Morgunblaðið - 23.07.2016, Qupperneq 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Leggðu þig fram um að ná jafnvægi í
lífi þínu. Talaðu við maka, viðskiptavini eða
aðra um það sem þig langar til þess að
áorka. Sjálfstraust þitt er gott um þessar
mundir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kemst að því hver stendur með þér
og hver ekki. Svartsýni er ekki til í þinni orða-
bók sem betur fer. Taktu þig nú til og bjóddu
makanum út að borða.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Lífið stillir upp hlaðborði af mögu-
leikum. Láttu það eftir þér að smakka en
gættu þess bara að fara ekki yfir strikið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sýndu börnum sérstaka aðgát því
þau læra ekki aðeins af því sem þú segir
heldur líka af því hvernig þú kemur fram við
þau. Þolinmæði þrautir vinnur allar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt margan greiðann inni og þeir eru
margir sem eru boðnir og búnir að rétta þér
hjálparhönd, ef þú bara lætur þá vita. Vilji er
allt sem þarf.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu þig ekki dreyma um að ganga á
svig við lög og reglur, þótt í litlu sé. Sannleik-
urinn er sagna bestur. Félagslífið er í blóma
hjá þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það sem þér kann að finnast skipta öllu
máli getur öðrum virst þýðingarlítið. Góðlát-
legt grín er í lagi, en gættu þess að niður-
lægja ekki neinn með gamansemi þinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Grikkir trúðu því að persónu-
töfrar væru gjöf frá guðunum. Þú hefur feng-
ið ríkulega af þeim. Búðu þig undir að dag-
urinn verði alls ekki eins og þú ætlaðir þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skoðaðu ímynd þína vandlega og
veltu því fyrir þér, hvort hún er sú, sem þú
vilt að hún sé. Skrifaðu hugsanir þínar niður
áður en þú deilir þeim með öðrum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skuld sem þú taldir þig eiga van-
goldna er nú að fullu greidd, hvort sem um er
að ræða foreldra þína, bankann eða vini.
Gættu þess að gera ekki úlfalda úr mýflugu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt gott með að fá aðra til liðs
við þig en þarft að gæta þess að ganga ekki
fram af þeim. Leggðu þitt af mörkum til að
halda friðinn á heimilinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hlustaðu á það sem hinn aðilinn hefur
að segja áður en þú tekur aðfstöðu til máls
sem hefur truflað þig lengi. Farðu varlega í
umferðinni.
Laugardagsgátan er semendranær eftir Guðmund
Arnfinnsson – „með sínu sniði og
eru skv. venju gefnar fjórar vís-
bendingar:
Höfuðból ég hugsa mér.
Hér í tímasetning felst.
Sama hvernig unnið er.
Athvarf þess sem heima dvelst.“
Þessi er lausn Árna Blöndals:
Hér til staðar strax ég leita.
Staðartími hérna velst.
Staðir menn ei stöðu breyta.
Staður athvarf heima telst.
Og síðan bætir hann við:
Ég pældi við gátu og gat ekki neitt
þó geisaði stormur í hausnum,
ef viðleitni fyrir ég fengi nú greitt
hve frábær ég væri í lausnum.
Þessi er skýring Guðmundar:
Staður heitir höfuðból.
Heima dvelst ég fyrst í stað.
Í einn stað koma tæki og tól.
Tel ég bústað vera það.
Og svo er limra:
Hún Bogga í bústað sinn
bauð honum Jobba inn,
þau dvöldu í næði
næturlangt bæði,
og nú er hann út genginn.
Og hér kemur ný gáta eftir
Guðmund:
Mörg er gátan gerð af hind
greypt í lýða sinni,
en allir sjá að engin mynd
er á gátu minni:
Á ferðalagi fékk ég það.
Fann það áðan greypt í svörð.
Sá ég skunda ský með hrað.
Skipi róið yfir fjörð.
Á Leirnum á miðvikudag sagði
Helgi Zimsen þetta „náttúrlega
umhugsunarvert“:
Skotið hæfði og heitur dreyri
hljóp úr bangsa und, það könnum.
