Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 15
19.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 svona „Borða, biðja, elska“-vegferð. Frekar ferð til að næra sálina og líkamann. Kristín er mikil hjólakona og hefur hjólað víða um heim, en þetta var í fyrsta sinn sem hún fór ein í slíka ferð. „Mörg okkar eru umkringd klaninu sínu alla daga. Ég ferðast oftast í fiskitorfu, geng á fjöll með hópi fólks og hjóla með vinum. Það var nýr staður að fara á að hjóla ein, þótt ég sé vön að vinna ein og vera ein. Ég tilkynnti heima hjá mér í apríl að ég myndi líklega hverfa í fimmtán daga í maí,“ segir Kristín og hlær. Hún segist hafa farið eftir sínum eigin reglum. „Og það mátti allt í mínu ferðalagi, þetta var þannig ferðalag, ekki „Survivor“ eða Wow-maraþon. Ég byrjaði í brjáluðu veðri og þá tók ég strætó og það mátti. Og fyrir norðan lenti ég í leiðinda helgarumferð og fékk far yfir í Skagafjörð. Ég kynntist merkilegum mann- eskjum, Íslendingum og útlendingum og kem ríkari til baka, eins og maður gerir eftir öll ferðalög. Allt sem maður gerir er efniviður í næstu bók,“ segir Kristín en hún hélt úti skemmtilegri dagbók á Facebook þar sem vin- ir og vandamenn fengu innsýn í ferðalagið. „Næst þegar ég fer hringinn ein þá fer ég kannski á puttanum,“ segir hún og hlær. Rithöfundar á sakamannabekk Formaður Rithöfundasambands Íslands hefur í mörgu að snúast og stundum er hvasst í brúnni. „Það sem kemur mér mest á óvart við þetta embætti er að upplifa það svo sterkt hvernig rithöfundum er stillt upp á ein- hverskonar sakamannabekk árlega þegar kemur að úthlutun listamannalauna. Ein- hverjir fjölmiðlar næra spjallvefina á umræðu sem byggir mjög oft á vanþekkingu. Stjórn listamannalauna deilir árlega 550 milljónum króna úr sex sjóðum til listgreina. Svipuð upp- hæð rennur árlega í ríkissjóð sem virð- isaukaskattur af bókum, svo í raun má segja að bókaskatturinn standi undir öllum sjóðum listamannalaunanna,“ segir Kristín. „Við verðum að setja hlutina í samhengi. Heildarupphæðin nær heldur ekki því sem það kostar að moka sandi upp úr Landeyjahöfn á hverju ári. Svo erum við sem betur fer með allskyns samfélagsstyrki sem við sem þjóð veitum árlega til mikilvægra rannsókna án þess að allt fari á hliðina. Við viljum, þrátt fyrir allt, vera menningarlegt og vísindalegt nútímasamfélag. Ef öll dæmi eru skoðuð þá lifa sárafáir rithöfundar á greiðslum af verkum sínum einum saman, þá höfunda má telja á fingrum annarrar handar og þeir sækja ekki um í launasjóð rithöfunda. En með þessu hefur bókaþjóð á Sögueyju tekist að byggja upp stétt atvinnuhöfunda sem bera hróður þess- arar þjóðar víða og halda uppi merkjum bók- menntaþjóðarinnar. Ég hef skrifað inn í grunnskólakerfið í áratugi og séð ungviðinu og fjölskyldunum fyrir lesefni og fáir eru sælli af sínu starfi en ég. Ritlaunin úr starfslaunasjóði hafa gert mér þetta kleyft og ég er endalaust þakklát fyrir það og vona að verkin mín nýtist á móti. En mér fannst alveg skelfilegt að upp- lifa það að vera dregin í gegnum umræðuna í janúar með þessum hætti og inn í einhvern öskurkór sem er eins og óveður sem kemur úr öllum áttum.