Morgunblaðið - 28.05.2016, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Í stjórnarskránni hefur meðmæl-
andi því hlutverki að gegna, að lýsa
því yfir hvern hann telji hæfan sem
forsetaefni. Hins vegar er engin
lagaheimild fyrir hugtakinu forseta-
frambjóðandi. Þegar ég áttaði mig á
þessu í forsetaframboði mínu vorið
1996, valdi ég að kalla mig væntan-
legan forsetaframbjóðanda. Eftir að
Hæstiréttur Íslands hafði staðfest
niðurstöður kjörnefnda um hverjir
uppfylltu skilyrði til að vera forseta-
efni það ár, áttaði ég mig á því að
hinn eini meðal forsetaefnanna sem
hafði gert þetta rétt var Ástþór
Magnússon; því hann hafði einungis
tekið við undirskriftum meðmæl-
enda og skilað inn til kjörnefnda og
lýsti ekki yfir framboði fyrr en stað-
festing Hæstaréttar lá fyrir. Þegar
starfsmaður frá tímaritinu Séð og
heyrt hringdi í mig í byrjun þessa
árs sagði ég frá mikilvægi meðmæl-
andans. Voru þessi orð mín birt
skömmu síðar. Þetta þýðir að yfir-
lýsingar um forsetaframboð og að
kalla einhvern forsetaframbjóðanda
eru án lagastoðar.
Guðmundur Rafn
Geirdal Bragason
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Meðmælandi hefur lagastoð
en frambjóðandi ekki
Tæplega getur talist
ásættanlegt að fjöl-
miðlar mismuni
forsetaframbjóðendum
og haldi útvöldum og
þekktum ein-
staklingum í sviðsljós-
inu, ásamt því að vitna
ómælt í ómarktækar
skoðanakannanir sem
eru viðhafðar af
þröngsýni. Óþekktir
frambjóðendur fá litla sem enga
möguleika á að koma sínum skoð-
unum og hugsjónum á framfæri eða
fyrir hvað þeir standi. Það er nán-
ast orðið „broslegt“ að hlusta á
þáttastjórnendur ljósvakans tala
vikum saman um að viðkomandi
einstaklingur fái að koma sínum
sjónarhornum að síðar.
Bilið mun þar af leiðandi aðeins
breikka enn frekar meðan hlut-
drægni fjölmiða fær að þrífast með
óbreyttum hætti. Fjölmiðlar lands-
ins eru djúpt sokknir ef þeim er
fyrirmunað að vilja að eðlilegt lýð-
ræði og sanngirni eigi sér stað. Ef
að líkum lætur endar þetta fyrir-
komulag með því að kjósendur
verða andhverfir og fá ómælda
skömm á kosningunum og takmark-
aðan vilja til að taka þátt í komandi
forsetakosningum.
Alþingi, ásamt samfélaginu í
heild sinni, hlýtur að sjá sóma sinn í
að leitast við að stöðva óréttlætið og
að þrýst verði á að lýðræði ásamt
eðlilegu kosningaferli fái að njóta
sín þar sem jafnræði sem þrífst í
réttarríkjum sé virt með vitrænum
hætti. Hundraða milljóna forseta-
kosning lýðveldis á ekki að geta
fengið að eiga sér stað með sama
hætti og á sér stað í svörtustu Afr-
íku.
Það er tæplega samboðið forseta-
frambjóðanda og sagnfræðingi,
Guðna Th., að túlka afleiðingar og
uppgjör Icesave-samnings með vill-
andi hætti og rangtúlka með áþekk-
um formerkjum og fyrri ríkisstjórn
stóð fyrir. Forysta þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins er þar heldur ekki
að öllu leyti undanskilin ábyrgð.
Málflutningur Guðna í síðdegisút-
varpinu þess efnis að það hefði ver-
ið í lagi að samþykkja samning Lee
Buchheit þar sem
þrotabú Landbankans
stæði undir kröfum er
rangur, villandi stað-
reyndum hefur verið
haldið fram af honum
ásamt fleirum. Guðni
veit betur en svo að
innistæður þrotabúa
Landsbankans stóðu
ekki undir að greiða
Isesave-samninginn. Í
besta falli hefði verið
hægt að greiða helm-
ing af kröfum í
þrotabú bankans hefði samningur-
inn verið staðfestur af forseta, að
auki áttu eftir að bætast við umtals-
verðar vaxtagreiðslur sem voru og
eru verulega vanmetnar af tals-
mönnum þeirra sem vildu sam-
þykkja Icesave – og þeirra á meðal
er Guðni.
