Morgunblaðið - 28.05.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall
Omega 3 fitusýra
Meiri virkni
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Læknar mæla
með selaolíunni
Selaolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Selaolía Meiri virkniEinstök olía
Óblönduð
– meiri virkni Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Samkvæmt endurskoðaðri starfs-
áætlun Alþingis verður þingi
frestað næsta fimmtudag, þann 2.
júní, en í þarnæstu viku, dagana 6.
til 9. júní verða nefndadagar.
Einar K. Guðfinnsson, forseti
Alþingis, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að á mánudag
yrði fyrirspurnafundur á Alþingi
og á mánudagskvöld eldhúsdags-
umræður. Hefðbundnir þing-
fundardagar yrðu þriðjudagur,
miðvikudagur og fimmtudagur í
næstu viku. Þingi yrði frestað á
fimmtudag en fjórir nefndadagar
yrðu í þarnæstu viku.
„Síðan hefjast
þingstörf á nýj-
an leik þann 10.
ágúst með
þriggja daga
nefndafundum
og 15. ágúst
hefjast þing-
fundir sem
standa til 2.
september, en
þá verður þingi frestað,“ sagði
Einar.
Brýnustu málin afgreidd
Fram hefur komið að ríkis-
stjórnin leggur áherslu á að Al-
þingi afgreiði fjölda þingmála áður
en þingi verður frestað í septem-
ber og boðað til þingkosninga.
Forseti Alþingis var spurður
hvort hann teldi að einhverjar lík-
ur væru á að Alþingi tækist að af-
greiða þann lista þingmála sem
gefinn var út 19. apríl sl. um þing-
mál sem ríkisstjórnin vildi að yrðu
afgreidd áður en þingi yrði frest-
að: „Mér finnst ekkert ólíklegt að
það takist, a.m.k. varðandi þau
mál sem ríkisstjórnin mun leggja
áherslu á að klárist. Það eru
drjúgir þingfundardagar í ágúst
fram undan, auk nefndadaganna í
byrjun júní og fyrir þingfundi í
ágúst. Því tel ég alveg raunhæft
að ætla að það takist að afgreiða
þau mál sem ríkisstjórnin leggur
mesta áherslu á,“ sagði Einar.
Þingi frestað 2. júní
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, telur raunhæft að
ætla að hægt verði að standa við starfsáætlun þingsins
Einar K.
Guðfinnsson
Tengdadætur, barnabörn, samstarfsfólk og
vinir báru kistu Margrétar Indriðadóttur,
fréttamanns og fréttastjóra Útvarps, úr Dóm-
kirkjunni en útför hennar fór fram þaðan í
gær. Fremstar eru Margrét Þóra Gunn-
arsdóttir og Ingibjörg Eyþórsdóttir, þá Kári
Jónasson og Margrét Jónsdóttir, Laufey
Helgadóttir og Edda Óskarsdóttir og loks
Þórgunnur Anna og Margrét Edda Örnólfs-
dætur. Synir Margrétar, Örnólfur og Guð-
mundur Andri Thorssynir, gengu fremstir á
eftir kistunni. Hjálmar Jónsson dóm-
kirkjuprestur jarðsöng og Erna Indriðadóttir
flutti minningarorð. Schola cantorum söng og
Hörður Áskelsson organisti lék.
Margrét Indriðadóttir jarðsungin
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hluti af nýrri út-
skriftardeild
Landspítala, sem
opnuð var á
Landakoti í mars
sl., er nú notaður
sem sjúkrahótel
fyrir hluta þeirr-
ar starfsemi sem
áður var á
Sjúkrahótelinu í Ármúla. Verður svo
þar til nýtt sjúkrahótel verður opnað
við Hringbraut á næsta ári. „Þegar
samningnum var sagt upp í Ármúl-
anum ákváðum við í samráði við vel-
ferðarráðuneytið að nýta hluta af
rúmunum sem eru á útskriftar-
deildinni sem sjúkrahótel,“ segir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri flæðisviðs Landspít-
alans. Hún segir Landakot ekki
anna allri þeirri starfsemi sem áður
var í Ármúla. „Þessi deild er fyrst og
fremst hugsuð fyrir þá sem þurfa
hjúkrun og nánara eftirlit.“
Áætlað var að nýta helming gisti-
rúma Landakots undir starfsemina
en nú er útlit fyrir að það hlutfall
verði sveigjanlegra. „Við þurfum að
láta framboð og eftirspurn ráða ferð
þar,“ segir Guðlaug.
Sjúkrahótel
á Landa-
kotsspítala
Um millibils-
ástand að ræða
Skúli Halldórsson
Helgi Bjarnason
Ríkissáttasemjari hefur boðað til
fundar á þriðjudagsmorgun í kjara-
deilu flugumferðarstjóra. Sigurjón
Jónasson, formaður Félags íslenskra
flugumferðarstjóra, segir í samtali við
Morgunblaðið að lítið hafi þokast í
viðræðunum. Yfirvinnubann hefur
verið í gildi í þeirra röðum frá 6. apríl
síðastliðnum en hertari aðgerðir eru
ekki í bígerð.
„Við höfum ekki rætt frekari að-
gerðir að svo stöddu, en það er alltaf í
skoðun,“ segir Sigurjón.
„Hagkvæmt að hækka launin“
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, sagði í leiðara í fréttabréfi SA, Á
vettvangi, á fimmtudag að deilan gæti
dregið dilk á eftir sér.
„Isavia annast flugumsjón á
stórum hluta Norður-Atlantshafsins.
Ítrekaðar launadeilur við flugumferð-
arstjóra, og kröfur um margfaldar
launahækkanir á við aðra, bjóða
þeirri hættu heim að þjónustan flytj-
ist úr landi,“ skrifar Þorsteinn. „Enda
renna önnur ríki hýrum augum til
þessarar ábatasömu starfsemi. Eng-
ar náttúrulegar aðstæður kalla á að
starfsemin sé rekin hér á landi.“
Sigurjón gefur lítið fyrir þessi rök
Þorsteins. „Við höfum heyrt þennan
söng áður, í öllum kjaraviðræðum
hingað til hefur þetta komið upp á
einhverjum tímapunkti. Ég vísa
þessu beint til föðurhúsanna. Mér
finnst óábyrgt af fyrirtækinu, sem
ber ábyrgð á rekstrinum, að vilja
frekar sleppa því að veita þjónustu,
sem skilar íslenska ríkinu gríðarleg-
um gjaldeyristekjum, í stað þess að
taka þátt í þeirri alþjóðlegu sam-
keppni sem það býr við.“
Þá segir hann að íslenska ríkið
myndi ekki bera meginþungann af
launahækkunum þeirra. „Það kæmi
bara að mestu leyti frá þeim erlendu
flugfélögum sem nota okkar
yfirflugsþjónustu. Við höfum látið
reikna það út fyrir okkur, að það er
þjóðhagslega hagkvæmt að hækka
laun flugumferðarstjóra. Tekjuskatt-
urinn af okkar launum er meiri en
hlutur ríkisins í launagreiðslunum.“
300 störf við þjónustuna
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir að Íslendingar
hafi veitt góða þjónustu og það sé for-
sendan fyrir því að halda flugleið-
söguþjónustunni. Um leið og truflanir
verði á þjónustunni komi upp
óánægja hjá flugfélögunum. Spurður
hvort til þess geti komið að Alþjóða-
flugmálastofnunin flytji flugstjórnina
annað segir Guðni að ef notendur séu
ósáttir verði það eflaust rætt. Veit
hann þó ekki til þess að það hafi kom-
ið til umræðu nú.
Fram hefur komið hjá Þórólfi
Árnasyni, forstjóra Samgöngustofu,
að um 300 störf á Íslandi tengist flug-
leiðsöguþjónustunni. Kostnaðurinn
er greiddur af notendum hennar og
rennur hugsanlegur hagnaður aftur
til notenda með lægri gjöldum. Starf-
semin skilar um 5,6 milljörðum króna
í gjaldeyri inn í þjóðarbúið á hverju
ári.
Forstjórinn neðarlega á lista
Ragnar Árnason, forstöðumaður
vinnumarkaðssviðs SA, segir engan
sparnað felast í „að setja hér allt á
annan endann með því að semja við
flugumferðarstjóra um hækkanir upp
á tugi prósenta. Þessi rökstuðningur
segir meira en margt annað um
þeirra nálgun í þessum kjaraviðræð-
um.“
Aðspurður vill Ragnar hvorki gefa
upp launakjör né -kröfur flugumferð-
arstjóranna. „Við getum sagt það sem
svo að í launaútborgun Isavia stendur
forstjórinn nokkuð neðarlega.“
Skæruverkföll boðuð
Flugumferðarstjórar hafa nokkr-
um sinnum boðað hrinu verkfalla,
skæruverkföll, á undanförnum árum,
meðal annars 2001, 2008 og 2010.
Sjaldan hefur komið til langra verk-
falla því Félag íslenskra flugumferð-
arstjóra hefur gjarnan dregið verk-
fallsboðun til baka vegna hótana um
lagasetningu á aðgerðir þeirra. Á
árinu 2010 var ríkisstjórnin búin að
samþykkja frumvarp um lög á verk-
fall en flugumferðarstjórar drógu þá
boðunina til baka og reyndu áfram að
ná samningum með viðræðum.
Óttast að þjónustan fari annað
Ríkissáttasemjari boðar flugumferðarstjóra til fundar á þriðjudag Hafa ekki rætt frekari aðgerðir
Truflanir á þjónustunni valda óánægju hjá flugfélögum Skilar 5,6 milljörðum í gjaldeyristekjum
Flug Stigið út úr flugvélinni.