Morgunblaðið - 23.07.2016, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það er komið fullt af fólki í fjörð-
inn, næturþokan að hverfa, komin
sól og tuttugu stiga hiti og það eru
allir svo glaðir – ótrúlega afslöpp-
uð stemmning,“ segir
Magni Ásgeirsson,
annar Bræðslustjóra,
en tónlistarhátíðin
Bræðslan í Borgar-
firði eystra fer fram í
kvöld og uppselt er á
hátíðina. Magni og
Áskell Heiðar, bróðir
hans, hafa séð um há-
tíðna frá árinu 2005
og er nú komið að
þeirri tólftu.
„Bræðslan er óeig-
inleg hátíð. Við erum
með tónleikana á
laugardaginn en svo
er þetta sambærilegt
„off-venue“-dagskránni á Airwaves
– það eru tónleikar út um allt í
vikunni á undan,“ bætir hann við
en hátíðin sé ekki skipulögð bæjar-
hátíð en í gegnum tíðina hefur hún
einfaldlega myndast. „Við erum
farnir að kalla þetta bræðsluvikuna
því það eru tónleikar í félagsheim-
ilinu frá þriðjudegi og brjáluð
stemmning,“ segir hann. Þá hafi
hinn svokallaði fimmtudags-
forleikur farið fram á fimmtudags-
kvöldið þar sem sex tónlistarmenn,
að honum meðtöldum, taka við
óskalögum af Facebook-síðu
Bræðslunnar fyrir fullum sal af
fólki. „Gríðarlega
skemmtilegt og við
reynum að spila sem
flest óskalög á sem
stystum tíma.“
Mögnuð dagskrá
Mikið er um dýrðir
á Bræðslunni í kvöld
enda dagskráin ekki
af verri endanum. Um
800 manns komast
fyrir hverju sinni í
Bræðslunni og verða
þeir ekki sviknir af
góðri skemmtun ef
eitthvað er að marka
fyrri ár.
„Við misstum okkur aðeins en
það eru sjö atriði og við ætlum ein-
mitt að setjast yfir það í hádeginu
hvernig í ósköpunum við komum
því öllu fyrir,“ segir Magni léttur í
bragði en það fari allt vel að lok-
um.
Á tónleikunum koma fram Ný-
dönsk, Amabadama, Soffía Björg,
Gavin James, David Celia, Tina
Dickow&Helgi Hrafn og KK band
en tónleikarnir standa til mið-
nættis. Þá heldur gleðin áfram í
félagsheimilinu Fjarðarborg í
Bræðslupartýinu Já sæll.
Við val á hljómsveitunum á
hverju ári er reynt að hafa eina
hljómsveit sem nýtur mikillar virð-
ingar og upphefðar á íslensku tón-
listarsviði en í ár er
það Ný dönsk. „Svo
erum við með per-
sónulega trúbadorinn
og svo er írska teng-
ingin,“ segir Magni en
í ár kemur þriðji írski
söngvarinn fram á há-
tíðinni, Gavin James,
en áður hefur til að
mynda Damien Rice
komið fram. „Síðan
höfum við yfirleitt
valið okkar uppáhalds
tónlistarmenn eða
hljóðfæraleikara.“
Ómögulegt að telja alla gesti
Það búa ekki nema 100 manns í
Borgarfirði eystra en Bræðslan
dregur að sér allt að 3.000 gesti á
hverju ári. Ómögulegt er þó að
telja gestina nákvæmlega því þeir
dreifa sér vel um bæinn. „Tjald-
stæðin fyllast og það fyllist líka
hver einasti garður og herbergi en
það er fegurðin,“ segir Magni en
líkja megi hátíðinni við ættarmót.
„Við getum alveg gefið okkur að
svona 1.000 af þessum gestum
okkar eru skyldir einhverjum í
bænum.“
Fjörðurinn fyllist
af Bræðslugestum
Ljósmynd/Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir
Ljósmynd/Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir
Ljósmynd/Ingibjörg Torfadóttir
Tónaflóð Fjöldi manns leggur leið sína í Borgarfjörð eystra til að taka þátt í
tónlistarhátíðinni Bræðslunni á hverju ári. Uppselt er á tónleikana í ár.
Fyrsti hluti ferðar geimskipsins USS Enterprise í
fimm ára verkefni, skilar áhöfninni inn á ókann-
að svæði. Þar er Enterprise nánast eyðilagt og
Kirk og áhöfnin verða strand á fjarlægri plánetu.
