Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Qupperneq 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Qupperneq 35
laus framhjá slíkum tilburðum. Sígarettur eru heldur ekki vel- komnar í görðunum og er því kjör- ið að gera sér leið niður í Brook- lyn þar sem sígaretturnar eru um helmingi ódýrari en á Manhattan. Pakkinn af Salem Slim Lights er þar til dæmis að fara á um sjö hundruð krónur og því um að gera að safna þar í sarpinn fyrir kom- andi átök. Ferðastu frítt með Úber Eins og með flestar stórar borgir þá getur verið langt að ferðast á milli hinna ýmsu hverfa New York-borgar, sérstaklega eftir að Brooklyn varð jafn vinsæl og raun ber vitni. Neðanjarðarlestarkerfið í borginni er þó einkar vel skipu- lagt og auðvelt í notkun. Það er um helmingi ódýrara en strætó- kerfið hér heima og þó það sé vissulega leiðinlegt að stoppa aldr- ei í Mjóddinni, miðpunkti Norð- vestur-Evrópu, þá er það án efa meðal betri almenningssam- göngukerfa í heiminum. Það er mjög auðvelt að lauma sér inn um hliðin á lestarstöðvunum en sé fá- tæki ferðalangurinn gripinn glóð- volgur við athæfið þarf hann að greiða rúmar tólf þúsund krónur og því eflaust best að greiða sam- viskusamlega fyrir farið. Úberinn er einnig vinsæll í borginni og er hann smátt og smátt að taka yfir viðskipti þeirra sem tíma ekki að greiða háar fjár- hæðir fyrir bíltúrinn. Fæstir Ís- lendingar eru með Úber-appið í snjallsímunum sínum enda hefur einokun á leigubílamarkaði hér á landi komið í veg fyrir að slík starfsemi nái nokkru flugi. Það skal þó ekki gráta þegar komið er til New York enda er Úber- þjónustan með byrjendadíl á sín- um snærum. Það vill nefnilega svo til að þegar Úber-þjónustan er sótt í fyrsta skiptið, appinu halað niður og bankareikningur festur við það, þá er fyrsta ferðin frí- keypis. Það má því með ýmsum útúrsnúningum ferðast frítt um borgina um nokkuð skeið. Harlem-hverfið, sem eitt sinn var alræmt, er í dag mjög huggulegt. Næturlíf borgarinnar er að sjálfsögðu mjög fjölskrúð- ugt og hægt er að finna allt sem hugurinn girn- ist. Ýmislegt er þó hagkvæmara en ann- að og eru jakkafata- partý á húsþakaklúbbum í miðbænum til að mynda hvorki ódýr né kúl. Þá hefur mikið verið snobbað fyrir Brooklyn síðustu ár þar sem þar er mikið listabatterí í gangi. Miðstétt- arvæðingin hefur þar riðið öllu og ýmis gall- erý, vöruskemmur og tóm rými nýtt undir partýstand. Þá búa hverfin Lower East Side og East Village einnig yfir mikið af skemmtilegum og ódýrum skemmti- stöðum, galleríum og stúdíóum. Max Fish Skemmtistaðinn Max Fish má finna á Orchard Street í Lo- wer East Side en þar má fá Modelo í dós á minna en þrjú- hundruð krónur. Staðurinn er á tveimur hæðum og flest- ir sem sækja hann hafa ýmist gaman af hip-hop-tónlist eða hjólabrettum. Af og til slæð- ast þar inn þekktir rapparar en þá er um að gera að koma sér út enda troðfyllist staðurinn þá yfirleitt á nokkrum sekúndum. Elvis Guesthouse Neðarlega í East Village, nánar til- tekið á 85 Avenue A, má finna staðinn Elvis Guest- house. Líkt og með Max Fish má finna einstaklega ódýran bjór á barnum þar á bæ. Staðurinn er í raun í kjallara sem að ut- an lítur ekki út fyrir að vera merkilegur. Stað- urinn er ekki stór en þar má iðulega finna góða tónlist og gott and- rúmsloft. Þar detta oft skemmtilegir plötu- snúðar inn og þeytti Ariel nokkur Pink þar einmitt skífum fyrir skemmstu. Beverly‘s Beverly‘s er mjög lítill bar staðsettur á 21 Es- sex Street í Lower East Side. Þangað sækir oft svipað lið og má finna á Max Fish en and- rúmsloftið er þó oft rólegra. Um helgar eru þar plötusnúðar sem spila yfirleitt ýmsar út- færslur af rappi. Bjórinn er ekki eins ódýr og á hinum stöðunum en þar má fá drykkinn Club-Mate sem mörgum þykir kúl að drekka. Good Room Klúbbinn Good Room má finna við 98 Mese- role Avenue í Brooklyn en þar duna yfirleitt þungir elektrótónar í bland við blikkandi ljós og reyk úr reykvélum. Finna má þar tvö dansgólf, eitt stærra og annað minna, og spila þar iðulega efnilegustu plötusnúðar New York. Þar þarf þó yfirleitt að borga smáfé við innganginn en slíkt er svolítið gangurinn þegar kemur að þessum helstu elektróklúbbum. Baby‘s All Right Í Williamsburg í Brooklyn má finna lítinn tónleikastað að nafni Baby‘s All Right. Hann lætur ekki mikið yfir sér en þar má oft finna ansi áhugaverða tónleika. Þar er mikið af efnilegum pönkurum að flytja efni sitt sem og rapparar að stíga sín fyrstu skref á sviði. Output Output er risastór klúbbur á þremur hæðum í Brooklyn. Þar má finna svalir þar sem til- valið er að reykja Salem Slim Lights og horfa á skýjakljúfa Manhattan-eyju. Þar spila oft vinsælar hljómsveitir og plötusnúðar og má þar nefna Moderat, Four Tet, Ellen Allien og Bonobo. Eins og með Good Room kostar þó yfirleitt inn á klúbbinn og fátæki ferðalang- urinn verður því að spara svolítið ferðir sínar þangað. Rolling Rock er án efa besti bjór Nýju- Jórvíkur þó hann sé erf- itt að fá á krana á bör- um borg- arinnar. Output hefur meðal annars hýst Four Tet. The BasedGod er vinsæll á Max og Beverly’s. Ariel Pink er mjög fær plötusnúður EAST VILLAGE, LOWER EAST SIDE OG BROOKLYN Ódýr bjór og góð tónlist 19.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 www.fr.isSylvía G. Walthersdóttir Löggiltur fasteignasali Salvör Davíðsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala María K. Jónsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala FRÍTT VERÐMAT ENGAR SKULDBINDINGAR HRINGDU NÚNA 820 8081 sylvia@fr.is Sjöfn Ólafsdóttir Skrifstofa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.