Ægir - 01.12.2015, Page 30
Verðmæti sjávarafla á 12 mán-
aða tímabilinu ágúst 2014-júlí
2015 jókst um 9,9%, miðað við
sama tímabil þar á undan. Ef
horft er til einstakra flokka sjáv-
araflans má meðal annars sjá að
verðmætin jukust um 6,4% í
botnfiski, 5,4% í flatfiski og
21,6% í uppsjávarafla.
Samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands námu verðmætin á síð-
arnefnda tímabilinu rösklega
152,6 milljörðum króna á móti
tæplega 139 milljörðum tólf
mánuðina þar á undan.
Mesta sveiflan í prósentum
var í loðnuaflanum en verð-
mæti hans jukust um 224%
milli tímabila, fóru úr tæpum 4
milljörðum í rösklega 12,7 millj-
arða. Kolmunnaaflinn skilaði
aukningu upp á 20,4% milli
tímabila en aftur á móti minnk-
uðu verðmæti makríls um 6,2%
og síldar um 15%.
Verðmæti þorsk var rúmum
12% meira á síðara tímabilinu
en því fyrra. Verðmæti ufsaafla
jókst einnig en verðmæti ýsu-
aflans minnkaði um 7,6% milli
tímabila.
Hagstofan greinir einnig
verðmæti afla eftir tegund
löndunar á áðurnefndum tíma-
bilum og þar kemur fram að
verðmæti afla til vinnslu innan-
lands jókst um tæp 25% á síð-
ara tímabilinu í samanburði við
það fyrra. Höfuðborgarsvæðið
er með mestu verðmæti ein-
stakra verkunarstaða, eða 37
milljarða króna og aukningu á
samanburðartímabilunum um
6,6%. Hlutfallslega mest varð
þó aukningin í verðmætum á
Austurlandi milli tímabila eða
tæp 34%. Afla að andvirði tæp-
lega 25 milljarða króna var
landað á Austurlandi á síðara
tímabilinu, lítið eitt meira en á
Suðurnesjum á sama tíma.
Verðmætari sjávarafli
Á tímabilinu ágúst 2014 til júlí 2015 lönduðu íslensk fiskiskip afla að
verðmæti tæplega 153 milljarða króna.
F
réttir
30