Metacritic 71/100
IMDb 9/10
Morgunblaðið bbbbn
Sambíóin Álfabakka 12.30, 15.00, 17.20, 17.30, 17.30, 20.00,
20.00, 22.30, 22.30, 22.40
Sambíóin Egilshöll 14.00, 16.30, 17.30, 19.00, 20.00, 22.00,
22.40
Sambíóin Kringlunni 15.30, 18.00, 20.30, 22.20, 23.00
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30
Smárabíó 14.00, 20.00, 22.10, 22.40
Star Trek Beyond 12
Fúsi
Bíó Paradís 22.00
Þrestir
Bíó Paradís 20.00
Glæný mynd um Ghostbus-
ters draugabanana sem hef-
ur verið að fá frábæra dóma
frá gagnrýnendum!
Metacritic 60/100
IMDb 5,3/10
Laugarásbíó 14.00, 17.00,
20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 15.00,
17.30, 20.00
Smárabíó 14.00, 15.20, 17.00, 17.00, 19.30, 20.00, 22.40
Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 15.50, 17.50, 20.00, 22.10
Ghostbusters 12
Ísöld: Ævintýrið
mikla Metacritic 44/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 13.50, 15.50,
17.50
Smárabíó 13.00, 13.00,
15.20, 15.20, 17.40, 17.40
Háskólabíó 15.00, 15.00,
17.30, 17.30
Sambíóin Álfabakka 13.00,
14.00, 15.20, 16.10, 17.40
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.10
Borgarbíó Akureyri 14.00,
15.50, 17.50
The Infiltrator 16
Metacritic 66/100
IMDb 7,8/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00,
22.35
Háskólabíó 15.00, 21.10
Borgarbíó Akureyri 22.10
Now You See Me 2 12
Metacritic 47/100
IMDb 7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
The BFG 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 65/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 12.30,
15.00, 17.30, 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
14.50
Sambíóin Akureyri 15.00,
17.30
Sambíóin Keflavík 17.30
The Legend of
Tarzan 12
Metacritic 43/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 18.20,
20.50, 22.30
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.10, 17.30, 20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00
Mike and Dave need
Wedding Dates 12
Foreldrar bræðranna Mike
og Dave hafa fengið nóg af
partístandi þeirra. Nú skulu
þeir finna almennilegar
dömur fyrir brúðkaup systur
þeirra í Hawaii.
Metacritic 50/100
IMDb 6.7/10
Laugarásbíó 22.25
Smárabíó 17.50, 20.10,
22.45
Borgarbíó Akureyri 20.00
Leitin að Dóru Metacritic 75/100
IMDb 9/10
Sambíóin Álfabakka 14.00,
15.30, 20.00
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20
Sambíóin Kringlunni 12.30,
13.00, 15.20, 17.40
Sambíóin Akureyri 15.00
Sambíóin Keflavík 15.10
Independence Day:
Resurgence 12
Metacritic 46/100
IMDb 7,4/10
Smárabíó 20.10, 22.25
Háskólabíó 20.00
Me Before You 12
Louisa Clark býr í litlu þorpi í
Englandi. Dag einn býðst
henni að annast ungan
mann sem lamaðist eftir
mótorhjólaslys og það á eftir
að breyta lífi þeirra beggja.
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Kringlunni 20.00
TMNT: Out of the
Shadows 12
Metacritic 40/100
IMDb 6,4/10
Sambíóin Álfabakka 13.00
The Nice Guys 16
Metacritic 70/100
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 20.00
Angry Birds Á ósnortinni eyju úti á hafi
hafast við ófleygir fuglar.
Lífið leikur við fuglana þar til
grænir grísir flytja á eyjuna.
Metacritic 49/100
IMDb 6,6/10
Smárabíó 13.00
Central
Intelligence 12
Metacritic 48/100
IMDb 7,1/10
Laugarásbíó 20.00
The Witch 16
Metacritic 83/100
IMDb 6,8/10
Morgunblaðið bbbbn
Bíó Paradís 20.00
Arabian Nights: Vol.
2: Desolate one 16
Metacritic 80/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 17.30
The assassin 12
Hin fagra og leyndardóms-
fulla Yinniang starfar sem
launmorðingi í Kína á tímum
Tang-keisaraveldisins á ní-
undu öld.
Metacritic 80/100
IMDb 6,4/100
Bíó Paradís 18.00
The Treasure Bíó Paradís 20.00
Hrútar 12
IMDb 7,4/10
Morgunblaðið bbbbm
Bíó Paradís 18.00
Love
Mynd þessi er ekki við hæfi
yngri en 18 ára.
Metacritic 51/100
IMDb 6/100
Bíó Paradís 22.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio