Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 68

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 68
Náttúrufræðingurinn 176 www.fi.is Líf og fjör í starfseminni Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem hefur það markmið að hvetja landsmenn til að ferðast og fræðast um landið. Áhugi á gönguferðum, fjall- göngum og útiveru hefur aldrei verið meiri og er mikið líf og fjör í starfseminni. Allir finna eitthvað við sitt hæfi Ferðafélagið leggur sig fram við að mæta þörfum breiðs hóps með miklu úrvali ferða. Í ferðaflóru félagsins er að finna allt frá söguferðum um grös- ugar sveitir til erfiðra jöklaferða. Í ferðaáætlun félagsins geta flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Á 86 árum hefur Ferðafélagið efnt til meira en 8.500 ferða með yfir 200.000 þátttakendum. Öflug útgáfustarfsemi Það eru allir velkomnir í Ferðafélagið og njóta félags- menn sérkjara, bæði í ferðum, skálum og í fjölda verslana. Auk þess fá allir félagsmenn árbókina senda heim á hverju ári og er það hluti af árgjaldinu. Árbókin er einstæður bókaflokkur um land og náttúru. Auk árbókanna hefur Ferðafélag Íslands staðið að útgáfu handhægra fræðslu- og upplýsingarita um ferðamál, þjóðfræði og sögu landshluta. Sjálfboðastarf í góðum félagsskap Félagsstarfið hefur í gegnum tíðina einkennst af miklu sjálfboðastarfi. Félagar hafa unnið að byggingaframkvæmdum, farið vinnuferðir í skála eða í frágangsferðir, stikað og unnið að uppbyggingu gönguleiða, unnið við brúargerð og margt fleira. Í staðinn hafa þeir fengið fríar ferðir, fæði og félagsskap. Samgöngubætur og uppbygging svæða Félagið hefur unnið markvisst að samgöngubótum, lagt akvegi og brúað ár. Það hefur haft samstarf við sveitarfélög um landgræðslu, náttúruvernd og uppbyggingu svæða eins og t.d. í Landmanna- laugum, á Þórsmörk og Emstrum. Sæluhúsin standa öllum opin Sæluhús Ferðafélags Íslands og deilda félagsins úti um land eru þægilegir áningarstaðir á ferðalagi um óbyggðir Íslands. Þau eru á 36 stöðum víðsvegar um landið og getur allur almenningur nýtt þau óháð aðild að félaginu. Fjölbreytt starfse mi í yfir 86 árFerðaféla g Íslands Upplifðu náttúru Íslands Aðal samstarfsaðilar FÍ FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is Skráðu þig inn – drífðu þig út NF_3-4_040214.indd 176 1203//14 12:10

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.