Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 38

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 38
Náttúrufræðingurinn 146 dvína. Dauðsföllin verða einkum þegar mikið af lirfum nær að trufla starfsemi hjartans, þegar virkni vöðvanna sem sjá um öndunar- hreyfingar truflast eða þegar lirfur hafa náð að safnast fyrir í miklum mæli í heila að taugakerfið hættir að starfa eðlilega. Vægar sýkingar með tiltölulega fáum verpandi kven- dýrum minna á flensu eða umgangs- pestir og geta slíkar sýkingar gengið yfir án þess að viðkomandi átti sig á orsökinni. Sömu sjúkdómseinkenna gætir í dýrum en þau birtast þó á annan hátt. Í svínum greina eigendur til dæmis aukin sársaukaviðbrögð, hrað- ari öndun, kyngingarerfiðleika og stirðbusalegri hreyfingar en svipað og í mannfólkinu hverfa þessi einkenni að mestu þegar þolhjúp- arnir eru fullmyndaðir.9 Leit að tríkínum á Íslandi Leit að tríkínum á Íslandi hefur beinst að T. spiralis og T. nativa en engin leit hefur enn verið gerð að T. pseuedospiralis, tegund, sem eins og áður sagði, myndar ekki þol- hjúpa en hefur fundist víða um heim í mönnum, öðrum spendýrum og fuglum sem éta hrátt kjöt.4,7 Leit að Trichinella spp. í svínum, hrossum og villimink Um og eftir seinni heimsstyrjöldina hófst innflutningur á matvælum til setuliðs Bandaríkjamanna á Ís- landi. Þar sem fljótlega var farið að nota matarúrgang frá herstöðinni í Keflavík sem fóður á svínabúum í nágrenninu varð mönnum strax ljós sú hætta sem skapaðist á því að tríkínur (T. spiralis, eftir á að hyggja raunar einnig tegundirnar T. nativa, T. murelli og arfgerðin T. T6)4 gætu borist með þessum mararúrgangi yfir í svín hérlendis. Þannig gætu svínaafurðir orðið uppspretta tríkínusýkinga í fólki á Íslandi væri þeirra neytt hrárra (hráskinka) eða vaneldaðra. Fljótlega eftir að Páll Agnar Pálsson, fyrrum yfir- dýralæknir kom til starfa að Til- raunastöðinni á Keldum árið 1948 fór hann ásamt samverkafólki að leita að tríkínum í svínum sem slátrað var í Reykjavík og nágrenni.18 Leitað var með svonefndri tríkínusjáraðferð þar sem litlir bitar úr þind (hver á stærð við hrísgrjón) eru pressaðir milli tveggja glerplatna og leitað með gegnumfallandi ljósi að þol- hjúpum lirfanna í víðsjá (4. mynd). Þessari leit var haldið áfram svo lengi sem matarleifar frá herstöðinni voru notaðar sem fóður fyrir svín. Aldrei fundust þolhjúpar tríkína í svínunum.18 Áður kom fram að um mið- bik áttunda áratugarins komu upp nokkrir tríkínufaraldarar í Evrópu sem raktir voru til neyslu á hráu hrossakjöti.4,7,10 Í framhaldinu var farið að leita skipulega að tríkínum í hrossakjöti sem neyta átti í löndum Evrópubandalagsins. Engin undan- tekning var gerð varðandi inn- flutning á hrossakjöti frá Íslandi. Til- skipunin varð til þess að farið var að leita á nýjan leik að tríkínum á Tilraunastöðinni á Keldum. Nú var aftur á móti beitt nákvæmari aðferð. Fólst hún í því að melta 5 gramma bita úr þind þeirra hrossa sem flutt skyldu út. Þolhjúparnir meltast líka utan af lirfunum þannig að í smituðum dýrum blasa lirfurnar við spriklandi þegar botnfalli úr meltingarlausninni er brugðið undir víðsjá (3. mynd). Á árunum 1998 til 2011 var leitað með þessari aðferð að tríkínum í hátt í 2000 íslenskum hrossum án þess þó að finna nokkru sinni tríkínulirfur.19 Umfang tríkínuleitar hér á landi stórjókst árið 2012 þegar farið var að framfylgja tilskipun EB nr. 2075/2005 sem kveður á um að leita skuli að tríkínum í þindarsýnum úr öllum svínum (1 gramm úr hverju svíni) og öllum hrossum (5 grömm úr kjálkavöðva) sem færð eru til slátrunar á Íslandi. Gildir einu hvort kjötið er flutt út eða þess neytt innanlands. Á árinu 2012 voru rann- sökuð á Keldum 671 safnsýni úr svínum (hámark sýni úr 100 svínum í hverju safnsýni, stundum þó sýni úr færri dýrum, alls á að giska um 65.000 sýni) og 351 safnsýni úr hrossum (hámark 20 hross í hverju safnsýni, í heildina sýni úr ríflega 6000 hrossum). Tríkínur fundust ekki í þessum sýnum.19 Árið 1993 leitaði höfundur tríkínu- lirfa í þind 26 villtra minka Neovison vison sem veiddir voru víða um land frá apríl 1990 fram í apríl 1992. Var þessi athugun gerð í tengslum við skipulegar rannsóknir á sníkjudýrum í villta minkastofninum hér á landi. Beitt var áðurnefndri meltingar- aðferð. Engar tríkínur fundust í sýnunum. Tríkínur staðfestar í hvíta- björnum á Íslandi Fyrsta dýrið sem staðfest er að hafi verið smitað af tríkínum hér á landi er hvítabjörn sem felldur var í Hornvík 20. júní 1963 (2. mynd). Í skýrslu á Keldum er að finna eftir- farandi frásögn:18 Þau tíðindi gerðust sumarið 1963 að bjarndýr var lagt að velli vestur á Hornströndum. Skrokkur dýrsins var fluttur til Ísafjarðar og kjötið boðið til sölu. Vegna nýjungagirni fólks gekk kjötsalan vel og fengu færri en vildu. Strax og fregnaðist að bjarndýrakjötið væri notað til manneldis fór yfir- dýralæknir þess á leit við héraðslækninn 3. mynd. Lirfa tríkínunnar Trichinella nativa (þvermál 40 µm) eftir að hafa verið melt út úr þolhjúpi úr þind hvítabjarnar sem gekk á land á Skaga í júní 2008. – Larva of Trichinella nativa (diameter 40 µm) from the diaphragm of polar bear that swam to Iceland in June 2008. Ljósm./Photo: Karl Skírnisson.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.