Morgunblaðið - 28.05.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Sigríður Andersen færði skatt-lagningu á bifreiðaeigendur í tal
á Alþingi í fyrradag og gagnrýndi
hve flóknar reglur gilda um skatta
og gjöld og hve háar álögurnar eru.
Hún benti á að vöru-
gjöld á bíla gætu farið
upp í 65% og ofan á
það legðist 24% virð-
isaukaskattur. Sam-
tals þýðir þetta að bíll-
inn tvöfaldast í verði
við þessar miklu álög-
ur, sem er auðvitað
yfirgengileg skatt-
lagning.
Sigríður lagði til aðsameina alla
vörugjaldsflokkana
bæði fyrir bíla og elds-
neyti, til að einfalda og
draga úr neyslustýringu, enda væri
hún misheppnuð, til dæmis í tilviki
díselbíla sem nú væri hyglað án þess
að góð rök væru fyrir því.
Jákvætt er að fjármálaráðherra tókundir það að flækjustigið í álagn-
ingu á bíla og eldsneyti væri orðið of
hátt, auk þess sem hann benti á að
misræmi í skattlagningu væri skað-
legt og ýtti undir undanskot.
Þá sagðist hann hafa sett á fótstarfshóp um þessa skattlagn-
ingu fyrr á árinu sem ætti að skila
tillögum um mitt sumar.
Það er ágætt, en hættan er sú aðvinstri stjórnin, sem ekki er
ólíklegt að taki við í haust, er ekki
líkleg til að nýta þá vinnu til að
lækka skatta.
Einsetji núverandi ríkisstjórn sérað klára þetta mál, og þá vænt-
anlega í leiðinni kjörtímabilið, geta
bifreiðaeigendur hins vegar gert sér
einhverjar vonir um að álögur verði
ekki aðeins jafnaðar út heldur einnig
lækkaðar.
Sigríður
Andersen
Ofurskattlagning
á bifreiðaeigendur
STAKSTEINAR
Bjarni
Benediktsson
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Crocker-stóllmeð örmum. Nælonband í sessu og baki. 14.900 kr. Nú 9.900 kr.
9.900
SPARAÐU
5.000
FÁÐU ÞÉR SÆTI Veður víða um heim 27.5., kl. 18.00Reykjavík 8 rigning
Bolungarvík 10 rigning
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 5 heiðskírt
Þórshöfn 9 heiðskírt
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 19 heiðskírt
Stokkhólmur 11 rigning
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 20 rigning
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 þoka
London 19 léttskýjað
París 23 rigning
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 18 skýjað
Berlín 20 skýjað
Vín 23 þrumuveður
Moskva 24 léttskýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 23 heiðskírt
Róm 27 heiðskírt
Aþena 27 rigning
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 22 alskýjað
New York 19 skýjað
Chicago 23 rigning
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:32 23:20
ÍSAFJÖRÐUR 2:56 24:05
SIGLUFJÖRÐUR 2:37 23:50
DJÚPIVOGUR 2:52 22:58
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fyrr í vikunni var samþykkt í bæjarstjórn Akra-
nesbæjar að heimila stækkun fiskþurrkunar HB
Granda í bænum. Eins og fram hefur komið hefur
málið verið umdeilt í bæjarfélaginu þar sem sumum
bæjarbúa hefur fundist óhófleg lyktarmengun af
starfseminni sem er starfrækt á svokölluðu Breið-
arsvæði. Í frétt á vef Akranesbæjar kemur fram að
lagðir hafi verið fram þrír undirskriftalistar við
meðferð málsins. Einn frá Betra Akranes með
nöfnum 520 einstaklinga en þar er tillögunni mót-
mælt, listi með nöfnum 74 einstaklinga sem ekki
