Morgunblaðið - 28.05.2016, Qupperneq 14
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Makríll veiddur í Norðaustur-Atl-
antshafi hefur fengið MSC-vottun,
en þar sem Ísland er ekki aðili að
samningi um
makrílveiðar fá
afurðir frá ís-
lenskum fyrir-
tækjum ekki
þessa vottun.
Vottunin vekur
nokkra athygli í
ljósi þess að
sjálfbærni er ein
af grunnforsend-
um vottunar, en í
ár er útlit fyrir meiri makrílafla en
nokkru sinni áður og að hann geti
orðið 64% umfram ráðgjöf Alþjóða
hafrannsóknaráðsins, ICES.
Gengur ekki gegn
langtímamarkmiðum
Gísli Gíslason, svæðisstjóri MSC
fyrir Ísland, Færeyjar og Græn-
land, segir að MSC haldi úti staðli
um sjálfbærar veiðar, viðhaldi hon-
um og kynni. Vottun samkvæmt
MSC-staðli sé framkvæmd af fag-
giltri vottunarstofu og matsferlið sé
opið þar sem hagsmunaaðilar geti
komið með athugasemdir. Niður-
staðan í þessu matsferli sé að vott-
unin gangi ekki gegn langtíma-
markmiðum MSC-vottunar enda sé
staða makrílstofnsins óneitanlega
mjög sterk.
Við ákvörðun um vottun sé tekið
tillit til margra þátta við veiðarnar
og í heildina sé niðurstaðan sú að
vottun samrýmist lágmarkskröfum.
Gísli segir að í samkomulaginu um
vottun nú felist að strandríkjasam-
komulagi allra veiðiþjóðanna verði
komið á innan fjögurra ára. Þar sé
verk að vinna og miklir hagsmunir í
húfi því að kröfur um alþjóðlega
vottun aukist stöðugt. Einnig sé
stefnt að því að ná heildarveiðinni
niður í vísindalega ráðgjöf.
Telja sanngjarnan
hlut vera tæplega 85%
Makrílveiðar í NA-Atlantshafi
voru áður vottaðar, en vottunin var
afturkölluð árið 2012 í ljósi að-
stæðna. Þá voru deilur um makríl-
veiðar í hámarki og strandríkin
ósammála um skiptingu aflans.
Samkomulag um stjórn makrílveiða
náðist á milli ESB, Noregs og Fær-
eyja í mars 2014, en Ísland stendur
utan þess samkomulags.
Þegar árið 2012 hófst barátta
stórra og smárra fyrirtækja í Nor-
egi og löndum Evrópusambandsins,
með tilstyrk stjórnvalda, fyrir því
að endurheimta vottanir á ný. Sett-
ur var á laggirnar svokallaður
MINSA-hópur og markmiðið var að
aðilar ynnu saman að því að öðlast
eitt MSC-skírteini. Nú eiga útgerð-
ir um 700 skipa í ellefu löndum að-
ild að hópnum, þ.e. Skotlandi, Eng-
landi, Norður-Írlandi, Noregi,
Svíþjóð, Hollandi, Danmörku,
Þýskalandi, Frakklandi, Írlandi og
Litháen.
Frá því að MSC-vottun var inn-
kölluð hafa Evrópusambandið, Nor-
Samið verði innan fjögurra ára
Veiðar ESB og Norðmanna á makríl MSC-vottaðar Heildarafli á makríl gæti
í ár farið 64% umfram ráðgjöf Margir þættir lagðir til grundvallar við vottun
Ljósmynd/Viðar Sigurðsson
Á makrílmiðunum Margir sækja í makrílinn og ekki hefur ríkt sátt um veiðarnar síðustu árin.
Gísli Gíslason
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Sumarsýning Porsche í dag
Mögnuðustu sportbílar landsins eru komnir í sumarbúning!
Morgunsólin dansar á glansandi húddinu og þú upplifir sanna ökugleði.
Það er ekkert sem jafnast á við ferðalag í Porsche á fallegum sumardegi
á Íslandi.
Við ætlum að framkalla þá tilfinningu á Sumarsýningu Porshe í dag og
höfum flutt inn sérstaklega nokkra glænýja ofurjeppa og sportbíla frá
Porsche af því tilefni.
MSC (Marine Stewardship Co-
uncil) er stærst alþjóðlegra
vottunarkerfa, viðurkennt um
allan heim og veitir greiðari að-
gang að mörkuðum. Grunnhug-
myndin er að virkja markaðinn
til að kalla eftir sjálfbærni fisk-
stofna og þannig stuðla að því
að stöðva ofveiði og rányrkju á
heimshöfunum. Fleiri kerfi eru
við lýði og mörg þeirra tengd
landauppruna, eins og Iceland
Responsible Fisheries.
Íslendingar eru með um 1,3%
af veiði á villtum fiski í heim-
inum, en með um 6-7% af MSC-
vottuðum lönduðum afla. Nú
eru átta fiskstofnar sem veiðast
við Ísland vottaðir af MSC, þ.e.
þorskur, ýsa, ufsi, gullkarfi,
langa, grásleppa, og báðir síld-
arstofnarnir. Loðnustofninn fór
í vikunni í aðalmat og 18 fisk-
stofnar eru í frummati eða for-
athugun.
Almennt skora íslenskar veið-
ar, eins t.d. á þorski, vel í MSC-
kerfinu. Fiskveiðar ólíkra þjóða
á margvíslegum tegundum hafa
hlotið 281 vottun samkvæmt
MSC-staðli. Aðeins 27 þeirra
hafa staðist mat án nokkurra
skilyrða og er íslenski þorsk-
urinn ein af þeim.
Þorskurinn
skorar hátt
MSC UM ALLAN HEIM