“ Viljum við vera bókaþjóð? Kristín telur að við ættum að tala saman á upplýstan og málefnalegan hátt um það hvern- ig samfélag við viljum vera. „Kannski viljum við ekkert vera bókaþjóð. En mér finnst að stjórnmálamenn eigi að verja þetta kerfi, finna nýjar leiðir, þróa það og þroska. Þetta kerfi verður til hjá kjörnum fulltrúum. Þeir skapa þetta kerfi sem við höfum öll ákveðið að vinna í. Og svo þurfum við að lyfta umræðunni upp á annað plan eins og Nóbelsskáldið sagði. Og það er ótrúlega magnað og dínamískt starf sem fer fram í þessum bókmenntageira, þetta er grein sem veltir einhverjum fimm millj- örðum á ári. Margir höfundar okkar eru vel kynntir erlendis og bera hróður Íslands út um allan heim, höfundar eins og Yrsa og Arnaldur og fleiri. Bókmenntirnar eru mikil landkynn- ing eins og náttúran og víðernið. Í janúar eftir jólabókaflóðið hefði maður haldið að höfundum væri þakkað fallegu verkin og jólalesturinn í stað þess að fiðra þá og tjarga, en þetta eru nú bara staðreyndir málsins án þess að ég sé að væla,“ segir Kristín og hlær við. Kvikmyndahandrit í pípunum Ég forvitnast um hvað Kristín sé með nýtt í smíðum. „Við Ottó Geir Borg höfum lengi unn- ið við handrit að fjölskyldumynd á vegum Hekla Films. Það er kominn góður heild- arsvipur á hana, án þess að ég segi meira. Bíó verður til á jarðsögulegum hraða og kannski verður þessi mynd gerð þegar við Ottó verðum komin undir græna torfu. Handritið er bara að ferðast einhvers staðar í þessum löngu bíóp- ípum. Svo erum við að fara í annað verkefni saman en það er leynilegt,“ segir hún kímin. „Núna safna ég efni í næstu bók og þá er ég líka að vinna í sögu sem tengist Fíusól eitthvað án þess að maður vilji segja of mikið. Við Lotta förum stundum norður á Dalvík og ég sit og skrifa og hún mænir á mig á meðan,“ segir Kristín og brosir. Lotta lítur letilega upp þeg- ar hún heyrir nafnið sitt. Við látum þetta gott heita. Kaffið er löngu kólnað þegar við kveðj- umst við lúpínubreiðuna við enda götunnar. Kristín Helga Gunnarsdóttir hef- ur sterkar skoðanir á þjóðfélags- málum, náttúruvernd og jafnrétti. Morgunblaðið/Ásdís ’ Ég hélt samt að við værumbúin að frelsa þessar geir-vörtur fyrir löngu, þegar hippa-stelpurnar köstuðu höldunum og við lágum berbrjósta í sólbaði. En þetta sýnir okkur að það þarf alltaf að hreinsa til. Kristín hélt úti dagbók á ferð sinni um- hverfis landið og birti á facebook-síðu sinni. Hér má lesa smá bút úr kafla: En á vegi mínum urðu ástfangnir Frakkar á leið til vinnu á sveitabæ í Rang- árvallasýslu, Galisíumaður sem elskar Ís- land en langar samt til Suður-Ameríku, viðkunnanlegur bifvélavirki og ferðaþjón- ustubóndi sem sækir villta ferðamenn á fjöll, Lundúnabúi sem átti sér draum um að sofa í tjaldi við Jökulsárlón og lét hann rætast. Já, og lyfjaeftirlitsmaður frá Köln, svefndrukknir vegavinnujaxlar, gulur köttur á glugga og bílsjúkur smalahundur í bandi. Hann var með of þrönga hálsól. Það er alltof algengt vandamál hjá hund- um. Ég missti af því að hitta mögulegan framtíðartengdason í Skaftafelli. Það er líka löng saga og persónuleg. Svaf í lamb- húsum undir jökli og fauk inn í himin- blámann í Suðursveit með langdrægum suðvestanvindinum í dag. Áminning: Muna að segja vegamálastjóra að laga þjóðveg eitt, gera ráð fyrir milljón túr- istum á rútum, svefnkerrum, smábílum og reiðhjólum og skoða sérstaklega ein- breiðar brýr. Á meðan er rússnesk rúll- etta. En spóinn vellir graut og skúmurinn eltir hjólandi mannfólk. Ramakvein úr fjárhúsum og nýfædd lömb í heimatún- um. Rölti svo um sýninguna hans Þór- bergs á Hala og kom meyr og viðkvæm út, í tilfinningarússi yfir bókum sem skipta máli. Yfir Sálminum og Bréfinu og sögunum úr Suðursveit. Yfir steinum sem tala og spádómum meistarans um hótel á Hala. DAGBÓK KRISTÍNAR Á HRINGFERÐ Fauk inn í himinblámann Kristín hjólaði hringinn til að styrkja líkama og sál. Hún hitti ýmsa ferðalanga í ferðinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.