Morgunblaðið - 28.05.2016, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Stormsveitarmaður á stórleik Stormsveitarmaður keisaraveldisins fylgist spenntur með æsispennandi rimmu Stjörnunnar og FH í Pepsi-deildinni í fótbolta sem fram fór í Garðabæ á dögunum.
Árni Sæberg
Með nýju aflandskrónulög-
unum eru Seðlabankanum veitt-
ar auknar heimildir til rann-
sókna. Seðlabankinn getur krafið
hvern sem er um upplýsingar og
gögn sem bankinn telur nauð-
synleg. Ekki er skilyrði að gögn-
in séu nauðsynleg heldur ein-
ungis að Seðlabankanum finnist
þau nauðsynleg. Engin trygging
er fyrir því að slíkt varði ein-
göngu aflandskrónur. Seðla-
bankinn getur því að eigin geð-
þótta krafið hvern sem er um
hvaða upplýsingar og gögn sem
er, þar með talið geðlækna, sál-
fræðinga, presta, lögmenn og
endurskoðendur. Til að verða við
slíkum kröfum Seðlabankans
getur fólk þurft að bera sakir á
foreldra sína, maka, börn og systkini. Engin undantekning er
gerð vegna slíkra tengsla. Seðlabankinn er í rétti svo lengi
sem honum finnst sjálfum að upplýsingarnar eða gögnin séu
nauðsynleg. Ákvörðunarvald Seðlabankans er endanlegt á
stjórnsýslustigi því ekki er hægt að skjóta ákvörðunum Seðla-
bankans til ráðherra. Þá frestar málskot til dómstóla ekki
réttaráhrifum ákvörðunar. Sá sem telur sig órétti beittan þarf
að greiða allt að 50 milljónir á dag í dagsektir og sérstakar
stjórnvaldssektir í þokkabót, sem geta numið allt að 65 millj-
ónum á einstaklinga og 500 milljónum á fyrirtæki, auk drátt-
arvaxta.
Lögin útiloka í raun aðgengi að dómstólum. Sá sem sættir
sig ekki við að vera krafinn um gögn eða upplýsingar þarf að
höfða mál innan 14 daga ef stöðva á innheimtu dagsektanna.
Annars verður viðkomandi orðinn gjaldþrota áður en hann
fær skorið úr rétti sínum fyrir dómi sem tekur 2 til 3 ár. Nær
ómögulegt er að höfða flókið dómsmál á 14 dögum.
Með lögunum eru Seðlabankanum veittar heimildir til að
ákveða hvaða upplýsingar og gögn eru nauðsynleg eins og
hann hafi löggjafarvald, heimildir til að rannsaka mál eins og
hann væri lögregla og heimildir til að leggja á refsingar í
formi óumflýjanlegra dagsekta eins og hann væri dómari.
Þrískipting ríkisvaldsins er ekki virt. Þegar aðhaldið er ekk-
ert er hætta á ferðum. Framganga Seðlabankans á und-
anförnum árum og athugasemdir umboðsmanns Alþingis
gefa ekki beint tilefni til að auka valdheimildir bankans held-
ur ættu frekar að leiða til hins gagnstæða.
Eftir Magnús
Óskarsson
» Þegar
aðhaldið
er ekkert er
hætta á ferðum.
Magnús
Óskarsson
Höfundur er lögmaður.
Ofurvald
Seðlabankans
Iðnaður á Íslandi aflar
tæplega helmings gjald-
eyristekna þjóðarinnar og
verður hátt í fjórðungur
landsframleiðslunnar til í
iðnaði. Fimmti hver Ís-
lendingur á vinnumarkaði
hefur atvinnu af einhvers
konar iðnaði, sem getur
verið af fjölbreyttum toga.
Samtök iðnaðarins sam-
anstanda af 1.400 fyr-
irtækjum og sjálfstæðum
atvinnurekendum sem saman mynda
hóp um 35 þúsund starfsmanna. Hjá
Samtökum iðnaðarins starfar fjöl-
breyttur hópur sérfræðinga sem veita
aðildarfyrirtækjum margvíslega þjón-
ustu á hverjum degi af mikilli fag-
mennsku og þekkingu. Þær eru því
ómaklegar ávirðingarnar sem fé-
lagarnir Sigurður Már Guðjónsson,
bakara- og kökugerðarmeistari, og
Helgi Steinar Karlsson múrarameistari
senda til allra þessara aðila í grein
sinni í Morgunblaðinu 20. maí síðastlið-
inn. Ég get ekki orða bundist eftir
lesturinn og ætla að taka upp hansk-
ann fyrir íslenskan iðnað, sem þeir fé-
lagar hafa ákveðið að ráðast á með
heiftarlegum hætti.
