Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 65

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 65
173 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags skyldi stofnað til eins seturs á Akur- eyri strax við gildistöku laganna. Byggt verði yfir Reykjavíkursetur NÍ í Vatnsmýri við hliðina á Nátt- úrusafni og kallaði nefndin bygg- inguna Náttúruhús. • Sérstakur kafli er um náttúru- stofur í frumvarpinu, efnislega með svipuðum ákvæðum og sett voru fram í tillögum N-nefndarinnar frá 1973, m.a. heimild til að stofnsetja eina slíka stofu er njóti ríkisstuðn- ings í hverju kjördæmi. Tvær nátt- úrustofur verði heimilaðar innan fimm ára frá gildistöku laganna. • Kveðið er á um tengsl NÍ við aðrar rannsóknastofnanir og sam- starf við náttúrustofur. • Rannsóknir sem tengjast umhverfismálum geta verið meðal verkefna NÍ og náttúrustofa og fyrirhuguð lög skyldu sett undir umhverfisráðuneyti, sem stofnað var til um sama leyti árið 1990. • Uppbygging og rekstur náttúru- sýningarsafna eru aðskilin frá rann- sóknum og verða verkefni sérstakra félaga, etv. sem sjálfseignarstofnanir. Nefndin átti fundi með rektor Háskóla Íslands og Davíð Odds- syni borgarstjóra um þátttöku Há- skóla Íslands og Reykjavíkurborgar ásamt ríkinu um byggingu yfir sýningarsafn í Náttúruhúsi í Vatns- mýri austan Norræna hússins. Var gert ráð fyrir að stofnað yrði hið fyrsta undirbúningsfélag aðila um byggingu þess og rekstur. Umfjöllun stjórnvalda um tillögur NNN-nefndar Fljótlega eftir samþykkt laga vorið 1990 um sjálfstætt umhverfisráðu- neyti sendi menntamálaráðuneytið tillögur NNN-nefndar þangað. Júlíus Sólnes umhverfisráðherra mælti á Alþingi þann 12. mars 1991 fyrir stjórnarfrumvarpi um Nátt- úrufræðistofnun Íslands og nátt- úrustofur.14 Ráðuneyti hans hafði talið rétt að kanna betur nokkur atriði í frumvarpinu áður en það yrði lagt fyrir Alþingi, einkum þau sem lutu að stjórn og skipulagi Náttúrufræðistofnunar. M.a. hafði heimild til stofnunar setra Náttúru- fræðistofnun Íslands verið fjölgað úr fimm í sex og forstöðumaður seturs í Reykjavík skyldi jafnframt vera forstjóri stofnunarinnar, skipaður af ráðherra. Júlíus boðaði hins vegar engar breytingar á tillögum NNN- nefndar um náttúrustofur. Jafn- framt greindi hann frá því í fram- söguræðu sinni að samstarfshópur ríkis, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands um byggingu Náttúruhúss á lóð Háskólans í Vatnsmýri hefði verið skipaður.15 Málinu var vísað til allsherjarnefndar, en þingi var þá að ljúka í aðdraganda alþingiskosninga vorið 1991, og lauk nefndin ekki umfjöllun um frumvarpið. Þann 10. desember 1992 var öðru sinni lagt fram á Alþingi stjórnar- frumvarp um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.16 Mælti nýr umhverfisráðherra, Eiður Guðnason, fyrir málinu þann 18. febrúar 1992. Hafði hann áður skipað nefnd til að fara yfir frumvarpið og meta hvort æskilegt eða nauðsynlegt væri að gera breytingar á því. Í nefnd- inni áttu sæti Jón Gunnar Ottósson deildarstjóri formaður, og alþingis- 14 Nd. 12. mars 1991. Náttúrufræðistofnun Íslands, 1. umr. Stjfrv., 435. mál (heildarlög). – Þskj. 788. 15 Náttúruhús í Reykjavík. Áfangaskýrsla, júlí 1991. Samstarfshópur um byggingu Náttúruhúss í Reykjavík. Umhverfisráðuneytið – Kristinn Sv. Helgason – Sveinn Jakobsson. Reykjavíkurborg – Hjörleifur Kvaran – Þórður Þ. Þorbjarnarson. Háskóli Íslands – Sveinbjörn Björnsson – Örn Helgason. Menntamálaráðuneytið – Álfheiður Ingadóttir. 16 Frumvarp til laga um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, 203. mál á þskj. 228. á 115. löggjafarþingi 1991–1992. 9. mynd. Skilagrein NNN-nefndar 1990.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.