Morgunblaðið - 23.07.2016, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. Sími 487 5028
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur
ÞRÚÐVANGI 18 -
850 HELLU
Veitingahús
á HvolsvelliTil
sölu
Til sölu er veitingastaðurinn Gallery Pizza á Hvolsvelli. Fyrirtækið hefur verið rekið
í 25 ár og nýtur vinsælda í héraði og meðal ferðamanna. Vetingastaðurinn sem er
vel búinn tækjum, er rekinn í 214 fm húsnæði á góðum stað á Hvolsvelli, auk þess
fylgir með einbýlishús, sem staðsett er við hliðina á veitingastaðnum.
Mögulegt er að kaupa rekstur, tæki og húsnæði, eða að kaupa einungis rekstur
og tæki og leigja húsnæðið. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
Ef velja ætti fimm skák-menn úr skáksögunnisem á sinni tíð höfðu al-gera yfirburði yfir sam-
tíðarmenn sína koma margir til
greina en ég hygg að óhætt sé að
setja Magnús Carlsen á þann lista,
slíkir eru yfirburðir hans um þess-
ar mundir. Garrí Kasparov er
þarna vitaskuld líka; á 20 ára ára
tímabili, 1985-2005, trónaði hann
einn á toppi elo-listans. Síðan koma
José Raul Capablanca, Bobby Fisc-
her og Anatolí Karpov. Aðra kandí-
data má telja Emanuel Lasker sem
var yfirburðamaður í byrjun 20.
aldar, Alexander Aljekín á árunum
í kringum 1930 og Mikhail Tal eftir
einvígið við Botvinnik árið 1960.
Það vakti athygli á dögunum á
mótinu í Bilbao á Spáni að Magnús
Carlsen tapaði í fyrstu umferð fyrir
Nakamura. Norðmaðurinn hefur
unnið fjögur síðustu mót sem hann
hefur tekið þátt í og vaknaði sú
spurning hvort efsta sætið í móti,
þar sem þrjú stig eru gefin fyrir
sigur og eitt fyrir jafntefli væri í
hættu. Hann svaraði fyrir sig með
því að vinna næstu þrjár skákir og
var nálægt því að leggja Giri, sem
hann hefur aldrei unnið í kappskák,
með svörtu í fimmtu umferð. Eftir
fyrri umferð mótsins blasti sú stað-
reynd við að hrein úrslit höfðu að-
eins fengist í skákum Magnúsar;
öllum öðrum viðureignum hafði
lokið með jafntefli og staðan þessi:
1. Carlsen 10 stig – 3 ½ v. af 5. 2.
Nakamura 7 stig – 3 v. 3. Giri 5 stig
– 2 ½ v. 4.- 6. Karjakin, Wei og So 4
stig – 2 v.
Viðureignar Magnúsar við
áskorandann Sergei Karjakin í
þriðju umferð var beðið með mikilli
eftirvæntingu og Magnús brást
ekki aðdáendum sinum og vann
glæsilega. Fátt sem bendir til ann-
ars en að hann verji heimsmeist-
aratitilinn í New York í haust.
Í skákinni sem hér fer á eftir
grípur Karjakin hvað eftir annað í
tómt þegar hann er að reyna að
skapa sér færi á drottningarvæng.
Fyrirvaralaust stendur hann
frammi fyrir miklum ógnunum á
kóngsvæng, sem Carlsen hefur
undirbúið af slægð. Vinningsleik-
urinn byggist á banvænni leppun.
Bilabo 2016; 3. umferð:
Magnús Carlsen – Sergei Kar-
jakin
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. c3 Rf6 4. Be2
g6 5. O-O Bg7 6. Bb5+!?
Sérkennilegt „tempótap“ sem
gefist hefur furðu vel.
6. … Rc6 7. d4 Db6 8. Ba4 cxd4
9. cxd4 O-O 10. d5 Rb8 11. Rc3 Bg4
12. h3 Bxf3 13. Dxf3 Rbd7 14. Hb1
Hfc8 15. Bc2 Re5 16. De2 Rfd7 17.
Bg5 h6 18. Bh4 g5 19. Bg3 Da6 20.
Dd1 Hc4 21. Kh1 Hac8 22. f4 gxf4
23. Bxf4 Db6 24. Dh5 Rf6 25. Df5!
Þarna setur drottningin óþægi-
lega pressu á kóngsstöðu svarts.
25. … Dd8 26. Bb3 Hd4 27. Bxe5
dxe5 28. Hbd1 Dd7 29. Df3!
Hafnar öllum óskum um upp-
skipti og viðheldur hótuninni 30.
Hxd4 exd4 31. e5 o.s.frv.
29. … Hb4 30. Hd2 Hf8 31. g4!
Peð eru líka sóknarmenn!
31. … a5 32. Hg2 Rh7 33. h4 Hb6
34. g5 Kh8 35. Hfg1 f5?
Gerir illt verra. Eina vörnin var
fólgin í 35. … Hg6.
36. Dh3!
Banvæn leppun.
36. … Hb4 37. gxh6 Bxh6 38.
Dg3!
Hótar 39. Dg8+! og mátar.
38. … Rf6 39. Dg6 Rg4 40. Hxg4
- og Karjakin gafst upp.
Í Þýskalandi dró til tíðinda þegar
Vachier-Lagrave vann hið árlega
skákmót í Dortmund með yfirburð-
um, hlaut 5 ½ vinning af sjö mögu-
legum og varð 1 ½ vinningi fyrir of-
an næstu menn, Kramnik, Caruana
og Dominguez. Úrslitin þýða að
þessi hógværi franski stórmeistari
er nú kominn í 2. sæti heimslistans
með 2811 elo-stig.
Vachier-Lagrave –
nýr maður í 2. sæti
heimslistans
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Enn er sóknin að
Ríkisútvarpinu hert.
Það hefur lengi verið
krafa margra sem reka
fjölmiðla, einkum
þeirra sem reka ljós-
vakamiðla, að Rík-
isúrvarpið verði tekið
af auglýsingamarkaði.
Nýlega skoruðu fimm
stjórnendur einkarek-
inna ljósvakamiðla, þ.e.
Símans, 365 fjölmiðla, sjónvarps-
stöðvarinnar ÍNN, Útvarps Sögu og
miðla Hringbrautar, á stjórnvöld að
taka Ríkisútvarpið af auglýs-
ingamarkaði eigi síðar en um næstu
áramót. Jafnframt leggja þessir að-
ilar til að útvarpsgjald verði hækkað
til fyrra horfs og þannig verði tryggð
áframhaldandi starfsemi RÚV.
Greiðendur útvarpsgjalds eiga sam-
kvæmt þessari kröfu að bæta upp
það sem frá RÚV er tekið og fært
þeirra fjölmiðlum. Þetta kalla stjórn-
endurnir að gera „nauðsynlegar,
málefnalegar og tímabærar breyt-
ingar á íslenskri löggjöf til þess að
jafna samkeppnisstöðu félaga á ís-
lenskum fjölmiðlamarkaði“.
Þessi krafa fjölmiðlanna er ein-
faldlega krafa einkarekinna fjöl-
miðla um ríkisstyrk. Krafa um að
þeim verði færðar tekjur sem Rík-
isútvarpið hefur haft af auglýsingum
frá upphafi. Skattborgarar verði
látnir borga tekjutap RÚV. Þannig á
almenningur beinlínis að borga fyrir
starfsemi þessara einkareknu miðla
sem allir urðu til áratugum seinna en
RÚV. Þessi einkafyr-
irtæki hafa væntanlega
reiknað með í rekstr-
aráætlunum sínum við
stofnun að afla tekna á
auglýsingamarkaði í
samkeppni sem þau
stofnuðu til við RÚV.
Eða hafa þessi félög
alltaf reiknað með að
þeim yrðu færðar aug-
lýsingatekjur RÚV á
kostnað skattborg-
aranna?
Greiðendur útvarps-
gjalds hljóta að eiga rétt á að njóta
auglýsinga í dagskrá sinna miðla.
Stöð 2 selur dagskrá sína í áskrift og
þar eru auglýsingar hluti af dag-
skránni. Líta verður á RÚV sjón-
varp sem það sé í áskrift vegna út-
varpsgjaldsins sem þorri
landsmanna greiðir og eru auglýs-
ingar hluti dagskrárinnar.
Verði RÚV tekið af auglýs-
ingamarkaði á að sjálfsögðu að taka
Stöð 2 ásamt öðrum áskrift-
arstöðvum, ef til eru, af auglýs-
ingamarkaði. Einkareknu sjónvarps-
stöðvarnar, sem ekki selja dagskrá
sína í áskrift, sóma sér vel í fjölmið-
aflórunni og hafa staðið sig ágætlega
í að framleiða og sýna innlent efni.
En það á ekki að þýða að þegar þær
stöðvar vilja auka umfang sitt eigi
þær að ganga í tekjustofna RÚV með
þeim hætti sem stjórnendur einka-
stöðvanna leggja til og fjármagna
þannig starfsemi sína. Það sama á við
um einkareknu útvarpsstöðvarnar.
Þessir ljósvakafjölmiðlar verða að
leita annarra leiða til að auka umfang
starfsemi sinnar. Þeir eiga að sjálf-
sögðu að sýna yfirburði sína í einka-
rekstri og taka áhorfið frá RÚV með
því að sýna betra og fjölbreyttara
efni. Það væri heilbrigð samkeppni.
Auglýsendur fara þangað sem áhorf-
ið er mest. Nú er áhorf og hlustun
mest á RÚV og því væntanlega mest-
ur árangur af því að auglýsa þar.
Áskorendum ofangreindra fjölmiðla
virðist þykja það réttlátt gagnvart
auglýsendum að takmarka val þeirra
á fjölmiðlum til að birta í auglýsingar
sínar. Það er undarlegt réttlæti og
getur varla verið í anda hinnar frjálsu
samkeppni.
Það er augljóst að ef kröfur ljós-
vakamiðlanna ná fram að ganga
verður RÚV að skerða dagskrá sína
enn frekar en orðið er. RÚV hefur á
undanförnum árum látið undan síga
í starfsemi sinni vegna þess að póli-
tískir ráðamenn hafa gefið eftir og
viljað takmarka getu RÚV til dag-
skrárgerðar og því tekið hluta út-
varpsgjaldsins til annarra þarfa rík-
isins. Ljósvakamiðlar sem vissu við
stofnun þeirra að þeir yrðu í sam-
keppni við RÚV eiga að spjara sig án
ríkisstyrks en ekki ganga fyrir
tekjum sem teknar eru frá RÚV með
valdi. Að taka RÚV af auglýsinga-
markaði er eyðilegging þessarar
mikilvægu menningarstofnunar.
Verður Ríkisútvarpið
eyðilagt?
Eftir Árna
Þormóðsson » Að taka RÚV af aug-
lýsingamarkaði er
eyðilegging þessarar
mikilvægu menning-
arstofnunar.
Árni Þormóðsson
Höfundur er eldri borgari.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli-
gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.