Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Síða 8
Í PRÓFÍL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2016 ÍÞRÓTTAGEN Gianluigi Buffon fæddist inn í mikla íþrótta- fjölskyldu, 28. janúar 1978, í borg- inni Carrara við Miðjarðarhafið, 80 kílómetrum sunnan við Parma en með liði þeirrar borgar sló hann einmitt fyrst í gegn sem markvörður. Móðir hans, Maria Stella, var kringlukastari og faðirinn, Adriano, var lyftingakappi. Bæði voru hætt keppni þegar sonurinn kom í heiminn en störfuðu þá sem íþróttakennarar. Maria Stella og Adriano eiga einnig tvær dætur. Þær heita Veronica og Guendalina og var sú síðarnefnda landsliðsmaður í blaki. Þá er náfrændi Buffons markvarðar, Danet Masocco, fyrr- verandi körfuboltamaður sem lék í efstu deild á Ítalíu og með lands- liðinu. Buffon ungur, þegar hann var í Parma. Af kempum kominn HÆTTIR 2018 Buffon hefur tilkynnt að hann muni hætta keppni eftir tvö ár, fertugur, eftir HM í Rúss- landi. Markvörðurinn hefur sjö sinnum orðið Ítal- íumeistari með Juventus, þar af fimm sinnum í röð síðustu ár og heimsmeistari varð hann 2006. Buffon hefur lýst því yfir að ferlinum ljúki hann hjá Juve, þar sem hann hefur leikið í 15 ár. „Jafnvel þótt mér yrðu boðin tvöföld laun mín hjá Juventus ein- hvers staðar annars staðar vil ég vera um kyrrt,“ sagði hann við franska miðilinn So Foot. „Ég er stolt- ur af því að tilheyra félaginu vegna þess að það stend- ur fyrir ákveðin gildi.“ Þrátt fyrir mikla reynslu vill hann ekki þjálfa, miklu fremur starfa við að finna unga og efnilega leikmenn, jafnvel í Kína og Bandaríkjunum, þar sé úr stórum hópi að velja og spennandi tímar framundan. Ýjað hefur verið að því að hann hafi áhuga á að fylgjast með ungviðinu í því skyni að benda viðkomandi knattspyrnusamböndum á leikmenn sem gætu sómt sér vel í landsliði síðar meir. Buffon er oft flottur í tauinu eins og margir Ítalir. Þarna er hann í spariklæðum Juventus fyrir mikilvægan leik. AFP Hanskarnir fara á hilluna eftir tvö ár ÍTALINN GIANLUIGI BUFFON hefur staðið í marki stórliðsins Juventus í hálfan annan áratug og allan þann tíma verið einn besti knattspyrnumarkvörð- ur heims. Fjöldi stórstjarna í bransanum lítur mjög upp til hans og hefur gert nær alla tíð síðan hann komst á toppinn. „Þegar ég byrjaði að spila dreymdi mig um að verða eins og Buffon. Hann er mitt viðmið,“ sagði spænska goðsögn- in Iker Casillas, markvörður Real Madrid til langs tíma og landsliðsmarkvörð- ur Spánar, í tilefni af 500. leiks Buffon með Juventus 2014. Buffon er að sjálfsögðu með ítalska landsliðinu á EM, enda enn á toppnum þótt orðinn sé 38 ára. Þessi frábæri markvörður bætti undir vor metið í A- deildinni á Ítalíu, þegar hann lék í 973 mínútur án þess að fá á sig mark. Metið átti Sebastiano Rossi hjá AC Milan. Hann lék í 929 mínútur veturinn 1993-1994 án þess að skorað væri hjá honum, en á þeim tíma var Milan-liðið besta lið heims og varð bæði Ítalíumeistari og Evrópumeistari. Metið á undan Rossi átti goðsögnin Dino Zoff, markmaður Juventus og síðar landsliðsþjálfari, sem stóð í marki Juventus í 903 mínútur án þess að fá á sig mark veturinn 1972-1973. „Buffon er besti markvörður sem ég hef leikið á móti. Þegar ég var hjá Juventus var nógu erfitt að komast framhjá [varnarmönn- unum Fabio] Cannavaro og [Lilian] Thuram á æfingum en ef það tókst átti ég eftir að kljást við Buffon. Það var nánast ógerningur að sigrast á honum,“ sagði Svíinn Zlatan Ibrahimovic. Kallar hann þó ekki allt ömmu sína! Buffon fæddist í Carrara við Miðjarðarhafsströnd Toscana-héraðs, 28. janúar 1978. Hann hóf fótboltafer- ilinn í unglingaliði Parma og lék þá yfirleitt sem mið- vallarleikmaður og reyndar í fleiri stöðum. Það var ekki fyrr en báðir markverðir unglingaliðsins meiddust að Buffon, sem hreifst mjög af kamerúnska markmann- inum Thomas N’Kono á HM á Ítalíu 1990, var fenginn til að hlaupa í skarðið vegna þess að hann var stór og sterkur. Fljótlega kom í ljós að hann smellpassaði í starfið. Hann fékk fyrst tækifæri með aðalliði Parma 1995, 17 ára, og sló eldri og reyndari markmenn út úr liðinu ári síðar. Hann lék í fjögur ár með Parma en var þá seldur til Juventus fyrir metfé; 52 milljónir evra sem er enn metupphæð fyrir markvörð í heimsfótboltanum. Það samsvarar um 7,2 milljörðum króna á núvirði. Einn sá besti allra tíma AFP Gianluigi Buffon, fyrirliði Juventus, fagnar ásamt liðsfélögum sínum og hampar sigurlaununum í kjölfar þess að þetta fornfræga stórlið varð enn einu sinni Ítalíumeistari á dögunum. AFP ’Miðvallarleikmað-urinn hljóp í skarðiðþegar báðir markmennunglingaliðsins meiddust. Strax kom í ljós að þar var hann á réttri hillu Ítalska sjónvarpskonan Ilaria D’Amico, unn- usta og barnsmóðir Buffons. AFP FJÖLSKYLDAN Gianluigi Buffon er kvæntur ítalskri sjónvarps- stjörnu, Ilaria D’Amico (sem er reyndar íþróttafréttamaður) og eiga þau son sem fæddist fyrr á þessu ári og heitir Leopoldo Mattia. Samband þeirra hófst 2014, ári eftir að markvörðurinn skildi við eig- inkonu sína, tékknesku fyrirsætuna og leikkonuna Alena Seredova. Buffon og Seredova giftust 2011 en höfðu verið kærustupar frá 2005 og eiga saman drengina tvo sem eru með þeim á myndinni. Á árum áður var Vincenza Cali unnusta Buffon en hún er þekktur spretthlaupari og landsliðskona. Á þrjá litla Buffona Buffon ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Alenu Seredovu, og sonum þeirra tveimur, Louis Thomas og David Lee, þegar Juventus varð Ítalíumeistari 2013. AFP VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.