Morgunblaðið - 19.07.2016, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 2016
Hornsteinn ævilangrar vináttu
hófst í skíðabrekkum Skálafells.
Hópur unglinga á aldrinum 12-15
ára hóf þá sína vegferð sem fólst í
því að ganga frá Þingvallavegi 5
km í KR-skálann. Leiðin var all-
strembin, að mestu upp í móti og
síðasta brekkan erfiðust. Þegar
upp í skálann var komið gerðist
kraftaverkið, öll þreyta hvarf fyr-
Brynjúlfur
Thorvaldsson
✝ BrynjúlfurThorvaldsson
fæddist 3. júní
1925. Hann lést á
Landspítalanum 9.
júlí 2016.
Foreldrar hans
voru Marín Magn-
úsdóttir, og Thor-
vald Gregersen.
Eftirlifandi eig-
inkona Brynjúlfs er
Rúna Bína Sig-
tryggsdóttir. Börn: Guðrún
Brynjúlfsdóttir, Sigríður Brynj-
úlfsdóttir, Þóra Brynjúlfsdóttir,
Þórir Brynjúlfsson og Steinar
Petersen.
Útför Brynjúlfs fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 19. júlí
2016, kl. 15
irhafnalaust um leið
og komið var á skíð-
in, Brynjúlfur var
einn úr þessum hópi.
Er skólagöngu
lauk með útskrift úr
Samvinnuskólanum
hélt Brynjúlfur til
Bretlands þar sem
hann hóf flugnám.
Þegar náminu lauk
hafði ýmislegt gerst,
m.a. reyndist hans
enska mál taka fram öllu er heyrst
hafði áður, hann virtist tala betri
ensku en flestir Bretar. Eftir flug-
námið voru ekki mörg störf í boði
þar sem þetta var frumbernska
flugsins, en Brynjúlfur var hepp-
inn, Kanadamenn er voru að hasla
sér völl í fluginu réðu Brynjúlf sem
stöðvarstjóra á Keflavíkurflug-
velli. Þar fékk hann góða reynslu í
öllu sem tengdist því starfi. Þetta
var ómetanleg reynsla enda
kynntist hann mönnum frá öllum
heimshornum og hélt sambandi
við þá áratugum saman. Nokkrum
árum síðar hóf Brynjúlfur störf
sem flugmaður og flugstjóri hjá
Flugfélagi Íslands og starfaði þar
uns hans flugmannstíma lauk.
Brynjúlfur var alla tíð unnandi
íslenskrar náttúru, bæði skíða-
íþróttin og hestamennskan gerði
honum kleift að kynnast náttúru
landsins. Að ganga á jökla var ár-
legur viðburður eftir að skíða-
tímabilinu lauk. Þetta voru nokk-
uð erfiðar göngur en ánægjunnar
virði. Síðar fór hópurinn í árlegar
hestaferðir er tóku viku tíma
hver. Flestar ferðir voru farnar
með Páli Sigurðssyni oftast
kenndum við Fornahvamm. Þeg-
ar Páll flutti alla sína hesta og
fleira að Varmahlíð í Skagafirði
fór hópurinn með honum ríðandi
vítt og breitt um Skagafjörðinn.
Árið 1954 er ákveðið að fara frá
Varmahlíð og ríða Kjalveg til
Þingvalla en þar var landsmót
hestamanna haldið. Við vorum
alls tíu ferðalangar auk Páls og
unglings sem passaði hestana að
nóttu til en alls voru þeir 67 tals-
ins. Í ferðina frá Þingvöllum
norður í Varmahlíð tók hópur,
með Hjalta Pálsson í broddi fylk-
ingar, við hestunum og riðu með
Páli Kjalveg í Varmahlíð. Í mín-
um huga er þetta sennilega fyrsta
skipulagða hestaferðin þar sem
þátttakendur voru venjulegt fólk
búandi á mölinni.
