Morgunblaðið - 28.05.2016, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Ingunn Ýr Angantýsdóttir fagnar 23 ára afmæli sínu í dag. Ingunner nemi í þjóðfræði í Háskóla Íslands og nýkjörinn formaðurÞjóðbrókar, félags þjóðfræðinema. Á veturna vinnur hún hjá
66°Norður með skólanum en á sumrin vinnur hún sem flugfreyja hjá
Icelandair.
Hún býr í Smárahverfinu í Kópavogi en er að vestan, frá Þingeyri í
Dýrafirði. Áhugamálin eru aðallega ferðalög og útivist.
„Frítíma minn reyni ég að nota til að ferðast, komast á snjóbretti
eða fara í fjallgöngu.“
Spurð hvernig hún muni ráðstafa deginum svarar Ingunn að hún sé
stödd í Bandaríkjunum og muni lenda á Íslandi aðfaranótt afmælisins.
„Framan af deginum verð ég með fjölskyldunni og um kvöldið mun ég
halda boð fyrir vinkonur mínar.“ Einn af eftirminnilegri afmælisdög-
unum hafi verið í útskriftarferð nemenda Verzlunarskólans á Costa
del Sol.
Sumarið verður viðburðaríkt. Hún stefnir að því að stunda útivist í
miklum mæli og fer á tónleika erlendis. Miðana fékk hún í afmælis-
gjöf frá Ólafi Hlyni, kærasta sínum.
„Ég verð með annan fótinn á Snæfellsnesi þar sem kærasti minn
býr og í júlí er ég að fara á Beyoncé-tónleika.“
Systur Ingunn Ýr til vinstri ásamt systur sinni Elínu Eddu.
Með annan fótinn
á Snæfellsnesi
Ingunn Ýr Angantýsdóttir 23 ára
G
uðni fæddist í Reykjavík
28.5. 1946 og fylgdi
móður sinni á ýmsum
vistum víða um land en
er uppalinn frá sex ára
aldri í Hólabrekku í Laugardal í Ár-
nessýslu, hjá móður sinni og stjúpa,
Ragnari Jónssyni.
Guðni gekk í Barna- og Héraðs-
skóla á Laugarvatni og lauk stúd-
entsprófum frá ML. Hann lauk BA-
próf í íslensku, sögu og heimspeki frá
HÍ 1973 og stundaði framhaldsnám í
íslensku en segir því ólokið enn.
Guðni kenndi við grunnskóla í
Keflavík, á Patreksfirði og í Reykja-
vík, við Iðnskólann í Reykjavík og
FG. Hann starfaði við Stofnun Árna
Magnússonar í 10 ár og var þá jafn-
framt stundakennari við HÍ, einkum
í íslensku fyrir erlenda stúdenta.
Guðni var með þáttinn Daglegt
mál í Ríkisútvarpinu um árabil og fór
þá á kostum: „Já, ég held að þætt-
irnir hjá mér hafi vakið mikla athygli
og það var stöðugt verið að hringja í
mig heim úr öllum áttum og skrafa
um íslenskt mál. Ef ég var ekki
heima þurfti eiginkonan að ræða
langtímum saman við þessa sjálf-
skipuðu málfarsráðunauta.
Eitt sinn vorum við að skemmta
okkur hjónin og ég þurfti að bregða
mér á salernið. Þar heilsaði mér mað-
ur og sagðist hafa þungar áhyggjur
af málfari unga fólksins: „Þetta er
svo voðalegt“ – sagði hann – „að mér
frýs hugur við því.“
Þáttagerðin endaði svo með því að
ég hætti að eigin ósk eftir að hafa
sagt „læks“ í stað „lækjar“. Sjálfur
Halldór Laxness bar í bætifláka fyrir
mig og taldi þetta ekki frágangssök.
En ég hætti nú samt: „Grand exit“ –
svo maður sletti.“
Guðni hætti allri kennslu það
fræga ár 2007 og hefur síðan ein-
göngu stundað þýðingar. Hann hefur
þýtt fjölda bóka; barnabækur, skáld-
sögur og fræðirit; auk þess sem hann
hefur þýtt margvíslegt efni fyrir
sjónvarp.
Guðni fékk verðlaun Fræðsluráðs
Reykjavíkur fyrir bestu frumsömdu
barnabókina árið 1982 og fyrir þýdda
Guðni Kolbeinsson, kennari og þýðandi – 70 ára
Brúðkaup Hér eru Guðni og Lilja í brúðkaupi yngstu dótturinnar, Kristínar Bertu, ásamt börnum og brúðgum-
anum, Herði Sveinssyni. Frá vinstri: Ásdís Mjöll, Guðni, Lilja, Kristín Berta, Hörður, Hilmir Snær og Bergdís Björt.
Langskemmtilegasti
íslenskumaðurinn
Í Þjórsárdalnum Guðni og Lilja í
gönguferð. Gjárfoss í baksýn.
Kristinn Karl Ægisson, Fosstúni 2 á
Selfossi, er 60 ára í dag. Hann er son-
ur hjónanna Ægis Breiðfjörð Friðleifs-
sonar og Sveinsínu Guðmundsdóttur.
Í gegnum tíðina hefur hann unnið ým-
is störf á Suðurlandi og víðar, á árum
áður sem rútubílstjóri, í raftækja-
verslununni Fossraf en nú við Sund-
laug Selfoss.
Kona Kristins er Hrönn Baldursdóttir
og eiga þau þrjú börn, Aðalbjörgu,
Gunnar og Sindra. Barnabörnin eru
nú sjö talsins.
Árnað heilla
60 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
Úradagar 20% afsláttur af öllum úrum
28. maí - 4. júní