Morgunblaðið - 28.05.2016, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er engin ástæða fyrir þig að
bæta á þig annarra áhyggjum. Ekki gera það.
Gættu þess samt að ganga ekki of langt því
það kann að hafa afdrifaríkar afleiðingar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert í trúgjörnum stellingum. Nýlegt
framtak af þinni hálfu hefur alla burði til þess
að vaxa þér yfir höfuð og yfirtaka líf þitt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að láta vinnuna ganga fyrir
öllu öðru svo þér takist að ljúka við þau verk-
efni sem fyrir liggja. Annars áttu á hættu að
allt fari úrskeiðis.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hver einasta breyting í lífinu þarf ekki
að gerast af djúpum og þýðingarmiklum
ástæðum. Málið er ekki hversu mörg stefnu-
mót þú ferð á, heldur hversu mörg stefnumót
„hafa“ þig sem þátttakanda.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert full/ur af krafti og iðar í skinninu
eftir að koma öllu því í verk sem hefur verið á
biðlistanum. Eitthvað á eftir að koma þér á
óvart en láttu það ekki trufla þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er góður tími til að gera áætlanir
varðandi starfsframa þinn. Reyndu að sjá
hvað þú átt sameiginlegt með öðrum. Hristu
af þér slenið og vertu vinnusamur og jákvæð-
ur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft ekkert að setja upp hundshaus
þótt ekki séu allir sammála því sem þú segir.
Hrútur og tvíburi eru upplagðir félagar í æv-
intýri helgarinnar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur smekk heimsmannsins,
og vilt njóta fagurra hluta með öðrum. Gerðu
eitthvað eitt sem þú hefur lofað sjálfri/
sjálfum þér upp á síðkastið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lausnirnar sem leiða til betra lífs
eru augljósar, svo augljósar að þú gætir hafa
misst af þeim. Notaðu ástríðuna þína.
Gleymdu samt ekki að þakka þeim sem öllu
ræður.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert í miðju verkefni. Gyrtu þig í
brók og safnaðu fyrst upplýsingum um hlut-
ina en taktu svo ákvarðanir á grundvelli stað-
reynda.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er mikil hætta á einhvers kon-
ar valdabaráttu í dag. Leggðu staðreyndir á
borðið eins og þær blasa við þér. Ekki of-
hugsa aðstæðurnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru margar leiðir til að finna rétta
svarið; líttu á allar hindranir sem tækifæri.
Hvað varð um öll áramótaheitin?
Síðasta gáta var sem endranæreftir Guðmund Arnfinnsson:
Blóðugur er bardaginn.
Besti ávinningur.
Vogun er hann, vinur minn.
Við hann sunginn bragurinn.
Helgi R. Einarsson kom með
lausnina:
Handalögmál, lán í keppni,
lukkan vegur salt,
söngvadansar. Sérstök heppni,
slagur botnar allt.
Síðan hélt hann áfram: „Síbyljan
gengur stundum fram af manni!
Tónlistina tel ég vera
tilfinningaundur.
Örfá verk af öðrum bera,
annað misjafnt glundur.“
Og loks segir Helgi að nú sé ferð-
inni heitið í sauðburð til Vopna-
fjarðar. Því varð þetta til:
Íslensku ærnar þær bera.
Bændur á túnin sín bera.
Sulta skal ber
í september.
Litlir menn lát’á sér bera.
Hér kemur skýring Guðmundar:
Slagur berst um víðan völl.
Vinningur er slagur.
Slag við tökum einatt öll.
Oft við slag er bragur.
Síðan bætir Guðmundur við
limru:
Hann Ólafur er nú hættur,
en ýmsum finnst skaðinn bættur,
fyrst kom það á daginn,
að djarfur í slaginn
er Morgunblaðs ritstjórinn mættur.
Og loks er það gátan, – hún er
auðveld segir Guðmundur:
Í hug mér kemur hestakofi.
Hafður undir styttu sá.
Altari í heiðnu hofi.
Hrossum einatt gefið á.
Svör verða að berast eigi síðar en
á miðvikudagskvöld.
Páll Imsland heilsaði leirliði í
gróanda eftir langþráða rigningu.
Kvað Málfríður mærin á Teigi:
Mikið er gott að ég segi
hér allt um það
og hvernig bar að,
annars ég auðvitað þegi.
Sigrún Haraldsdóttir orti:
Færleikur hans fórst á mel.