Sem áhugamaður um skíða-
íþróttina kynntist Brynjúlfur
klúbbi flugmanna er náði yfir alla
heimsbyggðina en þeirra starf-
semi fólst í því að safnast saman
eina viku á vetri. Þessar ferðir
heilluðu Brynjúlf sem ágætan
skíðamann en þessu var stýrt
þannig að bestu skíðalöndin voru
valin bæði í Evrópu og Bandaríkj-
unum, þannig kynntust þátttak-
endur flestum bestu skíðasvæð-
um er völ var á. Brynjúlfur tók
þátt í þessu ásamt nokkrum fé-
lögum sínum og gat þannig fram-
lengt áhuga sinn á skíðaíþróttinni.
Síðari hluti ævinnar var tími
hestamennskunnar.
Síðustu ár hafa verið Brynjúlfi
og Rúnu Bínu erfið veikindaár.
Að leiðarlokum viljum við Lára
senda Rúnu Bínu og börnum
Brynjúlfs okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Þórir Jónsson.
Í dag kveðjum við hinstu
kveðju Brynjúlf Thorvaldsson
flugstjóra. Með honum er geng-
inn einn af frumherjum íslenskrar
flugsögu, sem með áræði og
dugnaði skópu það ævintýri sem
þjóðin nýtur nú í ríkum mæli.
Frumherjarnir sem færðu okkur
úr einangrun og veittu okkur
frelsi til framfara og hagsæld fyr-
ir land og þjóð. Binni hóf störf hjá
Flugfélagi Íslands hf. þann 1. júní
1955 og lét hann af störfum vegna
aldurs í júní 1988. Við Binni störf-
uðum saman hjá Flugfélagi Ís-
lands og seinna Flugleiðum í ára-
tugi og áttum við alla tíð afar gott
samstarf. Hann var afar farsæll í
starfi og skilaði sínu hlutverki
með sóma. Binni var fastur fyrir,
hreinn og beinn í framgöngu og
tók ætíð málstað þeirra sem
minna máttu sín.
Þegar breski herinn steig á
land þann 10. maí 1940 þá breytt-
ist margt í okkar samfélagi, at-
vinnuleysi hafði verið mikið enda
krepputímar og herinn þurfti á
mannskap að halda. Binni var að-
eins 15 ára gamall þegar hann var
ráðinn til starfa hjá breska hern-
um. Fljótlega kom í ljós að pilt-
urinn var vel mæltur á enska
tungu og var hann umsvifalaust
ráðinn sem túlkur. Binni sagði
mér oft skemmtilegar sögur af því
hvernig tókst að leysa ýmis mál
sem upp komu. Þetta er eitt lítið
dæmi um það traust sem honum
var sýnt af breska hernum aðeins
15 ára gömlum og var hann alla tíð
traustsins verður.
Ég þakka Binna áratuga vin-
áttu og velvild og öll símtölin sem
við áttum. Við Aðalheiður vottum
ástvinum hans okkar dýpstu sam-
úð.
Veri hann að eilífu Guði falinn,
Aðalsteinn Dalmann
Októsson.
Ég kynntist Binna hjá Flug-
félagi Íslands fyrir rúmum 40 ár-
um og þó að nokkur aldursmunur
væri á okkur hefur vinátta okkar
haldist óslitið æ síðan. Hann
kenndi mér ýmislegt um DC-3,
enda Íslandsmethafi í flugtímum
á þá vél. Það met verður ekki
slegið.
Binni var traustur maður og
þægilegur í návist. Hann var
hispurslaus og sagði hreint út það
sem honum bjó í brjósti. Hann var
höfðingjadjarfur og hikaði ekki
við að láta skoðun sína í ljós og
kom eins fram við háa sem lága.
Utan vinnunnar voru hestar og
fjallamennska hans líf og yndi.
Oft fór hann einn saman í hesta-
ferðir á vit íslensku óbyggðanna.
„Þá leið mér vel,“ sagði hann við
mig.
Binna var margt til lista lagt.
