Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2016, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2016 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Hvaða staða hentar þér best? Movie Star Verð frá 433.000,- Loksins fáum við svör við því hvað gerðist eftir hinn magnaða bardaga um framtíð mannkynsins, frelsi okkar og auðlindir í myndinni Independence Day. Koma geim- verurnar aftur? Hvað varð um alla tæknina sem lá eins og hræviði um alla jörðina? Sameinuðust þjóðir jarðar gegn sameiginlegri ógn til frambúðar eða var um tíma- bundið bandalag að ræða. Þessum spurningum verður vonandi svarað í nýrri Independence Day mynd sem frumsýnd verður hér á landi 21. júní með tvöfaldri sýn- ingu. Fyrsta myndin verður sýnd kl 19 í Smárabíói og nýja myndin strax á eftir í 3D. Independence Day hefur lengi verið talin vera hálf- gerður hornsteinn epískra og yfirdrifinna ’90s blockbus- ter-mynda og er á lista yfir bestu myndir hjá mörgum sem voru á unglingsárunum þegar myndin kom út. Geimverurnar mættar aftur Áhugavert verður að sjá hvort framhald af Independ- ence Day eigi eftir að höfða jafn vel til nýrrar kynslóðar. Tvöföld sýning á Independence Day og nýrri framhaldsmynd í Smárabíói Leikarar á borð við Brent Spiner, Will Smith og Bill Pull- man skiluðu ógleymanlegri frammistöðu í upphaflegu In- dependence Day myndinni. Morgunblaðið sagði frá ein- stökum árangri íslenska lands- liðsins í knattspyrnu haustið 1998 en þá gerði Ísland jafntefli við Frakka, sem sama ár höfðu tryggt sér heimsmeistaratitilinn í fótbolta. Guðjón Þórðarson, þjálfari ís- lenska landsliðsins á þeim tíma, hafði þetta að segja um leik sinna manna. „Síðustu tíu mínúturnar, þeg- ar sókn Frakka var mjög þung, einbeittu leikmenn sér mjög að því sem fyrir var lagt. Vörnin var skotheld. Frakkarnir væla og skæla yfir því að hafa ekki unnið leikinn, en það leikur enginn bet- ur en andstæðingurinn leyfir og þeir fengu engin opin færi í síðari hálfleik. Ég bið menn bara að rifja upp hversu mörg opin færi Frakkarnir fengu í leiknum. Það eitt segir svolítið um það sem við vorum að gera.“ Tólfti „maðurinn“ fékk svo hrós frá þjálfaranum. „Já, nú skapaðist mjög mikil stemmning. Umgjörðin var frá- bær og KSÍ á heiður skilinn, og þeir sem að því stóðu, fyrir að hafa ráðist í það verkefni að fá aukasæti – fjölga þannig áhorf- endum og skapa stemmningu fyrir aftan bæði mörk. Ég er al- veg sannfærður um að hvatning áhorfenda undir lok leiksins var sem tólfti maðurinn á vellinum.“ GAMLA FRÉTTIN Vörnin var skotheld Ísland gerði jafntefli við Frakka árið 1998 þegar Frakkar voru nýbúnir að tryggja sér heimsmeistaratitilinn en Ríkharður Daðason átti þá góðan leik. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Brad Pitt, kvikmyndastjarna. Birkir Bjarnason, landsliðsmaður íslenska karlaliðsins í fótbolta. Chris Hemsworth í hlutverki sínu sem þrumuguðinn Þór.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.