Morgunblaðið - 28.05.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Lára, sem undanfarna þrjá mánuði
hefur ásamt tveimur samstarfs-
mönnum sínum farið gaumgæfilega í
gegnum 17 þúsund póstkort í eigu
safnsins.
Elstu póstkortin einstök
„Rauntalan er að vísu töluvert
lægri því mörg eintök eru til af sum-
um kortunum. Við völdum sýnishorn
eða svokallaðar syrpur frá tilteknum
útgefendum, ljósmyndurum eða
teiknurum en líka úr einstökum efn-
isflokkum, eitt þemað er til dæmis
fjallkonan, annað leikarar eða glímu-
menn og þar fram eftir götunum,“
segir hún og heldur áfram: „Elstu
póstkortin eru einstök að því leyti að
af flestum þeirra er bara til eitt ein-
tak. Lengst af keyptu ljósmyndarar
nefnilega forprentaðan ljós-
myndapappír með póststimpli á bak-
hliðinni og prentuðu ljósmynd á
framhliðina.“
Fyrsta póstkortið í heiminum er
talið vera handteiknað kort sem rit-
höfundurinn og háðfuglinn Theo-
dore Hook sendi sjálfum sér frá Ful-
ham í London árið 1840. Kort Hooks
seldist á tæpar 6 milljónir króna árið
2002. Austurríki varð hins vegar
fyrsta landið til að hefja útgáfu póst-
korta og Bretland fylgdi á eftir
tveimur árum síðar. Á Íslandi var
komin töluverð gróska í útgáfu póst-
korta um aldamótin 1900 og nokkrir
útgefendur voru býsna stórtækir.
„Þegar skyggnst er í sögu póstkorts-
ins á Íslandi kemur á óvart hversu
upplag einstakra korta var stórt.
Fyrsta prentun hjá Carli Proppé,
Þingeyingi og áhugamanni um
framþróun og ýmis skemmtilegheit,
var 14 þúsund kort árið 1901 og
prýddu þau nokkrar ólíkar myndir
frá ýmsum stöðum á landinu. Annars
var Helgi Árnason, safnvörður í
Safnahúsinu við Hverfisgötu, um-
svifamesti póstkortaútgefandinn á
fyrri hluta 20. aldar, þótt útgáfan
væri aukabúgrein hjá honum.“
„Cyclandi“ til Hafnarfjarðar
Fyrrnefndur Carl Finsen,
verslunarmaður í Hafnarfirði, og
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Jeg sendi Hjálmar til Hafnartil að óska þjer og þínumgleðilegra jóla og góðs oggleðilegs nýárs.“ Þessa
kveðju fékk Fräulein Sophia Jón-
assen senda frá frænda sínum Carli
Finsen til Kjöbenhavn, eins og þar
stendur, árið 1898. Að því best er vit-
að prýðir téður Hjálmar fyrsta
myndskreytta, frímerkta og póst-
stimplaða póstkortið sem búið var til
á Íslandi. Að minnsta kosti finnst
Ingu Láru Baldvinsdóttur, sviðs-
stjóra myndasafns Þjóðminjasafns-
ins, blasa við að myndin á framhlið
kortsins sé af Hjálmari þar sem
hann spókar sig í Aðalstræti, frakka-
klæddur og fínn með hatt sinn og
staf.
Kortið frá Carli, sem var sonur
póstmeistarans í Reykjavík, er á
meðal um eitt þúsund póstkorta frá
þessum tíma til dagsins í dag á sýn-
ingunni Með kveðju – Myndheimur
íslenskra póstkorta, sem opnuð
verður kl. 15 í dag í Myndasal Þjóð-
minjasafnsins.
„Sýningunni er ætlað að veita
yfirlit yfir myndefni á íslenskum
póstkortum og opna augu gesta fyrir
margbreytileika þeirra og menning-
arsögulegu hlutverki,“ segir Inga
Íslensk póstkort –
fyrsta landkynningin
Öðrum þræði þjónuðu íslensk póstkort þeim tilgangi að
kynna þjóðinni landið á árum áður. Fáir voru á far-
aldsfæti, símar ekki á hverjum bæ, og fólki þótti vænt
um að fá kveðju og mynd af heimahögum vina og
vandamanna í öðrum landshlutum. Inga Lára Bald-
vinsdóttir, sviðsstjóri myndasafns Þjóðminjasafns Ís-
lands, segir sýninguna, Með kveðju – Myndheimur ís-
lenskra póstkorta, í Myndasal safnsins vera vitnisburð
um fólk, fréttir og tíðaranda í meira en eina öld.