Hann var ágætur teiknari og mál-
aði á sínum yngri árum. Hann reri
til fiskjar með félögum sínum og
stundaði hestamennsku og smíð-
ar í frístundum. Aldrei hlekktist
honum á í fluginu, þó við válynd
vetrarveður væri að glíma. Hann
kenndi flug og siglingafræði um
tíma. Hann var afar fær flugmað-
ur, en jafnframt varkár. Eitt sinn
sagði hann við mig um flug í tví-
sýnu veðri: „Það þarf stundum
meiri kjark til að snúa við, en að
halda áfram.“ Þetta eru orð að
sönnu og lýsa Binna vel, raunar
spakmæli og ættu að vera ein-
kunnarorð allra flugmanna. Ég
kveð Binna vin minn með þakk-
læti og virðingu í huga.
Blessuð sé minning hans.
Óli Hilmar Briem Jónsson.
Elsku Kolbrún systir mín er
farin frá okkur, langt fyrir aldur
fram. Elsku Kolla mín, ég mun
sakna þín mikið, þú varst yndis-
legust. Þín síðustu ár voru þér
mjög erfið og hugsaði ég til þín á
hverjum degi. Það eru svo margar
minningar sem ég á með þér og
Gulla og dætrunum ykkar, ég var
mikið hjá ykkur í gamla daga,
bæði að passa og fékk bara að
vera hjá ykkur sem ég er óend-
anlega þakklát fyrir því þetta voru
yndislegir tímar sem ég varðveiti í
mínu hjarta. Ég leit mikið upp til
þín þar sem þú varst stórglæsileg
og ég tala ekki um heimilið ykkar,
sem var alltaf svo fallegt og hlý-
legt og ég man eftir því að það var
alltaf soðin ýsa á mánudögum. Oft
fóruð þið á skíði og ég man sér-
staklega eftir einu skipti, þá fór ég
með þér og Evu og við festum bíl-
inn en allt gekk vel að lokum og
við hlógum mikið þegar við rifj-
uðum þá ferð upp. Svo man ég líka
eftir því þegar það átti að skíra
Helenu, þú og vinkona þín voruð
inni í eldhúsi að baka og skreyta
kökur og ég spurði þig hvað hún
ætti að heita og þú sagðir að það
væri leyndarmál. En ég sagði: „ég
veit hvað hún á að heita, hún á að
heita Helena“ og þú varst svo
hissa og orðlaus, þú bara brostir
og knúsaðir mig. Eins ég sagði þá
eru óendanlega margar minning-
ar sem ég get talið hér upp en ég
geymi þær í mínu hjarta.
Elsku Kolla mín, nú ertu komin
til mömmu og pabba, sem er góð
tilhugsun fyrir mig, og kveð ég þig
með mikinn söknuð í mínu hjarta.
Guð veri alltaf hjá þér, elsku Kolla
mín, og guð gefi ykkur styrk í sorg
ykkar, elsku Eva, Helena, Binni,
Thelma, Gabríel og ömmustelp-
urnar Marín Eva og Guðrún
Klara.
Þín systir,
Guðrún.
Kolbrún
Gísladóttir
✝ Kolbrún Gísla-dóttir fæddist á
Akranesi 27. sept-
ember 1951. Hún
lést þann 26. maí
2016.
Foreldrar henn-
ar voru Gísli G.
Guðjónsson, f. í
Villingadal á
Ingjaldssandi 26.9.
1924, d. 16.4. 2004,
og Lilja Benedikts-
dóttir, f. á Akranesi 29.6. 1922,
d. 24.5. 2015. Systkini hennar
voru sjö, þar af einn bróðir sem
er látinn, Benedikt Rúnar. Eftir-
lifandi eru: Ída Bergmann, Rak-
el Þórey, Eygló, Kristrún, Ró-
bert og Guðrún
Bergmann.
Kolbrún átti tvær
dætur, tengdason
og fjögur barna-
börn. Dætur Kol-
brúnar eru: 1) Eva
Bergmann Guð-
laugsdóttir, f. 20.8.
1972, dóttir hennar
er Thelma María. 2)
Helena Guðlaugs-
dóttir, f. 17.11.
1978, maki hennar er Brynjúlfur
Guðmundsson. Börn: Gabríel
Bergmann, Marín Eva og Guð-
rún Klara.