Hlutverk Samtaka iðnaðarins er að
efla íslenskan iðnað og samkeppnis-
hæfni hans. Stjórn og starfsmenn sam-
takanna taka þetta hlutverk mjög al-
varlega og leggja sig fram við að sinna
þessu mikilvæga hlutverki með sem
bestum árangri. Árlega er gengið til
kosninga í stjórn samtakanna þar sem
sitja 10 manns úr ólíkum greinum iðn-
aðarins. Áhersla er lögð á lýðræðisleg
vinnubrögð þar sem samvinna og þátt-
taka félagsmanna er í forgrunni. Iðn-
þing er árviss viðburður þar sem lífleg
umræða hefur skapast um helstu mál-
efni iðnaðarins hverju sinni og þau
krefjandi verkefni sem fram undan
eru. Á síðasta Iðnþingi komu saman
takanna og þau því stækkað og þróast.
Við stöndum enn styrkum fótum á
þeim góða grunni sem byggður var í
upphafi og erum stolt af sögu samtak-
anna. En það er nauðsynlegt að fylgja
takti tímans og hafa áhrif á þróunina,
sem er stöðug. Það þýðir lítið að fest-
ast í fari gamalla tíma og reyna að
halda aftur af eðlilegum umbreyt-
ingum. Starfsumhverfi iðnaðarins er að
breytast með nýrri tækni og verður
öflugur mannauður, sem stendur fyrir
fagmennsku og gæði, að vera til staðar
nú sem fyrr. Framsýni og áræðni eru
mikilvægir eiginleikar til að mæta nýj-
um þörfum atvinnulífsins þar sem gera
þarf nauðsynlegar breytingar meðal
annars í mennta- og mannauðsmálum.
Á hverjum degi hitti ég kraftmikið fólk
sem er stolt af íslenskum iðnaði og vill
honum allt það besta. Við erum ekki
alltaf sammála um alla hluti enda er
nauðsynlegt að skiptast á skoðunum
með það að markmiði að efla íslenskan
iðnað öllum til heilla.
Það er því með mikilli vissu sem ég
vísa gagnrýni þeirra félaga til föð-
urhúsanna. Það væri ánægjulegt ef
þeir tækju þátt í þeirri framþróun sem
á sér stað í íslenskum iðnaði og þeim
vexti sem fram undan er frekar en að
beina gamaldags spjótum sínum að
iðnaðinum sjálfum og starfsmönnum
og stjórn Samtaka iðnaðarins. Þeir eru
hér með boðnir velkomnir á skrifstofur
Samtaka iðnaðarins til að ræða kurt-
eislega hvaðeina sem á þeim brennur.
Ef þeir bera hag íslensks iðnaðar fyrir
brjósti þiggja þeir þetta boð án mik-
illar umhugsunar.
um 400 manns þar sem
rætt var um breytingar á
mannauðnum, tækninni og
umhverfismálum.
Samtök iðnaðarins
skiptast í þrjú meginsvið
þar sem hverju sviði til-
heyrir fjöldi starfs-
greinahópa og félaga með
eigin stjórnir. Innan fram-
leiðslu- og matvælasviðs
starfa 12 starfsgreinahóp-
ar. Innan byggingar- og
mannvirkjasviðs starfa
fjórir starfsgreinahópar og
11 félög iðnmeistara auk
mannvirkjaráðs. Innan hugverka- og
þjónustusviðs starfa 13 starfs-
greinahópar auk hugverkaráðs. Þessi
mikli fjöldi gefur vísbendingar um það
öfluga grasrótarstarf sem á sér stað
innan samtakanna, þar sem allir hafa
möguleika á því að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri. Á hverju ári eru
haldnir tugir funda og ráðstefna til að
ræða þau málefni sem efst eru á baugi
hverju sinni meðal aðildarfyrirtækj-
anna. Þessa fundi sækir fólk í iðnað-
inum til að afla sér þekkingar og nýrra
sjónarhorna. Mörg þessara málefna
skila sér í breytingum á löggjöf og
reglugerðum.
Helstu stefnumál samtakanna snúa
að menntamálum, nýsköpun og fram-
leiðni enda eru þessi þrjú málefni for-
senda góðra lífskjara fyrir landsmenn.
Atvinnulífið þarf á starfskröftum að
halda með iðn-, verk- og tækniþekk-
ingu, nýsköpun styrkir allar framfarir
og framleiðni er nauðsynlegur grunnur
verðmætasköpunar. Verkefnin eru því
fjölmörg sem unnið er að til að efla
hvert þessara málefna. Þar leggja
hönd á plóg starfsmenn aðildar-
fyrirtækjanna í samstarfi við starfs-
menn Samtaka iðnaðarins með það að
markmiði að gera umbætur í rekstr-
arumhverfi fyrirtækja í mismunandi
iðngreinum.
Miklar breytingar hafa orðið í at-
vinnulífi landsmanna frá stofnun sam-
Eftir Guðrúnu
Hafsteinsdóttur » Þessi mikli fjöldi
gefur vísbendingar
um það öfluga grasrótar-
starf sem á sér stað
innan samtakanna.
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Höfundur er formaður Samtaka iðnaðarins.
Íslenskur iðnaður
til fyrirmyndar