Morgunblaðið - 28.05.2016, Qupperneq 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
✝ Halldór Gunn-laugsson
fæddist 14. janúar
1920 í Klaufa-
brekknakoti í
Svarfaðardal.
Henn lést á dval-
arheimilinu Dalbæ
á Dalvík 22. maí
2016.
Hann var sonur
hjónanna Gunn-
laugs Jónssonar
og Hólmfríðar Björnsdóttur.
Hann var næstyngstur níu
systkina og eru þau öll látin.
Halldór fluttist rúmlega árs-
gamall með foreldrum í
Skeggjabrekku í Ólafsfirði.
Þar voru þau í sjö ár og fluttu
þá í Hornbrekku í Ólafsfirði
það fór hann í útgerð ásamt
öðrum og áttu þeir bátinn
Margréti Jónsdóttur EA15.
Þegar útgerðartímabilinu
lauk réðst hann sem lögreglu-
maður á Dalvík og gegndi því
starfi í 20 ár þar til hann fór á
eftirlaun. Halldór kvæntist
Snjólaugu Valdimarsdóttur 25.
desember 1942 í Vallarkirkju.
Fyrsta barn þeirra hjóna er
Jón Gunnlaugur, fæddur 24.
september 1941 og maki hans
var Anna Sigurlaug Wium,
hún lést 16. apríl 2006. Næst í
röðinni er Regína, fædd 6.
febrúar 1947, maki hennar er
Guðni Svan Sigurðsson. Síðust
í röðinni er Anna Margrét,
fædd 12. janúar 1951. Maki
hennar er Stefán Frið-
geirsson.
Halldór átti sjö afabörn, 17
langafabörn og átta langa-
langafabörn.
Útför Halldórs fer fram frá
Dalvíkurkirkju í dag, 28. maí
2016, klukkan 13.30.
og voru þar einnig
í sjö ár. 1935
fluttu þau til Dal-
víkur og byggðu
þeir feðgar Gunn-
laugur, Björn og
Halldór húsið að
Melum á Dalvík.
Halldór stund-
aði nám í MA og
tók þaðan gagn-
fræðapróf. Hann
lærði á bíl og tók
meirapróf bílstjóra og ók hjá
BSA í nokkur ár á leiðinni
Dalvík-Akureyri. Einnig ók
hann mjólkurbílum úr Svarf-
aðardal og tók svo aftur við
rútuakstri hjá KEA. Um nokk-
urra ára skeið rak hann flutn-
ingabíl Dalvík-Reykjavík. Eftir
Elsku afi okkar, síðastliðin vika
hefur einkennst af miklum sökn-
uði og sorg, en jafnframt miklu
þakklæti. Við reynum, elsku afi,
að vera ekki eigingjörn og van-
þakklát með því að vera ósátt, það
er ekki réttlátt gagnvart þér sem
búinn ert að lifa í góð 96 ár. Þú
hefur skilað þínu og vel það og
þráðir orðið svo heitt að fá hvíld-
ina og að hitta ömmu Snjóku. Við
erum búin að fá að njóta þinnar
miklu hlýju, visku, gleði og enda-
lausu greiðvikni og gæsku, já og
alls þess sem persónuleiki þinn
hafði upp á að bjóða.
Þú varst gullmolinn okkar sem
auðvelt var að elska mikið. Það
sem okkur finnst hafa einkennt
þig, elsku afi, er jákvæðnin, æðru-
leysið, virðingin sem þú barst fyr-
ir öllu og öllum, endalaus ástríða
fyrir íslenskri tungu, til að mynda
áttum við ekki að segja hæ og bæ
heldur halló og bless, fyrir nátt-
úrunni okkar og hversu vel þú
fórst með alla hluti. Okkur er svo
minnisstætt peningarnir í veskinu
þínu, þeir voru eins og straujaðir
og allir snéru þeir eins og var rað-
að eftir stærð, og ferðirnar sem
við fengum að fara með þér í
löggubílnum en mest spennandi
af öllu var þegar við fengum þig til
að loka okkur inni í fangaklefun-
um. Þú hafðir orð á því að prúðari
fanga hefðir þú aldrei haft.
Stríðnin var aldrei langt und-
an, það er ekki lengra en mánuður
síðan þegar eitt af langalangafa-
börnunum þínum var að klippa
þig og allt í einu rakstu upp
óhljóð, okkur dauðbrá þar sem við
héldum að hún hefði klippt í þig,
þetta þótti þér mjög fyndið.
