Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 69

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 69
Náttúrufræðingurinn 104 skóga, og mynda þá nokkuð samfellt lag í gróðursverðinum. Slíkt mosalag getur staðið fyrir verulegum hluta af heildarfrumframleiðslu og lífmassa vistkerfa.2,4 Þykkt mosalagsins takmarkast fyrst og fremst af vaxtar- hraða og langlífi tegundanna sem það mynda og af niðurbrotshraða dauðs mosavefjar, en einnig af ytri þáttum, svo sem beit og öðru raski, eins og vikið verður að síðar (4. mynd). Mælingar á vexti hraun- gambra í Þingvallahrauni árin 1990– 1992 sýndu meðalársvöxt uppá 0,75 cm10 og 1,1 cm á Auðkúluheiði 2006– 2007.23 Niðurbrotshraði mosavefja er að jafnaði mun hægari en vefja æðplantna,24 en hraði vaxtar og niðurbrots mosa er jafnframt mjög breytilegur eftir tegundum og umhverfisaðstæðum. Þykkt mosalagsins getur því verið allt frá örfáum millimetrum á röskuðum svæðum og á fyrstu stigum fram- vindu að tugum sentimetra t.d. á hraunum sunnan- og vestanlands á Íslandi þar sem úrkoma er mikil. Dæmi eru um allt að þriggja metra þykkar mosabreiður á eyjum undan ströndum Suðurskautsskagans, en það helgast af því að neðstu hlut- arnir haldast sífrosnir sem kemur í veg fyrir niðurbrot.22 Efstu 1–3 cm eru ljóstillífandi (grænir) og efstu 23 cm þiðna árlega, en það sem neðar er varðveitist í sífrera. Tegundin Chorisodontium aciphyllum er ríkjandi í mosabreiðunum og 1.500 ára mosasprotar úr borkjarnasýnum á 120 cm dýpi gátu hafið endurvöxt við þiðnun.22 Vistfræðingar gera sér í auknum mæli grein fyrir því að mosalagið hefur einnig sterk áhrif, bæði bein og óbein, á bindingu kolefnis og ýmsa aðra ferla sem tengjast flæði orku og hringrás næringarefna í land- vistkerfum.4,25 Mosalagið er heim- kynni margvíslegra örvera, svo sem grænþörunga, blágrænna baktería og sveppa, auk hryggleysingja, hjól- dýra, bessadýra, þráðorma, mítla, stokkmors og annarra liðdýra. Þykkt mosalag hýsir því flókna fæðuvefi neytenda og sundrunarlífvera. Það má fullyrða að þar sem þannig háttar til sé mosalagið í lykilstöðu á milli andrúmslofts og jarðvegs og stjórni flæði orku og efna þar á milli. Þessi lykilstaða mosalagsins fékk Lindo og Gonzalez til að skil- greina það sem sérstakan hjúp, hliðstæðan t.d. lofthjúpnum, sem þau kölluðu „mosahjúp“ (e. bryosp- here).26 Samkvæmt skilgreiningu þeirra tilheyra mosahjúpnum bæði lifandi og dauðir hlutar mosans, allar lífverur sem hann hýsir og allir ferlar sem þar eiga sér stað í nánu samspili hver við annan (5. mynd). Sem dæmi um margbreytileika ferla í mosahjúpnum er ljóstillífun mos- anna sjálfra og frumbjarga örvera sem á þeim sitja (grænþörungar, blágrænar bakteríur), binding köfnunarefnis úr andrúmsloftinu (blágrænar ásætubakteríur), annars- stigs framleiðsla (sveppir, hrygg- leysingjar) og sundrun lífrænna leifa (sveppir, hryggleysingjar, bakteríur). Vegna þess hve nýtanlegt köfnunar- efni er takmarkandi fyrir frumfram- leiðslu vistkerfa, ekki síst á norð- lægum slóðum, hefur vistfræði blá- grænna ásætubaktería á mosum og hæfni þeirra til að binda köfnunar- efni (niturnám) notið sérstakrar at- hygli á síðustu árum.25 Megináhersl- an í rannsóknum hingað til hefur beinst að vistkerfi barrskóga. Þessar rannsóknir hafa leitt í ljós að nokkuð náin samskipti eru milli mosanna og blágrænna ásætubaktería, jafnvel svo náin að þau megi telja til sam- lífis (e. symbiosis).27 Köfnunarefnis- binding ásætubaktería er talin vera meginuppspretta nýtanlegs köfn- unarefnis í þessum vistkerfum.25 Rannsóknum á þessu sviði hefur lítt verið sinnt hér á landi þar til nýlega að rannsóknarverkefni var hrint af stað með það að markmiði að kanna tilvist, fjölbreytileika og virkni samfélaga blágrænna baktería á ríkjandi mosategundum á mis- munandi búsvæðum. Fyrstu niður- stöður gefa vísbendingu um að þetta samspil sé mikilvægt í íslenskum vistkerfum.28 Mikilvægi mosahjúpsins helgast hins vegar ekki eingöngu af þeim ferl- um sem fara fram innan hans heldur einnig af víxlverkun hans við lofthjúp (andrúmsloft) og jarðveg (5. mynd). Lofthjúpur − mosahjúpur Mosahjúpurinn tálmar leið loftborinna efna og uppleystra jóna í úrkomu að jarðveginum. Þetta skýrist af hinu mikla yfir- borði mosans miðað við rúmmál, og hæfni þess til að binda jónir og taka upp vatn og næringu. Af þessum sökum henta mosar vel við vöktun á loftborinni mengun, svo sem þungmálma og brennisteins.29,30 Við sundrun mosanna berast þessi efni að lokum inn í aðra hluta vistkerfisins. Þol mosa gagnvart mengunarefnum er þó takmarkað, mismikið eftir tegundum,31 og skemmdir (dauðir mosasprotar) koma í ljós ef styrkur fer yfir ákveðin mörk. Skemmdir í mosaþekjunni greiða fyrir leið mengunarefna að jarðveginum. Plöntur geta nýtt sér sum meng- unarefni (köfnunarefnis- og brenni- steinssambönd) sem næringarefni. Samkvæmt rannsóknum á hlut- föllum köfnunarefnissamsætna í setkjörnum nokkurra vatna víðs- vegar í heimskautalöndunum og í Klettafjöllunum, studdum af niður- stöðum úr ískjörnum úr Grænlands- jökli, jókst innflæði köfnunarefnis í vistkerfi á norðurhveli upp úr 1850 og eftir 1950 varð aukningin mjög ör.32 Þessi aukning er athyglisverð fyrir tvær sakir. Í fyrsta lagi vegna þess að hana er einungis hægt að skýra út frá mannlegum umsvifum (losun við brennslu jarðeldsneyta, iðnað og húsdýrabúskap) og markar hún því skilin milli tveggja jarð- sögutíma, Nútíma og Manntíma (e. Anthropocene). Í öðru lagi vegna þess hve framboð af nýtanlegu köfnun- arefni er takmarkandi fyrir frum- framleiðni (vöxt plantna), einkum á norðlægum slóðum. Í ljósi þessa er áhugavert að skoða afleiðingar aukinnar ákomu köfnunarefnis fyrir vistkerfi með samfelldan mosahjúp. Í tilraun í mosaþembum í Þing– vallahrauni (15–20 cm þykk sam- felld mosaþekja, hraungambri alls- ráðandi, 4. mynd A) árin 1989–1991 var köfnunarefnisákoma á formi ammóníum og nítrats aukin sexfalt yfir sumarmánuðina miðað við 84_3-4.indd 104 1601//15 12:50 149 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 14. Millennium Ecosystem Assessment Synthesis Report 2005. Skoðað 10. nóvember 2014 á http://www.millenniumassessment.org/en/index. html 15. Páll Skúlason 1998. Umhverfing. Um siðfræði umhverfis og náttúru. Háskólaútgáfan, Reykjavík. 