Forsetaframbjóðandi sem rang-
túlkaði gerðir ríkisstjórnar Sam-
fylkingar og Vinstri grænna gagn-
vart Icesave er vart hæfur til að
gegna forsetaembætti með því að
hagræða staðreyndum með villandi
hætti og hvítþvotti. Lágmarkskrafa
er að forsetaframbjóðandi, hver svo
sem hann er, komist ekki upp með
rangtúlkanir og geti nánast átt
drottningarviðtöl við fréttamenn
eða bitlausa þáttastjórnendur sem
eru illa upplýstir um staðreyndir.
Flestum sem hafa fylgst með
þjóðfélagsumræðunni undangengin
ár er ljóst að Guðni dró taum frá-
farandi ríkisstjórnar. Guðni yrði
maður að meiri að viðurkenna að
hann hefði verið að hluta til hlið-
hollur Samfylkingarvængnum og
hafði takmarkaðan vilja til að mál-
skotsrétti væri beitt af forseta sem
mótvægi gagnvart sitjandi rík-
isstjórn.
Forsetaframbjóðandinn Davíð
Oddsson er svo sem heldur ekki á
lygnum sjó, enda þjóðþekktur og
oft á tíðum ekki mikil lognmolla í
kringum störf hans. Trúverðugleiki
rithöfundarins Andra Snæs virðist
rýr, ein bók á tíu árum ásamt því að
þiggja listamannalaun árum saman.
Halla Tómasdóttir hefur verið
bendluð við Baugsveldið sem hand-
bendi Jóns Ásgeirs, sé tekið mark á
2007-uppákomum, að ógleymdu
óheppilegu myndbandi sem Hannes
Hólmsteinn kom á framfæri á vefn-
um í vor og tók nánast forsetahug-
sjón hennar af lífi í fæðingu.
Forsetaframbjóðendur verða að
standa undir orðum sínum og fyrri
mistökum sem koma upp á yf-
irborðið þó svo það sé ekki alltaf á
jákvæðum nótum.
Ómældar ofsóknir sem forseti
hefur þurft að þola eru með ólík-
indum, þó svo hann hafi nánast
skorið þjóðina úr snörunni, því ör-
birgð hefði blasað við hefði Icesave-
samningur gengið eftir. Lágmarks-
krafa er að fjölmiðlar mismuni ekki
frambjóðendum og leyfi fyrri gerð-
um og staðreyndum að koma fram
með sem óhlutdrægustum hætti.
Þjóðin þarf að fara að átta sig á
að forseti lýðveldisins getur aldrei
verið sameiningartákn allra miðað
við óbreytta stjórnarskrá og/eða
orðið sammála um hvernig mál-
skotsrétti skuli beitt af forseta í
stærri ágreiningsmálum. Fyrrver-
andi forseti, Vigdís Finnbogadóttir,
sýndi að hún hafði ekki vilja eða bit
sem forseti til að virkja málskots-
réttinn í stórum ágreiningsmálum
sem stjórnarskráin bauð upp á,
gengi þingræðið þvert á þjóðarvilja
sem átti sér oftar en einu sinni stað.
Fréttamiðlar þurfa að sýna meiri
óhlutdrægni og kappkosta að jafn-
ræði gagnvart frambjóðendum sé
til staðar og upplýsa þjóðina fyrir
hvað óþekktir forsetaframbjóð-
endur standi og vilji áorka. Það
þarf kjark til að fara gegn straumn-
um þvert á hagsmunaöfl og annað
skrum sem þrífst um allt sam-
félagið og alltof margir láta stýrast
af. Samfélagið á ekki að líða það að
fráfarandi forseti geti þegið eft-
irlaun áratugum saman, sem gætu
numið milljörðum séu frambjóð-
endur ungir, ásamt öðum eft-
irlaunum þó svo setið sé aðeins eitt
kjörtímabil.
Hlutdrægni fjölmiðla er mikil
Eftir Vilhelm
Jónsson » Fréttamiðlar sem
vilja vera trúverð-
ugir ættu ekki að leyfa
sér að draga taum eins
frambjóðanda fram yfir
aðra með afgerandi og
skipulögðum hætti.
Vilhelm Jónsson
Höfundur er fjárfestir.
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Úrval útiljósa
Ernesto Inarkiev sigraðiglæsilega á Evrópumótieinstaklinga sem lauk íGjakova í Kosovo sl.
mánudag. Hann hlaut 9 vinninga af
ellefu en í 2. sæti varð Lettinn Kova-
lenko með 8 ½ vinning og í 3.-5. sæti
urðu Jobava, Navara og Vallejo Pons
með 8 vinninga.
Alls voru 23 sæti í boði í heimsbik-
arkeppni FIDE og fyrir lokaumferð-
ina var Héðinn Steingrímsson í fær-
um á að ná því sæti ef hann ynni.
