Morgunblaðið - 23.07.2016, Síða 13
Tove bjó til sjálf og er innréttað eins
og Múmínhúsið í sögunum.“
Persónur með galla sem
mynda góðan hóp
Hulda hefur kynnt sér sögurnar
og er á þeirri skoðun, líkt og fleiri, að
ekki sé um barnabækur að ræða.
„Ég er með þá kenningu að hver ein-
asti karakter er holdgervingur
ákveðins galla hjá mannkyninu.
Snabbi er rosalega gráðugur,
Múmínsnáðinn er mjög trúgjarn,
Múmínmamma er gleymin eða jafn-
vel glámskyggn, Pjakkur er hrekkja-
lómur og Mía litla er alltaf reið.
Karaktereinkenni þeirra eru öll
rosalega neikvæð ef maður pælir í
því en saman mynda þau heild-
stæðan og góðan hóp sem virkar.“
Hulda segir óneitanlega vera að
finna ákveðinn drunga yfir sögunum.
„Kannski vegna þess að Finnar eru
þekktir fyrir að vera þungir á brún
og jafnvel þunglyndir, en þegar mað-
ur kynnist þeim eru þeir hlýir,
hjartagóðir og gestrisnir. Það er eins
og Tove hafi tekið það sem henni
finnst athugavert við Finna eða jafn-
vel mannkynið allt en samt tekst
henni að gera þá að góðum karakter-
um.“ Hulda hefur kynnst fjölmörg-
um öðrum múmínsöfnurum í gegn-
um safnið sitt og segir að oftar en
ekki verði til mjög heimspekilegar
umræður um Múmínheiminn. „Fólk
er með mjög flóknar aðdáendakenn-
ingar um duldar merkingar og fleira.
Það er mikil heimspeki þarna á bak
við. Múmínaðdáendur má finna á öll-
um stigum samfélagsins.“
Múmínföt fyrir fullorðna
Að sögn Huldu er hún ekki mik-
ill safnari í eðli sínu. „Ég hef aldrei
safnað neinu áður, ég reyndi þegar
ég var krakki að safna servíettum,
frímerkjum og límmiðum en það ent-
ist ekki. Þetta er eitthvað öðruvísi.
Þetta eru hlutir sem ég get notað
marga hverja dags daglega, eins og
skóna mína og bollana. Ég veit að
sumir bollanna eru hættir í fram-
leiðslu og þeir ganga kaupum og söl-
um fyrir tugi þúsunda. En þetta er
bara bolli þegar allt kemur til alls,
þetta er ekki svo heilagt að það megi
ekki drekka úr honum.“ Spurð um
uppáhaldshluti er Hulda fljót að
nefna nýja sumarbollann. „En svo
finnst mér ótrúlega gaman að það
séu til múmínföt fyrir fullorðna, það
er einn af stóru plúsunum í mínu lífi.
Ég kíki mjög reglulega í Finnsku
búðina og keypti skóna til að mynda
þar og þeir eru mikið notaðir.“ Á
múmínóskalistanum þessa stundina
hjá Huldu er hraðsuðuketill og
lampi. „Þetta er dýrt hobbý, maður
þarf að vera svolítið þolinmóður.“
Farsælt múmínsamband
Hulda reynir að deila múmín-
áhuganum með fjölskyldu og vinum.
„Ég er dugleg að gefa múmínvörur
sjálf, jafnvel þótt fólk sé ekki að
safna, mér finnst þetta frábær gjöf
og er alltaf að reyna að troða öllum
inn í múmínheiminn. Ég held að það
sé enginn sem hafi farið í fýlu og
fundist hann svikinn vegna þess að
hann fékk múmínbolla.“ Dóttir
Huldu er þar engin undantekning.
„Ég treð henni í alla múmínlínuna
frá Lindex. Hún á fullt af múm-
ínfötum og dóti og er heilaþvegin frá
blautu barnsbeini,“ segir hún og
hlær.
Segja má að múmínáhuginn hafi
náð nýjum hæðum í febrúar, þegar
Hulda hélt upp á 22 ára afmælið sitt.
