Morgunblaðið - 28.05.2016, Side 47
Þann 28. maí kl. 15:00 opna lista-
konurnar Sólborg Matthíasdóttir
ljósmyndari og Sigríður R. Krist-
jánsdóttir kvikmyndagerðarkona
sýningu í Listasal Mosfellsbæjar.
Á sýningunni sem ber yfirskrift-
ina Hugarró, beita listakonurnar
ólíkum aðferðum til að tjá raun-
veruleikann en eru í raun að lýsa
sömu tilfinningum; leið þeirra
beggja liggur á sama áfangastað-
inn ... Hugarró.
Samkvæmt fréttatilkynningu þá
ólst Sólborg upp í Mosfellsbæ. Hún-
unir sér vel úti í náttúrunni og fer
mikið út fyrir borgina til þess að
vera ein með dýrunum.
Sigríður er aftur á móti kvik-
myndagerðarkona.
Hún hefur alla tíð haldið dagbók,
ljósmyndað, skissað og safnað
heimildum um það sem gerist í
kringum hana. Á árunum 2008-
2009 tók hún sjálfsmyndir nánast
daglega. Þessi ár voru erfiður tími í
hennar lífi og myndirnar eru vitn-
isburður um þær grímur sem hún
setti upp til þess að komast í gegn-
um þau.
Ljósmyndir í listasal
Sjálfsmynd Ein mynda Sigríðar.
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Frá og með deginum í dag, laug-
ardeginum 28. maí, mun Hverfis-
gallerí sýna verk Kristins E.
Hrafnssonar.
Stálskúlptúr
Hverfisgallerí kynnir með ánægju
aðra einkasýningu Kristins E.
Hrafnssonar hjá
galleríinu.
Sýningin dreg-
ur heiti sitt af
lykilverki sýning-
arinnar sem er
stór og mikill
stálskúlptúr sem
samanstendur af
tveimur átt-
ungum úr kúlu. Í
verkum Kristins
má greina heim-
spekilegan þráð og vangaveltur um
rúm og tíma, hreyfingu, afstæði og
tungumál.
Samband listaverksins
við vettvanginn
List hans fjallar um manninn og
skilning hans á umhverfi sínu og
hvernig náttúran mótar sýn hans og
samskipti. Samband listaverksins
við vettvanginn er mikilvægur þátt-
ur í verkum hans, en á ferli sínum
hefur Kristinn gert fjölda umhverf-
isverka, ýmist einn eða í samvinnu
með öðrum.
Verk hans er að finna í öllum
helstu listasöfnum á Íslandi sem og í
opinberum söfnum og einkasöfnum.
Kristinn býr og starfar í Reykjavík
Eitthvað um heiminn
Sæll Kristinn, ég er ekki búinn að
sjá öll verkin á sýningunni en þetta
sem maður sér af ljósmyndum sem
fylgja fréttatilkynningunni er svolít-
ið skrýtið, maður áttar sig ekki á því
hvert þú ert að fara?
Já. Ég sem myndlistarmaður vinn
við að gera það sem hefur ekki verið
gert áður.
Þessi verk eru ekki mynd af
heiminum, heldur eitthvað um heim-
inn.
Við höfum veröldina og svo hugs-
um við um hana og hvar við erum
stödd í heiminum.
Þessi verk mín undanfarin ár hafa
snúist um þetta og þessi sýning
gengur út á það.
Það var síðan einhver yfirlitssýn-
ing á verkum þínum í einhverjum
bankanum um daginn?
„Jú. Ég opnaði sýningu í Arion
banka, það eru einhver fimmtíu
verk eftir mig þar.
Já, þeir hafa verið með þannig
prógramm, sýnt verk eftir lifandi
sem látna. Þetta er fínt prógramm
hjá þeim, ég er montinn að hafa lent
í þeirri grúppu. Þetta er opið á
bankatíma og menn geta farið um
húsið og séð þetta.
En þetta er mun minni sýning hjá
okkur í dag.
Það er einn hlunkur í miðjunni,
annars eru þetta smá verk.“
Viltu bæta einhverju við svona að
lokum, enhverju sem þér finnst
vanta í viðtalið?
„Jú, jú, eigum við ekki að tala um
pólitík?“
Já, nei, nei. Þetta er fínt. Ég
hlakka til að koma á sýninguna á
morgun.
„Ok. Þú ert velkominn eins og
aðrir.“
Skilningur og umhverfi
Á skjön Verk Kristins eru ekki allra. Þau koma eins og Derrida til manns.
Kristinn E.
Hrafnsson
Kristinn E. Hrafnsson opnar sýningu í Hverfisgalleríi
Laugardaginn 28. maí verður
myndlistarsýning Jónu Hlífar Hall-
dórsdóttur, Óljós þrá, opnuð klukk-
an 14 í Grafíksalnum að Tryggva-
götu 17 (snýr að höfninni). Á
sýningunni verða sýnd ný verk unn-
in á árunum 2015 og 2016.
Í forgrunni verða textaverk og
skúlptúrar byggð á ýmsum minnum
um tímann og veðrið. Unnið er með
brot úr textum með aðferðum og
hugmyndum sem eru kunnugleg
frá nýlegum sýningum Jónu Hlífar.
Nýir efniviðir verða í forgrunni og
samspil texta, efnis og áferðar
mynda margradda frásögn um var-
anleikann, breytileikann og
spennuna milli stóru myndarinnar
og þess hversdagslega og einfalda.
