Morgunblaðið - 28.05.2016, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
ÚR BÆJARLÍFINU
Karl Sigurgeirsson
Hvammstanga
Mikil aukning ferðafólks hefur verið í
héraðinu og ferðamenn verið á svæð-
inu í allan vetur. Merkja má þessa
aukningu á að smáhýsin í Kirkju-
hvammi voru nánast fullsetin frá í
mars og fram á vor. Sífellt bætast
gistimöguleikar í flóruna, og nú er
Brimill, selaskoðunarbáturinn, kom-
inn úr vetrarfríi, og gestir í Gallerí
Bardúsu, Selasetur Íslands, veitinga-
húsin Sjávarborg og Hlaðan lífga
mjög upp á mannlífið. Stundum eru
fleiri viðskiptavinir í kaupfélaginu af
erlendu bergi brotnir en heimamenn.
Sauðburði er að ljúka hjá bænd-
um, gróður að taka við sér, og ekki
virðist kal í túnum að neinu marki.
Vonir eru um gott laxveiðisumar, en
margar góðar laxveiðár í héraðinu.
Að sögn Þorsteins Helgasonar, for-
manns Veiðifélags Miðfirðinga, er
hann bjartsýnn um ástand Miðfjarð-
arár, einkum eftir afar gott ástand á
seiðauppeldi í ánni, sem mælt var s.l.
haust af Bjarna Jónssyni fiskifræð-
ingi. Miðfjarðará varð efst veiðiáa sl.
sumar, af þeim sem teljast byggja á
sjálfbærum laxastofni. Veiði hefst í
ánni 15. júní.
Mikið úrval var hér í menningu á
síðvetri. Rokkóperan Jesus Christ
Superstar sló algjörlega í gegn, upp-
selt á sex sýningar og hefðu ýmsir
viljað fá þær fleiri. Var þessi uppsetn-
ing aðstandendum hennar til mikils
sóma í hvívetna.
Öflugt kórastarf var hér í vetur.
Karlakórinn Lóuþrælar, með nýjum
stjórnanda, Daníel Geir Sigurðssyni,
hélt vortónleika, auk söngferða í Dali,
til Reykjavíkur og Blönduóss. Lillu-
kórinn hélt tónleika 30. apríl á
Hvammstanga og daginn eftir í Þor-
lákshöfn. Þar stefndur í stafni Ingi-
björg Pálsdóttir, Lilla. Æfir hún kór-
inn þótt komin sé á níræðisaldur, en
sonarsonur hennar, Sigurður Helgi
Oddsson, stjórnar og leikur á píanó.
Kór eldriborgara söng við messu á
uppstigningardag, og hafði þá fyrr
haldið tónleika, undir stjórn Ólafs E.
Rúnarssonar. Kirkjukór Hvamms-
tanga hélt stóra sönghátíð við Hvíta-
sunnudagsmessu, auk þess að bjóða
kirkjugestum í kaffi í lok vetrar-
starfsins. Kórstjóri er Pálína Fanney
Skúladóttir.
Gærurnar – nytjamarkaður, er
markaður fyrir notaða muni en hópur
kvenna stendur fyrir rekstrinum. Fá
þær gefins ótrúlegt magn af notuðum
vörum sem íbúar svæðisins láta af
hendi. Gærunafnið kom til þar sem
markaðurinn var fyrst í gamla gæru-
kjallara sláturhúss KVH, en nú er
markaðurinn í gamla sláturhúsi Sig.
Pálmasonar kaupmanns. Öll innkoma
gengur til góðra málefna í héraði, og
munar þar oft um minna. Þetta er hið
mesta „þarfaþing“.
Húsnæði Byggðasafns Húnvetn-
inga og Strandamanna að Reykjum í
Hrútafirði hefur fengið andlitslyft-
ingu utan dyra, en nemendur í 5. og 6.
bekk Grunnskóla Húnaþings vestra
hafa skreytt veggi safnsins. Mynd-
irnar eru tengdar sögu og kennileit-
um í Húnaþingi vestra, en það hafa
krakkarnir verið að vinna með nú í
vetur hjá Guðrúnu Ósk Steinbjörns-
dóttur, kennara sínum. Má þar m.a.
sjá Vísur Vatnsenda-Rósu og ýmis
myndverk. Nýr forstöðumaður hefur
verið ráðinn til safnsins, Benjamín
Kristinsson, smiður og kunnur
hleðslumaður, nú búsettur á Laug-
arbakka.
Börn úr Skólabúðum, sem reknar
eru á Reykjaskóla, koma jafnan í
Byggðasafnið til að fræðast um forna
þjóðhætti. Einnig fara þau í heim-
sókn á sauðfjárbú að Bjargi í Miðfirði
og fræðast um „sveit og sögu“. Karl
B. Örvarsson skólabúðastjóri segir
aðsókn að búðunum í góðu jafnvægi.
