Morgunblaðið - 28.05.2016, Síða 52
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 149. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Selja ef hundurinn þarf að fara
2. „Ég varaði hann við“
3. Flugmaður sýndi stórkostlegt gáleysi
4. Fegurðardrottning falsaði vottorð
Hin þjóðkunna hljómsveit Trúbrot
heldur tvenna tónleika í kvöld á
Græna hattinum á Akureyri, þá fyrri
kl. 20 sem uppselt er á og þá seinni
kl. 23. Mun hún flytja plötuna Lifun í
heild sinni og að auki úrval af lögum
sínum öðrum. Hljómsveitina skipa
bæði upphaflegir meðlimir og aðrir
tónlistarmenn: Gunnar Þórðarson
sem leikur á gítar og syngur, Magnús
Kjartansson sem leikur á píanó og
syngur, Eyþór Gunnarsson, sem leik-
ur á Hammondorgel, Jóhann Ás-
mundsson bassaleikari, Gunnlaugur
Briem trommuleikari, Friðrik Karls-
son gítarleikari, Stefán Jakobsson
söngvari, Stefanía Svavarsdóttir
söngkona og Andri Ólafsson söngvari
sem syngja einnig bakraddir og Pétur
Grétarsson sem leikur á slagverk.
Morgunblaðið/Ómar
Tvennir tónleikar
með Trúbroti
Nýtt sumarleikár Frystiklefans í Rifi
hefst 1. júní og stendur út ágúst.
Fimm leiksýningar verða fluttar í
hverri viku og að auki mun leikhúsið
taka við sérpöntunum á leiksýningum.
Frystiklefinn hefur ráðið fjóra atvinnu-
leikara sem taka þátt í sýningum
hússins og öðrum verk-
efnum í sumar en þeir
eru Anna Margrét
Káradóttir, Ásgrímur
Geir Logason, Júlíana
Sara Gunnarsdóttir og
Vala Kristín Egils-
dóttir en Kári Við-
arsson, eigandi
og listrænn
stjórnandi húss-
ins, er einnig í
hópi leikara.
Frystiklefinn ræður
til sín fjóra leikara
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg sunnanátt og léttskýjað nyrðra og eystra, en annars skýjað
og rigning vestast. Hiti víða 8 til 13 stig, en 15 til 20 stig norðaustantil.
Á sunnudag Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað vestantil og dálítil rigning við
sjávarsíðuna, en annars bjartviðri. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast í innsveitum norðaustantil.
Á mánudag Hægviðri og skýjað, en hlýnandi veður. Á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum, en þurrt að mestu.
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg
Guðmundsson stefnir á að yfirgefa
lið sitt, Charlton, eftir EM í í knatt-
spyrnu í Frakklandi í sumar. Hann
mun þó ekki láta það trufla sig á
mótinu sjálfu: „Ef ég væri að fara á
þetta mót til að sýna sjálfan mig og
gera allt upp á eigin spýtur myndi
ekkert ganga. Þetta er liðsíþrótt,“
segir Jóhann Berg. »1
Okkur gengur best
þegar við spilum sem lið
Flestir stuðningsmenn Man-
chester United fagna því að
José Mourinho hafi verið ráð-
inn knattspyrnustjóri félagsins.
Skoðanir Sir Alex Ferguson og
Sir Bobby Charlton urðu undir
en almennt er talið að þeir telji
Mourinho ekki henta United.
Þeir vilja sjá stjóra sem byggir
upp til lengri tíma en Mour-
inho er ekki þekktur
fyrir mikla þol-
inmæði. »4
Skiptar skoðanir
um Mourinho
Er röðin loksins komin
að Veszprém?