Útför Kolbrúnar hefur farið
fram í kyrrþey.
HINSTA KVEÐJA
Nú er komin kveðju-
stundin hjá þér, Kolla mín.
Ég mun alltaf sakna þín,
elsku systir. Við vorum
góðar vinkonur. Ég gleymi
ekki þegar við fórum til
Costa del Sol, það var svo
gaman hjá okkur.
Þakka þér ávallt hlýju og
stuðning í gegnum árin,
einkum þegar ég þurfti á
aðstoð að halda.
Þú varst alltaf svo fín, al-
veg sama í hverju þú varst.
Þín systir,
Eygló.
Elsku amma Hanna.
Við sitjum hér fjöl-
skyldan í Kaupmannahöfn og
hugsum til þín. Fallegu, sterku og
lífsglöðu ömmunnar okkar sem
sat sko heldur betur ekki auðum
höndum sína ævidaga heldur
kunni svo vel og innilega að lifa
lífinu lifandi. Þú ert okkur öllum
hvatning í því að láta drauma okk-
ar og langanir rætast.
Okkur finnst sárt að hafa ekki
getað kvatt þig eða verið með þér
þína síðustu daga, en á móti kem-
ur að við erum ótrúlega þakklát
fyrir þær fjölmörgu stundir sem
við áttum saman áður en við flutt-
um hingað út til Kaupmannahafn-
ar. Mikið var alltaf yndislegt að
kíkja til ykkar Magnúsar í heim-
sókn og spjalla um allt og allt.
Það eru sönn forréttindi að fá
að lifa lífinu eins og þú gerðir,
amma mín, og um leið skilja eftir
sig fjöldann allan af börnum,
barnabörnum og barnabarna-
börnum. Öll eigum við yndislegar
minningar um þig sem lifa í hjört-
um okkar um ókomna tíð. Við
munum kíkja til þín og afa í
kirkjugarðinn þegar við komum
til Íslands í næsta mánuði þar
sem við fáum okkar stund saman.
Elskum og söknum þín, elsku
amma, en vitum að afi, Hanna og
Bragi hafa tekið vel á móti þér í
Sumarlandinu, þangað sem þig
langaði orðið svo mikið að fara
síðustu mánuðina, enda södd líf-
daga eftir langa og viðburðaríka
æfi.
Hvíl í friði, elskulegust.
Þín
Linda, Arnaldur Birgir
og börn.
Símtalið kom föstudagskvöldið
24. júní, þú hafðir kvatt okkur.
Erfitt, ég get ekki hugsað mér líf-
ið án þín en samt reyni ég að
minna mig á að við höfum verið
svo lánsöm að hafa haft þig hjá
okkur svo lengi, þú hefðir orðið 98
Jóhanna Magnea
Jónsdóttir
✝ Jóhanna MagneaJónsdóttir
(Hanna) fæddist 5.
nóvember 1918. Hún
lést 24. júní 2016.
Útför hennar fór
fram í kyrrþey frá
Lágafellskirkju 8. júlí
2016.
ára í haust. Amma
mín, þú varst og
verður alltaf mín
besta fyrirmynd,
sterk, dugleg,
góð, réttlát og
skemmtileg. Mig
langar að þakka
þér fyrir allar
stundirnar sem
við áttum saman,
þolinmæðina, um-
hyggjuna, allar
vísurnar og bænirnar sem þú
kenndir mér þegar ég var lítil
stelpa, skilninginn og hvatn-
inguna þegar ég var unglingur og
allt annað var spennandi og þegar
ég varð eldri, allar yndislegu sam-
verustundirnar og heimsóknirnar
til okkar í Svíþjóð með mömmu,
samtölin um lífið og tilveruna,
fíflaganginn og hlátursköstin.
Hvernig er hægt að þakka,
það sem verður aldrei nægjanlega
þakkað.
Hvers vegna að kveðja,
þann sem aldrei fer.
Við grátum af sorg og söknuði
en í rauninni ertu alltaf hér.