115 bls. 16. Louv, R. 2005. Last Child in the Woods. Saving our children from nature-deficit disorder. Alonquin Books of Chapel Hill, NY, USA. 390 bls. 17. Children and nature network án árs. Children & Nature Network. Skoðað 11. nóvember 2014 á http://www.childrenandnature.org/ 18. Charles, C. 2009. The Ecology of Hope: Natural Guides to Building a Children and Nature Movement. Journal of Science Education and Technology 18 (6). 467–475. 19. Sigrún Helgadóttir & Páll Jakob Líndal 2010. Maður og náttúra. Náttúru- fræðingurinn 79 (1–4). 75–81. 20. Taylor, A., Kuo, F.E. & Sullivan, W.C. 2001. Coping with ADD: The surprising connection to green play settings. Environment and Behavior 33 (1). 54–77. 21. Kuo, F.E. & Faber Taylor, A. 2004. A potential natural treatment for Attent-ion-Deficit/Hyperactivity Disorder: Evidence from a national study. American Journal of Public Health 94 (9). 1580–1586. 22. Boyce, C.J., Mishra, C., Halverson, K.L. & Thomas, A.K. 2014. Getting Stud-ents Outside: Using Technology as a Way to Stimulate Engagement. Journal of Science Education and Technology 23 (6). 815–826. 23. Zoldosova, K. & Prokop, P. 2006. Education in the field influences chil- dren’s ideas and interest toward science. Journal of Science Education and Technology 15 (3–4). 304–313. 24. Boyle, A., Conchie, S., Maguire, S., Martin, A., Milsom, C., Nash, R., Rawlinson, S., Turner, A. & Wurthmann, S. 2003. Fieldwork is good? The student experience of field courses. Planet, Pedagogic Research in Geo- logy, arth and nviron ental ciences. ecial edition 5, art . 51. Skoðað 10. nóvember 2014 á http://www.gees.ac.uk/pubs/planet/ pse5back.pdf 25. Rahman, T. & Spafford H. 2009. Value of field trips for student learning in the biological sciences. Í: Teaching and learning for global graduates. Proceedings of the 18th Annual Teaching Learning Forum, í Curtin University of Technology, Perth, Ástralíu 29–30. janúar 2009. Skoðað 13. nóvember 2014 á https://otl.curtin.edu.au/events/conferences/tlf/ tlf2009/refereed/rahman.html 26. Guðmundur Finnbogason 1994. (2. útg) Lýðmenntun. Hugleiðingar og tillögur. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands, Reykjavík. 218 bls. 27. Helena Óladóttir 2008. Náttúruskóli Reykjavíkur. Ársskýrsla 2008. 24 bls. Skoðað 9. nóvember 2014 á http://www.natturuskoli.is/Files/ Skra_0033517.pdf 28. Kristín Norðdahl 1999. Rannsóknir á náttúrufræðikennslu í leik- og grunnskólum 1980–1998. Óbirt námsritgerð. Skoðað 11.nóvember 2014 á https://notendur.hi.is/knord/nattran1.pdf 29. Hrefna Sigurjónsdóttir 2006. Einkenni líffræðikennslu meðal kennara með líffræðival úr KHÍ. Málþing um náttúrufræðimenntun á vegum FNG, Félags raungreinakennara, HÍ, KHÍ, Samlífs og Rannsóknarhóps um náttúrufræðimenntun. 31. mars – 1. apríl 2006. Óbirt – niðurstöður í vörslu höfundar. 30. Birna Hugrún Bjarnadóttir, Helen Símonardóttir & Rúna Björg Garðars- dóttir. 2007. Staða náttúrufræðikennslu í grunnskólum landsins. Verk- efna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ. Óbirt skýrsla í vörslu höfunda. 