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vignir Björnsson, umboðsmaður
Morgunblaðsins á Blönduósi,
skaut ref á færi inni í miðjum bæ
þar nyrðra. Þetta gerðist þegar
hann var á ferðinni aðfaranótt síð-
astliðins miðvikudags að dreifa
blaðinu til áskrifenda. „Blaða-
bunkinn að sunnan var kominn
hingað um klukkan hálf fjögur um
nóttina og þá fór ég beint í út-
burðinn,“ segir Vignir. „Ég var á
móts við lögreglustöðina, sem er
vestanmegin við Blöndubrúna,
þegar rebbi kom skokkandi. Ég
þurfti aðeins að elta dýrið smá
spotta en þegar það birtist að
nýju var refurinn kominn með egg
í skoltinn. Haglabyssan var í bíln-
um eftir veiðiskap fyrr um nóttina
og því greip ég hana upp, miðaði á
dýrið, greip svo í gikkinn, skotið
reið af og rebbi féll um leið.“
Í fugla og egg
á bökkum Blöndu
Veiðiskapur af ýmsum toga er
hálft líf og viðurværi Vignis. Yfir
sumarið er hann veiðivörður við
Blöndu og Svartá auk þess að
vera refaskytta Blönduósbæjar og
Skagabyggðar. „Síðustu árin hafa
sum sveitarfélög ekki lagt jafn-
mikla áherslu og áður á að halda
refnum í skefjum vegna sparnað-
ar. Fyrir vikið hefur refnum fjölg-
að talsvert, enda virðir hann engin
landamæri,“ útskýrir Vignir. Í
kringum Blönduós leitar refurinn
mikið niður að bökkum Blöndu
þar sem hann kemst í æti eins og
fugla og egg. „Refurinn sem ég
skaut núna í vikunni var niðri við
Blöndu, þar sem gæsin heldur sig
mikið. Þar verpir hún í stórum stíl
og liggur nú á eggjunum í hreiðr-
um,“ nefnir Vignir sem síðan í
mars hefur veitt alls þrettán refi.
Þegar svo líður á júnímánuð byrj-
ar grenjavinnslan. Þá er legið við
greni sem geta til dæmis verið al-
veg frá fjöru til fjallsbrúna, og þá
er refurinn á fullu að veiða fyrir
yrðlinga sína.
Slapp í fjögur sumur
„Að liggja á grenjum að nóttu,
því fylgir mikill spenningur. Oft
eru menn tveir saman í þessu, svo
annar geti dottað sé ekkert að
gerast. Mér finnst þetta hins veg-
ar svo spennandi að mér kemur
aldrei dúr á auga. Í fyrra vann ég
greni þar sem refurinn hafði
sloppið frá mér í fjögur sumur. En
það tókst að lokum að drepa ref-
inn, þolinmæðin þrautir vinnur all-
ar. Annars er mjög áhugavert að
fylgjast með atferli rebba og tákn-
máli hans. Stundum gaggar tófan
fallega en gargar þegar yrðling-
arnir fá skilaboð um að hætta sé á
ferð. Þetta dýr er alveg óvitlaust,“
segir Vignir sem telur mikilvægt
að halda vargdýrum í skefjum,
enda geti þau unnið mikinn usla
til dæmis á sauðfé bænda. Stund-
um vanti bændur tugi lamba eftir
sumarið, sem þá væntanlega hafa
mörg orðið refnum að bráð.
„Ég lenti í bílslysi fyrir nokkr-
um árum og hef aldrei náð mér til
fulls síðan. Með æfingum og þjálf-
un held ég í horfinu. Útivera og
göngur hjálpa mér mikið, til dæm-
is veiðimennskan og útburður á
Morgunblaðinu,“ segir Vignir á
Blönduósi að síðustu.
Blaðberinn
á Blönduósi
skaut ref á færi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skyttan Vignir Björnsson vígalegur með rebbann með gæsaregg í skolti.
Var að dreifa Morgunblaðinu Með
byssu í bílnum nærri lögreglustöðinni
Að fella ref inni í miðjum bæ nú í vikunni var endurtekinn leikur hjá Vigni,
sem fyrir ári skaut tófu fyrir utan elliheimilið Flúðabakka. „Þá var at-
burðarásin nokkuð svipuð því sem var núna, nema að í fyrra taldi ég fyrst
að tófan væri köttur,“ segir Vignir sem hefur verið skytta Blönduósbæjar
allt frá árinu 1997.
Eftirtekja Vignis eftir hvert veiðitímabil, sem er frá 1. maí til júlíloka,
hefur oft verið 40-50 dýr. Fyrir skottið af hverju fullorðnu dýri greiðir
sveitarfélagið 8.000 krónur en yrðlingurinn leggur sig á 2.000 krónur.
Endurtekinn leikur á árbakka
EFTIRTEKJA HVERS ÁRS ER GJARNAN 40-50 DÝR
Margir telja að röðin sé komin að
Aroni Pálmarssyni og félögum hans í
Veszprém að vinna Meistaradeild
Evrópu í handknattleik. Úrslitahelgin
er leikin í Köln um helgina og stuðn-
ingsmenn Vesprém og ungverskir
fjölmiðlar gera kröfu um sigur. Í veg-
inum eru Kiel, PSG
og Kielce. »2-3