Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Síða 26
MATUR Taktu heilan hvítlauk og skerðu toppinn af. Helltu yfir sárið ólífuolíu, saltiog pipar. Pakkaðu honum inn í álpappír og grillaðu í 30-40 mínútur á
toppgrindinni á grillinu. Kreistu hann úr og notaðu sem meðlæti.
Heill grillaður hvítlaukur
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2016
Fyrir 4
1 chili pipar, tekinn í tvennt,
fræin hreinsuð og skorinn
smátt
kjúklingaafgangar, skornir
smátt
olífuolía
1 krukka súrsæt sósa
steinselja, smátt skorin
hrísgrjón
Hellið ólífuolíu á pönnu og
setjið chili út á. Þar næst eru
afgangarnir settir á pönnuna
og þessu velt vel saman.
Hellið úr einni krukku af súr-
sætri sósu út á pönnuna og
látið suðuna koma upp í 2-3
mínútur þannig að bragðið
af kjúklingaafganginum
blandist sósunni. Skreytið
með steinselju. Berið fram
með hrísgrjónum.
Súrsætt kjúklinga-„tvist“
Fyrir 2
afgangar af kjúklingi með fennel og
gulrótum
5 egg
salt og pipar
steinselja
ólífuolía til steikingar
Skerið afganga af kjúklingi, fenneli
og gulrótum í litla bita og hitið í ör-
bylgjunni. Létthrærið (ekki píska)
eggin og saltið og piprið. Takið
stærstu pönnu heimilisins og hitið
á henni ólífuolíu. Þegar hún er orð-
in meðalheit er eggjunum hellt út
á og látin steikjast. Þegar eggja-
kakan er steikt, hellið þá kjúklinga-
afgangunum yfir helminginn af
omelettunni og síðan er omelett-
unni lokað. Færið síðan varlega á
disk og skerið í tvo helminga og
berið fram með steinselju og
gúrku mojito sósunni.
Omelettuveisla
Óskar varí hollarikant-
inum í vikunni og
notaði fitusnautt
hráefni eins og
kjúklingabringur,
gulrætur og fen-
nel. Úr þessu
varð til girnileg-
ur og hollur
kvöldmatur sem
tók örskamman
tíma að undirbúa.
Gott er að elda
ríflega því alltaf
er hægt að nýta
afganga og eiga í
aðra máltíð dag-
inn eftir. Það sparar bæði tíma og peninga
á sama tíma og fjölskyldan verður alsæl
með matinn.
Ljúffeng hollusta
ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ BÚA TIL ÚR AFGÖNGUNUM
Fyrir 4
4 kjúklingabringur,
skornar í þykka bita
3 msk dijon sinnep
8 gulrætur
1 fennel, skorið gróft
smá matarolía
smá hunang
smá timían
Blandið saman í skál,
kjúklingi, sinnepi, olíu,
hunangi og timían.
Hitið olíu á pönnu og
steikið kjúklingabit-
ana.
Setjið gulrótarbit-
ana út á pönnuna og
látið malla í smá
stund. Takið allt af
pönnu og setjið í eld-
fast mót ásamt fennel-
bitunum og setjið inn í
ofn á 180°C í 10-15
mínútur.
GÚRKU-MOJÍTÓ
SÓSA
1 dolla sýrður rjómi
l/2 gúrka, fræin hreinsuð
burt og skorin í litla bita
nokkur blöð af myntu,
smátt skorin
smá hunang
pipar
Hrærið öllu saman í
skál.
Óskar Finnsson sýnir
okkar taktana í nýjasta
þætti af Korteri í kvöld-
mat í vikunni. Þar eldaði
hann hollan kjúklinga-
rétt á örfáum mínútum.
Hér lærum við að nýta
afgangana í ommelettu
og súrsætan rétt.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Óskar er snöggur að galdra
fram kvöldmatinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Kjúklingur með
fennel og gulrótum
Þú færð öll hráefnin
úr þáttunum hjá okkur