Morgunblaðið - 28.05.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Hámarkaðu árangur þinn
Á milli þín og keppinauta þinna, þarf að jafna metin. Að brjóta tímamúra.
Kepptu við þá bestu með Edge 520, GPS reiðhjólatölva sem gefur þér færi á
að keppa við Strava tímakafla í rauntíma og þú sérð um leið árangurinn á skjánum.
Æfingin skapar
meistarann
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Ný bygging Icelandair Hotels við
Hótel Reykjahlíð er komin í deili-
skipulag sveitarinnar en þar er gert
ráð fyrir að byggja 43 herbergja
viðbyggingu við gamla hótelið.
Í deiliskipulaginu kemur fram að
ætlun eigenda sé að byggja látlausa
byggingu þannig að núverandi
bygging fái að njóta sín og verði
miðpunkturinn. Torf verður á þök-
um viðbyggingarinnar sem verður
klædd gráum viði. Þá segir einnig
að það sé vilji Icelandair Hotels að
standa vel að framkvæmdinni og
huga sérstaklega að fráveitumálum,
með vísan í reglugerð um verndun
Mývatns og Laxár frá 2012. Þannig
verður allt skólp hreinsað með ít-
arlegri hreinsun en tveggja þrepa
hreinsun er í samræmi við ákvæði
um fráveitur og skólp.
Meðvitað hefur verið reynt að
stilla hæð viðbyggingarinnar í hóf
til að skerða útsýni yfir vatnið sem
minnst og er hún því á tveimur
hæðum og heildarhæð hennar tölu-
vert minni en heimilt er í núverandi
deiliskipulagi. Hugmynd Icelandair
er að markhópur hótelsins verði vel
stæðir ferðamenn sem njóta vilja
náttúrufegurðar við Mývatn. Að
sögn Magneu Þóreyjar Hjálm-
arsdóttur, framkvæmdarstjóra Ice-
landair Hotels, er stefnt að kynn-
ingarfundi mánudaginn 30. maí
næstkomandi.
Stærsta hótel sveitarinnar
Icelandair hótelið er ekki eina
stóra hótelið sem framkvæmdir eru
hafnar við í Mývatnssveit því fyrsta
skóflustungan að nýju Fosshóteli
við Mývatn var tekin 21. maí síðast-
liðin. Jarðvegsframkvæmdir eru
komnar á fullt skammt frá Gríms-
stöðum og vinna nú stórvirkar
vinnuvélar þar. Þar er gert ráð fyr-
ir um 5.000 fermetra hóteli á þrem
hæðum, sem mun telja 91 herbergi.
Verður hótelið því það stærsta í
sveitinni. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins munu fram-
kvæmdir kosta um 800-1.000 millj-
ónir. Aðilar, sem standa að bygg-
ingu hótels Fosshótela á
Hnappavöllum á milli Jökulsárlóns
og Skaftafells, munu fara í júní til
Mývatns og reisa hótelið.
Ekki er langt síðan Sel-Hótel á
Skútustöðum, sunnan við vatnið var
stækkað, Hótel Gígur á Skútustöð-
um hefur viðrað hugmyndir um
stækkun og árið 2014 var nýtt 80
herbergja hótel, Hótel Laxá, tekið í
notkun.
Meiri skilningur
„Það eru gerðar kröfur til þess-
ara hótela,“ segir Jón Óskar Pét-
ursson, sveitastjóri við Skútustaða-
hrepp. „Það eru þessi tvö stóru
verkefni núna hér í sveit, reyndar
komin mislangt. Það er byrjað á
Grímsstöðum en Icelandair hótelið
er í skipulagsferli.
Við getum ekki annað en leyft
mönnum að fara í skipulagsvinnu,“
segir Jón og bendir á að í reglugerð
um verndun Mývatns og Laxár frá
2012 þurfi hótelin að setja upp ít-
arhreinsun við sína fráveitu.