eiga lögheimili á Akranesi en þar er tillögunni einn-
ig mótmælt og listi með undirskriftum 767 einstak-
linga þar sem lýst er stuðningi við tillöguna og upp-
byggingaráform HB Granda. Í deiliskipulags-
tillögunni er gert ráð fyrir að sameina for- og
eftirþurrkun HB Granda undir einu þaki. Í fyrsta
áfanga framkvæmdanna er stefnt að því að bæta við
eftirþurrkunarhúsi við núverandi forþurrkunarhús.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að heimilt verði að
byggja ný hús á lóðinni, fjær íbúabyggð, fyrir starf-
semi fiskþurrkunar í tveimur áföngum. „Óheimilt
er að veita byggingarleyfi fyrir öðrum áfanga nema
tekist hafi að tryggja viðunandi grenndaráhrif í
áfanga 1 samkvæmt þeim viðmiðunum á lyktar-
skynmati sem fyrirtækið hefur sett sér. HB Grandi
skilaði skýrslu með mati á umhverfisáhrifum með
skipulagstillögunni og er þar gerð ítarleg grein fyr-
ir áformum fyrirtækisins og aðgerðum til að lág-
marka lyktarmengun og mæla, samkvæmt
ákveðnum viðmiðunum í lyktarskynmati, árangur
aðgerða félagsins,“ segir í fréttinni.
Fullreynt eftir tvö ár
Í minnisblaði sem Vilhjálmur Vilhjálmsson, for-
stjóri HB Granda, lagði fyrir bæjarstjórn kemur
fram að ekki sé ætlun að reka fiskþurrkun áfram á
Akranesi ef markmið um lágmörkun óþæginda
vegna lyktar nást ekki. ,,Það er erfitt að segja hve-
nær fullreynt er. Ég myndi halda að ef ekki sæist til
sólar hvað það varðar til að mynda tveim árum eftir
að hvor áfangi um sig verður tekin í notkun gæti það
talist fullreynt,“ segir Vilhjálmur í bréfi sínu.
Fjórir bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu deili-
skipulagsins, en það eru þau Ingibjörg Pálmadóttir,
(B) Valdís Eyjólfsdóttir, (D) Valgarður Lyngdal
Jónsson (S) og Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir (Æ).
Í bókun frá þeim segir m.a. að þrátt fyrir góðan
vilja HB Granda til að taka á vandanum og yfirlýs-
ingu Vilhjálms, þá ,,verði það ekki fljóttekin eða auð-
veld ákvörðun eftir hundruð milljóna króna fjárfest-
ingu,“ að láta af fiskþurrkuninni. Því væri betra að
finna henni nýjan stað.
Verður fjær íbúabyggð
Lágmarka þarf lyktina
Fiskþurrkun Stækkun fiskþurrkunar er umdeild
en var samþykkt í bæjarstjórn Akranesbæjar.
Fiskþurrkunin mun stækka
Settur verður á fót lyktarmats-
hópur sem hefur það verkefni að
meta þá lykt sem verður af starf-
semi fiskþurrkuninnar. VSÓ ráð-
gjöf hefur það verkefni að meta
lyktina og skipa í starfshóp. „Það
eru engir staðlar aðrir en nefið á
okkur,“ segir Stefán Gunnar Thors,
sviðsstjóri umhverfis- og skipu-
lagssviðs hjá VSÓ ráðgjöf.
Eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst er þetta í fyrsta skipti
á Íslandi sem fólk verður í starfi
við að meta lykt. „Hópurinn fær
ákveðna þjálfun, þannig að ákveð-
inni aðferð verði fylgt, og hann
mun gefa einkunn. Þjálfunin mun
snúa að því að meta hvað kemur
frá þurrkuninni og hvað kemur frá
öðru,“ segir Stefán. Að sögn hans
verða Heilbrigðiseftirlitð og Matís
með í ráðum til að gæta hlutleysis.
Í vinnu við að meta lyktina
FÁ LYKTARÞJÁLFUN
Akranes Settur verður á fót starfshópur sem á að meta lykt frá fiskþurrkuninni.