Morgunblaðið - 23.07.2016, Page 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Guðrún Tryggvadóttir myndlistar-
kona opnar sýningu sína Dalablóð í
Ólafsdal í dag klukkan 14:00. Á sýn-
ingunni „Dalablóð“ fjallar Guðrún
um formæður sínar í beinan kven-
legg, þær sem fæddust og bjuggu í
Dalasýslu og hinar sem fluttust suð-
ur. Samtals ellefu kynslóðir. Mark-
mið Guðrúnar er að tengjast for-
mæðrum sínum, endurskapa þær
með því að mála þær og gefa þeim
þannig möguleika á að hittast án
þess að tíminn geti skilið þær að.
Leyfa þeim að horfast í augu og
skoða hvað þær eiga sameiginlegt
og hvað jarðneskt líf snýst raun-
verulega um.
„Á undanförnum mánuðum og
árum hef ég unnið að verkum sem
fjalla um fjórðu víddina, tímann,
birtingarmynd hans, tölfræðilegar
staðreyndir í endurnýjun kynslóð-
anna og þau mynstur sem þær
framkalla,“ segir Guðrún í tilkynn-
ingu sem hún sendi frá sér fyrir
sýninguna. Þá segist hún hafa þurft
að leita leiða til að sjá tímann á nýj-
an hátt, tengja hann sjálfri sér og
þar með öllu mannkyni. Um leið er
hún að rannsaka innbyrðis tengsl
kynslóðanna, þynningu erfðameng-
isins og minningar sem við berum í
okkur frá einni kynslóð til annarrar
og hugsanleg áhrif þeirra á okkar
líf.
Afrakstur þessa tímaflakks verð-
ur að sjá í sex herbergjum á 2. hæð
skólahússins í Ólafsdal.
Samtal ellefu
kynslóða í Ólafsdal
Myndlist Listakonan Guðrún Tryggvadóttir heiðrar formæður sínar.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Hvað ef þú gætir búið til nýtt sam-
félag á lítilli eyju úti í hafi? Hverju
myndir þú halda, hverju myndir þú
henda, hvaða nýju lífshættir litu
dagsins ljós?
Þetta eru spurningar sem far-
andsendiráð Rockall spyr gesti og
gangandi í Vesturbugt við Mýrar-
götu í miðbæ Reykjavíkur en þar
hefur fimmtán manna hópur komið
sér upp aðstöðu þar sem alls kyns
samfélagslegum málum er velt upp
og fólk beðið að íhuga hvernig
samfélag það myndi vilja búa í ef
það gæti byggt það upp frá grunni.
Sendiráðið er hið fyrsta sinnar
tegundar og vísar heiti þess til
smáeyjunnar Rockall í Norður-
Atlantshafi milli Íslands og Bret-
lands en hún er með öllu óíbúðar-
hæf enda klettur. „Í sendiráðinu
erum við að skoða ýmsar fram-
tíðar-samfélagspælingar. Við vit-
um ekki hvernig maður á að stofna
nýtt samfélag og erum að reyna að
biðla til fólks að veita okkur innsýn
og þekkingu um það hvernig hægt
væri að stofna nýtt samfélag – og
um leið reynum við að hafa góð
áhrif á samfélagið í kringum okk-
ur,“ segir Árni Gunnar Eyþórsson,
sendiherra Rockall, en sendiráðið
sé í raun blanda af listrænum og
pólitískum gjörningi. Það séu þó
engar fyrirfram mótaðar hug-
myndir um hvernig nýtt samfélag
eigi að líta út – allir séu velkomnir
með sína sýn.
Halda tónleika og fyrirlestra
Sendiráðið stendur einnig fyrir
fjölda viðburða á meðan það er við
störf á Íslandi en hópurinn kom
fyrst saman í Vesturbugtinni þann
1. júlí eftir að Reykjavíkurborg út-
hlutaði þeim staðnum út sumarið.
Hópurinn sinnir verkefninu í sjálf-
boðavinnu og hafa þeir fáu styrkir
sem borist hafa farið í efniskostnað
á svæðinu. „Við erum öll í annarri
vinnu, erum rosalega ólík og algjör
hrærigrautur,“ bætir Árni við en
því séu ekki alltaf allir sammála
um allt. „Þegar við fórum með
þetta verkefni af stað vissi ég til
dæmis ekki hvort þetta yrði ein-
ræði eða lýðræði,“ segir hann létt-
ur í bragði.
Viðburðir farandsendiráðsins
hafa verið vel sóttir hingað til en
boðið hefur verið upp á tónleika,
fyrirlestra, kvikmyndaáhorf, bóka-
lestur og sköpun í vinnustofu á
svæðinu.
Í gærkvöldi voru tónleikar á
svæðinu, milli Kaffislippsins og
Bryggjunnar, þar sem hljómsveitin
Ceasetone kom fram, en áætlað er
að tónleikar verði á föstudags-
kvöldum í sumar. Þann 28. júlí er
einnig boðið upp á málstofu þar
sem Aleš Breznik fjallar um nýtt
samfélag og hvernig má læra nýjar
leiðir til að skilja og sjá heiminn í
kringum sig ásamt þeim fjölda
möguleika sem umlykja hvern og
einn. Þá hafa kvikmyndasýningar
verið afar vinsælar en í liðinni viku
fjallaði Ásgeir Brynjar Torfason,
lektor hjá Háskóla Íslands, um
myndina The Inside Job en því
næst var horft á myndina.
Hægt er að nálgast frekari upp-
lýsingar um komandi viðburði
sendiráðsins á Facebook-síðu
þess,/RockallEmbassy. Heimasíða
verkefnisins er www.rockall.is.
„Hrifin af þessu og forvitin“
„Áhuginn hefur verið frábær og
fólk er mjög áhugasamt um þetta
litla samfélag og er uppfullt af
spurningum því þetta er abstrakt
hugmynd og torskilin í byrjun,“
segir Árni en um leið og fólk leyfi
sér að vera forvitið um verkefnið
opnist á skemmtilegar pælingar.
„Það er styrkjandi samband á
milli okkar og nágrannanna – þeim
finnst gott að það sé eitthvað að
gerast sem er bæði hrátt og fal-
legt,“ segir Árni, spurður út í við-
brögð nágrannanna við komu
þeirra á svæðið. „Þau eru hrifin af
þessu og mjög forvitin.“
Aðspurður segir Árni ekkert
sérstakt endatakmark vera með
verkefninu enda sé um að ræða lif-
andi samfélag út sumarið. „Þetta
er lifandi og í þróun og ekkert tak-
mark á því hvernig þetta á að líta
út.“ Hópurinn stefnir á að færa út
kvíarnar og kynna sendiráðið fyrir
Evrópubúum „Við viljum sjá hvað
fólk getur gefið okkur úr mismun-
andi samfélögum.“
Lifandi samfélagsþróun í Vesturbugt
Farandsendiráð Rockall skoðar hvernig byggja má nýtt samfélag frá grunni Engar fastmótaðar
hugmyndir og allir velkomnir Fjölbreyttir viðburðir Mikill áhugi hjá gestum og nágrönnum
Velkominn Sendiráðið hvetur gesti og gangandi til þess að koma og ræða
saman hugmyndir um nýtt samfélag, mögulegar breytingar og fleira.
Við höfnina Farandsendiráðið hefur komið sér fyrir í Vesturbugt í sumar.
Ljósmynd/Johanna Seelemann
Fjör Mikið er um viðburði hjá sendiráðinu en boðið er bæði upp á tónleika,
fyrirlestra, kvikmyndasýningar, sköpun og lestur á bókasafninu á staðnum.
ER MYNDAVÉLIN ÍÞYNGJANDI?
Lausnir frá Peak Design auðvelda að ferðast með myndavélina hvert sem er.
EVERYDAY MESSENGER TÖSKUR FRÁ PEAK DESIGN
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is