Minningarnar um öll jólaboðin
þar sem við vorum öll saman,
ferðalögin, veiðiferðirnar og allar
samverustundirnar með ykkur
ömmu eru okkur svo kærar og
dýrmætar. Þú vissir ekkert
dásamlegra nú í seinni tíð en að fá
langafa- og langalangafabörnin í
heimsókn til þín, þau voru þér
sem litlir gimsteinar.
Elsku afi, við gætum skrifað
heila bók um samverustundirnar
okkar og allt það sem þú hefur
kennt okkur, allt það góða og ynd-
islega sem þú hafðir að leiðarljósi
í lífinu ætlum við að hafa að okkar
leiðarljósi og reyna að miðla því
öllu til barnanna okkar. Elsku
hjartans afi, okkur finnst svo
óraunhæft að vera að skrifa þessi
minningar- og þakkarorð til þín,
okkur finnst eins og þú sért og
eigir eftir að vera hjá okkur í
mörg ár enn því í okkar huga og
ásjónu varst þú ekki 96 ára.
Á litlum skóm ég læðist inn
og leita að þér, afi minn.
Ég vildi að þú værir hér
og vært þú kúrðir hjá mér.
Ég veit að þú hjá englum ert
og ekkert getur að því gert.
Í anda ert mér alltaf hjá
og ekki ferð mér frá.
Ég veit þú lýsir mína leið
svo leiðin verði björt og greið.
Á sorgarstund í sérhvert sinn
ég strauminn frá þér finn.
Ég Guð nú bið að gæta þín
og græða djúpu sárin mín.
Í bæn ég bið þig sofa rótt
og býð þér góða nótt.
(S.P.Þ.)
Þín afabörn,
Stefanía, Guðbjörg, Árný,
Hólmfríður, Gunnlaugur,
Ágúst og Snjólaug.
Elsku langafi, mikið finnst okk-
ur erfitt til þess að hugsa að eiga
ekki eftir að fá góða trausta faðm-
lagið þitt. Takk fyrir allar þær
stundir sem þú hefur gefið okkur,
það eru forréttindi að hafa átt
langafa og svona sprækan eins og
þú varst öll þín ár, teinréttur,
brosmildur og hjálpsamur alveg
sama hvað það var. Öll danssporin
sem þú tókst með okkur frá því
við vorum í bleyjum, lakk-
rísmolarnir sem þú áttir alltaf í
skúffunni á Melum og síðan á
Dalbæ, og heimsóknin kláraðist
aldrei fyrr en maður fékk ísblóm
hjá þér.
Það var alltaf jafnótrúlegt að
þú sem varst langafi værir að
skutla okkur á skíðaæfingar og
fylgjast með okkur í brekkunum,
og mikið vorum við stolt að geta
sagt að langafi okkar hefði skutl-
að eða sótt okkur. Þér þótti mikið
vænt um það að fylgja okkur og
styðja okkur í öllu sem við gerð-
um, það var eins og þér fyndist
ekkert leiðinlegt, því þú varst allt-
af áhugasamur um allt það sem
við gerðum og sögðum.
Tónlistin var þér dýrmæt og
styrktir þú okkur í okkar tónlist-
arnámi, sem okkur þótti ótrúlega
vænt um. Þú þráðir hvíld þína, þú
vildir fá að fara áður en það þyrfti
að hafa of mikið fyrir þér, sem er
frekar lýsandi fyrir þig, þú gerðir
allt fyrir alla en vildir láta fara
sem minnst fyrir þér, góð dæmi
um það eru eins og þau skipti sem
þú hringdir heim í okkur eftir að
þú varst kominn á dvalarheimilið
Dalbæ, til að biðja okkur um að
stilla sjónvarpið eða aðstoða þig
við eitthvað annað. Þú nefnilega
vildir ekki ónáða starfsfólkið því
það hefði nóg annað að gera.
