Náttúrufræðingurinn - 2013, Qupperneq 9
117
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Gostíðni áætluð út frá fjölda
gjóskulaga
Ekki varðveitast öll gjóskulög í
jarðlögum umhverfis eldstöð og
varðveislulíkur minnka með fjar-
lægð frá eldstöð. Einungis fimm-
tungur Grímsvatnagosa síðustu
800 ára mynduðu gjóskulög sem
hafa varðveist í jarðvegssniðum á
láglendi Íslands.15 Til þess að áætla
gostíðni á forsögulegum tíma út
frá fjölda varðveittra gjóskulaga
er gert ráð fyrir sömu varðveislu-
forsendum og á sögulegum tíma
og svokallaður varðveislustuðull
reiknaður út frá fjölda varðveittra
gjóskulaga í jarðvegi frá sögulegum
tíma og fjölda þekktra gosa frá
sama tímabili. Varðveislustuðulinn,
ásamt fjölda varðveittra gjóskulaga
frá forsögulegum tíma, er svo hægt
að nota til að nálgast “raunverulega”
gostíðni á forsögulegum tíma.
Niðurstöður
Jarðvegsopnur og uppruni gjósku
Heildarþykkt gjósku og jarðvegs í
opnunum sjö er breytileg, minnst
325 cm og mest 652 cm, og tíminn
sem þær spanna er 2530 til 7320
ár (2. tafla). Gjóskulagið frá Kötlu
1918 er yngsta þekkta lagið en það
finnst nálægt toppi jarðvegssniðs
í Núpsstaðarskógum (1. mynd).
Elstu gjóskulögin finnast í opnum
norðan við Vatnajökul, nálægt Kára-
hnjúkum og Snæfelli (1. mynd), og
eru eldri en 7600 ára.
Sé hvert gjóskulag í jarðvegs-
sniðunum sjö talið er heildarfjöldi
ótengdra gjóskulaga 747, þar af má
rekja uppruna 710 laga. Alls eru 279
frá Grímsvötnum, 215 frá Bárðar-
bungu og 34 frá Kverkfjöllum sem
sýnir að þessar þrjár eldstöðvar
hafa myndað rúmlega 2/3 hluta
gjóskulaga umhverfis Vatnajökul
3. mynd. Ljósmynd af jarðvegssniði. Nokkur
gjóskuleiðarlög eru auðþekkjanleg, það
yngsta er svokallað Landnámslag (V-871),
basalt gjóskulag myndað á Bárðarbungu-
eldstöðvakerfinu, Hrafnkatla og LN eru
mynduð í Kötlu, það fyrra er basalt en það
seinna kísilríkt en kísilrík Kötlulög eru oft
nefnd nálalög vegna lögunar gjóskukorn-
anna. HM, HS og H4 eru Heklulög. Aldur
þessara gjóskuleiðarlaga og annarra sem
notuð eru í rannsókninni er í 1. töflu. –
Photo of a soil section. Several readily recog-
nisable tephra marker layers, the youngest
one, LNL or the Settlement layer is a basal-
tic tephra layer originating from the Bárdar-
bunga volcanic system. Hrafnkatla is a
basaltic Katla tephra layer and LN is a silicic
Katla tephra. HM, HS and H4 all originate
in the Hekla volcano. The age of these tephra
marker layers is given in Table 1.
Gjóskuleiðar-
lög – Tephra
marker layers
Eldstöðvarkerfi
– Volcanic
system
Nr.
jarðvegsopnu
– Soil section
No.
14C aldur
–
14C dates
Leiðréttur
aldur1
– Calibrated/
calendar yrs1
Aldur m.v.
árið 2005
e.Kr. –
Bf 2005 AD
Heimildir
– References
K-1918Δ Katla 7 (S) 1918 e.Kr. 87 t.d. 65
Ö-1727Δ Öræfajökull 7 (S) 1727 e.Kr. 278 65
V-1477 Bárðarbunga 2–7 (L) 1477 e.Kr. 528 26
Ö-1362 Öræfajökull 1–7 (L) 1362 e.Kr. 643 65
H-1158 Hekla 1–5 (L) 1158 e.Kr. 847 28
H-1104 Hekla 1,4 (S) 1104 e.Kr. 901 66, 67
Eldgjá Katla 1,7 (S) 934 e.Kr. 1071 68
V-871 Bárðarbunga 1–7 (L) 871 e.Kr. 1134 38
Hrafnkatla Katla 1–7 (L) *760 e.Kr. 1250 48
Grákolla (G) Torfajökull 1,3–5,7 (L) 1995±30 10 e.Kr. 1995
Guðrún Larsen
& Jón Eiríksson
óbirt gögn
Askja (A) Askja 2,6 (L) 1995±30 10 e.Kr. 1995 Grákollualdur^
Hy Hekla 3,5,7 (L) °~600 f.Kr 2650 69, 70
Hz Hekla 3,4 (S) °~720 f.Kr. 2750 69, 70
UNΔ Katla 7 (S) 2660±50 BP 845 f.Kr. 2850 43
H3 Hekla 1–5 (L) 2879±34 BP 1050 f.Kr. 3055 71
LN Katla 1,3 (S) 3139±40 BP 1430 f.Kr. 3435 43
HS Hekla 6,7 (S) 3515±55 BP 1855 f.Kr. 3860 43
H4 Hekla 1,3–7 (L) 3826±12 BP 2250 f.Kr. 4255 71
N1Δ Katla 1 (S) 3200 f.Kr. 5200 43
HÖ Hekla 1,3–5,7 (L) 5275±55 BP 4110 f.Kr. 6115 37
H5 Hekla 1,3,4 (L) 6185±90 BP 5120 f.Kr. 7125 72
1. tafla. Gjóskuleiðarlög á rannsóknarsvæði, uppruni þeirra og aldur.48 – Tephra marker
layers in the study area, their source volcanic systems and ages obtained from written
documents, ice core dates C14 dates and soil accumulation rate (SAR) calculations.48
1 Meðaltal leiðrétts aldurs, leiðrétt samkvæmt trjáhringjatali.73
Δ Gjóskuleiðarlög eingöngu notuð við útreikninga jarðvegs-
upphleðsluhraða, ekki við tengingu milli jarðvegssniða.
(S) Stendur fyrir „staðbundið leiðarlag“ og (L) fyrir „gjósku-
leiðarlag“ sem finnst um mest allt land (sjá texta).
* Aldur reiknaður út frá jarðvegsupphleðsluhraða.
° Áður óbirtur aldur reiknaður út frá jarðvegsupphleðslu-
hraða á Heklusvæði.
̂ Gjóskuleiðarlögin Grákolla og Askja finnast ýmist sem
sérstök lög eða blanda beggja í jarðvegsopnum og því
eru þau af sama aldri.