Um 3.000 börn alls staðar af landinu
koma á þessari vertíð og er nánast
fullbókað á þeirri næstu, sem hefst í
ágústlok.
Ferðamenn fleiri í kaupfélaginu
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Kirkjuhvammur Smáhúsin eru afar vinsæl meðal erlendra ferðamanna.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Gallerí Fold stendur fyrir tvöföldu málverkauppboði
dagana 30. og 31. maí næstkomandi. Þetta er síðasta
uppboð vetrarins hjá galleríinu. Uppboðin verða haldin í
Gallerí Fold við Rauðarárstíg í Reykjavík og hefjast kl.
18 báða dagana. Óvenjumörg afbragðsverk hafa borist
galleríinu undanfarnar vikur og því var ákveðið að hafa
þennan háttinn á, samkvæmt upplýsingum frá Fold. Alls
verða boðin upp 134 verk og er markaðsvirði þeirra sam-
tals 88 milljónir króna.
„Þetta er með glæsilegustu uppboðum sem við höfum
staðið fyrir og líklega eitt það besta, ef miðað er við gæði
verka, frá því 2012 þegar við buðum upp málverkasafn
Sparisjóðs Reykjavíkur,“ segir Jóhann Ágúst Hansen,
listmunasali og sérfræðingur hjá Gallerí Fold.
Mörg verkin koma úr búum þjóðþekktra einstaklinga
og eru ansi merkileg og ekki eitthvað sem býðst á mark-
aði á hverjum degi, segir Jóhann Ágúst.
Verkin koma fyrir sjónir almennings í fáa daga
Verkin koma m.a. úr dánarbúum en flest frá fólki sem
er að minnka við sig húsnæði. „Svona uppboðssýningar
eru alveg einstakar. Á þeim eru sýnd listaverk sem hafa
hangið inn á einkaheimilum í áratugi og koma nú fyrir
sjónir almennings í nokkra daga áður en þau eru seld og
fara aftur inn á heimili fjarri sjónum þorra fólks næstu
áratugina. Alvöru safnarar og þeir sem hafa áhuga á ís-
lenskri list ættu ekki að láta þetta tækifæri framhjá sér
fara,“ segir Jóhann Ágúst.
Óvenjumörg verk gömlu meistaranna verða boðin
upp, t.d. 12 verk eftir Jóhannes S. Kjarval og fimm eftir
Ásgrím Jónsson. Þá verða boðin upp fimm verk eftir
Þorvald Skúlason, svo dæmi séu nefnd. Þó að boðinn sé
upp fjöldi stórra verka gömlu meistaranna eru einnig
boðin upp ódýrari verk inni á milli.
Meðal fágætra verka sem eru á uppboðinu má nefna
vatnslitamynd eftir Ásgrím Jónsson af Gunnari á Hlíðar-
enda og Kolskeggi bróður hans. Um þessa mynd er til
skemmtileg saga, að sögn Jóhanns Ágústs. „Þannig var
það árið 1903 að Ásgrímur sækir um 600 króna styrk til
Alþingis til tveggja ára til að komast í nám. Með beiðni
sinni sendi hann nokkur málverk og þar á meðal verk
sem sýnir Gunnar á Hlíðarenda kveðja bróður sinn, Kol-
skegg á Markarfljótsaurum. Þegar þingmenn komu
saman til að virða fyrir sér málverkið bendir einn á að
sér sýnist hestur Gunnars vera beislislaus og þannig
maður væri ekki líklegur til frama. Tekið var undir það
að þetta væri mikill ljóður á ráði þessa unga listamanns
og leit ekki út fyrir að þingmenn myndu samþykkja
styrkveitinguna. Það var svo Hermann Jónasson sem
benti á að hér kæmi listamaðurinn ungi einmitt með
skýringu á afturhvarfi Gunnars. Þá sættust þingmenn og
afgreiddu styrkinn.“
Þá ber að nefna stórt málverk af sjómönnum á línu-
veiðum eftir Gunnlaug Scheving, metið á 5-6 milljónir.
Verk af því tagi hefur ekki komið í sölu síðan árið 2012 og
var þá slegið á tæpar níu milljónir króna.
Tólf verk eru eftir Jóhannes Kjarval, allt frá smá-
myndum á pappír upp í stór olíuverk. stærsta verkið
„Hlustað á hörpuna“ er metið á 4-5 milljónir. Verk eftir
Louisu Matthíasdóttur af Akrafjalli, Skarðsheiði og Esj-
unni með hest í forgrunni er metið á 6-7 milljónir.
Sýning verkanna er hafin í Gallerí Fold og stendur
fram á mánudag. Þá má einnig sjá verkin á myndlist.is.