Mátti hann ekki eins og fleiri
alast vel af ferðamönnum?
- „með bestu kveðju af Vest-
fjörðum, – Helgi (óétinn enn)“:
Páll Imsland heilsaði Leirliði í
óþurrkinum í fyrradag:
Hann er klókur en skrýtinn hann
Skúli
og skáldmæltur er víst hans túli,
en yrki ’ann að ráði
sá ótuktarsnáði,
þá yrkir hann eins og Jón Múli.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kemur í einn stað niður
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
GEISP GEEEEIISSP ÞETTA HEFUR KANNSKI VERIÐ
FYNDIÐ FYRIR ÞIG EN EKKI
SVO FYNDIÐ FYRIR MIG
ÉG SEGI „EKKI BÍÐA EFTIR HAMINGJUNNI!“
ÉG HUGSAÐI
Á SAMA
HÁTT…
ÞANGAÐ TIL ÉG VAR
SLEGINN UTAN UNDIR!!
HALTU Í
HANA OG
EKKI SLEPPA!
FARÐU OG
FINNDU HANA!
„ÞARNA ER ANDINN!“
„ERTU EINN AF ÞESSU
HRAÐLESTRARFÓLKI?“
…þegar hver dagur
er sem vor
Íslendingar hafa löngum verið stolt-ir af því að geta kallað sig bóka-
þjóð. Fyrr á öldum opnuðu þeir
varla munninn án þess út úr þeim
liðuðust dýrt kveðin ljóð. Orð voru
dýr. Nú er öldin önnur, eða það var
a.m.k. upplifun Víkverja þegar hann
renndi í fljótheitum niður Facebook.
Og þó... Inn á milli auglýsinga og
deilinga af öðrum vefjum – oftast
neikvæðum – leyndust nokkrir gull-
molar. Víkverji rakst t.d. á yndislega
færslu um gömul hús sem hann las
upp til agna þótt hún væri löng.
Einnig rakst hann á myndasyrpu
með skemmtilegum prósa um það
sem dreif á daga Davíðs hunds og
fylgdarmanns hans í göngutúrum
þeirra. Það eru færslur sem þessar
sem koma í veg fyrir að Víkverji
hætti á Facebook.
x x x
Af því að Víkverji minntist á þaðhér að framan að orð væru dýr
þá er ekki úr vegi að taka fyrir orðið
„ellilífeyrisþegi“. Það er dýrt orð – í
bókstaflegri merkingu. Þeir sem
hafa lagt fyrir peninga í lífeyrissjóð
til efri áranna mega a.m.k. þola ansi
mikil afföll af þeim fjármunum, end-
ist þeim aldur til að fá eitthvað úr
sjóðnum. Víkverji vill leggja niður
orðið „ellilífeyrisþegi“ og taka upp
orðið „lífeyriseigandi“, því sá sem
hefur lagt inn peninga í lífeyrissjóð,
jafnvel alla ævi, hlýtur að eiga þá.
Þar af leiðandi er hann lífeyriseig-
andi, rétt eins og sá sem á sparifé í
banka er sparifjáreigandi. Í orðinu
„ellilífeyrisþegi“ liggur hins vegar sá
neikvætt gildishlaðni skilningur að
verið sé að þiggja peninga, jafnvel
ölmusu.
x x x
Þessu þarf að breyta og orðið líf-eyriseigandi þarf að festast í
sessi. Þar kemur sterkur til leiks
Grái herinn, hagsmunasamtök
lífeyriseigenda. Grái herinn er, sam-
kvæmt upplýsingum á vefsíðu þeirra
og Facebook, „baráttuhópur innan
Félags eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni. Hann berst fyrir mann-
sæmandi kjörum og virðingu allra“.
Víkverji bindur vonir við það að Grái
herinn verði búinn að ryðja brautina
þegar hann sjálfur þarf að fara að
reyna að ná peningunum sínum til
baka. víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni vegu þína og treyst hon-
um, hann mun vel fyrir sjá.
(Sálm. 37:5)
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
mbl.is
alltaf - allstaðar