31. Allyson Macdonald (ritstj.), Auður Pálsdóttir (ritstj.), Björg Pétursdóttir (ritstj.),Eggert Lárusson, Haukur Arason, Hrefna Sigurjónsdóttir, Krist- ján Ketill Stefánsson, Stefán Bergmann & Svanborg R. Jónsdóttir. 2007. Vilji og veruleiki. Náttúrufræði- og tæknimenntun á Íslandi. Nokkrar niðurstöður. Desember 2007. Skoðað 15.nóvember 2014 á http://mennta. hi.is/starfsfolk/kristjan/vv/Short%20report%20for%20general%20dist- ribution/VV-nokkrar-nidurstodur-des07.pdf 32. Macdonald, A. 2008. Intentions and reality: science and technology education in Iceland. Final report. Submitted to the Research Fund of Iceland December 2008. Skoðað 10. nóvember 2014 á http://mennta. hi.is/starfsfolk/kristjan/vv/Final%20report.pdf 33. Almar Miðvik Halldórsson, Ragnar F. Ólafsson & Júlíus K. Björnsson 2007. Færni og þekking nemenda við lok grunnskóla. Helstu niðurstöður PISA 2006 í náttúrufræði, stærðfræði og lesskilningi. Skoðað 13. nóvem- ber 2014 á http://brunnur.stjr.is/mrn/utgafuskra/utgafa.nsf/RSSPage. xsp?documentId= 34. ngvar igurgeirsson 199 . Not un n sefnis 1 1 ra deildu grunnskóla og viðhorf nemenda og kennara til þess. Rannsóknarit. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands, Reykjavík. 35. Hrefna Sigurjónsdóttir, Hrafnhildur Ævarsdóttir & Gunnhildur Óskars- dóttir 2010. Heimur barnanna, heimur dýranna. Ráðstefnurit Netlu – Menntakvika 2010. Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Skoðað 13. maí 2014 á http://netla.khi.is/menntakvika2010/014.pdf 36. Hrefna Sigurjónsdóttir 2010. Að skilja hugtökin er meira en að segja það. ls. 351 3 Arfleif arwins. r unarfr i, n tt ra og enning (ritstj. Arnar Pálsson, Bjarni Kristófer Kristjánsson, Hafdís Hanna Ægis- dóttir, Snæbjörn Pálsson & Steindór J. Erlingsson). Hið íslenska bók- menntafélag, Reykjavík. 37. Almar Miðvik Halldórsson, Ragnar F. Ólafsson & Júlíus K. Björnsson 2012. Helstu niðurstöður PISA 2012. Læsi nemenda á stærðfræði og náttúrufræði og lesskilningur. Skoðað 11. nóvember 2014 á http://www. namsmat.is/vefur/rannsoknir/pisa/pisa_skyrslur/PISA_2012.pdf 38. Sigrún Helgadóttir 2013. Sjálfbærni – Grunnþáttur menntunar á öllum skólastigum. Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Námsgagna- stofnun, Reykjavík. 68 bls. 39. Margrét Júlía Rafnsdóttir 2005. Ein jörð fyrir alla um ókomna tíð. Veg- vísir í umhverfismennt fyrir grunnskóla. Námsgagnastofnun, Reykjavík. 64 bls. 40. Hafdís Ragnarsdóttir & Margrét Júlía Rafnsdóttir 2013. Sjálfbærni. Skoðað 11. nóvember 2014 á http://www.nams.is/i-dagsins-onn/ur- riki-natturunnar/ 41. Mennta- og menningarmálaráðuneytið 2011. Aðalnámskrá leikskóla 2011. Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Reykjavík. 18 bls. 42. Karl Gunnarsson & Þórir Haraldsson 2010. Fjaran og hafið. Skoðað 9. nóvember 2014 á http://www.nams.is/Namsefni/Valid-namsefni/?- productid=7a688d5a-f8af-4d23-a0e6-15ffd1da0d7c 43. Au ur unnarsd ttir u b rg agnarsd ttir 1 . aran og hafi Kennsluhugmyndir. Námsgagnastofnun, Reykjavík. 20 bls. Skoðað 11. nóvember 2014 á http://www1.nams.is/hafid/fjaran_hafid_klb.pdf 44. Sólrún Harðardóttir 2006. Lífríkið í sjó. Námsgagnastofnun, Reykjavík. 