Morgunblaðið - 28.05.2016, Page 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
✝ Kristrún Guð-jónsdóttir
fæddist í Efrihlíð,
Snæfellsnesi, 8. jan-
úar 1924. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Ási, Hvera-
gerði, 5. maí 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Guðjón Jó-
hannsson, f. á Þing-
völlum,
Helgafellssókn,
Snæf. 4. júní 1886, d. 5. október
1973, og Jónína Þorbjörg Árna-
dóttir, f. í Miklaholti, Miklaholts-
sókn, Hnappadalssýslu, 23. mars
1891, d. 7. júní 1980.
Systkin Kristrúnar voru:
Haraldur Guðjónsson, f. 1913,
d. 1913. Berta Hansína Guðjóns-
Einkadóttir hennar: 1) Sonja
Andresdóttir Cichy, dóttir And-
rews Cichy, Bandaríkjamanns, f.
30. desember 1944, d. 22. janúar
2006. Eiginmaður Sonju var Lár-
us Jóhannes Kristjánsson, f. 9.
júní 1942, d. 4. maí 2008. Synir
þeirra 1.1) Kristján Helgi, f. 16.
ágúst 1961, maki Hrönn Walters-
dóttir, f. 23 október 1962, börn
þeirra 1.1.1) Lárus Helgi, f. 25.8.
1982, maki Ragnheiður Magn-
úsdóttir, f. 3.3. 1983, synir þeirra,
1.1.1.1) Magnús Bjarki, f. 25.9.
2008. 1.1.1.2) Arnar Gauti, f. 3.4.
2011. 1.1.2.) Rúnar Karl, f. 27.9.
1983, sambýliskona hans Linda
Jóhannsdóttir, f. 10.1. 1984, synir
þeirra: 1.1.2.1) Ísak Kristófer, f.
16.7. 2008, 1.1.2.2) Nóel Viktor, f.
4.10. 2013, 1.1.3) Sonja Ósk, f.
13.4. 1989, sambýlismaður henn-
ar Ágúst Örlaugur Magnússon, f.
21.8. 1986, sonur þeirra 1.1.3.2)
Óskar Marel, f. 24.6, 2014, og
dóttir Sonju Óskar og Egils Arn-
ar Egilssonar, f. 27.4. 1988.
1.1.3.1) Díana Rós, f. 5.7. 2009.
1.1.4) Guðjón Óskar, f. 13.4. 1989,
sambýliskona hans Karen Björk
Sigríðardóttir, f. 9.4. 1996, sonur
þeirra 1.1.4.1) Elvar Logi, f.
22.10. 2014.
Og 1.2) Guðmundur, f. 20.12.
1964, d. 6.12. 1988, kona hans
Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir, f.
15.11. 1984, dóttir þeirra 1.2.1)
Hera Guðmundsdóttir, f. 29.8.
1988.
Kristrún ólst upp á Hofstöðum
í Helgafellssveit og var búsett
mestan hluta ævi sinnar í Reykja-
vík en þó síðustu 15 ár í Hvera-
gerði. Hún var verkakona og
húsmóðir, vann við ýmis störf í
gegnum ævina, t.d. við Mjólk-
urbúið á Korpúlfsstöðum,
umönnun á leikskólum, starfaði
við þjónustuíbúðir í Lönguhlíð,
poppaði fyrir Stjörnupopp, vann
við Speglagerðina Ludvig Storr,
við saumaskap hjá Magna og
margt fleira.
Útför Kristrúnar fór fram í
kyrrþey 12. maí 2016 að ósk
hinnar látnu.
dóttir, f. 1914, d.
2003. Gunnar Jó-
hann Ágúst Guð-
jónsson, f. 1915, d.
2009. Anna Guð-
jónsdóttir, f. 1917,
d. 1986. Árni Breið-
fjörð Guðjónsson, f.
1919, d. 2007. Ruth
Guðjónsdóttir, f.
1929, d. 1929. Einar
Guðjónsson, f. 1931,
d. 1931. Uppeld-
issystir var Sólveig Eiríksdóttir,
f. 1930, d. 2012.
Sambýlismaður Kristrúnar
var Jóhannes Heiðar Lárusson, f.