Fyrstu árin þín á Dalbæ varstu
í fullri vinnu, braust saman kass-
ana sem komu fullir af vörum,
barst út póstinn til allra heimilis-
manna, þó svo að sjónin væri farin
að stríða þér örlítið. Það er líka
lýsandi fyrir þig, elsku afi, þegar
þú ákvaðst sjálfur að hætta að
keyra, það gerðist fyrir fjórum ár-
um að þú varst að koma frá Ak-
ureyri og þegar þú kemur hérna á
hálsinn fórstu að horfa upp í fjöll-
in og hugsa til baka þegar þú
skíðaðir niður þessar brekkur og
allt í einu varstu kominn yfir á öf-
ugan vegarhelming og sagðistu
vera orðinn hættulegur þér og
öðrum í umferðinni þar sem at-
hyglin væri ekki orðin eins og
skilaðir inn skírteininu.
Sál þín var svo einstök, skap-
gerð þín og umhyggjan, við litum
mikið upp til þín, elsku afi, og
munum alltaf gera.
Við kveðjum þig með tregans þunga tár
sem tryggð og kærleik veittir liðin ár.
Þín fórnarlund var fagurt ævistarf
og frá þér eigum við hinn dýra arf.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Ellen Ýr, Eyþór Ingi,
Elísa Rún, Arnór Reyr
og Axel Reyr.
Hver af öðrum til hvíldar rótt
halla sér nú og gleyma
vöku dagsins um væra nótt
vinirnir gömlu heima.
Þó leið þín sem áður þar liggi hjá,
er lyngið um hálsa brumar,
mörg höndin sem kærst þig kvaddi
þá,
hún kveður þig ekki í sumar.
(Þorsteinn Valdimarsson)
Þessi erindi Þorsteins Valdi-
marssonar leita sterkt á hugann
er ég minnist vinar míns og fé-
laga, Dóra löggu eða Dóra á Mel-
um.
Vinirnir gömlu heima hafa hall-
að sér til hvíldar hver af öðrum á
liðnum árum og þegar ég kem
heim í sumar mun ég ekki finna
hlýja handtakið og sjá góðleg og
glettnisleg augun og heyra kveðj-
una: „og kysstu nú konuna frá
mér.“
Dóri var sjómaður til margra
ára eða fram undir 1970 ef ég man
rétt. Síðan fór hann að aka rútu
og mjólkurbílunum en þeir ágætu
menn sem sinntu því starfi voru
mikilsverðir einkum og sérstak-
lega á vetrum. Hvort sem hann
stundaði sjó eða ók rútu eða
mjólkurbíl var allt gert af sömu
róseminni og fumlausum hand-
tökum.
Störfin voru erfið og man ég
eftir 18 klukkustunda barningi í
stórhríð og ófærð frá Akureyri.
Færið um sveitina var oft erfitt,
moka þurfti snjó og lyfta þungum
brúsum af palli eða jörðu upp á
snævibarinn bíl. Þetta reyndi á
skrokkinn og gerði honum skrá-
veifur.
Þegar líða tók á ævina fékk
hann reikninginn fyrir þessu og
var oft illa haldinn af gigt og af-
leiðingum meiðsla. Þetta olli lík-
amanum sem áður flaug um fjöll á
skíðum erfiðleikum en andinn var
óbugaður.
Þegar það kom til að ég leysti
af í lögreglunni á Dalvík um 1970,
lagði Dóri fyrir mig eitt próf áður
en hann tók ákvörðun hvort ég
fengi starfann, tveimur árum of
ungur og alltof stuttur í efri end-
ann, miðað við greinargerð. Hann
ók stóra lögreglubílnum fram á
litlu bryggjuna innan um línubala
og löndunarkassa og fiskhauga
rétt eins og hann væri 18 ára á
skíðum í fjallinu forðum daga. Þar
stökk hann út og ég sá í endann á
honum upp bryggjuna, loks sneri
hann sér við og kallaði: Komdu
með bílinn upp á stöð.
Hann var sem sé að vita hvort
ég gæti bjargað mér úr þessari
raun. Síðar vissi ég að hann hafði
notað tímann, meðan ég bakkaði,
til þess að ræða við Gísla Ólafs-
son, yfirlögregluþjón, og fá hann
til þess að ráða þennan gaur þetta
sumar þrátt fyrir allar hans tak-
markanir.
Upp úr því spratt vinátta sem
entist allan tímann. Dóri var sam-
viskusamur lögregluþjónn en
þótti erfitt að þurfa að handfjatla
einhvern eins og við kölluðum það
stundum og þeim mun verra þótti
honum ef það hafði einhverjar af-
leiðingar fyrir þann hinn sama.
Hann var ekki veiðimaður í lög-
gæslu en gerði það sem gera
þurfti en helst ekki meira því það
gat bitnað á einhverjum.
Persónan var eins. Hann var
hlýr, skapgóður, raunsær, vel
máli farinn og hagorður, unni
landi og þjóð en dýrmætust voru
börn og barnabörn.
Oft sat ég í eldhúsinu hjá
Snjóku og Dóra. Ég hugsa að ég
hafi verið u.þ.b. í 25% fæði á Mel-
um þessi sumur sem við unnum
saman.
Nú er örugglega komið nýtt
kaffihorn, Snjóka hætt að reykja
og minn tími kemur og þá er eins
gott að það verði heitt á könnunni.
Alúðarkveðjur til fjölskyldunnar.
Gunnlaugur V. Snævarr
og fjölskylda.
Hlýr, yndislegur, góður, ljúfur
með góða nærveru. Dóri á Melum
var góður maður sem átti góða
ævi í faðmi yndislegrar fjölskyldu
og vina. Hann og Snjóka frænka
bjuggu á Melum á Dalvík og
þangað fór ég oft með pabba og
mömmu og fékk að njóta þess að
vera í þessum mjúka faðmi Dal-
víkinganna.
Minningar mínar frá heim-
sóknum okkar til Dalvíkur eru
góðar. Þarna gat barnið fengið að
njóta sín og mér þótti Melar æv-
intýralegt hús og þar bjó fólk sem
var einlægt, heiðarlegt, gott og
notalegt. Jón, Regína og Anna
Magga voru krakkarnir á heim-
ilinu og þau voru alltaf umhyggju-
söm og góð við litla en fyrir-
ferðarmikla frænku sem kom í
heimsókn til þeirra.
Ljúfar minningar um berjamó,
trilluferðir, bryggjuveiðar og ekki
síst að fá að labba út í búð með
brúsa og kaupa mjólk.
Ein af góðum minningum sem
ég á um Dóra var þegar ég kom í
heimsókn á Mela, þá 13 ára og var
haldið réttarball í sveitinni. Mig
langaði á ballið en komst ekki inn.
Dóri gerði sér þá lítið fyrir og var
heima hjá mér, svo ég þyrfti ekki
að vera ein, og saman sátum við
og lásum og spjölluðum. Góð
minning sem ég geymi enn og
mun alltaf gera. Lýsir honum og
óeigingirni hans vel.
Dóri var hjartahlýr og sannur
maður. Ekki ríkur af peningum
eða prjáli, en ríkur af manngæsku
og hjartahlýju, fjölskyldu og vin-
um.
Hann gerði heiminn að betri
stað með nærveru sinni.
Ég votta Jóni, Regínu, Önnu
Möggu og fjölskyldum þeirra
samúð mína. Þau missa mikið við
fráfall Dóra en við getum öll
glaðst yfir góðri, langri og inni-
haldsríkri ævi hans.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Brynhildur Sverrisdóttir.
Halldór
Gunnlaugsson
Með kærleik og virðingu
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ellert Ingason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RAGNA BERGMANN
GUÐMUNDSDÓTTIR,
fyrrverandi formaður
Verkakvennafélagsins Framsóknar,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
25. maí.
.
Eiríkur Þorsteinsson Linda Björnsdóttir
Valur Ragnar Jóhannsson Sædís Arndal
Katrín Gróa Jóhannsdóttir Trausti Friðfinnsson
Jóhanna Huld Jóhannsdóttir Albert Ingason
Guðrún Edda Jóhannsdóttir Birgir Ingibergsson
Bergþóra Ósk Jóhannsdóttir Ólafur Eyjólfsson
Örn Ingvar Jóhannsson Iðunn Ása Hilmarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Minningarathöfn um
ALYSON J. K. BAILES
aðjúnkt við
Stjórnmálafræðideild,
fer fram í Háskóla Íslands, Litla-torgi,
þriðjudaginn 31. maí klukkan 15.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarsamtök.
F.h. samstarfsfólks í Háskóla Íslands,
.
Baldur Þórhallsson,
deildarforseti Stjórnmálafræðideildar.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR
Hjúkrunarheimilinu Eir,
áður að Dalbraut 14,
Reykjavík.
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 25 maí. .
Erna Sigríður Sigursteinsd., Torfi Elís Andrésson,
Haraldur Sigursteinsson, Erla Ívarsdóttir,
Garðar Sigursteinsson, Elín Margrét Hárlaugsd.,
barnabörn og barnabarnabörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800