Ástand Mývatns hefur verið mik-
ið rætt að undanförnu en þrátt fyrir
miklar rannsóknir er lítið vitað um
af hverju blábakteríur, eða leirlos
eins og heimamenn kalla það, valda
svona miklum sveiflum í lífríkinu.og
var sérstök nefnd sett á laggirnar
af umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
inu sem ætlað er að taka saman
lykilupplýsingar um ástand mála í
Mývatni. Á nefndin að skila af sér
skýrslu til Sigrúnar Magnúsdóttur
umhverfisráðherra fyrir 17. júní.
Jón Óskar segir að sveitastjórnin
mæti nú meiri skilningi en áður af
ráðamönnum.
„Við finnum fyrir meiri skilningi
og stuðningi en auðvitað er ekkert í
hendi með þetta,“ segir hann en
áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdir við frárennsli við vatnið
nema um 300 milljónum króna.
Gróskumikil hótelflóra við Mývatn
Icelandair og Fosshótel með risaframkvæmdir við Mývatn Hugað sérstaklega að fráveitumálum
Miklar kröfur eru gerðar Sveitarstjórinn segist finna fyrir auknum skilningi ráðamanna
Ljósmynd/Arnar Egilsson
Gamla Hótel Reykjahlíð Í hótelinu eru níu herbergi og veitingasalur. Það stendur á einstökum útsýnisstað.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Hótel Grímsstaðir Verður stærsta hótelið í sveitinni eða um 100 herbergi.
Nýja Hótel Reykjahlíð Icelandair er ekki tilbúið með teikningar að útliti hótelsins, hefur einungis lagt fram deiliskipulagstillögur fyrir svæðið sem hér má sjá, en Apparat arkitektar teiknuðu viðbygg-
inguna. Gamla húsið stendur uppúr en þrátt fyrir að mega byggja á þremur hæðum ákvað Icelandair að láta tvær duga til að takmarka ekki útsýni. Kynningarfundur er fyrirhugaður 30. maí nk.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, sagði í
gær að í síðustu viku hefði henni
borist kæra Guðmundar Jóelssonar,
löggilts endurskoðanda, á hendur
endurskoðendaráði.
Ragnheiður Elín sagði að við-
bragða við kærunni hefði verið leit-
að frá endurskoðendaráði en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um málið á
þessu stigi.
„Málið er til skoðunar í ráðuneyt-
inu og verður farið rækilega yfir
það. Að því búnu mun ég tjá mig
um málið,“ sagði ráðherra.
Morgunblaðið hefur fengið nokk-
ur viðbrögð frá einyrkjum í endur-
skoðun, sem lýsa stuðningi við Guð-
mund Jóelsson og málstað hans.
Segja þeir m.a. að ýmsir sjálfstæðir
endurskoðendur, þ.e. þeir sem ekki
tilheyri stóru endurskoðunarstof-
unum, séu í svipaðri stöðu og Guð-
mundur og telji
að þeir séu lagðir
í einelti af endur-
skoðendaráði.
Eins og fram
kom í Morgun-
blaðinu í gær
hefur endurskoð-
endaráð lagt til
við ráðherra öðru
sinni að felld
verði niður
starfsréttindi hans, þar sem hann
hefur hafnað því að undirgangast
skoðun endurskoðendaráðs á störf-
um sínum. Guðmundur dregur í efa
að alþjóðlegir endurskoðunar-
staðlar, sem ráðið styðst við í end-
urskoðun sinni á störfum endur-
skoðenda, hafi lagalegt gildi, þar
sem þeir hafi hvorki verið þýddir,
né formlega birtir, eins og kom
fram í Morgunblaðinu í gær.
Ragnheiður Elín hafnaði því í
maí í fyrra að fara að tillögu endur-
skoðendaráðs.
Ráðherra
skoðar kæru
Guðmundar
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Hörð gagnrýni á endurskoðendaráð