„Mig langaði svo að gefa sjálfri mér
afmælisgjöf og hafði samband við Ís-
lenzku húðflúrstofuna og fékk að
koma þremur dögum seinna, því ég
vildi vera sæt í afmælisveislunni
minni.“ Hulda var með tvö húðflúr
fyrir og segir að það hafi verið lítið
mál að bæta einu við. „Við múmínálf-
arnir erum búin að eiga í ham-
ingjusömu sambandi síðastliðin ár.“
Múmínsnáðinn varð fyrir valinu og
er húðflúrið á handlegg Huldu. „Fólk
er almennt að taka vel í þetta, ungir
jafnt sem aldnir.“ Hulda reiknar með
að múmínsafnið komi til með að
stækka í framtíðinni og á þá bæði við
hluti og húðflúr.
Safnið Hulda Hvönn byrjaði að safna múmínhlutum árið 2010 og hefur
fengið flesta munina að gjöf. Strigaskórnir eru mjög mikið notaðir.
Sameinuð Hulda gaf sér múmín-
húðflúr í 22 ára afmælisgjöf.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Múmínsöfnurum fer fjölgandi á Ís-
landi og sinna þeir áhugamálinu af
mismiklum ákafa. Á Facebook má
finna hópinn Múmínmarkaðinn þar
sem múmínhlutir ganga kaupum og
sölum, ásamt því sem líflegar
múmínumræður eiga sér stað.
Rúmlega 3.500 manns tilheyra
hópnum og það kemur kannski ekki
á óvart að Múmínmarkaðurinn er í
uppáhaldi hjá Huldu. „Ég hélt að ég
væri með eitt myndarlegasta safn
landsins en það eru margir sem
eiga margfalt meira en ég. Það frið-
aði aðeins samviskuna hjá mér að
vita af fleiri múmínsöfnurum þarna
úti.“
Stofnandi hópsins er Berglind
Heiða Árnadóttir. „Ég stofnaði
Múmínmarkaðinn fyrir
rúmu ári. Áður hafði
ég stofnað hóp fyrir
okkur systurnar og
mágkonu sem byrjuðu
að safna bollunum
löngu á undan mér og
smituðu mig af bakt-
eríunni upphaflega.
Lýsing hópsins var
stuðningshópur fyrir
múmínfíkla,“ segir
Berglind. Þegar henni fannst
virknin ekki vera næg í hópnum
ákvað hún að stofna Múmínmark-
aðinn þar sem hægt væri að deila
áhuganum og kaupa og selja bolla
og aðrar múmínvörur. „Ég hafði
keypt flesta af eldri bollunum mín-
um á ebay og fannst góð hugmynd
að það væri hægt að skiptast á
bollum hérna heima og spara sér
þannig sendingu og tolla.“
Hópurinn hefur fengið frábær
viðbrögð og Berglind er ánægð
með að hafa skapað vettvang fyrir
fólk til að deila áhuga sínum og
ástríðu sinni á þessum skemmti-
lega skrítnu fígúrum sem Múm-
ínálfarnir eru. „Ég hef mjög gaman
af að sjá fólk í kringum mig sem
áður hristi jafnvel haus-
inn yfir þessari vit-
leysu vera farið að
safna bollum.
Þeir eru ekki
bara fallegir,
litríkir og
skemmtilegir
heldur eru þeir
líka vandaðir og
mjög gott að drekka úr
þeim.“
Múmínmarkaður
fyrir múmínsafnara
LÍFLEGAR MÚMÍNUMRÆÐUR Á FACEBOOK
Til leigu fjölbreytt atvinnuhúsnæði að Laugavegi 170
Húsnæðið skiptist í eftirfarandi: Salur á jarðhæð sem er um 430m² og getur nýst undir verslun, veitingahús
og fjölbreytta þjónustu. Skrifstofuhúsnæði á annarri hæð sem er um 220m² og inniheldur meðal annars
mötuneytiseldhús. Rýmið býður upp ámikla möguleika. Á þriðju hæð er um 417m² rými með 10-13 skrifstofum
og rúmgóðumiðrými. Nánari upplýsingar veitir Viðar Böðvarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 552 1400.
Skrifstofu- og
þjónustuhúsnæði til leigu