Ægir - 01.12.2015, Síða 15
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
Listinn yfir mest seldu réttina og tímann sem það tekur að útbúa þá. Allt eru þetta réttir sem hægt er útbúa á
32 mínútum eða skemmri tíma, með tveimur undantekningum. Spaghetti bolognaise sem áður var alltaf á
toppnum er nú komið niður í 6 sæti.
Mest selda fiskafurðin í Bretlandi í dag er þetta beinlausa frosna laxa-
flak sem 6% heimila í Bretlandi kaupa að jafnaði þrisvar á ári.
útbúa þessa rétti. Að meðaltali
tekur um 33 mínútur að mat-
reiða rétt úr kældum fiski. Haldi
þessi þróun áfram þannig að
þessi tími fari niður í 20 mínútur
getur það haft áhrif á eftirspurn
eftir fiski. Takist okkur ekki að
koma með lausnir sem stytta
matreiðslutíma fisksins, er hætt
við að hann detti út af inn-
kaupalistum fólks,“ segir Simon.
Helmingur markaðarins er
lax og rækja
Fiskmarkaðinn í Bretlandi veltir
að sögn Simons 4 milljörðum
evra en þar af eru 3,2 milljarðar
kældur og frosinn fiskur. Ice-
landic Seachill er með 4 verk-
smiðjur sem framleiða fiskrétti í
Grimsby og í þeim vinna 1200
manns. Hann segir að megin-
verkefni þeirra sé að fá fleiri til
að borða fisk og því eyðir Icel-
andic Seachill miklum fjármun-
um í auglýsingar, markaðsrann-
sóknir og þróunarstarf. Að
sögn Simons er kældur og fros-
inn fiskur um 2/3 af allri fisk-
neyslu í Bretlandi og þar af
standa lax og rækjur fyrir um
50% af markaðnum. Ef þorski
og ýsu er bætt við standa þess-
ar fjórar tegundir undir 70% af
fiskneyslunni í Bretlandi.
„Til að fá nýja neytendur til
að velja fisk völdum við þá leið
að byggja upp nýtt vörumerki
The Saucy Fish Co.“
Simon segir að miklir fjár-
munir hafi verið lagðir í mark-
aðsrannsóknir þar á meðal á
væntingum neytenda og kaup-
manna. Markaðssetning fer nú í
vaxandi mæli fram í samfélags-
miðlum og öðrum stafrænum
miðlum en einnig með sjón-
varpsauglýsingum og almanna-
tengslum. Í síðustu auglýsinga-
herferð fyrirtækisins var fólk
hvatt til að neyta fisks oftar og
reglulegar. Hún mæltist vel fyrir
að sögn Simons og hafði þau
áhrif að nýjum kaupendum hef-
ur fjölgað um 50% og þar af eru
um 25% sem höfðu aldrei keypt
fisk áður í viðkomandi verslun.
Hræddir við fisk!
„Í rannsóknum okkur höfum við
komist að því að neytendur eru
sumir hræddir við fisk. Þeim
finnst hann lykta illa, segja að
það séu bein í honum, finnst
hann slímugur og vita ekki
hvernig á að matreiða hann,“
segir Simon.
The Saucy Fish merkið var
sett á markað árið 2010 og fékk
strax mjög góðar viðtökur en
vörulína þess er sniðin að þörf-
um þriggja ólíkra neytenda-
hópa sem fyrirtækið hefur skil-
greint. Í fyrsta lagi er það gott
hráefni fyrir þá sem eru sólgnir í
fisk og óhræddir að matreiða
hann. Í öðru lagi eru það fisk-
réttir sem þarf aðeins að taka úr
umbúðunum og setja í ofn og
eru sniðnir að þörfum þeirra
sem vilja borða fisk en óttast að
eyðileggja hráefnið. Loks eru
það einfaldir tilbúnir réttir fyrir
þá sem hræðast fisk.
15