á Hvammstanga í Húnavatns-
sýslu 31. ágúst 1935, d. 11. febr-
úar 1999. Hann vann hjá Raf-
magnsveitum Reykjavíkur.
Ég kynntist henni fyrst þeg-
ar ég var um 16 ára gömul og
hún þá bara að verða 55 ára en
samt amma mannsins míns. Ég
hafði aldrei þekkt svona unga
ömmu sem lifði lífinu lifandi
alltaf hress og kát. Fyrstu
kynni mín af Diddu, sem ég
kallaði svo síðar löngu ömmu,
voru þegar ég kom í heimsókn
til hennar í fyrsta skiptið,
óvænt upp úr hádegi á sunnu-
degi komum við að henni sof-
andi, hún var að jafna sig eftir
árshátíð sem haldin var í Þórs-
kaffi, hún snaraðist fram úr og
var ekki lengi að galdra fram
jólakökur og bestu kleinur sem
ég hef smakkað með kaffinu.
Hún var alltaf tilbúin að taka á
móti gestum þó hún hefði vakað
hálfa nóttina, kvartaði aldrei og
tók alltaf vel á móti okkur með
alla krakkana og gat alltaf
galdrað fram mat eða eitthvað
með kaffinu – það mátti enginn
fara svangur frá henni.
Hún var flott og skemmtileg
amma, fylgdist alltaf með öllum
krökkunum sínum og því sem
var að gerast í kringum hana og
alltaf til í nýjungar og tilbreyt-
ingu. Fylgdist vel með tískunni,
var útsjónarsöm og flink í hönd-
unum, breytti m.a. fötunum sín-
um. Hún var ung í anda og allt-
af svo fín og sæt og klæddi sig
upp á sunnudögum og á öðrum
tyllidögum. Þá vildi hún gera
sér dagamun, henni fannst að
það þyrfti að brjóta upp hvers-
dagsleikann og nauðsynlegt að
gera sér dagamun og spila dæg-
urlög. Þó hún lægi fárveik í
rúminu fyrir jólin, þá varð jóla-
skrautið og puntið að fara á
sinn stað og á réttum tíma, gat
verið svolítið ýtin og fylgin sér
en alltaf svo þakklát fyrir allt
sem gert var fyrir hana. Hún
hafði dálæti á því að hafa fínt í
kringum sig og breyta svolítið
til. Hún var punturófa í eðli
sínu og einstaklega glysgjörn,
henni fannst líka sérstaklega
gaman að fuglum og allskonar
fígúrum, dvergum og jólasvein-
um, það gat verið unun að
hlusta á hana hlæja að þessum
fígúrum, henni fannst svo gam-
an að þeim. Hún var flökkutóa
og fannst gaman að fara í bíltúr
og ferðalög. Hún vildi helst allt-
af vera á ferðinni, þau voru ófá
ferðalögin og veiðiferðirnar sem
við fórum með þeim, henni og
Jóa, þau áttu líka sumarbústað
sem við dvöldum ekki svo sjald-
an í með þeim, þetta voru góðir
tímar. Hún var líka stór partur
af okkar daglega lífi og þegar
eitthvað var um að vera var hún
alltaf með og alltaf til staðar
fyrir sitt fólk.
Hún var yndisleg kona,
hvatti mann áfram og það var
hún sem hvatti mig til að fara til
útlanda að læra þegar ég var
með samviskubit yfir því að
fara frá öllu og öllum, hún sagði
ef þú gerir það ekki núna ferðu
aldrei, þetta er ekki svo langur
tími, drífðu þig bara svonnna
hmm. Hún var nú ekki fyrir það
að vera að hanga yfir hlutunum
heldur átti að drífa þá áfram.
Ég á eftir að sakna þín, mín
kæra, þú ert búin að vera svo
stór partur af lífi mínu síðast-
liðin 40 ár. Ég bið Guð að
geyma þig, elsku Amma og takk
fyrir allt og allt. Já, þú varst
sko sannkölluð Amma með
stóru A.
Þín
Hrönn.
Kristrún
Guðjónsdóttir
Sigurður Runólfsson
✝ Sigurður Runólfsson fæddist 9. júní1935. Hann lést 22. apríl 2016.
Útför Sigurðar fór fram 2. maí 2016.
Ég er bara ég en þú varst sterka sálin
en það er munur á sorgar- og gleðitári
og er ég sleppi seinasta andanum
verð ég bara fótspor í sandinum
svo ég sleppi því að slást fyrir virðingu
og óska þess ég verði að góðri minningu.
Sigurður Óskar.
Margar minn-
ingar koma upp í
hugann nú þegar
við kveðjum afa
Odd. Hann var
góður afi, gaf sér alltaf tíma
fyrir okkur barnabörnin, var
stoltur af okkur og hikaði ekki
við að segja okkur það. Það var
alltaf gaman að heimsækja
hann, hvort sem það var í vinn-
una hans í Rafveitunni, heim á
Háaleitisbrautina eða síðasta
árið á Grund þar sem honum
leið svo vel.
Hann átti alltaf jólakökur og
kleinur í frystinum og ef við
birtumst óvænt í heimsókn
voru kræsingarnar iðulega
borðaðar frosnar.
Jólin voru ómissandi án afa.
Hann skreytti íbúðina sína svo
fallega á hverju ári og lítil silf-
urlituð kirkja sem afi hafði
smíðað var í miklu uppáhaldi
hjá okkur barnabörnum og
seinna hjá barnabarnabörnum.
Hangikjötsboðið í hádeginu á
jóladag þótti ekki síðra en
sjálfur aðfangadagur en há-
punktur jólafrísins var þegar
afi fór með okkur á jólaball í
Oddur G. Jónsson
✝ Oddur Guð-mundur Jóns-
son fæddist 2. jan-
úar 1926. Hann lést
2. maí 2016.
Útför Odds fór
fram 10. maí 2016.
Rafveitunni. Í
minningunni vor-
um við alltaf mætt
fyrst, enda var afi
mjög stundvís
maður.
Á hverju hausti
lengi vel fórum við
fjölskyldan í sum-
arbústað Rafveit-
unnar á Úlfljóts-
vatni. Þetta voru
ógleymanlegar
helgar og eftirvæntingin var
mikil. Á laugardagskvöldinu
myndaðist sú hefð að afi og
pabbarnir fóru út í lítinn skóg
við bústaðinn að næturlagi og
léku úlfa. Spennan sem mynd-
aðist í maganum á litlum börn-
um þegar fyrsta gól kvöldsins
heyrðist og haldið var út í skóg
að leita að úlfunum mun seint
líða úr minni okkar. Þá var
mikið hlegið eitt árið þegar afi,
sem var sannarlega nýtinn
maður, mætti með saltstangir í
ferðina sem hann fann inni í
búri og voru næstum 15 ára
gamlar.
Nú er afi Oddur hjá ömmu
Ernu, sem hann saknaði svo
mikið öll þessi ár. Þau munu
bæði eiga sérstakan stað í
minningum okkar.
Erna Heiðrún, Gunnhildur
Vala, Arna Margrét, Val-
gerður Anna, Agnes Nína,
Liam Jared, Ramla Isa-
belle og Oddur Krummi.
Elsku Villi.
Ég get varla sest
niður til að minnast
þín, það er svo sárt
að þú sért farinn frá okkur.
Èg sagði við þig þegar ég
kvaddi þig og þú varst að fara til
Ameríku: „Vertu ekki alltof
lengi, við viljum fá þig hingað
heim aftur.“
Èg man þegar þú varst lítill
drengur og við afi þinn fórum
með ykkur fjölskyldunni í sum-
arhús í Hollandi.
Við stoppuðum við búð, allt í
einu varst þú horfinn og við
sáum þig hvergi. Þú hafðir sèð
einhver leiktæki, farið þangað og
sast í einu slíku í mestu róleg-
heitum.
Èg minnist annarrar ferðar
með þér, þá fórst þú með mér og
afa þínum vestur að djúpi. Við
fórum fram að vatni í Laugardal
að veiða, veðrið var frábært,
vatnið eins og spegill og skóg-
urinn ilmaði.
