Morgunblaðið - 28.05.2016, Side 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Klútar
3.995,-
Skyrta
9.990,-
Buxur
10.995,-
Buxur
10.990,-
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Fylgist með okkur á facebook Við höfum lækkað vöruverð
Létt og ljóst í sumar
Mussa
6.995,-
Bolur
6.995,-
Mussa
6.995,-
Töskur
Frá 6.995,-
Skyrta
9.995,-
Peysa
6.995,-
Viktoría, sænska krónprinsessan,
hélt á syni sínum Óskari undir skírn
við athöfn sem fór fram í kapellu
sænsku konungshallarinnar í gær.
Faðir hennar, Karl Gústaf kon-
ungur, horfir á barnabarnið sitt við
athöfnina. Stóra systir Óskars, Es-
telle sem er fjögurra ára, tók einnig
þátt í athöfninni með föður sínum,
Daníel prins sem er til vinstri á
myndinni. Óskar prins kippti sér
ekki mikið upp við tilstandið og svaf
vært í fangi móður sinnar. AFP
Prinsinn
Óskar
skírður
Allar vísanir til Ástralíu voru fjar-
lægðar úr lokaútgáfu viðamikillar
skýrslu Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar að kröfu þar-
lendra stjórnvalda. Þau óttuðust að
upplýsingar um umhverfisvá í land-
inu kæmu niður á ferðaþjónustunni
þar.
Skýrslan var birt í gær og ber tit-
ilinn „Heimsminjar og ferða-
mennska í breytilegu loftslagi“.
UNESCO, menningarmálastofnun
SÞ, stóð að henni ásamt umhverfis-
deild samtakanna og vísindasam-
tökunum Union of Concerned Sci-
entists. Í drögum hennar var
upphaflega að finna lykilkafla um
Kóralrifið mikla undan ströndum
Ástralíu sem er í hættu vegna hlýn-
unar hafsins auk styttri umfjallana
um Kakadu- og Tasmaníuregn-
skógana.
Ástralska umhverfisráðuneytið
mótmælti hins vegar þegar það sá
drögin og krafðist þess að ekki yrði
minnst á landið í skýrslunni.
UNESCO varð við því. Hin ástr-
alska útgáfa The Guardian upplýsir
um þetta.
ÁSTRALÍA
AFP
Líf Kóralrifið undan ströndum Ástralíu
er talið í hættu vegna hlýnunar sjávar.
Létu taka út vísanir
í skýrslu SÞ um
loftslagsbreytingar
Leitarteymi á
Miðjarðarhafinu
hefur numið
neyðarsendingu
sem talin er
koma frá far-
þegaþotu
EgyptAir sem
fórst í síðustu
viku. Yfirrann-
sakandi flugslyssins segir að þetta
þrengi leitarsvæðið niður í fimm
kílómetra radíus.
Þetta þýðir þó ekki að svörtu
kassar vélarinnar hafi fundist.
Ayman al-Moqadem yfirrannsak-
andi segir háþróaða tækni þurfa til
þess að finna þá. Merkið sem menn
hafi greint komi frá sendi á vélinni
sem gefi upp staðsetningu hennar.
Frönsk flugslysarannsóknayfirvöld
hafa sagt að sérhæft skip muni að-
stoða við leitina að svörtu kössum
flugvélarinnar. Allir í farþegaþot-
unni, 66 manns, eru taldir af eftir
að Airbus A320-vélin hvarf í síðustu
viku.
MIÐJARÐARHAF
Leita enn að
flugvélarflakinu
Um 130 flótta-
mönnum var
bjargað úr Mið-
jarðarhafi þegar
bátur þeirra
sökk við strend-
ur Líbíu í gær-
dag. Talið er að
flóttamennirnir,
sem voru um
borð í fiskibáti, hafi verið um 350
talsins. Ítalska strandgæslan var
fyrst á svæðið og standa björgunar-
aðgerðir enn yfir.
Fyrir nokkrum dögum var um 50
flóttamönnum einnig bjargað við
strendur Líbíu þegar bátur þeirra
sökk. Ítalska strandgæslan var þá
einnig fyrst á staðinn en hún horfði
á bát flóttafólksins sökkva og náði
myndum af því. Myndirnar hafa
farið víða á samfélagsmiðlum.
LÍBÍA
Um 130 flótta-
mönnum bjargað