Fangans slóðir röktu
englar Verndar, allir vel
yfir honum vöktu.
Gömul vísa í lokin. Drengur
drukknaði í Ísafjarðardjúpi og kom
til konu í draumi:
Ágætlega um mig fer
um Ægis lönd að sveima.
Dröfn og Alda dilla mér
í djúpinu á ég heima.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Látum slag standa
Í klípu
ANNAÐ BROT GOSA.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA ER BARA LÍTILRÆÐI TIL ÞESS
AÐ FAGNA FIMMHUNDRAÐASTA
ÖKUTÍMANUM ÞÍNUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fara frá „tíma fyrir
mig“ yfir í „tíma fyrir
okkur“.
ÞETTA
ER ÞRIÐJI
BJÓRINN
ÞINN…
KIIIIIIIISS
MMMM. AÐ KYSSA EINHVERN
BLESS ER FRÁBÆRT!
EKKI LÁTA MIG SLÁ
ÞIG UTAN UNDIR…
ÞÚ HEFUR Á RÉTTU AÐ STANDA! TAKK FYRIR AÐ
MINNA MIG Á! ÉG LOFAÐI HELGU AÐ ÉG MYNDI EKKI
LYFTA MEIR EN TVEIMUR KRÚSUM AÐ VÖRUM MÉR!
FÆRÐU MÉR RÖR…
ÖKUSKÓLINN
Nei, ég hef aldrei
verið kærður fyrir
meinsæri.
Það bregst ekki að í hvert sinn semVíkverji fer með bílinn í skoðun
tekur hjartað kipp og kaldur sviti
sprettur fram. Hann óttast mikið að
fá endurskoðunarmiða á bílinn með
tilheyrandi kostnaði. Víkverji fór
hoppandi kátur út af skoðunarstöð-
inni í gær glaður inn í helgina.
x x x
Drossían fékk fínustu ummæliskoðunarkonunnar, sem sagði
glaðbeitt „hann lifir alla vega eitt ár í
viðbót“. Það sem þetta gladdi hjarta
Víkverja var hreint ótrúlegt. Eign-
lega vandræðalega mikið.
x x x
Skoðunarkonan indæla bætti þvíeinnig við að allt væri í lukk-
unnar velstandi og svo góðu að bíll-
inn ætti jafnvel nokkur góð ár eftir ef
vel yrði hugsað um hann.
Víkverji tók þetta til sín og til
stendur að þrífa drossíuna og dúlla
við á alla kanta. Víkverji leggur
áherslu á að „til standi“ en það er
ekki þar með sagt að það verði að
veruleika því að Víkverji þekkir sinn
innri mann og bílaþrif eru ekki endi-
lega hátt á blaði hjá honum.
x x x
En annars þykir Víkverja samtdýru verði keypt að skoða bílinn.
Og aðbúnaðurinn fyrir ökumanninn
að hinkra eftir að bíllinn er mældur
sundur og saman er til algjörrar
fyrirmyndar, sem hlýtur að vera inn í
verðinu. Kaffi og kex og frítt net.
En Víkverji spyr sig samt stund-
um að því, hvað er að því að bíða bara
hreinlega? Ekki eyða tíma í að
drekka kaffi, éta eða að skoða alla
netmiðlana. Heldur bara bíða. Hvað
er að því að hreinlega bíða og horfa á
skoðunarmennina að störfum?
x x x
Núvitund – að vera í núinu – tröll-ríður öllu um þessar mundir og í
þeim fræðum á maður t.d. að vera í
biðröð og ekkert annað á meðan á því
stendur. Ekki að einblína á það sem
maður ætlar að gera eftir að biðinni
lýkur. Heldur bara að bíða í röðinni.
Að fara með bílinn í skoðun er tilval-
inn vettvangur til þess að æfa sig í
núvitund. Ekki svo að skilja að Vík-
verja hafi tekist það. víkverji@mbl.is
Víkverji
Annaðhvort er tréð gott og ávöxturinn
góður eða tréð vont og ávöxturinn
vondur. Því af ávextinum þekkist tréð.
(Matt. 12:33)
Stærsta uppboð ársins · Óvenju margar perlur gömlu meistaranna
mánudaginn 30. maí, kl. 18
og þriðjudaginn 31. maí, kl. 18
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Forsýning á verkunum laugardag til þriðjudags
laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17
Jóhannes S. Kjarval Þorvaldur Skúlason