Èg sat á bakkanum en þið vor-
uð að veiða, veiðin var nú lítil en
þessi ferð með þèr var svo
skemmtileg, èg man hana alltaf.
Þú varst alltaf svo hrifinn af
Vilhjálmur Árni
Sveinsson
✝ VilhjálmurÁrni Sveinsson
fæddist 30. janúar
1985. Hann lést 10.
apríl 2016.
Vilhjálmur Árni
var jarðsunginn 28.
apríl 2016.
veiðiskap, varst
heilu dagana upp
við Reynisvatn,
mamma þín keyrði
þig á morgnana og
sótti þig á kvöldin.
Þú lærðir að
hnýta flugur og
varst mjög áhuga-
samur um það á
tímabili. Þú hafðir
áhuga á svo mörgu,
tölvum, myndatök-
um og ýmsu öðru.
Þú lærðir einkaþjálfun og
vannst við það í Ameríku þar
sem þú bjóst síðustu árin.
Takk fyrir allt, elsku Villi,
minningin um þig mun lifa hjá
okkur öllum.
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý,
því burt varst þú kallaður á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða,
svo fallegur, einlægur og hlýr,
en örlög þín ráðin – mig setur hljóða,
við hittumst ei aftur á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár,
þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ókunnur.)
Rebekka amma.
Harpa Heimisdóttir
Útfararstjóri
Hrafnhildur Scheving
Útfararþjónusta
Kirkjulundur 19 210 Garðabær
sími 842 0204 www.harpautfor.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
MARTEINN BRYNJÓLFUR
HARALDSSON
útgerðarmaður,
Aðalgötu 15, Siglufirði,
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar þriðjudaginn
24. maí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 4. júní klukkan 14.
.
Álfhildur Stefánsdóttir,
Ólafur H. Marteinsson, Ása Árnadóttir,
Haraldur Marteinsson, Kolbrún I. Gunnarsdóttir,
Rúnar Marteinsson, Sigríður V. Vigfúsdóttir,
Steinunn H. Marteinsdóttir, Halldór Hafsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
elskulegu móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGURLAUGAR JÓHANNSDÓTTUR,
(Lillu á Á),
Siglufirði.
.
Jóhann Skarphéðinsson, Auður Halldórsdóttir,
Björg S. Skarphéðinsdóttir, Tryggvi Árnason,
Stefanía Skarphéðinsdóttir, Aðalsteinn Sveinsson,
Aðalbjörg Skarphéðinsd., Guðjón Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
BIRGIT HELLAND.
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar Karitas
og starfsfólks blóðlækningadeildar 11G á
Landspítalanum fyrir hlýja og góða umönnun.
.
Hreinn Frímannsson
Finnur Hreinsson Kristín H.B. Einarsdóttir
Frímann Hreinsson
Knútur Hreinsson
Dagný Hreinsdóttir Úlfar Þór Björnsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir
og amma,
SIGRÚN HLÍF GUNNARSDÓTTIR,
Árskógum 2,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 9. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Brekkubæ
(Skógarbæ), sem sinnti henni af einstakri hlýju og alúð.
.
Kristjana Ósk Sturludóttir Alfreð Már Alfreðsson
Karen Sturludóttir Úlfur Blandon
systkini og barnabörn
Elsku vinkona,
nú er baráttu þinni
lokið.
Það er sárt að
hugsa til þess að ég
muni ekki fá að heyra í þér aft-
ur, við áttum ófáar minningar
saman sem ég er mjög þakklát
fyrir. Við gátum endalaust
spjallað, hlegið og gefið hvor
Anna Dóra Combs
✝ Anna DóraCombs fæddist
12. janúar 1954.
Hún lést 6. maí
2016.
Útför Dóru fór
fram 18. maí 2016.
annarri góð ráð. Þú
varst algjör bar-
áttukona í þínum
veikindum og dáð-
ist ég að þér. Þú
varst traust, yndis-
leg og einstaklega
skemmtileg vin-
kona sem ég á eftir
að sakna mikið.
Hvíldu í friði,
elsku Anna Dóra
mín.
Megi guð gefa fjölskyldu
þinni styrk á þessum erfiða
tíma.
Þín vinkona.
Sveinbjörg Halldórsdóttir.