Hann hafði hvítt gegn Rússanum
Evgení Najer en tefldi byrjunina
ónákvæmt og tapaði. Héðinn hlaut 6
½ vinning, Hannes Hlífar og Björn
Þorfinnsson fengu báðir 6 vinninga
og Guðmundur Kjartansson 5 ½
vinning.
Einungis Héðinn náði að bæta
„ætlaðan“ árangur sinn. Hann hefur
margt til brunns að bera á skáksv-
iðinu en hefði sennilega aukið mögu-
leika sína með þátttöku í fleiri mót-
um á undirbúningsferlinum. Þá þarf
hann að huga betur að skapandi hlið
skáklistarinnar. Framan af gekk
hvorki né rak hjá honum en í seinni
hlutanum sótti hann í sig veðrið og
vann m.a. hinn fræga Alexander Bel-
javskí:
EM einstaklinga 2016; 10. um-
ferð:
Héðinn Steingrímsson – Alexand-
er Beljavskí
Ítalski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3
Rf6 5. d3 d6 6. O-O O-O 7. He1 a6 8.
Bb3 Ba7 9. h3 Re7 10. Rbd2 Rg6 11.
Rf1 Be6 12. Rg3 h6 13. d4 Rh7 14.
Be3 exd4
Það er í þessari uppskiptahrinu
sem Beljavskí missir þráðinn.
15. Rxd4 Bxb3 16. Dxb3 Re5 17.
Dxb7!
Seilist eftir „eitraða peðinu“. Bel-
javskí tekst ekki að sýna fram á nein-
ar bætur.
17. … Dd7 18. Db3 Hab8 19. Dc2
Rc4 20. Bc1 d5 21. b3 Re5 22. exd5
Dxd5 23. Be3 Bxd4 24. Bxd4 Rc6 25.
Be3 f5 26. Had1 Df7 27. Re2
Óþarfa varkárni. Eftir 27. Bc5! er
svarta staðan gjörtöpuð.
27. … Re5 28. c4 Hfe8 29. Rf4 Rg5
30. Kh1 Hbd8 31. Hxd8 Hxd8 32.
Rd5 Rg6 33. Dc1 Re6 34. f3 c6 35.
Rb4 Db7 36. Dc3 Rgf8 37. Rd3 Dc7
38. b4 a5 39. bxa5 c5 40. Bg1 Ha8
41. He5 Hxa5 42. De1 Db6 43. a3!
Laglegur leikur. Svartur getur sig
hvergi hrært.
43. … g6 44. Hd5 Hxa3 45. Rxc5
Ha2 46. Rxe6 Dxe6 47. He5 Dd7 48.
He8 Kf7 49. Hb8 Dd2
Tapar strax en aðrir leikir eru
jafn vonlausir.
50. De8+
- og Beljavskí gafst upp.
Feðgar í landsliðsflokki
Keppni í landsliðsflokki Skák-
þings Íslands hefst í Tónlistarskóla
Seltjarnarness nk. þriðjudag, 31.
maí. Athygli vekur að Jóhann Hjart-
arson er aftur meðal keppenda og
Íslandsmeistarinn Héðinn Stein-
grímsson er einnig skráður til leiks.
Í fyrsta sinn í skáksögunni eru feðg-
ar meðal þátttakenda, Örn Leó Jó-
hannsson og Jóhann Ingvason.
Keppendalistinn í elo-stigaröð:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson 2.
Héðinn Steingrímsson 3. Jóhann
Hjartarson 4. Guðmundur Kjart-
ansson 5. Jón Viktor Gunnarsson 6.
Bragi Þorfinnsson 7. Björn Þor-
finnsson 8. Davíð Kjartansson 9.
Einar Hjalti Jensson 10. Guð-
mundur Gíslason 11. Örn Leó Jó-
hannsson 12. Jóhann Ingvason.
GAMMA styður Meistaramót
Skákskóla Íslands
Keppni á Meistaramóti Skákskóla
Íslands í flokki keppenda með 1600
elo-stig og minna lauk um síðustu
helgi með sigri Stefáns Orra Davíðs-
sonar sem er aðeins 9 ára gamall.
Stefán hlaut 6 ½ vinning úr átta
skákum og varð vinningi fyrir ofan
næstu menn. Keppni stigahærri
flokknum hófst svo í gær og mótinu
lýkur á morgun, sunnudag. Þá mun
Agnar Tómas Möller frá GAMMA,
aðalstyrktaraðila mótsins, afhenda
verðlaun en fimm farmiðavinningar
eru í boði í hinum ýmsu styrk-
leikaflokkum.
Þurfti sigur
í lokaumferðinni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is