Morgunblaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 12
Eitt best geymda
leyndarmálið á markaðnum
Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tískufyrirsætum og förðunarfræðingum um
allan heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir þurra og viðkvæma húð
og kemur jafnvægi á húðina. Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan og hefur
uppskriftin verið óbreytt síðan. Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá, Morgunfrú
og Rósmarín, gott krem fyrir alla fj ölskylduna – Í samhljómi við mann og náttúru.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaIceland
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Múmínálfar Sumarbollinn 2016 er nýjasti gripur Múmínsafns Huldu Hvannar og er hann í miklu uppáhaldi.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Hulda gerðist múmín-safnari fyrir um það bilsex árum, eftir sínafyrstu heimsókn til Finn-
lands, heimalands Múmínálfanna.
„Ég fór tvisvar til Finnlands árið
2010. Þetta er eitt fallegasta land
sem ég hef komið til, fullt af trjám og
litlum vötnum,“ segir Hulda, sem
varð fljótlega vör við múmínálfana í
sinni fyrstu heimsókn. „Finnar eru
mjög stoltir af sinni múmínarfleifð.
Ég á vin sem býr þar og hann fór
með mig á alþjóðlega Múmínsafnið.
Þar kviknaði ástin sem hefur ekki
slökknað síðan,“ segir Hulda, og á þá
við ást sína á Múmínálfunum.
Sex árum, fimm Finnlands-
ferðum og tveimur heimsóknum síð-
ar á alþjóðlega Múmínsafnið í
Tampere hefur Hulda komið sér upp
myndarlegu safni með ýmsum
múmínvörum. „Þetta byrjaði með
bollunum eins og hjá svo mörgum.
Elsti bollinn er um 15 ára gamall,
mamma keypti hann í Helsinki á sín-
um tíma.“ Hulda fjárfesti í fyrstu
bollunum sínum í fyrstu Finnlands-
ferðinni. „Fyrst að ég átti bollana
langaði mig svolítið í diskana og þeg-
ar ég átti diskana langaði mig í skál-
arnar. Síðan vatt þetta upp á sig og
allt í einu átti ég sex bolla, diska,
skálar og eldfast mót. Og fyrst að ég
átti eldhúsdótið gat ég alveg farið að
safna einhverju öðru. Ég tók enga
meðvitaða ákvörðun um að safna
múmínhlutum, allt í einu átti ég þetta
allt saman.“
Besti staður á jarðríki
Flesta munina hefur Hulda
fengið að gjöf. „Þegar fólk frétti af
því að ég væri að safna þá var eins og
því létti því þá er auðvelt að finna
gjafir handa manni. Ég hef ótrúlega
gaman af því hvað fólk er búið að
vera duglegt að hjálpa mér að bæta í
safnið mitt, sem er orðið ágætlega
myndarlegt vil ég meina.“
Múmínálfarnir hafa fyrir löngu
fest sig í sessi Íslendinga og líkt og
flestir vita eru persónurnar sköp-
unarverk finnska rithöfundarins
Tove Jansson og komu fyrst fram á
sjónarsviðið fyrir um það bil 70 árum
síðan í barnabókum. Á alþjóðlega
Múmínsafninu í Finnlandi má finna
ýmsan fróðleik um Tove og Múmín-
álfana, sem Hulda hefur kynnt sér
vel. „Múmínsafnið er besti staður á
jarðríki. Það má því miður ekki taka
myndir þar inni og ég get því miður
ekki sýnt fram á að ég hafi komið
þangað, en fólk verður bara að taka
mig trúanlega. Þar er að finna ótrú-
lega margar upprunalegar teikn-
ingar frá Tove, ásamt líkani, nánast í
fullri stærð, af Múmínhúsinu sem
Í hamingjusömu sambandi
með Múmínálfunum
Alþjóðlega Múmínsafnið í Finnlandi er besti staður á jarðríki, að minnsta kosti að mati Huldu Hvannar
Kristinsdóttur, sem er líklega óhætt að titla sem einn öflugasta múmínsafnara landsins. Í safninu hennar má
ekki bara finna bolla, skálar og strigaskó, heldur lét hún einnig húðflúra sjálfan Múmínsnáðann á sig.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Sannkölluð karnivalstemning verður
á barnahátíðinni Kátt á Klambra sem
haldin verður á sunnudag. Hátíðin er
ætluð börnum á öllum aldri og fjöl-
skyldum þeirra.
Fullt af dansi, tónlist, kungfú-
pöndum, andlitsmálningu, húllafjöri
og fjölda annarra viðburða verður að
finna á hátíðinni sem fer fram á
Klambratúni, vinstra megin við Kjar-
valsstaði frá bílastæði.
Dagskráin hefst klukkan 14 og lýk-
ur klukkan 17. Á svæðinu má finna
ýmsar listasmiðjur, barnajóga með
Lóu Ingvarsdóttur og hipphopp-
danssýningu frá Dans Brynju Péturs.
Þá mun Frikki Dór taka lagið og Mar-
grét Erla Maack mun sjá um barna-
diskó.
Á svæðinu verður einnig að finna
bás þar sem hægt verður að fá and-
litsmálningu, tattúbás, ljósmynda-
bás, tombólumarkað og kósítjald þar
sem barnanudd verður kynnt og
margt fleira.
Veitingar verða til sölu á svæðinu
og á kaffihúsinu Kjarvalsstöðum
verður hægt að fá sér köku og kakó á
sérstöku tilboði í tilefni dagsins. Til-
valið er að nýta Klambratúnið í við-
burðaríka lautarferð með fjölskyld-
unni í fallegu umhverfi.
Karnivalstemning á Klambratúni
Karnival Margt verður um að vera á Klambratúni á sunnudag fyrir börnin.
Dans, diskó, jóga og húllafjör
Sýning Péturs Thomsen, TÍÐ /
HVÖRF, stendur nú yfir í Listasafni
Árnesinga. Á sunnudag klukkan 15
mun Pétur ganga um sýninguna og
ræða við gesti um verk sín. Við gerð
þeirra notar hann stafræna ljós-
myndavél og sýnir á ljóðrænan hátt
hvernig tíminn hefur sett mark sitt
á lífið í kringum hann og breytingar
í náttúrunni dag frá degi. Þannig er
titill sýningarinnar tilvísun í ým-
islegt svo sem í tíma, tímabil, veð-
urfar, það sem hverfur eða týnist,
breytingar eða tímamót svo eitt-
hvað sé nefnt.
Verk Péturs fjalla um meðal ann-
ars um það hvernig maðurinn, með-
vitað eða ómeðvitað, hefur áhrif á
náttúruna.
Flestar ljósmyndirnar hefur Pétur
tekið með flassi á miðnætti síðast-
liðinn vetur og eru þær nú sýndar í
fyrsta sinn. Útkoman er ótrúleg
dýpt sem dregur áhorfandann inn í
myndina. Myndefnin eru fengin úr
nágrenninu og ljósmynd af Þóru-
staðanámu í Ingólfsfjalli hefur vakið
verðskuldaða athygli.
Í safninu stendur nú einnig yfir
sýning Rúríar, TÍMA - TAL. Sýning
hennar og Péturs eiga það sameig-
inlegt að fjalla m.a. um tímann. Sýn-
ingarnar standa báðar yfir í Lista-
safni Árnesinga í Austurmörk í
Hveragerði til 1. ágúst.
Samtal á sunnudegi
Pétur Thomsen
spjallar um list
og tímann
Landnám Frá sýningu Péturs
Thomsen í Listasafni Árnesinga.