Ægir - 01.12.2015, Blaðsíða 52
Leyndarmálið að baki íslenska
saltfiskinum var kynnt í mat-
reiðsluskólum í Lissabon í
Portúgal og Bilbao á Spáni
núna í nóvember. Þessar kynn-
ingar fylgdu á hæla sambæri-
legra viðburða í skólum í Val-
encia í október og í Madrid sl.
vor. Kynningin í skólunum er
liður í markaðsverkefni sem Ís-
landsstofa vinnur í samstarfi
við íslenska fiskframleiðendur
og útflytjendur.
Á kynningunni í Valencia
fengu rúmlega 120 nemendur
skólans að kynnast leyndarmál-
inu á bak við „Bacalao de Isl-
andia“. Ásbjörn Björnsson var
fulltrúi Íslandsstofu á staðnum
og fjallaði um veiðar og vinnslu
og kom einnig inn á mismun-
andi afurðaflokka fyrir saltaðan
þorsk á spænska markaðnum;
hefðbundinn flattan saltfisk,
saltflök og léttsaltaðan frystan
þorsk.
Kynnti þorskinn með „Show
cooking“
Eftir kynningu Ásbjörns sá
spænski Michelin kokkurinn
Maria José San Román, sem á
og rekur veitingastaðinn Mona-
strell í Alicante, um sýnikennslu
í matreiðslu (show cooking) á
mismunandi réttum úr íslensk-
um þorski. Óhætt er að segja að
Maria José hafi náð vel til nem-
enda skólans með þekkingu
sinni og færni í eldamennsku á
íslenska hráefninu. Maria José,
sem hefur komið oft til Íslands
sem dómari í Food and Fun
keppninni, kynnti ekki aðeins
íslenska þorskinn heldur einnig
Ísland almennt eins og sönnum
„Íslandsvini“ sæmir.
Eftir sýnikennsluna var boð-
ið upp á saltfisksmökkun sem
nemendur og kennarar skólans
sáu um að útbúa. Áhugi er hjá
báðum aðilum að eiga frekara
samstarf um að kynna saltaðan
þorsk frá Íslandi.
Þorskurinn æ vinsælli hjá
Frökkum
Um 50 manns sóttu um miðjan
nóvember fund um stöðu ís-
lenskra sjávarafurða á Frakk-
landsmarkaði en að fundinum
stóðu Íslandsstofa og Iceland
Responsible Fisheries. Auk þess
fylgdust um 20 nemendur Há-
skólans á Akureyri með fundin-
um á netinu.
Björgvin Þór Björgvinsson,
verkefnastjóri hjá Íslandsstofu,
hélt erindi um þróun útflutn-
ings íslenskra sjávarafurða til
Frakklands síðustu ár. Í erindi
hans kom m.a. fram að útflutn-
ingur á ferskum þorski til Frakk-
lands hefur aukist mjög mikið á
síðustu árum en árið 2014 var
Frakkland langstærsti markað-
urinn með 42% af útflutnings-
verðmætum ferskra þorskaf-
urða.
Marie Christine Monfort,
ráðgjafi í markaðssetningu sjáv-
arafurða, var með kynningu á
tækifærum Íslands til að ná fót-
festu á verðmætari hluta
franska markaðarins, einkum
með þorskafurðir. Að hennar
mati felst ein helsta áskorunin
fyrir seljendur íslenskra sjávar-
afurða í því að ná betur til al-
mennings þar sem tengingin á
milli þorsksins og Íslands er ekki
alltaf skýr í augum franskra
neytenda.
Íslenski saltfiskurinn
heldur áfram sigurför
um S-Evrópu
Spænski Michelin-kokkurinn Maria José San Román sýndi samlöndum
sínum ýmsar listir í matreiðslu á íslenskum saltfiski.
F
réttir
Óskum fiskvinnslufólki, sjómönnum,
útgerðarmönnum og fjölskyldum þeirra
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!
Faxaflóahafnir
Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarsjóður Skagafjarðar
Hafnir Fjarðabyggðar
Hafnir Þorlákshafnar
Sandgerðishöfn
Seyðisfjarðarhöfn
Vestmannaeyjahöfn
Vopnafjarðarhöfn