Jóna Hlíf hefur starfað og sýnt
verk sín hér heima og erlendis en
allar upplýsingar um starfsemi
hennar á liðnum árum eru fáan-
legar á vefsíðu hennar. Samhliða
listsköpun starfar Jóna Hlíf sem
formaður Sambands íslenskra
myndlistarmanna og er stunda-
kennari hjá Myndlistarskólanum á
Akureyri og Listaháskóla Íslands.
Sýningin mun standa til og með
12. júní – opið verður laugardaga
og sunnudaga frá kl. 14 til 17.
Rússneskur?
Úr sýningunni: „þetta nafn, ég er
alveg að finna það: eitthvað nafn
sem ég er að reyna að muna. ég er
með það á tungubroddinum, ég
man að hann gaf út bækur við lok
19. aldar eða í upphafi 20. aldar, og
svo var hann bæði með sítt hár og
skegg á silfurgrárri mynd. þetta
var minnir mig rússneskt ljóðskáld,
ekki samt þessir frægu, hann birtist
mér óvænt í gúggli um daginn en
ég bara get ekki munað hvað hann
heitir.
ég hefði viljað kvóta hann, en ég
finn hann ekki aftur, finn hann
ekki, ekki þetta nafn, hef bara
þessa mynd sem situr í hausnum á
mér.“
Myndbrot úr lífi
Á sýningu Eitt af verkum Jónu Hlífar á sýningunni sem opnuð verður í dag.
Jóna Hlíf opnar myndlistarsýningu
Tónlistarmennirnir KK og Magnús
Eiríksson halda tónleika í kvöld kl.
22 á Café Rosenberg. Þeir hafa starf-
að saman með hléum í 40 ár eða allt
frá því KK sótti um og fékk vinnu í
Hljóðfæraverslunni Rín við Frakka-
stíg árið 1976. Í kvöld spila þeir og
syngja lög úr lagasafni hvor annars
auk sameiginlegra laga sem þeir
krydda með skemmtilegum frásögn-
um.
KK og Maggi á Rosenberg
Félagar Maggi og KK á góðri stund.
Bergsteinn
Björgúlfsson og
Ólafur Darri
Ólafsson hafa
samið við Vil-
borgu Davíðs-
dóttur rithöfund
um gerð hand-
rits og kvik-
myndar eftir
skáldsögu henn-
ar Hrafninum.
Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur
veitt Köggli sf., fyrirtæki Berg-
steins, styrk til handritsskrifa og er
hann þegar byrjaður á verkinu,
segir í tilkynningu. Hrafninn kom
út árið 2005 hjá Máli og menningu
og var Vilborg tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna fyrir bók-
ina.
Bergsteinn er kvikmyndatöku-
stjóri og segist hann ekki hafa losn-
að við Hrafninn úr höfðinu frá því
hann las bókina árið 2010 og þótt
hún eiga erindi á hvíta tjaldið. „Svo
þegar ég sýndi Ólafi Darra hana og
hann hvatti mig til að gera þetta
bara sjálfur þá ákvað ég að slá til
og hann mun framleiða með mér,“
er haft eftir Bergsteini í tilkynn-
ingu. Ólafur Darri er með vinsæl-
ustu leikurum þjóðarinnar og hefur
hann einnig komið að framleiðslu
margra verkefna, m.a. kvik-
myndanna Börn, Foreldrar og
Sveitabrúðkaup. Hrafninn gerist á
Grænlandi um miðja 15. öld og seg-
ir frá ungri inúítakonu, Naaju, og
Íslendingnum Mikjáli frá Eystri-
byggð. Leiðir þeirra liggja saman
eftir að Naaja er rekin í útlegð og
bjargar lífi Mikjáls þegar ísbjörn
ræðst á hann og félaga hans.
Hrafninn
verður að
kvikmynd
Vilborg
Davíðsdóttir
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 28/5 kl. 19:30 76.sýn Lau 4/6 kl. 19:30 78.sýn Lau 11/6 kl. 15:00 aukasýn
Sun 29/5 kl. 19:30 77.sýn Sun 5/6 kl. 19:30 79.sýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn
Sýningum lýkur í vor!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 1/6 kl. 19:30
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Mugison (Kassinn)
Lau 28/5 kl. 20:30 Fim 9/6 kl. 20:30 Sun 19/6 kl. 20:30
Sun 29/5 kl. 20:30 Fös 10/6 kl. 20:30 Fim 23/6 kl. 20:30
Fim 2/6 kl. 20:30 Sun 12/6 kl. 20:30 Fös 24/6 kl. 20:30
Fös 3/6 kl. 20:30 Fim 16/6 kl. 20:30 Lau 25/6 kl. 20:30
Lau 4/6 kl. 20:30 Fös 17/6 kl. 20:30 Sun 26/6 kl. 20:30
Sun 5/6 kl. 20:30 Lau 18/6 kl. 20:30
Miðasala á mugison.com
Play (Stóra sviðið)
Þri 31/5 kl. 19:30
Listahátíð í Reykjavík
Ekkert að óttast (Kassinn)
Lau 4/6 kl. 19:30
Áhugaleiksýning ársins!
DAVID FARR
AUGLÝSING ÁRSINS –★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 28/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00
Sun 29/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00
Þri 31/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00
Mið 1/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00
Fim 2/6 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00
Fös 3/6 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00
Lau 4/6 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00
Sun 5/6 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00
Þri 7/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00
Mið 8/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00
Fim 9/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00
Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu.
Auglýsing ársins (Nýja sviðið)
Sun 29/5 kl. 20:00 síð sýn.
Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur eftir Tyrfing Tyrfingsson
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 28/5 kl. 20:00 Síð sýn.
Allra síðasta sýning