Uppboðssalurinn tekur 140 í sæti og það hefur nokkrum
sinnum komið fyrir að hann yfirfyllist, segir Jóhann
Ágúst. Fólk þarf því að koma tímanlega.
Meistarar á uppboði
Gallerí Fold heldur tvöfalt uppboð 134 myndverk
verða boðin upp Markaðsvirðið samtals 88 milljónir
Mynd Ásgríms Gunnar kveður bróður sinn Kolskegg.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Hjúkrunarfræðingar munu í aukn-
um mæli koma að eftirliti þeirra sem
lokið hafa meðferð við brjósta-
krabbameini. Þetta kemur fram í
bréfi sem viðkomandi einstaklingar
fengu sent í pósti í síðustu viku.
Breytingarnar hafa vakið ugg hjá
fjölda þeirra sem gjarnan vilja halda
áfram samskiptum við þann lækni
sem sá um meðferðina.
Sigrún Lillie Magnúsdóttir, for-
stöðumaður ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins, segir óvissu
hafa fylgt þessum áformum, sem
aukið geti á vanlíðan margra þeirra
sem málið snertir.
„Þess vegna höfum við ákveðið að
boða til fundar á þriðjudag, þar sem
breytingarnar verða kynntar í sam-
starfi við krabbameinslækninga-
deildina og Brjóstaheill – Samhjálp
kvenna,“ segir Sigrún.
Sex mánuðir að 13 mánuðum
Mikill biðtími hefur einkennt eftir-
litið undanfarin ár. Dæmi eru um að
13 mánaða bið sé eftir svokölluðu sex
mánaða eftirliti. Sigrún segist því
telja að breytingarnar geti komið til
góða. „Það er mikilvægt að konur fái
eftirlit sem virkar og er öruggt.“
Gunnar Bjarni Ragnarsson, yfir-
læknir lyflækninga krabbameina á
Landspítalanum, segir breytingun-
um ætlað að bæta þjónustuna.
„Hún hefur verið ófullnægjandi
allt of lengi,“ segir Gunnar.
„Fólk sem greinst hefur með
brjóstakrabbamein hefur margsinn-
is þurft að bíða lengi eftir endur-
komu til eftirlits, eða eftirmeðferðar,
og við erum mjög ósátt við ástandið
eins og það er.“
Enn á þó eftir að útfæra nánar að
hversu miklu leyti hjúkrunarfræð-
ingar sjái um eftirlitið.
„Þeir eru þjálfaðir í að meta hve-
nær eigi að hafa samband við lækni
og fara eftir ákveðnum gátlistum,“
segir Gunnar og bendir á að þetta sé
í samræmi við það sem gert sé í öðr-
um löndum við svipaðar aðstæður.
Læknum fækkað um helming
Gunnar rekur þjónustuskortinn
fyrst og fremst til fækkunar krabba-
meinslækna hér á landi.
„Þeir sem eftir standa geta ekki
sinnt þessu í sama mæli og hægt var
áður fyrr. Við höfum sett meðferðina
sjálfa í forgang, þar sem hún er sá
hluti vinnu okkar sem krefst mest
sérhæfingar okkar, og til að tryggja
það að fólk fái meðferð.“
Að sögn Gunnars eru í kringum
níu krabbameinslæknar starfandi á
Landspítalanum. Ekki eru þó allir í
100% starfi á þeirri deild.
„Frá því rétt fyrir hrun, þegar við
vorum sem flestir, hefur líklega
fækkað um helming í okkar röðum.“
Unnið er að því núna að ráða fleiri
krabbameinslækna til starfa.
„Það hefur verið erfitt að fá lækna
aftur til landsins en þetta er einmitt
hluti af því að gera starfsumhverfi
krabbameinslækna hér á landi eftir-
sóttara, og heimkomuna þar með
fýsilegri.“
Breytingar
vekja ugg
Læknar eru ósáttir við ástandið
GARÐYRKJUSTÖÐ
INGIBJARGAR
Hveragerði
Garðyrkjustöð Ingibjargar, ein veglegasta garðyrkjustöð
landsins, staðsett á 10.000m2 svæði í Hveragerði er til sölu.
Í ræktun stöðvarinnar nú og í sölu er mikið úval af
garðplöntum; sumarblómum, fjölærum plöntum, runnum,
trjáplöntum og matjurtum.
Einnig framleiðir Garðyrkjustöð Ingibjargar og flytur inn
pottaplöntur fyrir smásölu og heildsölu. Tryggir viðskiptavinir.
Velta hefur verið stöðugt vaxandi og hagnaður góður.
Kröftug starfsemi allt árið.
Hér er um að ræða skemmtilegt og óvenjulegt tækifæri
með mikla möguleika.
Nánari upplýsingar veitir Brynhildur Bergþórsdóttir,
brynhildur@kontakt.is
H
a
u
ku
r
0
5
.1
6
Til sölu: