstu fimm ár eftir kaup á
fyrsta íbúðarhúsnæði. Ég tel að
þetta skipti miklu máli fyrir ungt
fólk til að komast í gegnum greiðslu-
mat,“ segir Illugi. Vextir á lánunum
munu hækka úr 1% í 3% og telur Ill-
ugi að þannig sé styrkurinn færður
úr lánunum, þar sem honum var
ójafnt skipt, yfir í það að allir þeir
sem standist námsframvindukröfur
geti fengið styrk. „Þetta er því rétt-
látara kerfi hvað það varðar,“ bætir
hann við.
Hagkvæmt fyrir ríkissjóð
Hann telur að hið nýja kerfi verði
hagkvæmara fyrir ríkissjóð þegar
upp er staðið. „Við gerðum ráð fyrir
því í kostnaðarmati okkar að náms-
framvindan batnaði og það er gott
fyrir nemendur. En það er líka gott
fyrir háskólakerfið sjálft og alla
efnahagsstarfsemina og þar með líka
gott fyrir ríkissjóð. Með bættri
námsframvindu erum við að útskrifa
jafnmarga og áður en það tekur þá
skemmri tíma og þar með nýtast
fjármunir háskólanna betur. Þegar
tíminn er betur nýttur eykst þjóðar-
framleiðslan við það að starfstíminn
á vinnumarkaði er að lengjast með
fullt nám að baki.“
Grundvallarbreyting á námsaðstoð
Fyrirkomulagið að norrænni fyrirmynd Námsmenn fái 3 milljónir í styrk Markmiðið að
tryggja námsmönnum fulla framfærslu og gefa þeim aukinn kost á að mennta sig án skuldsetningar
Illugi
Gunnarsson
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Betri ferð
- vita.is
fyrir betra verð
Verð frá:
109.900
Á mann m.v. 2 í herbergi á
Atrion.
10 og 11 nátta ferðir í boði.
KRÍT
Tilboð í júní
fyrir tvo!
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Myndin er tekin við Víti norðan Kröfluvirkj-
unar í vikunni, en þangað er stöðugur
straumur erlendra ferðamanna. Síðasta spöl-
inn verða þeir að kafa í snjónum og bílum
verða þeir að snúa og leggja á mjóum veg-
inum, sem alls ekki er auðvelt. Enn hefur
ekki verið rutt inn á bílastæði ferðamanna
sem þarna er.
Að sögn Guðrúnar Brynleifsdóttur hjá Mý-
vatnsstofu fjölgar erlendum ferðamönnum nú
hröðum skrefum og koma þeir fyrr á vorin en
áður.
Starfsmenn Mývatnsstofu búa sig undir enn
eitt metsumarið við hin miklu náttúruperlu,
Mývatn. sisi@mbl.is
Ferðamenn fjölmenna að Mývatni
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Kafað í snjó í maílok og stefnir í enn eitt metsumarið
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Almennt séð er ég brattur fyrir
þetta sumar,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson, jarð- og veðurfræð-
ingur, eða Siggi stormur, sem hefur
spáð í sumarveðrið síðustu 18 ár við
góðan orðstír. Að hans mati eru hag-
stæðar veðurhorfur fyrir sumarið.
„Samkvæmt veðurlagsspám sem
taka mið af sögulegu samhengi er
úrkomulítið og frekar hlýtt sumar
framundan, að minnsta kosti á Suð-
urlandi,“ segir Sigurður.
Þá segir hann athyglisvert hversu
vel Vestfirðir koma út úr spánni að
þessu sinni. „Það er óvanalegt að sjá
Vestfirði skora svona hátt, en þar
verður sólríkt og þurrt að miklu
leyti.“
Þá segir Sigurður að landsmenn
fái sennilega þurrara og bjartara
veður á Suður- og Vesturlandi en
þeir eigi að venjast. „Suðurlandið er
á meðalrófi hvað varðar hlýindi, en
júní og ágúst verða nokkuð hlýrri en
við eigum að venjast.“
Þegar úrkomuspám er bætt við
segir Sigurður að margt bendi til
þess að það verði fremur þurrt á
Suðurlandi. „Það verður ívið meiri
úrkoma á norðanverðu landinu.“
Sumarið komið fyrir norðan
Íbúar á Norður- og Austurlandi fá
þó að taka forskot á sumarsæluna nú
um helgina, en spáð er hægri sunn-
anátt og léttskýjuðu í dag. Að sögn
Þorsteins Jónssonar, veðurfræðings
á Veðurstofu Íslands, er sumarið í
raun komið. „Það verður þó kannski
ekki eins gott hérna sunnan- og vest-
anlands þó það verði þurrt að mestu,
það verður líklega skýjað og hitinn
kannski ekki mikið yfir tíu stigum.
En hitinn fer upp í 20 stig fyrir norð-
an og austan með sólskini.“ Spurður
um veðrið almennt í sumar segir
Þorsteinn að spáin sé í meðallagi.
„Það segir kannski lítið um grill-
veðrið, því það er ekki hægt að lesa
um ríkjandi áttir. En sumarið er að
koma í næstu viku.“
Sumarið kemur í næstu viku
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Blíða Langtímaspár gera ráð fyrir
sólríku sumri á Suðurlandi.
Óvenju sólríkt
sumar á Vestfjörðum
segir Siggi stormur
Eigendur vestfirsku laxeldisfyr-
irtækjanna Arnarlax og Fjarðalax
hafa ákveðið að sameina þau. Sam-
einað fyrirtæki starfar undir merkj-
um Arnarlax og höfuðstöðvar þess
verða á Bíldudal. Víkingur Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri hjá Arn-
arlaxi, segir í samtali við Morg-
unblaðið að áform fyrirtækisins
verði kynnt á starfsmannafundum
félaganna á mánudag. Tilgangur við-
skiptanna sé að efla og styrkja fisk-
eldið.
Arnarlax er ungt fyrirtæki í Arn-
arfirði í hraðri uppbyggingu. Norski
fiskeldisrisinn SalMar keypti tæp-
lega 23% hlut í fyrirtækinu í vetur
og var það talið stuðningsyfirlýsing
við uppbygginguna. SalMar kemur
sterkt inn í hluthafahóp sameinaðs
félags og verður kjölfestufjárfestir
ásamt Matthíasi Garðarssyni og
Kristian Matthíassyni, stærstu eig-
endum Arnarlax. Kristian verður
forstjóri félagsins. Kjölfestufjár-
festir Fjarðalax mun einnig verða
hluthafi. Fjarðalax er með sjókvía-
eldi í þremur fjörðum Vestfjarða og
er stærsta fiskeldisfyrirtæki lands-
ins. helgi@mbl.is
Vestfirsk-
ur risi í
laxeldi
Arnarlax á Bíldu-
dal kaupir Fjarðalax