64 bls. 45. Sólrún Harðardóttir 2012. Líf á landi. Námsgagnastofnun, Reykjavík. 96 bls. 46. Fabricius, S., Holm, F., Martenson, R., Nilsson, A. & Nystrand, A. 2006. Lífheimurinn. Litróf náttúrunnar (Hálfdan Ómar Hálfdanarson þýddi og staðfærði). Námsgagnastofnun, Reykjavík, 135 bls. 47. Fabricius, S., Holm, F., Martenson, R., Nilsson, A. & Nystrand, A. 2011. Maður og náttúra. Litróf náttúrunnar. (Hálfdan Ómar Hálfdanarson þýddi og staðfærði). Námsgagnastofnun, Kópavogur. 148 bls. 48. Sigrún Helgadóttir 2002. Komdu og skoðaðu umhverfið. Námsgagna- stofnun, Reykjavík. 24 bls. 49. Sigrún Helgadóttir 2006. Komdu og skoðaðu hringrásir. Námsgagna- stofnun, Reykjavík. 24 bls. 50. Sólrún Harðardóttir 2005. Komdu og skoðaðu hafið. Námsgagnastofnun, Reykjavík. 25 bls. 51. Sólrún Harðardóttir & Hrefna Sigurjónsdóttir 2006. Komdu og skoðaðu hvað dýrin gera. Námsgagnastofnun, Reykjavík. 25 bls. 52. Kristjana Skúladóttir & Þóra Víkingsdóttir 2011. Náttúrustígur í fjörunni. (1. útg.). Námsgagnastofnun, Reykjavík, 26 bls. Skoðað 14. nóvember 2014 á http://vefir.nams.is/natturufraedi/natturustigar.pdf 53. Kristjana Skúladóttir & Þóra Víkingsdóttir 2011. Kennsluleiðbeiningar. Skoðað 14. nóvember á http://vefir.nams.is/natturufraedi/natturustig- ar_klb.pdf (aðeins aðgengilegt fyrir kennara). Námsgagnastofnun, Reykjavík. 54. Hrefna Sigurjónsdóttir & Snorri Sigurðsson 2007. Landið – Vatnið – Fjaran. Greiningarlyklar um smádýr. Námsgagnastofnun, Reykjavík. Skoðað 14. maí 2014 á http://www1.nams.is/smadyr/index.php 55. Sólrún Harðardóttir 2007. Fuglavefurinn. Fróðleikur. Skoðað 10. maí 2014 á http://www1.nams.is/fuglar/index_frodleikur.php 56. Erlendur Bogason 2009. Neðansjávarmyndir. Skoðað 10. nóvember 2014 á http://www.nams.is/Namsefni/Namsgrein/?searchtype=- store&search=Erlendur+Bogason 57. Sólrún Harðardóttir 2001. Þar á ég heima. Námsefni um náttúru Kópa- vogs. Kópavogsbær, Kópavogur. 39 bls. 58. Guðmundur Páll Ólafsson 1995. Ströndin í náttúru Íslands. Mál og menning, Reykjavík. 490 bls. 59. Jörundur Svavarsson & Pálmi Dungal 1996. Undraveröld hafdjúpanna við Ísland. Mál og menning, Reykjavík. 120 bls. um höfundinn Hrefna Sigurjónsdóttir (f. 1950) lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1973, M.Sc.-prófi í vistfræði frá University of Bangor í Wales 1977, doktorsprófi í atferlisvistfræði frá University of Liverpool 1980 og prófi til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands 1982. Hrefna hefur unnið við Kenn- araháskóla Íslands, síðar Menntavísindasvið Háskóla Íslands, frá 1982 og verið prófessor frá 1998 þar sem hún hefur m.a. kennt verðandi líffræðikennurum. Hún hefur einnig haft umsjón með og kennt á námskeiði í dýraatferlisfræði við líffræðiskor (-námsbraut) Háskóla Íslands frá 1981. Póst– og netfang höfundar/Author’s address Hrefna Sigurjónsdóttir Háskóli Íslands, menntavísindasvið Stakkahlíð IS-105 Reykjavík hrefnas@hi.is 84_3-4.indd 149 1601//15 12:50 1501197 N atturufr 5B C M Y K 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.