Til Sophiu frá Carli frænda Elsta varðveitta íslenska póstkortið með mynd,
póststimpli og frímerki á Þjóðminjasafni Íslands er frá árinu 1898
Fjölbreytileikanum í borginni verður
fagnað í áttunda sinn í Hörpu í dag,
laugardaginn 28. maí, á árlegum Fjöl-
menningardegi borgarinnar. Borg-
arstjóri setur hátíðina stundvíslega
kl. 13 á Skólavörðuholti og því næst
heldur skrúðganga af stað að Hörpu
með lúðrasveit í broddi fylkingar.
Í Hörpu verður markaður þar sem
kynnt verður handverk, hönnun, mat-
ur og menning frá ýmsum löndum.
Hátíðahöldin verða bæði innandyra
og utan.
Í Kaldalóni í Hörpu verður lifandi
skemmtidagskrá frá kl. 14.30 -17.00.
Fram koma leikarar, söngvarar, dans-
arar og tónlistarmenn frá ýmsum
löndum.
Hægt verður að fá henna-tattoo,
blöðrur og allskonar fjör á fjölmenn-
ingardaginn. Kynnir á hátíðinni er
Gunnar Sigurðsson, hraðfréttamað-
ur.
Fjöldi fólks hefur ár hvert tekið
þátt í göngunni og ræður litagleðin
ríkjum og þátttakendur klæðast fal-
legum þjóðbúningum hinna ýmsu
landa, Fjölmenningardagurinn hefur
öðlast sess í hugum borgarbúa enda
setur hátíðin skemmtilegan blæ á
borgarlífið. Hátt í 15.000 manns
sóttu hátíðina í fyrra og sökum vin-
sælda var ákveðið að færa hátíða-
höldin í Hörpuna.
Aðgangur er ókeypis. Dagskráin er
á vefsíunni: www.reykjavik.is/
fjolmenningardagur
Fjölmenningardagur
borgarinnar
Litagleðin
ræður ríkjum
Morgunblaðið/Ómar
Hátíð í borg Fjölmenningardagurinn
hefur öðlast sess í hugum borgarbúa.
Óperudagar í Kópavogi hefjast í dag,
laugardaginn 28. maí, með frum-
flutningi FótboltaÓperunnar kl. 13 í
Salnum á fjölskyldustund Menn-
ingarhúsa Kópavogsbæjar.
Óperan er um tíu mínútur í flutn-
ingi en að honum loknum verður
börnum boðið að skoða leynda kima
Salarins undir leiðsögn barítón-
söngvarans Jóns Svavars Jósefs-
sonar og kynnast undirbúningi hjá
söngvurum áður en þeir stíga á svið.
Jón Svavar gefur jafnframt valin tón-
dæmi á sviði Salarins og syngur með
börnunum í lok leiðangursins. Á
túninu verða fótboltamörk og ýmsar
uppákomur tengdar fótboltaíþrótt-
inni og komandi Evrópukeppni.
FótboltaÓperan er eftir Helga R.
Ingvarsson en sex einsöngvarar,
fimmtán börn úr Skólakór Kársness
og trommuleikari flytja óperuna.
Markmiðið er að opna augu barna
fyrir því listformi sem óperan er.
Hvort heldur sem börn og fullorðnir
hafa áhuga á fótbolta og/eða tónlist
ætti enginn að verða svikin af að
bregða sér í Salinn á morgun. Að-
gangur er ókeypis og allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Opnunarhátíð Óperudaga í Kópavogi
FótboltaÓperan frumflutt og
farið um leynda kima Salarins
Tónlist og fótbolti Að loknum óperuflutningnum í Salnum má svo bregða á
leik og sparka bolta á útivistarsvæði Menningarhúsanna.
Dekraðu við þig daglega með dýrindis
Lavender olíum.
Slakaðu á líkama og sál með Lavender líkamsvörunum frá Weleda. Lavender jurtin hefur verið
notuð um aldir vegna róandi eiginleika sinna. Njóttu þess að fá slakandi nudd með Lavender
Relaxing Body Oil eða að setja Lavender Relaxing Bath baðmjólkina út í kvöldbaðið. Taktu svo
með þér ilminn af Lavender ökrunum í sturtuna með Lavender Creamy Wash sturtusápunni
— í samhljómi við mann og náttúruwww.weleda.is
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
Since 1921