Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 71
179
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Ægisdóttir plöntuvistfræðingur og
fulltrúi stjórnar HÍN í ritstjórninni,
Hlynur Óskarsson vistfræðingur,
Kristján Jónasson jarðfræðingur,
Rannveig Magnúsdóttir líffræðingur
og Tómas Grétar Gunnarsson
dýravistfræðingur.
Þess ber að geta að á árinu gekk
Leifur Símonarson úr ritstjórn eftir
áralanga setu þar sem honum ber
mikil þökk fyrir.
Nefndir
Dýraverndarráð: Margrét Björk
Sigurðardóttir er fulltrúi HÍN og
hefur verið síðastliðin sex ár. Staða
ráðsins hefur breyst á árinu og hefur
það færst frá Umhverfisstofnun til
Matvælastofnunar. Gert er ráð fyrir
að hún sitji áfram í ráðinu fyrir hönd
HÍN þar til væntanlegar breytingar á
dýraverndarlögum taka gildi.
Samstarfshópur frjálsra félaga-
samtaka á sviði umhverfismála á
vegum Umhverfis- og auðlindaráðu-
neytis: Hópurinn á fulltrúa í ýmsum
nefndum á vegum Umhverfis- og
auðlindaráðuneytis, svo sem í
Rammaáætlun, stjórn og svæðis-
ráðum Vatnajökulsþjóðgarðs o.fl.
Árni Hjartarson er fulltrúi HÍN en
Hólmfríður Sigurðardóttir hjá Fugla-
vernd er talsmaður og tengiliður
hópsins við ráðuneytið. Allmikið
var um að vera í hópnum framan af
ári, einkum vegna Rammaáætlunar.
Á síðustu mánuðum hefur allt verið
með kyrrum kjörum enda er ráðu-
neytið á breytingaskeiði vegna sam-
einingarmála og á nóg með sjálft sig.
Ráðgjafanefnd hagsmunaðila um
stjórn vatnamála: Nefndin var skipuð
á fyrri hluta árs 2012 vegna inn-
leiðingar Vatnatilskipunar Evrópu-
sambandsins. Nefndin fundaði
nokkrum sinnum og mun starfa
áfram að málum í tengslum við
vatnstilskipunina. Fulltrúi HÍN er
Hilmar J. Malmquist.
Aldarminning Sigurðar
Þórarinssonar
Þann 8. janúar 2012 fyrir rúmu ári
voru liðin 100 ár frá fæðingardegi
Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings,
sem um skeið var ritstjóri Náttúru-
fræðingsins og formaður HÍN. Þá
efndu HÍN og fleiri félög og samtök
sem tengjast náttúruvísindum, nátt-
úruvernd og útiveru til blysfarar
kringum Grænavatn í Krýsuvík eins
og greint var frá á síðasta aðalfundi.
Um mitt ár kom fram sú hugmynd
að gefa út geisladisk með söng-
textum Sigurðar. Helstu hvatamenn
að þessu voru Gunnar Guttormsson,
Halldór Ólafsson, Árni Björnsson
og Páll Einarsson. Hugmyndin vatt
upp á sig og þegar upp var staðið
var komið út tveggja diska albúm,
hljómdiskur (CD) með 32 lögum og
mynddiskur (DVD) með þremur
þáttum ásamt vönduðum mynd-
skreyttum bæklingi með textum og
ýmsum fróðleik. HÍN, Ferðafélag
Ísalnds og Jöklarannsóknafélag Ís-
lands eru skráð fyrir útgáfunni en
upplagið er 2.000 stk. HÍN reiddi
fram 250.000 krónur til útgáfunnar
og fékk 250 albúm til ráðstöfunar
sem eru nú í sölu.
Um málefni Náttúru-
minjasafns Íslands
Barátta HÍN fyrir hagsmunum
NMSÍ hefur verið fyrirferðarmikil
í starfsemi félagsins. Eins og greint
hefur verið frá í ársskýrslum undan-
genginna ára hafa stjórnarmenn
HÍN heimsótt allmarga áhrifamenn
í stjórnkerfi ríkis og borgar til að ýta
á eftir málefnum safnsins. Má þar
nefna Katrínu Jakobsdóttur mennta-
málaráðherra, Álfheiði Ingadóttur
alþingismann og fyrrum ritstjóra
Náttúrufræðingsins, Svandísi
Svavarsdóttur umhverfisráðherra
og Jón Gnarr borgarstjóra. Í ár var
þessu haldið áfram. Katrín mennta-
málaráðherra var heimsótt, þá
Dagur B. Eggertsson formaður
borgarráðs og einnig Margrét Hall-
grímsdóttir þjóðminjavörður. Segja
má að málefnastaða Náttúruminja-
safnsins hafi heldur þokast fram
á við. Árið byrjaði þó ekki vel því
eftir svarta skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um framkvæmd laga
um Náttúruminjasafnið og allar
aðstæður þess. Stjórn HÍN sendi
frá sér blaðagrein að þessu tilefni
og ályktun um að skoða bæri vel
Perluna á Öskjuhlíð sem framtíðar-
húsnæði fyrir safnið. Það næsta
sem gerðist í málinu var að safn-
stjóranum Helga Torfasyni var sagt
upp en Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður fengin til að gegna
starfinu þar til nýr safnstjóri yrði
ráðinn. Lítill þrýstihópur, Perluvinir,
sem fulltrúi HÍN var í, vann að til-
lögum um nýtingu Perlunnar og
umhverfisins á Öskjuhlíð fyrir Nátt-
úruminjasafn. Ekki varð af sölu
Perlunnar á frjálsum markaði eins
og Orkuveitan hafði stefnt að. Þess í
stað komu fram hugmyndir um að
Reykjavíkurborg keypti húsnæðið
og leigði það ríkinu til minnst tíu
ára undir náttúruminjasýningu á
vegum Náttúruminjasafnsins. Um
þetta var samið og jafnframt voru
settar á fjárlög ársins 2013, 400
milljónir króna vegna stofnkostnaðar
við sýningahald í Perlunni. Á fjár-
lögum ársins 2014 var jafnframt
ráðgert að bæta 100 m.kr. við vegna
stofnkostnaðar við uppsetningu
sýningarinnar. Nú er allt þetta mál
komið undir alþingi og ríkisstjórn að
standa við gefin fyrirheit.
Styrkumsóknir
Sótt var um styrki til umhverfisráðu-
neytis, rekstrarstyrk að fjárhæð kr.
1.000.000 og styrk til kynningarátaks
fyrir Náttúrufræðinginn kr. 700.000.
Nýverði barst tilkynning um kr.
600.000 rekstrarstyrk.
Starfið framundan
Aðalatriðið í starfinu framundan er
að halda útgáfu Náttúrufræðingsins
í horfinu þannig að ekki taki að
myndast útgáfuhali á ný. Fjölga
þarf áskrifendum og auka þarf
auglýsingatekjur til að útgáfan
standi undir sér. Ýta þarf jafnt og
þétt á eftir málum NMSÍ en nú
virðist meiri byr í seglum en undan-
gengin misseri.
Reykjavík 20. 2. 2013
Árni Hjartarson, formaður