Höndin sem leiddi mig í æsku
mun gæta mín áfram minn veg.
Ég veit þó að víddin sé önnur
er nærveran nálægt mér.
Og sólin hún lýsir lífið
eins og sólin sem lýsti frá þér.
Þegar að stjörnurnar blika á himnum
finn ég bænirnar, sem þú baðst fyrir
mér.
Þegar morgunbirtan kyssir daginn,
finn ég kossana líka frá þér.
Þegar æskan spyr mig ráða,
man ég orðin sem þú sagðir mér.
Vegna alls þessa þerra ég tárin
því í hjarta mínu finn ég það,
að Guð hann þig amma mín geymir
á alheimsins besta stað.
Ótti minn er því enginn
er ég geng áfram lífsins leið.
Því með nestið sem amma mín gaf
mér,
veit ég að gatan hún verður greið.
Og þegar sú stundin hún líður
að verki mínu er lokið hér.
Þá veit ég að amma mín bíður
og með Guði tekur við mér.
(Sigga Dúa)
Elsku amma mín, sofðu rótt,
minning þín lifir í hjörtum okkar.
Þín
Hanna Fríða og Anders.
Elsku skólasystir
okkur og vinkona.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar.
Þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik
María Dröfn
Jónsdóttir
✝ María DröfnJónsdóttir
fæddist 21. ágúst
1965. Hún lést 3.
júlí 2016.
Útför hennar fór
fram 11. júlí 2016.
gef mér trú,
gef mér
skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætíð ljós frá þér
ljóma á sálu minni.
(Gísli á Uppsölum.)
Við sendum börn-
um Maríu Drafnar
og fjölskyldu inni-
legar samúðarkveðjur
Skólasystkini úr Lækjarskóla,
Hafnarfirði, árgangur 1965.
Anna Helga Gylfadóttir.
Það er með þakk-
læti í huga sem við
minnumst Sigga frá
Bjarnastöðum. Við
bræður vorum ungir þegar við
komum fyrst á Bjarnastaði með
Guðmundi bróður hans og var
okkur vel tekið frá fyrsta degi og
fjölskyldum okkar ætíð síðan. Við
urðum snemma heimagangar og
stundum kallaðir bræðurnir frá
Bjarnastöðum, þannig leið okkur
hjá þeim hjónum. Margt var í
heimili hjá Sigga og Láru þegar
við komum þangað fyrst og snérist
heimilislífið um búskap og hesta-
mennsku. Mörg hross voru á járn-
um á Bjarnastöðum og í minning-
unni var farið með rekstur á öll
hestamannamót í nágrenninu og
riðið út þess á milli.
Siggi ræktaði hross og var virt-
ur reiðmaður. Hann hjálpaði okk-
Sigurður Oddur
Gunnarsson
✝ Sigurður Odd-ur Gunnarsson
fæddist 1. ágúst
1931. Hann lést 6.
júlí 2016.
Útför Sigurðar
fór fram 15. júlí
2016.
ur mikið í hesta-
mennskunni og þar
var lagður grunnur-
inn að okkar þekk-
ingu. Hann sendi
okkur gjarnan unga
fola upp í Nes sem
hann treysti okkur
fyrir og lærðum við
mikið af því. Enn í
dag byggist hrossa-
eign okkar á hross-
um frá Bjarnastöð-
um.
Siggi var mikið ljúfmenni, vildi
allt fyrir alla gera og var óspar á að
lána hross ef þurfti. Hann hafði
einnig mikið dálæti á sauðfé og
naut þess að snúast í kringum það.
Það var hans líf og yndi að ferðast
á hrossum og fara á fjall. Fórum
við með honum og fjölskyldunni í
eftirminnilegar hestaferðir um
nærsveitir og vestur á land. Þá var
sungið og sagðar sögur frá fyrri
tíð. Margar góðar minningar
tengjast Sigga og fjölskyldunni á
Bjarnastöðum sem lifa með okkur.
Innilegar samúðarkveðjur,
elsku Lára og fjölskylda.
Hjálmur, Tryggvi
og fjölskyldur.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar